Morgunblaðið - 05.04.2004, Blaðsíða 40
40 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 10.10.
KRINGLAN
Sýnd kl. 8 og 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8, og 10.10. Stranglega bönnuð innan 16.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. B.i. 16.
Gamanmynd eins og þær
gerast bestar!
Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke
og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki.
Hann mun gera allt
til að verða þú!
Rafmagnaður erótískur tryllir
Stranglega
bönnuð innan
16 ára.
Án efa einn besti
spennuhrollur sem sést
hefur í bíó.
Myndin fór beint á topp-
inn í Bandaríkjunum fyrir
tveimur vikum og hefur
slegið hryllilega í gegn.
AKUREYRI
Kl. 10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8.
B.i. 16 ára
Hann mun gera allt
til að verða þú!
Hágæða spennutryllir með Angelinu
Jolie, Ethan Hawke og Kiefer
Sutherland í aðalhlutverki.
FULLT HÚS HJÁ ÖLLUM HELSTU
GAGNRÝNENDUM LANDSINS!
„Bráðfyndin“
HJ. MBL
Sýnd kl. 8 og 10.10. B.i. 16. Sýnd kl. 6, 8 og 10.
„Stórkostlegt
kvikmyndaverk“
HL. MBL
Sýnd kl.6 og 8.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.05.
Sýnd kl. 10.05.
Vann Óskarinn sem BESTA ERLENDA MYNDIN
og tilnefnd fyrir BESTA HANDRIT. Algjör perla!
Sýnd kl. 8.10. B.i. 16. Sýnd kl. 6. Kl. 5.45.
GRÍSKIR harmastraumar léku um salinn þegar leikritið Sorgin
klæðir Elektru eftir Eugene O’Neill var frumsýnt í Þjóðleikhús-
inu á föstudagskvöld. Höfundur sækir efnivið sinn að miklum
hluta í þríleik forngríska skáldsins Æskílosar, Oresteiu, en verk-
ið fjallar um hermanninn Orin, sem kemur úr bandaríska borg-
arastríðinu og kemur að fjölskyldu sinni í nokkuð breyttri og
óhugnanlegri mynd.
Leikarar sýningarinnar þóttu standa sig með prýði og upp-
skáru þeir mikinn fögnuð viðstaddra. Þá var hinni ungu Arn-
björgu Hlíf Valsdóttur einnig klappað lof í lófa fyrir að standa
vel undir þeim miklu væntingum sem til hennar voru gerðar, en
hún fór með hlutverk Laviniu, systur Orins, sem reynist mikill
örlagavaldur í leikritinu.
Eins og hefð er fyrir fögnuðu síðan aðstandendur sýning-
arinnar vel að frumsýningunni lokinni, enda vel unnið verk að
baki og vonandi fjöldi sýninga framundan.
Sorgin klæðir Elektru frumsýnd
Aðstandendum
vel fagnað
Morgunblaðið/Golli
Þau Arnbjörg Hlíf og Hilmir Snær voru í burðarhlutverkum sýningarinnar og var vel fagnað að henni lokinni.
NEMENDUR Verzlunarskóla Ís-
lands fögnuðu á föstudagskvöld sigri
skólans í spurningakeppni fram-
haldsskólanna, Gettu betur, en í ár
fór Hljóðneminn, verðlaunagripur
keppninnar, í fyrsta skipti í ellefu ár
út úr póstnúmeri 101.
„Borghyltingar eiga þó heiðurinn
af því að brjóta upp MR-veldið, en
þetta er frábær tilfinning,“ segir
Hafsteinn Viðar Hafsteinsson, einn
liðsmanna Verzló. Hann á eitt ár eft-
ir í Versló og segist örugglega munu
taka aftur þátt í keppninni að ári.
Hafsteinn hefur enn ekki ákveðið
hvað hann fer að læra þegar hann er
búinn í Verzló. „Maður ákveður það
bara þegar maður hefur nám, ég á
líka eftir að kynna mér málið. Maður
breytir frekar ört um skoðun á hvað
mann langar að læra. Eitt ár langar
mann í hagfræði og annað í lögfræði,
en þetta er allt óútreiknanlegt.“
Björn Bragi Arnarson var einnig í
vinningsliði Verzló í Morfís og var
kjörinn ræðumaður Íslands í loka-
keppninni, þegar Verzló lagði MH
með einu stigi. Hann segir þennan
tvöfalda sigur frábæra tilfinningu og
líka dálítið skrýtið. „Ég náði að gera
þetta eins vel og hægt er, þannig að
ég veit ekki hvort ég vil hætta á að
fara aftur að ári og skemma þennan
árangur, spurning hvort maður eigi
ekki að hætta á toppnum. Ég er
mjög þreyttur og búinn núna, en ég
sé til eftir árið,“ segir Björn. Hann
segir þetta álag hafa bitnað mjög á
náminu. „Ég hef ekki mætt mikið í
skólann síðan í janúar, en ég er
ágætis námsmaður, svo ég held ég
nái upp námsefninu nú fyrir prófin.“
Björn segist ekki enn hafa ákveðið
hvað hann ætlar að læra eftir
menntaskólann, en hann hafi gælt
við hugmyndir um að starfa við
frétta- og blaðamennsku.
Steinar Örn Jónsson er elstur
drengjanna og lýkur námi við Verzl-
unarskólann nú í vor. Hann stefnir á
nám í lögfræði eða heimspeki í Há-
skóla Íslands eftir útskrift. „Vonandi
hlotnast mér sá heiður að verða
stundakennari í Versló samhliða
námi, en lengra en það hef ég ekki
hugsað,“ segir Steinar. Hann er afar
ánægður með sigurinn í Gettu betur.
„Það er feikilega góð sigurtilfinning
að ná þeim markmiðum sem maður
setur sér.“
Prófin í Verzló hefjast eftir rúman
mánuð og segjast drengirnir síst
kvíða þeim, enda eru þeir allir náms-
hestar. Þeir vilja að lokum þakka
sérstaklega öllum þeim sem aðstoð-
uðu þá í vetur, liðsstjórum, þjálfur-
um og félögum.
Sigurvegarar Gettu betur hressir með úrslitin
Ekkert
bólar á
prófkvíða
Morgunblaðið/Golli
Þeir Hafsteinn Viðar, Björn Bragi
og Steinar Örn eru hinir hressustu.
HÁTT í tvö hundruð manns komu í
áheyrnarprufur í Austurbæ í gær
vegna uppsetningar á söngleiknum
Hárinu, en í ár eru tíu ár síðan
Hárið var sett upp hér á landi.
Björn Thors, einn af aðstand-
endum sýningarinnar, segir hópinn
hafa verið afar álitlegan og fjöl-
margir góðir söngvarar látið sjá sig.
„Í morgun vorum við með
áheyrnarprufur, þar sem áhugafólk
mætti og spreytti sig, á morgun
(mánudag) koma síðan atvinnuleik-
arar, dansarar og söngvarar,“ segir
Björn og bætir því við að síðdegis í
dag muni síðan fjörutíu söngvarar
sem valdir voru úr rúmlega tvö
hundruð manna hópnum koma aftur
og keppa til úrslita um stöður í kór
söngleiksins.
„Við ætlum að gera allt verkið
rokkaðra. Grundvöllurinn í verkinu
er orka, þessi ofboðslega sterka
stemning sem er í verkinu. Við ætl-
um að ná henni með orkumiklum
hóp. Þessi tónlist er flókin og krefj-
andi fyrir söngvarana og við erum
að leita að „dívum“ og kraftmiklum
karlsöngvurum,“ segir Björn. Hann
segir niðurstöðu dagsins hafa verið
afar góða, en framleiðendur sýning-
arinnar vilji ekki gefa upp frekari
smáatriði. „Það lítur þó út fyrir að
þessi sýning verði stjörnum prýdd í
alla staði. Þarna getur að líta marg-
ar af söngstjörnum framtíðarinnar.“
Tónlistarstjóri Hársins er Þor-
valdur Bjarni Þorvaldsson og leiðir
hann einvala lið tónlistarmanna.
Fyrstu inntökuprófin í Hárið
Fjörutíu efnilegir
söngvarar
komust áfram
Morgunblaðið/ÞÖK
Þessar ungu söngkonur skráðu sig til leiks og voru hinar kátustu.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sungið var af innlifun og styrk, en
aðstandendur leita nú að kraftmikl-
um söngvurum sem hafa mikið til
brunns að bera.