Vísir - 09.07.1981, Page 9
Fimmíudagur 9. júli 1981
VÍSIR
Þetta er
ágætis
ferðaskip
- segir Jon R.
Eyjólfsson skipstjóri
á Herjólfi
„Þetta er alveg ágætis ferða-
skip, sem fer vel með alla”
sagði Jón R. Eyjólfsson skip-
stjóri á Herjólfi, en hann hefur
verið skipstjóri á ferjunni siðan
hún kom til landsins og hóf ferð-
ir sinar 1976. „Skipið er mjúkt
og stöðugt og velturnar hægar
og rólegar,” sagði Jón.
Jón nefndi hina miklu aukn-
ingu i flutningum fólks og vöru
með skipinu og minntist hann á
þær miklu breytingar sem áttu
sér stað þegar nýi Herjólfur tók
við af þeim gamla. Hann sagði
að telja mætti nýja Herjólf
fyrstu bilaferjuna á Islandi, þvi
hægt væri að aka um borð i
hana.
Blaðamaður spurði Jón
hvernig það væri að vera skip-
stjóri á Herjólfi og hvort eitt-
hvað sérstakt hefði komið upp á
á þessu fimm ára timabili.
„Það er skinandi gott fyrir
gamlan sjóþjark, eins og mig,
sem verið hefur i' langsiglingum
siðan á unglingsárum að daga
uppi hér. Ég get verið i sam-
bandi við fjölskyldu mina,
reglulegur vinnutimi og gott
starfsfólk þannig að mér likar
starfið mjög vel.”
í sambandi við það hvort eitt-
hvað hafi komið upp á þá hefur
þetta verið frekar tiðindalitið.
Allar ferðir hafa gengið vel og
varla nokkur fallið úr. Eðlilega
hefur skipið nokkrum sinnum
verið tekið i slipp, vegna upp-
lyftingar og vegna galla sem
komið hafa fram á þvi en þvi
verður kippt i lag i haust er
skiptverðurum skrúfu. Tvisvar
i vetur féllu niður ferðir vegna
ófærðar á Hellisheiði og einu
sinni þurfti að taka land i
Reykjavik sökum sjógangs i
Þorlákshöfn. Innsiglingin þar er
nokkuð þröng og erfitt að kom-
ast inn i hana i SA-átt, sérstak-
lega þegar margir bátar eru
fyrir. Einnig vantar haus á
Norðurgarðinn, og i þessum
efnum gæti aðstaða fyrir ferj-
una verið betri” sagði Jón R.
Eyjólfsson skipstjóri á Herjólfi.
— HPH
Herjólfur i höfn i Vestmannaeyjum eftir sina 1656. ferö milli iands og Eyja. A afmælisdeginum, 4. júli, voru fimm ár liðin siöan skipiö iór
sina fyrstu ferð, og i tilefni af þvi.til kynningar á ferðum skipsins og Vestmannaeyjum, hefur veriö gefinn út iitprentaöur og mvndskrevttur
bæklmgur a ísiensku. Síðar mun hann einnig koma út á ensku. J
Heffur flutt ytip tvð
hundruð húsund farhega
Herjólfur á að tiiheyra hjóðvegakerfinu’
segir Tryggvl Jónasson stjðrnarformaður
Ferjan Herjólfur hóf
áætlunarferðir sinar
milli lands og Eyja fyr-
ir fimm árum og fór
sina 1656. ferð á afmæl-
isdegi sinum, á laugar-
daginn var, 4. júli. Á
þessu fimm ára tima-
bili hefur ferjan flutt
liðlega 204.000 farþega
og um 41.000 bíla.
„Það hefur verið mikil aukn-
ing i farþegafjölda, sem sést
best á þvi að á þvi timabili sem
skipið sigldi 1976 ílutti það um
21.000 farþega en á sama tima i
fyrra um 45.000 íarþega. Þetta
er yfir 100% aukning” sagði
Tryggvi Jónasson stjórnarfor-
maður Herjólfs hf. á blaða-
A leiö til lands var sól og bliöa og farþegar notuöu tækifæriö, lögöu sig á þilfariö og sieiktu sóiskiniö.
Jón R. Eyjólfsson glaöhlakka-
legur viö stjórnvöl i brúnni. Jón
hefur verið skipstjóri á nýja
Herjólfi siðan hann kom til
landsins 1976.
t afmælisveisiunni um borö. Fremst vinstra megin
situr Tryggvi Jónasson stjórnarformaöur Herjólfs
hf. og við gluggann grillir i Jón skipstjóra.
Jón R. Eyjólfsson skipstjóri ásamt ungum farþega
sem fékk aö vera með á myndinni. Eins og sjá má
er sléttur sjór, en aö sögn Jóns tekur skipiö mjög vel
á sig hin verstu veður.
mannafundi sem haldinn var i
Vestmannaeyjum i tilefni dag-
sins. „Einnig hefur gifurleg
aukning orðið á vörufiutningum
með Herjólfi og nú er svo komið
að skipið verður að teljast of lit-
ið” sagði Tryggvi.
Tryggvi sagði ennfremur að
þráttfyrir þessa aukningu hefði
ferjan verið rekin með halla öll
árin.
„Reksturinn hefur gengið erf-
iðlega, og staðan er sú að i dag
skuldum við um 40 milljónir
króna (4 milljarða gamalla
króna). Það má þvi segja að við
skuldum skipið”.
Tryggvi sagði að þetta væri
vandamál, sem ekki hvildi ein-
göngu á Vestmannaeyingum
heldur allri þjóðinni.
„Þetta er þjóðvegur, leið milli
Þorlákshafnar og Vestmanna-
eyja, og þvi er ekkert réttlæti I
þvi' að Vestmannaeyjabær
greiði Herjólf og beri hallann.
Ekki greiddu Borgfirðingar sina
brú” sagði Tryggvi. „Þessi leið
á að tilheyra þjóðvegakerfinu
en á ekki að vera á flóabáta-
styrk”.
Það kom fram á fundinum að i
raun greiddu Vestmannaeying-
ar fjórum sinnum meiri vega-
skatt en aörir. Af þeim sökum
hefur verið taliö nauðsynlegt aö
stilla öllu verði i hóf sem mest
má. Vegna hinna miklu vöru-
flutninga með skipinu hafa
ýmsar vörur verið á frilista.
TUnþökur.sem mjög mikið hafa
verið fluttartilEyjaeftirgos, er
þar á meðal og pússningasand-
ur sem sækja þarf til lands.
Nýtt vöru- og skrifstofuhús
við höfnina i Vestmannaeyjum
var tekið i notkun 1 vetur, vegna
flutninga Herjólfs, og hefur öll
aðstaða þar stórbatnað.
Að loknum blaðamannafundi
var haldin kaffiveisla um borð i
Herjólfimeðstarfsfólki skipsins
og nutu blaðamenn góðs af veit-
ingunum. Þar var haft á orði að
ekki væri algengt að afmælis-
veislan væri haldin inni i afmæl-
isbarninu sjálfu.
Herjólfur er smiðaður i Nar-
egi 1976, en skipið er 1058 lestir
að stærð og gengur 14 milur.
Skipið tekur 50 bila undir þiljur
og allt að 360 farþega og eru
klefar fyrir 34 manns. Um borð
er veitingasala- og salur. 25
manns hafa beinan starfa vegna
flutninga skipsins. — HPH.