Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 37
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
HRÚTUR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert harðdugleg/ur og
gædd/ur miklum metnaði.
Þú ert staðráðin/n í að ná
langt en ert á sama tíma
gædd/ur ákveðinni hógværð.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Tunglið er fullt í dag og því
eru tunglið og sólin beint á
móti hvort öðru. Þar sem sólin
er í hrútsmerkinu ert þú mitt
á milli sólarinnar og tunglsins.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ekki láta hlutina koma þér úr
jafnvægi í vinnunni í dag.
Tunglið er fullt og það gerir
fólk órólegt. Reyndu að sýna
þolinmæði og umburðarlyndi.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Mundu að fullt tungl hefur
áhrif á börn ekki síður en full-
orðna. Sýndu ungmennum því
sérstaka þolinmæði. Það er
spenna í öllum í dag.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft á allri þinni þol-
inmæði að halda í samskiptum
þínum við foreldra þína og yf-
irmenn í dag. Reyndu að sýna
sveigjanleika og forðast hvers
kyns deilur.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur þörf fyrir að hafa
betur í rökræðum í dag.
Reyndu að halda aftur af þér.
Það mun gera bæði þér og
öðrum auðveldara fyrir.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú ert í vafa varðandi fjár-
málin. Þú átt erfitt með að
ákveða hvort þú eigir að láta
þínar eigin þarfir eða þarfir
annarra ganga fyrir.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er fullt tungl í merkinu
þínu og það gerir þig eirð-
arlausa/n og órólega/n. Þig
langar til að láta þínar eigin
þarfir hafa forgang en á sama
tíma vekur það með þér sekt-
arkennd. Reyndu að slaka á.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er hætt við því að upp
komi einhvers konar óþægindi
eða ósætti í vinnunni í dag.
Tunglið er fullt og það gerir
það að verkum að fólk tekur
öllu mjög persónulega.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þau verk sem þú byrjar á í
dag munu að öllum líkindum
ganga mjög vel. Gerðu ráð
fyrir velgengni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Farðu vel að foreldrum þínum
og yfirmönnum í dag. Reyndu
að sýna þolinmæði og forðast
árekstra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Farðu varlega í umferðinni í
dag hvort sem þú ert akandi,
gangandi eða á hjóli. Það eru
óvenjumiklar líkur á að þú
lendir í einhvers konar óhappi.
Þú getur þó komið í veg fyrir
það með því að fara að með
gát.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þetta er ekki rétti dagurinn til
að hlaupa eftir skyndi-
hugdettum og þá allra síst í
innkaupum. Reyndu að hafa
hemil á þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÁSDÍS Á BJARGI
Ásdís var í iðju og draumum
ein um hitu þá
að elska – og stuðla að Grettis gengi
og gæfu hans að þrá.
En vonir bæði og bænir hennar
barning vildu fá.
Snemma kenndi mikla manninn
móðuraugað glöggt,
sá í barnsins vögguvoðum
viðbragð hetjusnöggt,
það var yndi, – en annars vegar
örlögmyrkrið dökkt.
Kvíðinn óx, og þrautir þyngdust,
þegar hann komst á legg.
Stríðnin, hvefsnin, bernskubrekin
brýndu lýðsins egg. –
Ein hún kveið og ein hún skildi
allt það skapahregg.
- - -
Jakob Thorarensen
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 5. apríl,
er fimmtug Sólrún Guðjóns-
dóttir, Tröllaborgum 3,
Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Þór Benedikts-
son. Þau eru með kaffi á
boðstólum í Strætósalnum á
Kirkjusandi frá kl. 19–21.
Gjafaglöðum er bent á
Björgunarsveit Bisk-
upstungna kt.: 520288-1049,
bnr.: 0151-26-1100.
80 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 5. apríl,
er áttræð Una Sigríður
Gunnarsdóttir frá Bakka-
gerði í Reyðarfirði, nú til
heimilis að Hjallavegi 5,
Reyðarfirði. Í tilefni tíma-
mótanna tekur hún á móti
ættingjum og vinum í safn-
aðarheimilinu á Reyðarfirði
föstudaginn 9. apríl nk. á
milli klukkan 15 og 18 .
Ákvarðanir í sögnum eru
um margt líkar þeim
ákvörðunum sem við tökum
í lífinu – óvissunni mark-
aðar. Við ráðum okkur í
vinnu, tökum okkur maka,
eignumst börn. Allt rök-
réttar ákvarðanir í stöðunni,
en enginn veit nákvæmlega
til hvers þær leiða. Fram-
tíðin er aldrei fullkomlega
útreiknanleg og við þurfum
alltaf að taka nýjar ákvarð-
anir út frá nýjum for-
sendum. Þannig er það í
sögnum, maður byrjar á
augljósri sögn, en svo getur
allt gerst. Til dæmis þetta:
Vestur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ÁG92
♥G86
♦ÁK10962
♣--
Vestur Norður Austur Suður
Pass 1 tígull 2 lauf 2 spaðar
5 lauf ?
Þegar norður hóf sagnir á
hinn eina rétta hátt, með
opnun á einum tígli, þá hafði
hann svo sem ekki hugmynd
um hvaða stefnu spilið tæki.
En nú hafa málin skýrst.
Hvað myndi lesandinn
gera?
Þrjár sagnir koma til
greina: (1) Fimm spaðar,
sem er val hugleysingjans.
(2) Sex spaðar, sem er hið
val hins hagsýna manns. (3)
Sex lauf, sem er val vísinda-
mannsins.
Oft er farsælt að vera
huglaus, en ekki í þetta sinn:
Norður
♠ÁG92
♥G86
♦ÁK10962
♣--
Vestur Austur
♠64 ♠87
♥9432 ♥D107
♦4 ♦G53
♣876543 ♣ÁKD92
Suður
♠KD1053
♥ÁK5
♦D87
♣G10
Hinn hagsýni maður
sleppur á núlli, en það er
vísindamaðurinn sem sigr-
ar. Ef norður velur sex lauf,
segir makker sex hjörtu og
þá ætti að vera óhætt að
skjóta á sjö spaða.
Spilið er frá undan-
úrslitum Íslandsmótsins og
aðeins 7 pör af 40 náðu al-
slemmunni.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6.
Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5
9. Rd5 Be7 10. Rxe7 Rxe7
11. Bxf6 gxf6 12. c4 Bb7 13.
Bd3 bxc4 14. Rxc4 d5 15.
exd5 Dxd5 16. Da4+ Kf8 17.
0–0–0 Dxg2 18. Hhg1 Dxf2
19. Db4 Bf3 20. Hgf1
Dg2 21. Re3 Dh3 22.
Bf5 Dh5 23. Hd7
He8 24. Bc2 e4 25.
Kb1 Db5 26. Dd6
De5 27. Dd2 Df4 28.
Ba4 Rg6 29. Bb3
Re5 30. Dd6+ Kg7
Staðan kom upp á
Amber-skákmótinu
sem lauk fyrir
skömmu í Mónakó.
Viswanathan Anand
(2.766) hafði hvítt
gegn Loek Van
Wely (2.617). 31.
Hxf7+! Kg6 svartur
hefði tapað drottningunni
eftir 31. … Rxf7 32. Dxf4.
32. Hg1+ Kh5 33. Hxf6
Dxe3 34. Hf5+ Kh4 35.
Df6+ Kh3 36. Hg3+ og
svartur gafst upp enda verð-
ur hann mát í næsta leik. Ís-
landsmótinu í skák verður
framhaldið í dag í höf-
uðstöðvum Orkuveitu
Reykjavíkur og eru allir
áhorfendur velkomnir.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Þetta verður að
vera stutt trúlof-
un. Ég á nefnilega
að giftast honum
Georg í næstu
viku.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup,ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Fólk getur hringt í síma
569-1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á net-
fangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa :
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
KIRKJUSTARF/ÞJÓNUSTA
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
KVENNAATHVARF: Athvarf og viðtalsþjónusta fyrir
konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða
orðið fyrir nauðgun. Opið allan sólarhringinn, 561 1205.
Neyðarnúmer fyrir allt landið - 112
Áskirkja. Hreyfi- og bænastund kl. 12 og
kl. 17.30 í neðri safnaðarsal.
Hallgrímskirkja. Æskulýðsfélagið Örk kl.
20.
Langholtskirkja. Kl. 18 aftansöngur.
Bænir og lestrar kyrruviku. Ef veður leyfir
verður gengin íhugunarganga að loknum
aftansöng í átt að Elliðaánum. Þar er end-
að með næturbænum. Prestar sr. Kristján
Valur Ingólfsson og sr. Jón Helgi Þórarins-
son.
Laugarneskirkja. Opinn 12 sporafundur
kl. 18 í safnaðarheimilinu, allt fólk velkom-
ið sem vill kynnast Vinum í bata. Umsjón
hefur Arnheiður Magnúsdóttir. Árbæjar-
kirkja. Mánudagar: Kl. 15 STN - starf með
sjö til níu ára börnum í safnaðarheimili
kirkjunnar.
Fella- og Hólakirkja. Opið hús fyrir full-
orðna í safnaðarheimilinu kl. 13-15.30.
Spilað og spjallað. Kaffiveitingar. Þeir sem
óska eftir akstri láti vita í síma 557 3280
fyrir hádegi. Fyrirbænastund í kapellu kirkj-
unnar kl. 15.30. Bænaefnum má koma til
djákna, presta eða annarra starfsmanna
kirkjunnar. Stúlknastarf fyrir 11-12 ára kl.
16.30. Æskulýðsstarf fyrir unglinga í 8.,
9. og 10. bekk kl. 20-22. Umsjón Stefán
Már Gunnlaugsson.
Grafarvogskirkja. KKK kátir krakkar í
kyrruviku frá kl. 9-12 og 13-16.
Lestur passíusálma kl. 18.15. 48. sálm-
ur. Um Jesú síðusár. Jóhannes Bárðarson,
varaborgarfulltrúi, les.
Seljakirkja. KFUK 9-12 ára kl. 17.30.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús fyrir 16
ára og eldri kl. 20-22.
Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar,
Kirkjukrakkar, er í Varmárskóla. Bæna-
stund kl. 19.45. Al-anon fundur kl. 21.
Hvalsneskirkja. Alfa-kynningarkvöld
þriðjudagskvöld 6. apríl kl. 20-22 í safn-
aðarheimilinu Sæborgu í Garði. Allir vel-
komnir. NTT-starfið er í safnaðarheimilinu í
Sandgerði á miðvikudögum kl. 17.30.
Hefst aftur eftir páska.
Útskálakirkja. Alfa-kynningarkvöld þriðju-
dagskvöld 6. apríl kl. 20-22 í safnaðar-
heimilinu Sæborgu í Garði. Allir velkomnir.
NTT-starfið er í safnaðarheimilinu Sæ-
borgu á fimmtudögum kl.1 6.30. Hefst aft-
ur eftir páska.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 17.30
Æskulýðsstarf fatlaðra, eldri hópur. Helgi-
stund og gott samfélag. Hulda Líney
Magnúsdóttir æskulýðsfulltrúi og sr. Þor-
valdur Víðisson.
Keflavíkurkirkja. Fundir hjá Félagi áhuga-
fólks og aðstandenda alzheimerssjúklinga
og annarra minnissjúkra (FAAS) í Reykja-
nesbæ og á Suðurnesjum verða í Kirkju-
lundi. Fundur verður í Kirkjulundi kl. 20.
Þorlákskirkja. Biblíufræðsla kl. 20.
Borgarneskirkja. TTT-starf kl. 15.30-
16.30.
Akureyrarkirkja. Tónleikar Hymnodiu -
Kammerkórs Akureyrarkirkju kl. 20.30.
Safnaðarstarf
Sigurbjörn biskup
leiðir kyrrðardaga
í Skálholti í
dymbilvikunni
UM alllangt skeið hafa verið haldn-
ir kyrrðardagar í Skálholti í Dymb-
ilvikunni og verður svo einnig í ár.
Leiðsögn annast að þessu sinni Sig-
urbjörn biskup Einarsson. Dag-
arnir hefjast með tíðagerð kl. 18.00
á miðvikudag 7. apríl og þeim lýkur
síðdegis á laugardag fyrir páska
10. apríl.
Á kyrrðardögum förum við í
hvarf, tökum okkur hlé frá dag-
legri önn og amstri, njótum friðar
og hvíldar. Þögnin og kyrrðin veita
tækifæri til íhugunar, að mæta
sjálfum sér og Guði, láta uppbygg-
jast og endurnærast á sál og lík-
ama.
Í dymbilvikunni sem oft er kölluð
kyrravikan, er sérstök ástæða til
þess að draga sig í hlé og íhuga
píslarsögu Jesú Krists.
Sigurbjörn biskup mun flytja
hugleiðingar kvölds og morgna og
fylgt verður helgihaldi staðarins í
Skálholtskirkju. Umsjón kyrrð-
ardaganna annast rektorshjónin í
Skálholti, Rannveig Sigurbjörns-
dóttir og Bernharður Guðmunds-
son.
Fullbókað er á þessa kyrrð-
ardaga, en biðlistinn er opinn
Næstu kyrrðardagar verða:
22.–24 apríl Kyrrðardagar við
sumarkomu. Þar hvílir áhersla á
útivist og gönguleiðum. Stef kyrrð-
ardaganna er lífsgangan og hug-
leiðingarnar fjalla um æviskeið
mannsins. Leiðsögn annast sr. Hall-
dór Reynisson og dr. Sigurður Árni
Þórðarson
30.4–2.5 Kyrrðardagar með
bænafræðslu. Leiðsögn annast Sig-
urbjörn biskup Einarsson . Full-
bókað er á kyrrðardagana og bið-
listinn lokaður.
13.–16. maí: Kyrrðardagar hjóna.
Áherslan hvílir á því að gera gott
hjónaband betra! Leiðsögn annast
hjónin dr. Sigríður Halldórsdóttir
prófessor og sr. Gunnlaugur Garð-
arssson, Margrét Scheving sál-
gæsluþjónn og Þorvaldur Hall-
dórsson tónlistarmaður. Fullbókað
er á kyrrðardagana en biðlisti op-
inn
Skrifstofa Skálholtsskóla veitir
nánari upplýsingar og annast bók-
anir í síma 486 8870, netfang skol-
i@skalholt.is
Biblíulestur
í Landakoti
Sr. Halldór Gröndal heldur áfram
mánaðarlegum biblíulestri sínum
um Postulasöguna í kvöld kl. 20.00 í
safnaðarheimili kaþólskra á Há-
vallagötu 16. Þetta er síðasti bibl-
íulestur hans þennan vetur.
Sr. Halldór talar um kristniboðs-
ferðir Páls postula. Allir áhuga-
samir eru hjartanlega velkomnir.
Morgunblaðið/Þorkell
Skálholt