Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 41

Morgunblaðið - 05.04.2004, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. APRÍL 2004 41 ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl tal. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.10. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.10. KRINGLAN Sýnd kl. 4. Ísl tal. Ekki eiga við hattinn hans Kötturinn með hattinn KEFLAVÍK Kl. 10. AKUREYRI Kl. 8. KRINGLAN Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Með ensku tali Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með íslensku tali KRINGLAN Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 4, 6, 8 og 10.10. Besta teiknimyndinFrábær teiknimynd frá Disney fyrir allafjölskylduna með tónlist eftir Phil Collins! Hágæða spennutryllir með Angelinu Jolie, Ethan Hawke og Kiefer Sutherland í aðalhlutverki. „Hreint út sagt frábær skemmtun“ „Þetta er besta myndin í bíó í dag“ Fréttablaðið ÁLFABAKKI 4 og 6. Ísl texti KEFLAVÍK 4 og 6. Ísl texti ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4. Ísl. tal. Án efa einn besti spennu- hrollur sem sést hefur í bíó. Myndin fór beint á toppinn í Bandaríkjunum fyrir tveimur vikum og hefur slegið hryllilega í gegn. AKUREYRI Sýnd kl. 6. Ísl tal Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið! Toppskemmtun fyrir alla fjölskylduna! Nr 1 í USA! Taktu þátt í Scooby Doo 2 leiknum á www.sambioin.is Ævintýrahópurinn Ráðgáta hf er mætt aftur til að leysa hin undarlegustu mál eins og þeim einum er lagið! Toppskemmtun fyrir alla fjölskylduna! Nr 1 í USA! Taktu þátt í Scooby Doo 2 leiknum á www.sambioin.is AKUREYRI Kl. 8 og 10. Stranglega bönnuð innan 16 ára. AKUREYRI Kl. 6. Ísl texti KEFLAVÍK kl. 8. Ísl tal. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. MEÐ ÍSLEN SKU OG EN SKU TALI MEÐ ÍSLEN SKU OG EN SKU TALI Páskafjör í Flash Laugavegi 54, sími 552 5201 20% afsláttur af öðrum vörum. 10 heppnir vinna páskaegg. Gallabuxur .... áður 5.990 ...... nú 3.990 Peysur .......... áður 5.990 ..... nú 2.990 Bolir ............. áður 1.990 ..... nú 990 Jakkar .......... áður 7.990 ..... nú 2.990 „Í DRAUMI sérhvers manns er fall hans fallið.“ Svo kvað Steinn Stein- arr meistaralega og þessi orð eiga skuggalega vel við Kurt Donald Cobain, leiðtoga Nirvana sem féll fyrir eigin hendi 5. apríl 1994, ger- samlega búinn á líkama og sál. Cobain vildi vera rokkstjarna. En greiddi fyrir það hæsta verð. I Það er óþarfi að reifa tónlistarlega sögu Cobains sérstaklega. Í stuttu máli var hann driffjöður Nirvana, áhrifaríkustu rokksveitar síðustu tuttugu ára. Þúsundir ungmenna hafa stungið gítar í magnara vegna Nirvana og áhrif hennar eru afar sterk enn þann daginn í dag. Þegar önnur breiðskífa sveitarinnar, Nev- ermind, kom út í september 1991 breyttust forsendur rokktónlistar varanlega. Pönk og nýbylgja var allt í einu málið hjá almenningi og gætir þessa enn þann dag í dag. En eins og með allar meiriháttar byltingar hafa bæði góðir og slæmir hlutir orðið að veruleika.. Nirvana var ósköp venjuleg neð- anjarðarsveit sem skaust upp á yf- irborðið með ógnarhraða. Cobain var engan veginn að kaupa allt það havarí sem fylgir frægðinni og fram- anum. Hann var enginn vitleysingur en nokk viðkvæmur fyrir öllu rugl- inu sem fylgir heimsfrægðinni. Hann var ofvirkur sem barn og fékk rítalín svo hann gæti sofið og verið rólegur og uppeldið var um margt erfitt. Hann þjáðist þá af und- arlegum magaverk sem læknar stóðu ráðþrota frammi fyrir. Kurt leitaði í heróín til að lina þjáning- arnar. Eftir því sem leið á ferilinn varð Cobain æ viðþolslausari. Þriðja platan, In Utero, var greinileg til- raun til að komast frá blöðrurokki því sem Nirvana átti óafvitandi þátt í að skapa og Cobain varð sífellt and- snúnari rokkstjörnuímyndinni. Í maí 1993 lagðist Cobain inn á sjúkrahús vegna of stórs skammts af heróíni. Í mars 1994 gerist það svo aftur þegar hann er staddur í Róm (í þetta skiptið blanda af kampavíni og róandi lyfjum) og hann er lagður inn á meðferðarstofnun í Los Angeles í kjölfarið. Cobain stingur hins vegar af til Seattle. Þann 8. apríl finnur rafvirki svo líkið en þá var Cobain búinn að vera týndur í nokkra daga. II Kurt skildi eftir sig bréf, sem er ansi mögnuð lesning. Hann ryður frá sér síðustu hugleiðingum dæmds manns og viðurkennir að hann sé orðinn gjörsamlega firrtur tónlist- inni, því sem hann elskaði eitt sinn meira en allt annað. Hann segir að glæpur númer eitt í hans huga sé það að þykjast. M.a. er að finna þessar setningar, í lauslegri þýðingu: „Ég er of viðkvæmur. Ég þarf að vera pínu dofinn til að endurupplifa ástríðuna sem ég naut eitt sinn sem krakki.“ „Það er gott í okkur öllum og ég held einfaldlega að ég elski fólk of mikið. Það mikið að ég verð svo ansk… sorgmæddur.“ „Ég á dóttur sem minnir mig óþægilega á það hvernig ég var einu sinni. Hún er full af ást og gleði og kyssir og faðmar alla sem hún hittir því að allir eru góðir og munu ekki gera henni neitt illt. Þetta hræðir mig svo að ég er vart starfshæfur.“ Ég hef ekki ástríðuna lengur. Og munið því: „Það er betra að brenna upp en að fjara út“ („it’s better to burn out than to fade away“ og vísar þar með í fleyga setningu Neil Yo- ung). „Gerðu það Courtney, haltu áfram fyrir Frances (Bean, dóttur þeirra) því hún á eftir að verða miklu ham- ingjusamari án mín. ÉG ELSKA YKKUR, ÉG ELSKA YKKUR!“ Sumir vilja halda því fram að Cobain hafi verið myrtur. Persónu- lega hef ég litla trú á því. Þegar um svona gríðarlega áhrifamiklar rokk- stjörnur er að ræða virðist þannig orðrómur fara í gang, nánast sjálf- virkt. Svipaðar vangaveltur eru t.d. uppi um Elvis Presley. Öfgakennd per- sóna Courtney Love hefur og blásið lífi í þær glæður. III Mig langar til að ljúka þessari grein á sama hátt og ég hóf hana, með tilvitnun í tvö síðustu erindin í ljóði Steins Steinars: „Í draumi sérhvers manns“. Þessi orð ná nefnilega glettilega vel að fanga að því er virðist óumflýjanleg örlög Kurts heitins Cobain: „Gegn þinni líkamsorku og andans mætti og öndvert þinni skoðun, reynslu og trú, í dimmri þögn, með dularfullum hætti rís draumsins bákn og jafnframt minnkar þú. -- Og sjá, þú fellur fyrir draumi þín- um í fullkominni uppgjöf sigraðs manns. Hann lykur um þig löngum armi sínum, og loksins ert þú sjálfur draumur hans.“ (Skáletrun mín). Tíu ár eru liðin frá dauða Kurt Cobain Kurt Cobain reyndi að draga rokkið út úr fari meðalmennsku og útlits- dýrkunar, en uppskar á endanum það sem hann fyrirleit. Ferð án fyrirheits Fyrir nákvæmlega tíu árum síðan svipti rokkstjarnan Kurt Cobain sig lífi. Arnar Eggert Thoroddsen horfir um öxl og veltir þessum voveiflega atburði fyrir sér. arnart@mbl.is HLJÓMSVEITIN Pixies mun gefa út sérstakan tónleika- disk frá tónleikunum sem haldnir verða í Kaplakrika 26. maí næstkomandi. Þetta kemur fram á frétta- vef NME, www.nme- .com. Diskurinn mun koma út í mjög tak- mörkuðu upplagi, eða um þúsund ein- tökum og mun hvert eintak verða númerað og hver útgáfa verða með einstakri hönnun. Alls stendur til að gefa út fimmtán tónleikaplötur frá ferð Pixies um Bandarík- in, en það er fyrirtækið Disclive sem fylgir sveitinni á tónleikum og útbýr tónleikaplöturnar jafnóðum. Verða þær seldar strax að loknum tónleik- unum í þessu takmarkaða upplagi, en hægt er að forpanta þær á vef fyr- irtækisins, www.disclive.com. Hrekkjalómarnir í Pixies ætla ekki að skilja tón- leikagesti sína eftir úti í kuldanum, en munu gefa út hljómleikaupptökur sínar á viðráðanlegu verði. Pixies gefa út plötu frá tónleikunum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.