Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 18
LISTIR
18 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hjá okkur getur þú treyst á áratuga reynslu og þekkingu í fasteignaviðskiptum.
Ekki fædd í gær!
Ábyrg þjónusta örugg viðskipti
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
EI
G
23
55
4
Síðumúla 21 sími 588 90 90 www.eignamidlun.is
Undir stjórn eins þekktasta leikstjórasíðustu aldar, GeorgíumannsinsRobert Sturua, kemur leikflokkurRustaveli leikhússins og efnir til
Þrettándakvölds jóla eftir Shakespeare í Þjóð-
leikhúsinu á Listahátíð í vor. Rustaveli leik-
húsið vakti heimsathygli og vann til fjölda verð-
launa á alþjóðlegum leiklistarhátíðum á tímum
Moskvuveldisins. En þótt Rustaveli leikhúsið,
sem er Þjóðleikhús þeirra í Tblisi, hafi ekki ver-
ið eins áberandi undanfarin ár vegna stjórn-
málaástandsins þar um slóðir hefur hvergi ver-
ið slegið af og enn getur að líta þaðan eitthvert
það frumlegasta úr heimsklassíkinni, eink-
anlega á sjálfum Shakespeare.
Robert Stuura (f. 1940) sem jafnframt er
leikhússtjóri Rustaveli leikhússins, er þekktur í
alþjóðlega leikhúsheiminum fyrir frumlegar
sýningar á verkum Shakespeares, Tsékofs og
Millers og hefur m.a. sett upp víðfrægar leik-
sýningar í London og líklega er þekktust sýn-
ing hans á Þremur systrum með Redgrave-
systrum en þar var Vanessa Redgrave í far-
arbroddi.
Sýningin á Þrettándakvöldi hefur farið víða
um heim frá því hún var frumsýnd fyrir all-
mörgum árum. Árið 1996 tók Sturua hana til
endurvinnslu og má segja að hér sé á ferðinni
ný sýning byggð á eldri grunni. Sýningin er
mannmörg því henni fylgir 35 manna hópur
listamanna og auk þess ætlar leikstjórinn að
heiðra Íslendinga með nærveru sinni. Þrett-
ándakvöldi jóla hefur verið lýst sem einstakri
upplifun þar sem engu sé líkara en jörðin opnist
og sýni iður sín. Sannkölluð veisla fyrir augu og
eyru og enginn ætti að setja það fyrir sig þó
hann skilji ekki georgísku; það gerir ekkert til.
En sýningin verður með íslenskum texta á
skjá þannig að bæði leikmenn sem sérfræð-
ingar geti nú rýnt í hvernig Sturua hefur með-
höndlað Shakespearetextann.
Sýningarnar verða tvær og eru í samvinnu
við Þjóðleikhúsið.
Líkamar Söshu Walz
Körper (Líkamar) verður að teljast einn at-
hyglisverðasti viðburðurinn á Listahátíð í
Reykjavík 2004. Um er að ræða víðfræga sýn-
ingu Söshu Waltz, en hún er einn fjögurra leik-
hússtjóra Schaubühne leikhússins í Berlín,
leikhúss sem gjarnan er nefnt mekka leiklistar
í heiminum í dag.
Beitt er ýmsum brellum og sjónhverfingum á
sviðinu og ekki spillir að sýningunni fylgir
stærsta leikmynd sem nokkru sinni hefur verið
flutt til landsins og kemur hún í alls fjórum
gámum sjóleiðis.
Fjórtán sólódansarar taka þátt í sýningu
Söshu Waltz, sem talin er arftaki drottningar
hins evrópska dansleikhúss, Pinu Baush, og er
um Norðurlandafrumsýningu á Körper að
ræða.
Körper vakti mikið umtal og fékk glæsilega
dóma á Edinborgarhátíðinni 2002 og er ein
þeirra sýninga sem menn hafa ekki hætt að tala
um síðan þá enda bæði ögrandi og áhrifamikil;
sambland af leikhúsi, dansi, myndlist og jafnvel
arkitektúr. Körper er að auki uppfull af húmor
og uppátækjum en undirtónninn er geysialvar-
legur þar sem hann byggist á þeim áhrifum
sem Sasha varð fyrir þegar hún skoðaði Gyð-
ingasafnið í Berlín. Einhvers konar óður til lík-
amans þar sem frábærir dansarar skapa
„himnaríki nektarinnar, miðaldahelvíti Brueg-
els; myndheim líkamans í listum, sálfræði,
læknisfræði, íþróttum, ást, samfélagi, ofbeldi,
trúarbrögðum.“
Ef þú ert einhvern tímann nógu heppinn að
sjá þessa sýningu þá þarftu örugglega að klípa
þig í handlegginn til að fullvissa þig um að upp-
lifunin sé raunveruleg en ekki bara undarlegur
draumur.“ Hljómar sannarlega spennandi.
Sasha Waltz er fædd og uppalin í Karlsruhe í
Þýskalandi. Eftir nám og störf í New York
snéri hún aftur til Þýskalands og stofnaði sitt
eigið leikhús, Sophiensaele, árið 1996. Þar vakti
hún strax mikla athygli og árið 1999 var henni
boðin staða leikhússtjóra Schaubühne leikhúss-
ins við hlið Thomas Östermeier.
Körper verður sýnt á stóra sviði Borgarleik-
hússins og er heimsóknin í samvinnu við Leik-
félag Reykjavíkur. Sýningarnar verða 21. maí
kl. 20 og 22. maí kl. 14.
Dansleikhús frá Japan
Hibiki er heitið á framúrskarandi og óvenju-
legri danssýningu sex krúnurakaðra japanskra
karlmanna sem hafa fínlegri hreyfingar en flest
kvenfólk. Sýning Sankai Juku-hópsins undir
stjórn Ushio Amagatsu, sem jafnframt er aðal-
dansari hópsins, hefur farið sigurför um heim-
inn og hlaut árið 2002 Sir Laurence Olivier-
verðlaunin í London sem besta nýja danssýn-
ingin.
Sankai Juku er langþekktasti sviðslistahópur
Japans í dag og nýtur styrkja frá japanska rík-
inu á ferðum sínum um heiminn.
Hreyfingar Japananna eru fáu líkar en sumir
hafa reynt að skilgreina þær einhversstaðar
mitt á milli Tae Kwon Do og balletts og aðrir
ganga lengra og telja Matrix-galdurinn;
„byssukúluhreyfingarnar“, þaðan sprottinn.
Hin ljóðræna og fágaða aðferð danshópsins
byggist á hinni japönsku Buto-danshefð, en
undirtónn sýningarinnar er alvarlegur því hér
er fjallað um arfleifð Hiroshima-hörmunganna.
Hinn forni dansstíll hefur með tímanum bland-
ast evrópskri leikhúshefð í tónlist, ljósanotkun
og fleiru og útkoman er magnaður dans sem
hefur djúp áhrif á fólk.
Sankai Juku-félagar koma við á Listahátíð í
Reykjavík í vor á ferð sinni um Evrópu þar sem
þeir sýna listir sínar í öllum helstu leikhús-
unum. Með þeim í för verða „risavaxnar gler-
linsur í leikmyndina og nokkur tonn af hvítum
sandi“, en þessar mögnuðu glerlinsur fyllast
vatni í sýningunni sem vísar til kjarnorku-
sprengjunnar.
Sýningar á Hibiki verða í Þjóðleikhúsinu
miðvikudaginn 19. maí og fimmtudaginn 20.
maí.
Veröldin er
leiksvið
Þrjár sýningar heimsþekktra leik- og danshópa eru meðal
þess sem listþyrstum býðst á Listahátíð í vor. Þrettándakvöld
frá Georgíu, Líkamar frá Þýskalandi og Hibiki frá Japan.
Þrettándakvöld frá Þjóðleikhúsinu í Georgíu.
Sankai Juku hópurinn frá Japan sýnir Hibiki.
Líkamar eftir Söshu Walsh frá Schaubühne.