Vísir - 01.07.1981, Page 2
Hvernig finnst þér
Friðrik Ólafsson forseti
FIDE hafa staðið sig i
starfi?
Bjarni Sæberg, stýrimaöur: Mjög
vel, tekur skynsamlegar ákvarð-
anir og lætur ekki hafa áhrif á sig
Sigriöur Sigurbrandsdóttir, hús-
móöir: Aö minu viti hefur hann
staðið sig ágætlega.
Svandis Ingimundardóttir, teljari
i llagkaup: Mjög vel, ég get ekki
sagt annað.
Trausti Runólfsson, bilstjóri:
Ágætlega.
Bæring óiafsson, sölumaöur:
Mér finnst hann hafa staðið sig
mjög vel. Hann hefur komið
skynsamlega fram og reynt að
halda friði.
„Bes l ai ) i át a hv le rju m [ legi
r i æg ija s ii i a Ián r
//Það er nú best að láta
hverjum degi nægja sína
þjáningu/ þegar maður fer
að nálgast grafarbakkann
og vera ekki með neinar
framtíðaráætlanir"/ sagði
Steindór Steindórsson frá
Hlöðum/ í samtali við Vísi
en sem kunnugt er var
Steindór gerður að heið-
ursdoktor í verkfræði- og
raunvísindadeild á 70 ára
afmæli Háskóla islands.
,,Að undanförnu hef ég mest
unniðað þýðingum og hef nú lokið
viö bók Daniels Bruun Fortids-
minder og nutidshjem, sem er
stærsta verk hans”, sagði Stein-
dór, en með þeirri bók fylgir rit-
gerð um Bruun. Þá er komiö i
prentun hjá Menningarsjóöi stutt
æviágrip um islenska náttúru-
fræöinga frá 1600 til 1900, sem
koma mun út á fyrri hluta næsta
vetrar. Nýja útgáfan af bókinni
Landið þitt, fær einnig nokkurn
tima, að sögn Steindórs auk ævi-
sögunnar, svo nóg virðist vera að
gera, þótt hann vilji ekki viöur-
kenna neitt um framtiöaráætl-
anirnar.
Steindór Steindórsson er
fæddur 12. ágúst 1902 á Möðru-
völlum i Hörgárdal en ólst upp á
Hlöðum isömu sveit. Gagnfræöa-
skóla sótti Steindór á Akureyri og
tók stúdentsprófið utanskóla i
Reykjavik 1925. Þá lá leiðin til
Kaupmannahafnar þar sem hann
Steindór Steindórsson frá Hlööum.
stundaöi náttúrfræðinám i 5 ár,
með grasafræði að aðalgrein. Að
sögn Steindórs fór heilt ár til
ónýtis úti, er hann veiktist af
berklum. En um svipað leyti og
hann hafði lokið fyrri hluta
magistersprófsins, var nýstofn-
aður Menntaskóli á Akureyri
náttúrufræöikennaralaus.
Fyrirskipan Jónasar frá
Hriflu
„Það var eiginlega að fyrir-
skipan Jónasar frá Hriflu, að ég
tók við náttúrufræðikennslu þar.
Það var enginn annar á lausum
kili, sem kom til greina i þetta.
örfáir höföu menntun i greininni
og það var ekki af neinu aö lifa
fyrir náttúrufræðinga, nema að
geta komist að kennslu. Fyrir
mig var þvi ekki annað að gera en
taka við kennslunni, þvi ef ég
geröi það ekki mátti hamingjan
vita hvenær starf losnaði”.
Steindór var sannarlega einn af
frumherjunum i greininni þvi
Ingimar Óskarsson var varla
kominn til sögunnar þegar þetta
var að gerast.
Skólameistari varð Steindór
1966, er Þórarinn Björnsson
veiktist, en þá var Steindór settur
i hans stað. Vorið 1968 var hann
siðan skipaður...,,þangað til að ég
féll fyrir aldurssakir 1972”, sagði
Steindór.
— Ertu ekki sáttur við það?
Hæpinn hlutur að taka við
stjórn á gamalsaldri
,,Jú, þvi ekki það, þegar maður
er búinn að vinna út sinn afmælda
tima. Annars hafði ég alltaf ákaf-
lega gaman af þvi að vinna við
skólann, þótt það sé nú hæpinn
hlutur að taka við stjórn svona
stórs skóla á gamals aldri”, sagöi
Steindór.
Stærstu rit Steindórs i grasa-
fræðinni eru um hálendisgróður-
inn, tvær ritgerðir, önnur á ensku
en hin á islensku. Þá ritaði hann
,,Um aldur og uppruna islensku
flórunnar”, en það rit kom út
1962.
Bók á ensku um islenskan
mýrargróður, útgefin 1975. Yfirlit
um islensk gróðurfélög kom út i
bók er nefndist Gróður á Islandi.
Nýmæli i grasafræði kom svo
fram er bók Steindórs um aldur
og innflutning jurta, kom út en
þar var um sögulega grasafræði
aö ræða. Þá liggja kynstur af
þýddum ferðabókum um Island,
eftir hann, auk Feröahandbókar-
innar og þannig mætti vist lengi
telja. Steindór verður áttræður á
næsta ári. Eiginkona Steindórs
Kristbjörg Dúadóttir er látin fyrir
nokkrum árum. Þau áttu einn
son, Gunnar að nafni.
—AS
sandkorn
■
Önundur
frá Oiis
Mannaskipti hjá stór-
fyritækjum þykja jafnan
nokkur tiöindi. Af vett-
vangi oliumálanna heyrir
Sandkorn nú aö einn
vaskasti oliuhaukurinn,
önundur Asgeirsson hjá
Olis muni senn láta af
störfum. Ekki hefur
heyrst hver veröi eftir-
maöur hans.
•
Makar boðnir
Samband islenskra raf-
veitna hélt aöalfund sinn
um daginn á Egilsstöö-
um. Stóö sá fundur i ???
daga og svo sem ekkert
merkilegt viö þaö. Hitt er
svo önnur Eila, aö makar
fundarmanna voru einnig
boönir til Egilstaöa meö-
an á fundinum stóö og
greiddi Samband
islenskra rafveitna kostn-
aöinn viö þá för og uppi-
hald. Nú var hér á ferð-
inni dágóöur hópur,
fundarmenn um áttatiu,
og uppihald maka sjálf-
sagt litill hiuti af heiídar
raforkukostnaöi. Höfund-
ur Sandkorns man hins
vegar ekki eftir aö hafa
gefið leyti til aö hans pen-
ingar væru notaöir til
sliks brúks...
Ekkl eg.
ekkl ég
Sjónvarpsþátturinn,
sem vera átti á mánu-
dagskvöldiö um Frakk-
land féll niður vegna for-
falla Gunnars Eyþórsson-
ar, sem átti aö stjórna
þættinum. Forföll Gunn-
ars munu ekki hafa legiö
endanlega fyrir fyrr en
um kvöldmatarleytiö.
Hófst þá mikil leit aö
staögengli og var leitaö til
ögmundar Jónassonar og
Friöriks Páls Jónssonar
fréttamanna. Hvorugur
þeirra gat tekiö aö sér
stjórnina en þeir hafa
stjórnaö fréttaflutningi af
þessum málum i ríkisfjöl-
miölunum upp á siökastiö
og eru málum væntan-
lega gjörkunnugir. Ekki
þykir mönnum ósenni-
legt, aö ástæöan fyrir þvi,
aö þeir fengust ekki til
starfans hafi veriö
athugasemd Eiös Guöna-
sonar útvarpsráösmanns
en hann hefur látiö hafa
eftir sér aö umfjöllun um
Frakklandsmálin hafi
veriö nokkuö „misvis-
andi”. Þetta hafa þeir
tvimenningar ekki getaö
sætt sig við enda auövitaö
óþolandi aö útvarpsráðs-
maður sé að skipta sér af
gangi mála hjá ríkisút-
varpinu...
Hugsjóna-
giaður
æskumaður
Nýr stórhugsjónamaö-
ur hefur nú skotiö upp
kollinum. Fer þar sá
ágæti drengur Bolli Héö-
insson nýráöinn frétta-
maöur hjá Sjónvarpinu.
Bolli segir i viötali viö
Vísi um daginn, aö hann
ætii sér aö vinna aö þeirri
hugsjón sinni aö sameina
jafnaöarmenn og sam-
vinnumenn i einn stóran
krataflokk. Aö því mark-
miöi ætlar Bolli aö vinna
innan Framsóknarflokks-
ins. Svona hugsjóna-
mennsku tekur Sandkorn
ákaflega undir og fagnar
þvi aö slikir menn skuli
enn finnast meö hugsjónir
i höföi og hjarta.
Gamia luggan
Nemendur við norska
blaöamannaháskólann
hafa gefið út blaö i æf-
ingaskyni fyrir sjálfa sig.
Heitir blaðið tsland og
viröist eiga aö vera ein-
hvers konar kynning á
fósturjöröinni. Þaö vekur
hinsvegar athygli, aö þar
er tsland sérstaklega
kynnt sem varöstööin i
norðri og megináherslan
á umfjöllun um þaö efni.
Sandkorni skilst, aö
norræna ráöherranefndin
hafi veitt tilstyrk sinn að
einhverju leyti til aö þetta
blaö mætti koma fyrir al-
menningssjónir. Þykir
ýmsum sitthvaö fleira
athyglisvert viö íslands
en eilíft herstöövarmál
tuttugu manna kliku...
Heppin
landsbyggö
Nú liggja fyrir úrslit í
Sunnudagsgátunni svo-
nefndu. Þetta framtak
kórs Langholtskirkju
viröist hafa lukkast og er
þaö vel þegar svo djarft
er spilaö. En þaö er meö
þetta eins og annað, sem
þessi kór hefur tekið sér
fyrir hendur undanfarin
ár, allt er drifið áfram af
rifandi krafti og árangur-
inn hefur ekki látiö á sér
standa. En nú þegar búiö
er aö draga er höfundur
Sandkorns jafn hissa og
endranær þegar dregið er
i svona getraúnum ýmis-
lags. Einhvern veginn
viröist fólkiö úti á landi
alltaf miklu heppnara en
vesalings höfuöborgarbú-
arnir. Af þeim tólf, sem
verölaun hlutu er aðeins
einn úr Reykjavik þótt
þar búi tæplega helming-
ur landsmanna. Eru
landsbyggðarbúar
kannski miklu virkari
þátttakendur i svona
leikjum?
útvarplnutrv. . íu«aka '« naestu
ing, kunnu ringa
trygg»st ) • Feroya R'tðinga e ®
Þessi ágæta auglýsing birtist í færeyska dagblaðinu
um daginn og Ieynir húmorinn sér ekki.