Morgunblaðið - 05.04.2004, Qupperneq 21
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 21
www.lyfja.is
Skrefi framar
Sokkar, sokkabuxur, undirföt
www.sokkar.is
Sumarvörurnar
komnar
OROBLU ráðgjafi verður
í dag kl. 14-18
í Lyfju Setbergi og Lágmúla.
Á morgun kl. 14-18
í Lyfju Smáratorgi.
Sokkabuxur fylgja
öllum Oroblu vörum
sem kaupauki.
FRamtíDaRBóK-
www.kbbanki.is
Draumur fermingarbarnsins getur or›i› a› veruleika me› a›sto› Framtí›arbókar.
Me› flví a› ávaxta fermingarpeningana á Framtí›arbók er lag›ur grunnur a› flví a› stórir draumar
geti or›i› a› veruleika í framtí›inni. Gjafakort fyrir Framtí›arbókina fást í öllum útibúum KB banka.
Láttu draumana rætast!
ÉG Á MÉR
DRAUM
Ver›trygg›ur sparireikningur, sem ber 6% vexti.
Innstæ›an ver›ur laus til úttektar vi› 18 ára aldur.
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
•
1
1
8
4
5
•
s
ia
.i
s
EINS og titillinn bendir til er til-
efni þessa pistils ekki mjög ánægju-
legt. „Háskólinn vill
skólagjöld“ var for-
síðufyrirsögn Frétta-
blaðsins um daginn, en
þá var ég að vísu búinn
að fá senda beiðni um
að skrifa undir mót-
mæli gegn fyrirhug-
uðum skólagjöldum
við Háskóla Íslands.
Staðan er nefnilega
þannig (ef einhver veit
það ekki) að fyrir Há-
skólafundi liggur til-
laga um að lögð sé inn
beiðni til mennta-
málaráðherra um að lögum verði
breytt þannig að Háskóli Íslands fái
að taka skólagjöld af nemendum
sínum. Satt best að segja er ég svo
reiður og sár yfir þessu að ég hef
ekki geta hugsað mér að skrifa neitt
um þetta fyrr en núna og er ekki
einu sinni viss um að það komi neitt
annað en samhengislaust rugl upp
úr mér! En ég verð að reyna.
Það telja nefnilega flestir að til-
lagan verði samþykkt. Það er líka
ekki mjög líklegt að spútnik-
þingmaður (Fréttablaðið) Sjálf-
stæðisflokksins og hæstvirtur
menntamálaráðherra setji sig á
móti lagabreytingu. Og hver ætli
setji sig á móti vilja Háskólans, vilja
menntamálaráðherra og án efa vilja
Sjálfstæðisflokksins?
Loksins, loksins segja sumir og
fréttin um félag háskólanema með
skólagjöldum var línunni fyrir ofan
frétt um mótmæli Stúdentaráðs á
mbl.is, þetta er tímanna tákn, þetta
er gert í fjölmörgum löndum.
Af hverju er ég þá svona reiður
og af hverju svona sár? Ég er sár,
því það hefur alltaf verið Háskólinn
sem ég var stoltur af. Íslendingum
er sagt að þeir eigi að vera stoltir af
því að vera Íslendingar, stoltir af
landi, stoltir af þjóð. En af hverju
erum við stolt? Erum við stolt af
bókmenntaarfinum, tungunni, harð-
gerðu fólki sem býr á mörkum hins
byggilega heims? Ekki
ég. Bókmenntahefðin
er bundin við Íslend-
ingasögurnar, Íslend-
ingar í dag kaupa bæk-
ur sem skraut, fallega
kili í fallegum hillum
og þeir búa ekki á
hjara veraldar. Þeir
búa klukkutímaakstur
frá öllu, í malbiki og
upphitaðri steinsteypu.
Þeir lifa á fiski sem
þeir sjá aldrei og hafa
flestir aldrei farið
lengra út á land en til
Hveragerðis eða að Gullfossi og
Geysi. Og hver er svo sem stoltur af
tungumáli?
Nei, ég var stoltur af Háskóla Ís-
lands. Menntastofnun sem allir Ís-
lendingar höfðu jafnan aðgang að,
óháð stétt og stöðu. Stofnun sem
sett var á fót af vanefnum til að
sýna að við værum þjóð meðal
þjóða, þyrftum ekki að sækja
menntun út fyrir landsteinana, vær-
um sjálfum okkur nóg í því sem máli
skiptir, værum tilbúin að leggja allt
undir til að skapa framsýna þjóð og
menntaða þjóð. Og Háskóli Íslands
reis frá grunni og hann var stolt
þjóðarinnar og hann var stolt mitt.
En nú er öldin önnur og í dag er
eina þekkingin sem skiptir máli
þekking á því hvernig græða má
peninga. Og það er þess vegna sem
ég er reiður. Þekking er ekki eitt-
hvað sem á að varðveita í fílabeins-
turnum. Hún á að vera öllum að-
gengileg; hún á að þjóna öllum, ekki
bara þeim sem hafa efni á því að
kaupa hana. Aðeins þá geta vísindin
blómstrað og þróast.
Einokun á þekkingu er hins veg-
ar besta leiðin til valda og besta
leiðin til að viðhalda valdaskiptingu,
búa til yfirstétt. Er það ekki líka yf-
irstétt sem allir vilja? Þá þarf mað-
ur ekki að hugsa, ekki hafa skoðun.
Ef illa gengur er það yfirboð-
aranum að kenna en það er ekkert
hægt að gera í því, sem er einfald-
ast.
Að lokum er þetta mín jafnrétt-
isbarátta: Ég er Rauðsokka, ég er
Martin Luther King, ég er Gandi og
ég er Marx. En það á enginn eftir
að hlusta á mig, því ég er líka Einar,
ekki trúarleiðtogi, ekki bylting-
arleiðtogi, heldur einstaklingur í
minnihlutahópi, hópi sem virðist
slétt sama, þó mér sé það ekki.
En það er ekki öllum sama. Þriðj-
ungur nemenda við Háskólann
skrifaði undir mótmæli gegn skóla-
gjöldum og fjölmargir mættu fyrir
framan Háskólann þegar Háskóla-
fundur ákvað að fresta því um sinn
að álykta um hugsanleg skólagjöld.
Við verðum líka að mótmæla og láta
í okkur heyra en standa ekki hjá
þegjandi þegar jafnrétti til náms er
krossfest til að þýðast markaðsöflin.
Þetta á við alla sem er annt um jafn-
rétti og alla sem er annt um Háskól-
ann, því skólagjöld eru ekki til þess
fallin að bæta gæði menntunarinnar
– bara útlit bygginganna.
Skólagjöld
Einar Örn Ólason skrifar
um skólamál ’Við verðum líka aðmótmæla og láta í okkur
heyra en standa ekki
hjá þegjandi …‘
Einar Örn Ólason
Höfundur er eðlisfræðingur í fram-
haldsnámi í veður- og haffræði.
Vöggusæn
gur
vöggusett
PÓSTSENDUM
Skólavörðustíg 21 sími 551 4050 Reykjavík
Klapparstíg 44
Sími 562 3614
Páskaeggjamót
Verð 495 og 895 • 5 stærðir
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið