Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 27

Morgunblaðið - 05.04.2004, Síða 27
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 27 Minningarkort Minningar- og styrktarsjóðs hjartasjúklinga Sími 552 5744 Gíró- og kreditkortaþjónusta LANDSSAMTÖK HJARTASJÚKLINGA A u g l. Þ ó rh . 1 2 7 0 .9 7 Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is barnæsku minni þegar ég bjó á Rauðalæknum. Foreldrar mínir bjuggu beint á móti Gullu og Ragn- ari og samgangurinn var mikill. Yngsti sonur hennar Pétur var árinu yngri en ég og urðum við æskuvinir og leikfélagar. Það var eitthvað svo gott við Gullu sem gerði það að verkum að strax á unga aldri sótti ég í félagsskap hennar. Síðan liðu árin og Gulla fylgdist með mér úr fjarlægð í gegn- um unglingsárin. Eiginlegur vin- skapur okkar þróaðist síðar, eftir að hún missti Pétur af slysförum. Góð- ar stundir á Rauðalæknum, í Hvassaleiti og síðar í Eiðismýri eru mér ógleymanlegar. Alltaf tók hún á móti mér með bros á vör og mikilli hlýju. Það var alltaf jafngaman að setjast niður með henni og spjalla. Hvað við gátum hlegið út í eitt, ræddum fjölskyldur okkar, barna- börn Gullu, íþróttir og allt milli him- ins og jarðar. Við áttum yndislega stund saman fyrir nokkrum árum þegar ég sagði henni að nú væri ég búin að finna þann eina rétta. Ég ætlaði aldrei að geta hætt að tala um nýja kærast- ann en Gulla sat, hlustaði, brosti og leyfði mér að láta dæluna ganga, en hún samgladdist mér eins og henni einni var lagið. Í haust þegar Gulla mætti í brúðkaupið mitt þótti mér svo vænt um að sjá hana og hvað hún skemmti sér vel á þessum eft- irminnilega degi. Þessar minningar mun ég geyma og varðveita í hjarta mínu. Ég stoppaði stutt hjá Gullu í lok nóvember og datt ekki í hug að þetta yrði í síðasta sinn sem við myndum hittast – sagðist ætla að koma seinna þegar ég hefði betri tíma, en enginn veit hvað framtíðin ber í skauti sér. Gullu er sárt saknað meðal fjöl- skyldu og vina. Sorg hennar við að missa Pétur var mikil en ég veit að nú hefur hún hitt Pétur sinn á kyrr- látum og björtum stað. Elsku Ragnar, synir og fjölskyld- ur. Ég og fjölskyldan sendum ykkur innilegar samúðarkveðjur og biðjum Guð um að styrkja ykkur á erfiðum tímum. Blessuð sé minning um góða vin- konu. Ingunn Bernótusdóttir. Kæra vinkona. Við kynntumst fyrir 56 árum er eiginmenn okkar voru báðir stýri- menn á Goðafossi og við báðar barnshafandi. Við fundum strax að við áttum margt sameiginlegt og frá þeirri stundu vorum við góðar vin- konur. Síðar áttum við saman mörg góð ár sem nágrannar á Rauðalækn- um. Þú varst dökk yfirlitum, falleg og glæsileg kona og alltaf var ánægjulegt að vera í kringum þig. Það er mér mikilsvirði að hafa átt þig sem trygga vinkonu í öll þessi ár svo aldrei bar skugga á vináttu okk- ar. Við hittumst nokkrum dögum fyr- ir andlát þitt og hlátur þinn ómar enn í huga mér – þú lifir í minningu okkar. Þú varst mikil gæfukona í lífinu. Þið Ragnar elskuðuð hvort annað og virtuð og stóðuð saman í gleði og í sorg. Þið eignuðust 4 yndislega syni, en urðuð fyrir þeirri miklu sorg að missa yngsta son ykkar í bílslysi fyr- ir nokkrum árum. Elsku vinkona, við Gunnar þökk- um fyrir að hafa fengið að vera í lífi þínu og fengið að njóta vináttu þinn- ar og fjölskyldu þinnar. Það er okk- ur ómetanlegt. Elsku Ragnar og fjölskylda, við Gunnar sendum ykkur okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ykkar missir er mikill, en minningin um góða eig- inkonu, móður og vinkonu lifir. Ég þakka þau ár sem ég átti, þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Takk fyrir samfylgdina. Guð blessi minningu þína. Helga. Ástkær móðir okkar, HELGA JÓNSDÓTTIR, Kjalardal, verður jarðsungin frá Akraneskirkju miðviku- daginn 7. apríl kl. 14.00. Börn og fjölskyldur þeirra. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐRÍÐUR JÓHANNA JÓHANNSDÓTTIR Hraunbergi, Hafnarfirði, sem andaðist á Hrafnistu í Hafnarfirði föstu- daginn 26. mars verður jarðsungin í Hafnar- fjarðarkirkju þriðjudaginn 6. apríl kl. 15.00. Sveinn Rúnar Björnsson, Dýrleif Pétursdóttir, Jóhann Reynir Björnsson, Ása Haraldsdóttir, Guðrún Erna Björnsdóttir, Björn Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HELGA ELÍSDÓTTIR frá Gilsbakka, Hellissandi, er látin. Útför hennar verður gerð frá Ingjaldshólskirkju miðvikudaginn 7. apríl kl 14:00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Slysavarnadeildina Björgu og dvalarheimilið Jaðar. Kristín Jóna Kristjónsdóttir, Jón Ingi Sigursteinsson, Grétar Hreiðar Kristjónsson, Guðný Sigfúsdóttir, Vilborg Elín Kristjónsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Nikulás og þáver- andi eiginkona hans, Jóhanna Þórarinsdótt- ir, hófu búskap sinn í Sviðnum með foreldrum Nikulásar og bjuggu þau þar þar til íbúðar- húsið í Sviðnum brann. Fluttust þau þá til Reykjavíkur, en ekki voru allir sáttir við að yfirgefa eyj- arnar og var farið út í þær stór- framkvæmdir eftir 2 ára veru í höf- uðstaðnum, að kaupa Svefneyjarnar og hefja búskap að nýju. Nilli hafði lokið búfræðiprófi frá Hvanneyri og notaði hann þá menntun vel við búskapinn. Svo kom að því að það voru teknar ákvarðanir um að bregða búi og halda út í heim og varð Svíþjóð fyr- ir valinu. Þar bjó fjölskyldan þar til Nilli fór á eftirlaun og nokkru seinna greindist hann með þennan erfiða sjúkdóm sem varð honum að aldurtila. En enginn veit fyrr en ævi er öll. Ég og fjölskyldan mín viljum þakka þér og fjölskyldu þinni fyrir samverustundina sem við áttum saman á ættarmótinu síð- asta. Ég vil þakka þér, Nilli minn, Lillý og börnunum fyrir þann góða tíma sem við áttum saman, þegar þið hóuðuð borgarbörnunum sem voru í sveit í eyjunum saman út í Sviðnur í hávaðaroki og rigningu, en tíminn var fljótur að líða, þar sem við skoðuðum gamlar myndir og skiptumst á endurminningum frá eyjalífinu. Þetta var góður tími. Þegar ég horfi til baka er margs að minnast. Þær stundir sem ég var í sveit hjá foreldrum þínum kenndir þú mér mörg góð hand- brögð og lífsviðhorf. Þar voru góðir og fornir búskaparhættir, allt var slegið með orfi og ljá. Þar þurfti að bera allt hey úr úteyjum í bátana og sigla með heim í Sviðnur. Þar þurfti að fara með allt fé á bátum milli eyja og upp á land. Þetta styrkti okkur ungdóminn. Nilli minn, tíminn er floginn frá okkur. Ég kveð hér góðan dreng, félaga og vin. Og samhryggist öll- um ástvinum Nikulásar. Guð verði með ykkur í sorginni. Eggert Ólafsson og fjölskylda. Ég kynntist Nikulási Jenssyni þegar ég var ellefu ára gamall og fór í sveit til fjölskyldu hans og föð- ur hans í Svefneyjum á Breiðafirði. Sú vist varð alls fimm sumur. Fimm dýrleg sumur sem lifa sterk í minningunni. Allt lagðist á eitt. Einstök vel- vild, umburðarlyndi og lífsgleði húsbændanna. Óviðjafnanleg nátt- úrufegurðin og fjölbreytni eyjalífs- ins. Ég skynjaði strax þau miklu forréttindi sem þessi vist fól í sér. Nikulás er einn best gerði maður NIKULÁS K.A. JENSSON ✝ Nikulás KlásenAndrés Jensson fæddist í Sviðnum á Breiðafirði 18. apríl 1935. Hann lést á heimili sínu í Reykja- vík fimmtudaginn 11. mars síðastliðinn og var útför hans gerð frá Flateyjar- kirkju á Breiðafirði 20. mars. sem ég hefi kynnst á ævinni. Glaðlyndið var einstakt. Það var jafn- an stutt í bros og hlát- ur. Hann var einnig víðsýnn, rökfastur og gæddur ríkri heil- brigðri skynsemi. Ná- vist við hann var lær- dómsríkur gleðigjafi. Heiðarleiki og réttsýni voru ríkir þættir í fari hans. Ég minnist sigling- anna sem við fórum í saman á milli eyjanna á Breiðafirði þar sem gott tóm gafst til að spjalla um heima og geima. Fátt situr sterkar í minningunni. Fegurð fjarðarins og ánægjan af samvistum við Nikulás. Á þeim tíma sem ég dvaldi í Svefneyjum var mikill uppgangs- tími. Það var bæði skemmtilegt og spennandi að upplifa það þegar Nikulás stóð fyrir því að fá fyrstu traktorsgröfuna sem kom til lands- ins til að ræsa fram mýrarima á heimaeyjunni. Framfaraandinn var smitandi. Og ég ellefu ára gamall strákurinn af mölinni fékk að taka þátt í ævintýrinu. Mér er sérstaklega minnisstætt þegar ég var að komast í þá heldri manna tölu að fá að keyra traktor- inn og vinna með honum bústörf. Undirbúningurinn undir þessa manndómsraun var ekkert fúsk. Í nokkrar vikur lét Nikulás mig lesa þá miklu bók „Búvélar og ræktun“ eftir Árna G. Eylands. Í hádeginu hvern dag hlýddi hann mér síðan yfir fræðin. Þá loks, þegar ég hafði staðist prófun, fékk ég að taka af alvöru til við búverkin með trakt- ornum. Þeirri hugsun hefur oft síð- ar skotið upp hjá mér að þetta hafi verið mun fagmannlegra uppeldi á verðandi traktorsstjóra á tánings- aldri en tíðkast hafi á þeim tíma. Ég geymi þetta dæmi í minning- unni sem vitnisburð um þá fag- mennsku og skynsemi sem ein- kenndi Nikulás. Nú er Nikulás allur. Hann lést fyrir aldur fram. Hann er harm- dauði öllum þeim sem þekktu hann. Hann var jarðsunginn á fögrum degi sem hæfir minningu þessa ágæta manns. Ég votta eftirlifandi konu hans og fjölskyldu mína inni- legustu samúð. Blessuð sé minning hans. Jón Erlendsson. Látinn er Kjartan Tryggvason í Víðikeri, næsti nágranni og samstarfsmaður heima í Bárðardal í marga áratugi. Margs er að minnast, fyrst þeg- ar ég fór að heiman var það á far- skóla í Víðikeri en Kári bróðir hans var kennari í sveitinni. Þrír bræður bjuggu í Víðikeri, í einu og sama húsinu, Kári og Kjartan með sínar fjölskyldur og Egill með móður þeirra. Óhjákvæmilega höfðu fleiri en kennarinn áhrif á nemendurna. Kjartan var mjög glettinn og átti mikinn orðaforða, sem hann kryddaði frásögn sína með. Hann var víðlesinn og fróður. Margar notalegar stundir átti ég við eld- húsborðið á heimili hans, naut þar velvildar og hlýju. Hann var mjög fjölvirkur, vann mikið utan heimilis við byggingar hjá sveitungum sínum, meðan búið var lítið og réð við flest verk. Faðir Kjartans, Tryggvi Guðna- son, var fylgdarmaður ferðamanna um Ódáðahraun, synirnir komust ungir í snertingu við seiðmátt öræfanna. Það var naumast tilvilj- un að fimm þeirra áttu sinn starfs- vettvang við jaðar hraunsins. KJARTAN TRYGGVASON ✝ KjartanTryggvason fæddist í Víðikeri í Bárðardal í S-Þing- eyjarsýslu 16. apríl 1918. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 13. febr- úar síðastliðinn og var útför hans gerð frá Lundarbrekku- kirkju 21. febrúar. Kjartan var útivist- ar- og veiðimaður. Hann átti unaðsstund- ir við silungsveiðar í Svartá. Kjartan átti gott fjárbú, og var útsjón- arsamur við að kyn- bæta hjörðina, þótt hann þættist ekkert vit hafa á kindum. Gaman var að fylgj- ast með svipbrigðun- um þegar hann hlust- aði á fyrirlestra um búskap. Hann nýtti sér það sem hann áleit að bætti sinn hag en lét hitt eiga sig. Mikill samgangur er milli bæj- anna Bjarnarstaða og Víðikers, beitilönd liggja saman og þurfti að skipuleggja smalamennskur sam- eiginlega og jafnan að draga sund- ur að lokinni smölun. Lengi var þrengra í högum heima og sótti okkar fé mikið í Víðiker. Skilarétt er í Víðikeri fyrir fé af Fram-afrétt Austur-Bárðdæla. Víðikersmenn sáu um viðhald á réttinni og veittu réttarkaffi af rausnarskap. Mörg voru verkefnin sem taka þurfti á sameiginlega í dalnum okkar, að fá samveiturafmagn, sjálfvirkan síma, sjónvarp, öflugri skóla, betri vegi o.fl. Alltaf stóð Kjartan Tryggvason heill að baki þeim sem fóru fyrir. Systkinin frá Rauðafelli minnast góðs granna og þakka samfylgd- ina. Ég bið góðan guð að blessa minningu Kjartans í Víðikeri og vernda ástvini hans. Egill Gústafsson frá Rauðafelli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.