Morgunblaðið - 05.04.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 05.04.2004, Qupperneq 34
34 MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Smáfólk ÉG SKEMMTI MÉR ALVEG KONUNGLEGA! AÐ SKIPTA UM HLUTVERK VAR SLÆM HUGMYND... ÉG GET EKKI SOFIÐ! ÉG VERÐ AÐ FÁ TEPPIÐ TIL BAKA! ÞETTA ER ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ AÐ ÉG BAÐ ÞIG UM AÐ GEYMA ÞAÐ... ÉG HÉLT AÐ ÉG GÆTI HÆTT, EN ÉG GET ÞAÐ EKKI! ÉG BIÐ ÞIG! VILTU LÁTA MIG FÁ TEPPIÐ? GERÐU ÞAÐ? ÉG GET EKKI LIFAÐ ÁN ÞESS! ÞETTA ER GAMAN! SNOOPY! ÉG VEIT AÐ ÞÚ ERT ÞARNA! KOMDU ÚT OG KOMDU MEÐ TEPPIÐ MEÐ ÞÉR! KOMDU ÚT HEIMSKI HUNDUR! TEPPIÐ MITT! ÞÚ HEFUR BREYTT ÞVÍ Í JAKKA!! ÉG LÉT REYNDAR GERA ÚR ÞVÍ STUTTAN FRAKKA... Beini ÞAÐ ER KOMIÐ KVÖLD. ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ SOFA ÞAÐ ER KOMIÐ KVÖLD. ÉG ÆTLA AÐ FARA AÐ BORÐA ÉG Á EINMITT EINHVERS STAÐAR BÓK UM STJÖRNURNAR SEM FÆR MIG TIL ÞESS AÐ DREYMA UM GEIMINN KROSSFISKUR Í SVEPPASÓSU? HVAÐA SPENNANDI RÉTTUR ER ÞETTA? KOLKRABBI Í BLEKSÓSU MOAMBE FRÁ HAWAI KRABBI Í EGGJAHVÍTU SIGMUNDUR HEFUR UNDARLEGAN SMEKK RASPÚTIN SAGÐI AÐ MAÐUR ÆTTI AÐ TAKA ÁHÆTTU Í MATARÆÐI SÍNU... ÞEGAR HANN ÁT GLASIÐ SITT SKELFISKUR Í BLÓMKÁLI SKILGREINING STJÖRNUFRÆÐINAR OG HVERNIG HÚN HEFUR ÁHRIF Á DAGLEGT LÍF MANNSINS. Í UPPHAFI VAR STJÖRNUFRÆÐI NOTUÐ SEM DULSPEKI... STJÖRNUFRÆÐI HEFUR VERIÐ BÖNNUÐ OG LEYFÐ TIL SKIPTIS Í GEGNUM ALDIRNAR. Í DAG ER ÞAÐ NETIÐ SEM FÆRIR OKKUR FRÉTTIRNAR UM... ÞETTA ER BULL OG VITLEYSA GÓÐI MINN! SPÁ Í BOLLA, LESA Í LÓFA OG KRISTALSKÚLUR. ÞETTA ER ALLT SAMA BULLIÐ BEINI, ÉG VEIT AÐ ÞÚ HEFUR OFNÆMI FYRIR SVONA NÆRANDI LESNINGU ÉG VEIT BARA UM EINA LEIÐ TIL ÞESS AÐ NÆRA SIG OG ÞAÐ ER LEIÐINA AÐ LÁTA MAT LEIKA UM BRAGLAUKANA OG RENNA BEINT NIÐUR Í MAGA SVONA, SVONA... VIÐ GETUM REYNT AÐ SAMEINA OKKAR ÁHUGAMÁL. STJÖRNUMERKIN ERU NAUT, KRABBI, FISKUR LJÓN, STEINGEIT... ÖÖ... HRÚTUR HMM.. BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. DR. Páll Eggert Ólason var frum- herji þeirra sem rannsakað hafa sögu Vestfirðingsins Jóns Sigurðs- sonar. Síðan kom Lúðvík Kristjánsson og varpaði einkum ljósi á manninn bak við helgisögnina í mörgum grund- vallarverkum og ekki síður þá sem með honum stóðu. Vilhjálmur Þ. Gíslason, Sverrir Kristjánsson, Ein- ar Laxness og fjöldi annarra sagn- fræðinga og fræðimanna hefur ritað um þennan vestfirska mann, hver á sinn hátt. Og nú hefur Guðjón Frið- riksson sagnfræðingur lokið sínu verki í tveimur þykkum bindum um forsetann og má segja að varla verði betur gert, enda kannski nóg komið í bili. Á engan er hallað þó sagt sé að Guðjónsbækur beri af. Kemur þar margt til, þó einkum það hversu læsilegar þær eru fyrir hvern sem er, þó ekki séu þær beint meðfæri- legar, síst við rúmlestur eins og er háttur margra, enda 1200 bls. slétt- ar, bæði bindi. Efnistök eru slík að allt líður fram áreynslulaust og yf- irvegað. Fullyrðingar í lágmarki og notkun hástemmdra lýsingarorða ekki til trafala. Einkar skemmtileg lesning um efni sem sumum mundi kannski virðast við fyrstu sýn nokk- uð þurrlegt. Persónulegar útlegg- ingar höfundarins gera verkið yfir- leitt læsilegra og meira aðlaðandi, þó auðvitað megi um þær deila. Fjöldi ljósmynda og teikninga, sem margar hafa aldrei birst áður, vitna um þá miklu alúð og góða verklag sem höf- undur hefur til að bera. Ótrúlegt er hvað Guðjóni hefur tekist að grafa upp af heimildum um forsetann og líf hans. Sumt sér mað- ur í öðru ljósi eftir þá heimildaöflun alla. Á óvart kemur að Jón skyldi hafa verið fullgildur soldát númer 31 í fjórðu herdeild Danakonungs, Kong- ens Livkorps. Einnig það hversu andstaðan hér heima og í Kaup- mannahöfn meðal Íslendinga var oft hörð við stefnu hans. Það var ekki alltaf dans á rósum hjá hinum óhvik- ula foringja. Svo er eitt, sem er mikilvægt. Guðjón dregur óhikað fram ýmislegt sem sýnir okkur að Jón Sigurðsson gat verið mistækur. Á hinn bóginn kemur þráfaldlega fram að maður- inn var svo vel gerður á flestan hátt, að undrum sætir, runninn upp í af- skekktri sveit á Vestfjörðum. Fór út í heim með nesti og nýja skó frá for- eldrunum, eins og segir í ævintýr- unum og gott upplag Vestfirðings- ins. Skyggði svo á hvaða konung sem var, eins og Gísli Jónsson mennta- skólakennari orðaði það svo skemmtilega. Samband Jóns við danska stjórn- málamenn er ofarlega á baugi í Guð- jónsverki. Fjallar höfundur um fjöl- margt sem ekki hefur verið mikið rætt hér á landi í gegnum tíðina. Danir báru mikla virðingu fyrir Jóni Sigurðssyni, þó uppreisnarmað- ur væri í augum margra þeirra. Kemur þar margt til, einkum þó hversu maðurinn var glæsilegur, starfsamur og geðþekkur fulltrúi þjóðar, sem ekki var almennt hátt skrifuð þar ytra. Hann var viðræðu- góður og glaður maður. Það hefur fallið vel í kramið hjá glaðlyndum Dönum. Guðjón sagnfræðingur leiðir Jón Sigurðsson sjálfan fram á ritvöllinn einu sinni sem oftar, þar sem hann skilgreinir þjóðmálastarf sitt og af- stöðuna til Dana að gefnu því tilefni, að ritstjóri nokkur, Carl Bille, hafði ásakað hann um að hafa í áraraðir ráðist á Danmörku og Dani á óbil- gjarnan hátt og reynt að vekja upp hatur og óánægju Íslendinga gegn því landi sem þeir tilheyrðu. Í Guð- jónsbók segir svo á bls. 426 í seinna bindi, í svari Jóns við þessum ásök- unum: „Ég hef aldrei haft neitt á móti Danmörku eða Dönum almennt og enn síður ráðist á þá. Aftur á móti hef ég af eigin rammleik reynt að varpa ljósi á samband Íslands og Danmerkur og stuðla að því að taka megi enda sú óstjórn, sem óneitan- lega hefur viðgengist og ríkir enn á Íslandi, og allir hafa viðurkennt sem hafa tjáð sig um íslensk málefni í mörg hundruð ár. Að ég sé kominn í andstöðu við núverandi stefnu danskra stjórnvalda í íslenskum málum er rétt, en andstaða mín hefir alltaf verið grundvölluð á nákvæm- um rannsóknum og rökum.“ Verki sínu um Jón Sigurðsson lýk- ur Guðjón Friðriksson á þessa leið, eftir að hann hefur lýst útför þeirra hjóna vorið 1880: „Jarðarför Jóns Sigurðssonar og Ingibjargar Einarsdóttur er nánast konungleg og sú langviðhafnarmesta sem fram hefur farið á Íslandi til þessa tíma. Hún er staðfesting á því að Jón Sigurðsson er hinn ókrýndi þjóðhöfðingi Íslands, lífs og liðinn. Hann er Jón forseti.“ Spurning er hvort við höfum nokk- uð með annan forseta að gera. En það er önnur saga. HALLGRÍMUR SVEINSSON Hrafnseyri. Jón Sigurðsson í nýju ljósi Frá Hallgrími Sveinssyni: Fyrir flottar konur Bankastræti 11  sími 551 3930 Sendum til fyrirtækja í hádeginu • Magnafsláttur Upplýsingar í síma 552 2028 og 552 2607 www.graennkostur.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.