Vísir - 01.09.1981, Blaðsíða 12
12
e ?
Þriðjudagur í.‘ september 1981 ' '
ASKORANIR UM UPPSKRIFTIR
Lime-hringur með rækjum, friskandi og bragðgóður forrétt-
ur, sem Auður óskarsdóttir, auglýsingastjóri Sjónvarpsins,
heldur hér á.
Visismynd: G.V.A.
Fiskur (hátíðabúningi
- létlur og bægliegur en sannkallaöur velslumaiur
Það er fleira matur en feitt
kjöt, segir einhvers staöar og
það er bersýnilegt, ef litiö er á
mat seöilinn,sem Auður Óskars-
dóttir, áskorandi vikunnar,legg-
ur okkur i hendur núna.
Hún lét fylgja með þær upp-
lýsingar að báðar uppskrift-
irnar væru einstaklega þægi-
legar og auðveldar i vinnslu og
heföu yfirleitt gert mikla lukku
meöal gesta á heimilinu.
Auður er ein þeirra kvenna,
sem vinnur úti allan daginn og
veit hversu vel það kemur sér
að þurfa ekki að eyöa fleiri
klukkustundum i matartilbún-
ing, þó von sé á gestum. Við
hvetjum lesendur til að spreyta
sig á uppskriftum hennar.
JB
Lime-hringur
með rækjum
1 pakki Lime Jelly
1 dós sýrður rjómi
1/4 dós crushed ananas (látið
safann renna af fyrst)
litill bolli(smátt skoriö, nýtt sell-
eri
Til viðbótar má setja saxaða
hnetukjarna, en það er þó alls
ekki nauðsynlegt.
Lime Jelly er leyst upp i ein-
um bolla af sjóðandi vatni og
látiö kólna aðeins. Siðan er bætt
i einum bolla af köldu vatni.
Ananasinn og selleriið sett út i
og siöast sýrði rjóminn. Látið
blönduna i hringlaga jólaköku-
form, sem áður hefur verið
penslaö með mataroliu.
Hringurinn fær siðan að kólna i
isskápnum og rækjurnar látnar
i miöju hans þegar borið er
fram. Þetta má jafnvel útbúa
tveimur dögum fyrir notkun og
hefur reynst mér vera einstak-
lega þægilegur og friskandi for-
réttur.
Fiskréttur
ýsuflök (2 litil eða 1 stórt)
1 banani
2 dl rjómi
2 egg
100 g rækjur
1 paprika
ostur
hveiti
salt og pipar
kjöt- og grill krydd
rasp
Eggin eru þeytt með 1/2 dl af
rjóma og hveitið hrært út i.
Fiskurinn er kryddaöur beggja
megin meö salti, pipar og kjöt-
og grillkryddi. Fiskinum er dýft
i þessa sósu og steiktur við hæg-
an hita á pönnu, örlitla stund.
Hann er siðan lagður i eldfast
fat. Rækjurnar, bananinn og
paprikan eru steikt i smjöri og
lögð ofan á fiskinn. Afgangurinn
af rjómanum er settur yfir og
siðan rifinn ostur og rasp. Ofn-
inn er hitaður i 200-225 gráður og
fiskurinn bakaður i ca. 20 min-
útur. Gott er að leggja álpappir
yfir til að byrja með.
Meö þessum fiskrétti er gott
að borða heitt ostabrauð með
hvitlaukssmjöri.
Nú, þá hafið þið uppskriftir
Auðar. sem sannarlega kalla
fram vatn i munninn. Hún hefur
ákveðiö að skora á Erlu Björg-
vinsdóttur, ritara rikisskatt-
stjóra, fyrir næsta þriðjudag og
kveður hana vera einstaklega
hugmyndarika og lagna við
matartilbúning. Við biðum þvi
spennt að sjá hvað það verður,
sem Erla töfrar fram úr erm-
inni handa lesendum Visis.
Auður Öskarsdóttir skorar
á Erlu Bjðrgvinsdðttur
Aðlaðandl er konan ánægð
- og herrarnir líka, segja Módeisamtðkin
Þjónustumiðstöö Módelsam-
takanna viö Skólavörðustig á eins
árs afmæli um þessar mundir, en
samtökin sjálf hafa sem kunnugt
er starfað i fjölda ára.
1 þjónustumiöstööinni hafa
veriö haldin almenn námskeið i
framkomu, snyrtingu og siövenj-
um fyrir ungar stúikur og konur á
öllum aldri, en tilgangur slikra
námskeiða er að hjálpa konum til
að öðlast sjálfsöryggi og temja
sér eölilega framkomu.
Karlmenn þurfa sennilega jafnt
á þessum leiöbeiningum að halda
og konur, enda hafa Módel-sam-
tökin nú ákveöiö að efna til hlið-
stæðra námskeiða fyrir herrana.
Hefjast þau um miðjan septem-
ber.
Ýmislegt fleira nýtt veröur á
dagskrá i vetur. Þannig veröur
bætt inn i almennu námskeiðin
tilsögn og sýnikennslu i tilbúningi
og framleiðslu samkvæmisrétta
og það er Hilmar B. Jónsson, rit-
stjóri Gestgjafans og veitinga-
stjóri á Loftleiðum um árabil,
sem þar mun leggja hönd á plóg-
inn. Er ekki að efa að þessi þáttur
mun gera mikla lukku enda hefur
varla veriö nokkur vettvangur
fram að þessu, þar sem hægt hef-
ur verið að sækja gagnlega
tilsögn á þessu sviði.
Þaö er fleira nýtt sem Model-
samtökin bjóða upp á. Flestar
konur dreymir vist um að lita
sem fegurst og best út á
brúðkaupsdaginn. En það kostar
oft ærið mikla fyrirhöfn, snúninga
og óþarfa áhyggjur að leita sér
þjónustu i þeim efnum. Þvi hefur
veriö ákveðiö að koma upp nokk-
urs konar brúöarþjónustu i Þjón-
ustumiðstöðinni, þar sem hægt
verður að fá snyrtingu og aðstoð
við klæönaö, val á brúöarblómum
og ýmislegt fleira. Allar upplýs-
ingar um veislutilhögun, litaval
og jafnvel leiga á brúðarkjólum
eru á dagskrá og verður leitaö
aöstoðar sérfræðinga á öllum
sviðum.
Fjóla Guðrún Friðriksdóttir
hefur verið ráðin sem snyrtisér-
fræðingur Modelsamtakanna og
mun hún annast alla kennslu og
ráðgjöf.
Og að lokum smáupplyfting nú,
þegar daginn er tekið að stytta.
Modelsamtökin hafa komið sér
upp sóllampa sem skina mun
skært alla daga og öll kvöld i
vetur. Allar upplýsingar um
starfsemina og innritun er hægt
að fá i Þjónustumiðstöðinni við
Skólavörðustig.
Umsjón
Jóhanna
Birgisdóttir
Draumabrúðurin, afslöppuð og ánægð og tilbúin frá toppi til táar með Þau munu bera hitann og þungann af námskeiðahaidi Modelsamtakanna i vetur. Talið frá vinstri:
aðstoð sérfróðra hjá Módelsamtökunum. — Vfsismynd: EÞS. Hermann Ragnar Stefánsson, Fjóla Guðrún Friðriksdóttir, Hilmar B. Jónsson og Unnur Arngrlmsdótt-
ir, framkvæmdastjóri samtakanna frá upphafi.