Vísir - 01.09.1981, Blaðsíða 16
16 >.
Þriðjudagur 1. september 1981' 1
Auglýsing um aðalskoðun
bifreiða 1981 f lögsagnar
umdæmi Keflavíkur,
Njarðvíkur, Grindavíkur
og Gullbringusýslu:
þriöjudaginn 1. sept. Ö-4951 — Ö-5025
miðvikudaginn 2. sept. Ö-5026 — Ö-5100
fimmtudaginn 3. sept. 0-5101 — Ö-5175
föstudaginn 4. sept. Ö-5176 — Ö-5250
mánudaginn 7. sept. Ö-5251 —Ö-5325
þriöjudaginn 8. sepl. Ö-5326 — Ö-5400
miövikudaginn 9. sept. Ö-5401 — Ö-5475
fimmludaginn 10. sept. Ö-5476 — Ö-5550
föstudaginn 11. sept. Ö-5551 — Ö-5625
mánudaginn 14. sept. Ö-5626 — Ö-5700
þriöjudaginn 15. sept. Ö-5701 — Ö-5775
miövikudaginn 16. sept. Ö-5776 — Ö-5850
fimmtudaginn 17. sept. Ö-5851 — Ö-5925
föstudaginn 18. sept. Ö-5926 — Ö-6000
mánudaginn 21. sept. Ö-6001 — Ö-6075
þriöjudaginn 22. sept. Ö-6076 — Ö-6150
miövikudaginn 23. sept. 0-6151 — Ö-6225
fiinmtudaginn 24. sept. Ö-6226 — Ö-6300
föstudaginn 25.sept. Ö-6301 — Ö-6375
máuudaginn 28. sept. Ö-6376 — Ö-6450
þriöjudaginn 29. sept. Ö-6451 —Ö-6525
miövikudaginn SO.sept. ö -6526 og þaryfir
Skoðunin fer fram að Iöavöllum 4, Keflavik, milli kl. 8.00
til 12.00 Og 13.00 til 16.00.
Á sama stað og tima l'er i'ram aðalskoöun annarra skrán-
ingarskyldra ökutækja s.s. bifhjóla og á eftirfarandi einn-
ig viö um umráöamenn þeirra.
Viö skoöun skulu ökumenn bifreiöanna leggja fram full-
gild ökuskirteini. Framvisa skal og kvittun fyrir greiöslu
bifreiöagjalda og gildri ábyrgöartryggingu.
Vanræki einhver aö færa bifreið sina til skoöunar á aug-
lýstum tima, veröur hann látinn sæta ábyrgö aö lögum og
bifreiöin tekin úr umferö, hvar sem til hennar næst.
Lögreglustjórinn í Keflavik,
Njarðvik, Grindavik og
Gullbringusýslu
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða
i lögsagnarumdæmi Reykjavikur
i septembermánuði 1981
Þriöjudagur 1. sept. R-50501 til R-51000
Miövikudagur 2. sept. R-51001 til R-51500
Fimmtudagur 3. sept. R-51501 til R-52000
Föstudagur 4. sept. R-52001 til R-52500
Mánudagur 7. sept. R-52501 til R-53000
Þriöjudagur 8. sept. R-53001 til R-53500
Miövikudagur 9. sept. R-53501 til R-54000
Fimmtudagur 10. sept. It-54001 til R-54500
Föstudagur 11. sept. R-54501 til R-55000
Mánudagur 14. sept. R-55001 til R-55500
Þriöjudagur 15. sept. R-55501 til R-56000
Miövikudagur 16. sept. R-56001 til R-56500
Fimmtudagur 17. sept. R-56501 til R-57000
Föstudagur 18. sept. R-57001 til R-57500
Mánudagur 21. sept. R-57501 til R-58000
Þriöjudagur 22. sept. R-58001 til R-58500
Miövikudagur 23.sept. R-58501 til R-59000
Fimmtudagur 24. sept. R-59001 til R-59500
Föstudagur 25. sept. R-59501 til R-60000
Mánudagur 28. sept. R-60001 til R-60500
Þriöjudagur 29. sept. R-60501 til R-61000
Miövikudagur 30. sept. R-61001 til R-61500
Bifreiðaeigendum ber að koma með bif-
reiðar sinar til bifreiðaeftirlits rikisins,
Bildshöfða 8 og verður skoðun fram-
kvæmdþar alla virka daga kl. 08:00-16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþega-
byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna
leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber
skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur sé
greiddur og vátrygging fyrir hverja bif-
reið sé i gildi.
Athygli skal vakin á þvi að skráningar-
númer skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera
gjaldmælir i leigubifreiðum sem sýnir rétt
ökugjald á hverjum tima. Á leigubifreið-
um til mannflutninga, allt að 8 farþegum,
skal vera sérstakt merki með bókstafnum
L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tima verður hann
látinn sæta sektum samkvæmt umferðar-
lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar
sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn í Reykjavik.
28. ágúst 1981.
vísm
Keðjubréfalargið:
Getur iðgreglan ekki
stöðvað ósðmann?
- spyr reiður faðir
Undrandi og reiöur faöir
skrifar:
Þrettán ára gömul dóttir min
fékk sent eitt þessara keöju-
bréfa.sem innihalda hótanirum
slys, heilsutjón eöa jafnvel
dauða, verði keðjan slitin.
Ösdminn er svo kallaður
„Heppnis-keðja.”
Nú finnst mér of langt
gengið. Oft hefur verið rætt og
ritaö um þessa andstyggö og
talað um að hana ætti að stoppa.
Ég er því fyllilega sammála að
það er i meira lagi ósmekklegt
og tillitslaust við náungann að
senda honum slik bréf, jafnvel
þótt fulloröinn sé og eigi aö heita
færum að draga sinar ályktanir
sjálfur af innihaldi bréfsins. En
aö senda þetta börnum og ung-
lingum er meiri svivirða en
hægt er að una við.
Allir sæmilega hugsandi
menn hljóta að sameinast um
þá kröfu. aö þetta fáránlega
tómstundagaman veröi
stöðvaö. Eru ekki gildi lög i
landinu, sem banna að send séu
hótunarbréf?
Horfir lögreglan aögerðarlaus
á þennan ósóma, eða er hún al-
gjörlega máttlaus?
Þaö ætti þó að vera hægt aö
finna sendendur bréfanna, þvi
þeir skrifa nöfnin sín undir þau.
,,Lögreglan getur litið
aðhafst nema einhver
kæri.”
„Það er bannað aö senda
hótanir í bréfum,” sagði Sturla
Þórðarson, fulltrúi lögreglu-
stjóra i Reykjavlk, þegar Visir
bað hann um svör við spuming-
um reiðs föður.
Hann sagði einnig.að það væri
ljóst að ákveðin hótun væri i
umræddu keðjubréfi, sem vel
gæti oröið til þess að fólk héldi
henni við, sem þaö mundi ef til
vill ekki gera annars.
A hinn bóginn taldi hann lög-
regluna ekki geta aöhafst i
málinu, nema henni berist kæra
eða beiöni um rannsókn.
1 framhaldi af viðtalinu við
Sturlu mun Visir senda honum
ljósrit af bréfunum og biðja um
rannsókn, fyrir hönd lesenda,
sem kvartað hafa.
•/ / ■
p.8 k'i.1
Hr« Halldðr Finnsaon
Grundarfirði
Aðsögn Halldórs Finnssonar barst honum keðjubréfið I umslaginu, sem myndin er af. Á það er stimpluð
auglýsing um sparilán Landsbankans. t stað frimerkis er stimpill á bréfinu og ef prentun heppnast vel
má sjá númeriö P.B. 210, sem er númer vélarinnar, sem stimplað er með. Visir fékk staðfest hjá póst-
inurn að Landsbankinn á þá vél.
Er Landsbanklnn
komlnn I keðluna?
Halldór Finnsson I Grundarfirði
skrifar:
„1 gær fékk ég keöjubréf það
sem ljósritið er af, og er það I
sjálfusérekki I frásögu færandi.
þó bréf þetta sé óvenju illskeytt,
hvaö hótanir um limlestingu og
dauða varðar. En þaö sem mér
þóttganga nokkuö langt, var að
Landsbankinn sendi bréfið, eða
það var a.m.k. i umslagi frá
þeim.
Ég vildi koma því á framfæri
við þessa ágætu menn.aö þeir
geti reynt aö hræða fólk á sinn
kostnaö en ekki Landsbankans.
Eins og fram kemur I bréfi
Halldórs, fylgdi þvi ljósrit af
keðjubréfinu. Reyndar hafa
okkur borist fleiri eintök af
þessu alræmda bréfi og margar
kvartanir.
1 bréfinu segir frá Birni ein-
hverjum Sveinbjörnssyni, sem
fékk bréfiö frá Danmörku, dró
að senda það frá sér og lenti i
bilslysi. Billinn eyöilagöist en
Björn slapp ómeiddur , en fót-
brotnaði svo fjórum dögum
siðar. Þá segir frá útlendingi,
sem trúði ekki á bréfiö og henti
þvi. Hann dó nokkrum dögum
siðar.
Þaö stendur ekki i bréfinu að
slysin og dauðsfallið sé þvi að
kenna.aö bréfið var ekki sent á-
fram, en óhjákvæmilegt er að
ætla að bréfritarar — þar með
taldir allir þeir sem undirrita
það — telji þarna vera beint
samband á milli og viðlika örlög
biði allra þeirra, sem stööva
bréfið.
Aö sögn Halldórs Finnssonar
barst honum keðjubréfið i um-
slaginu, sem myndin er af. A
það er stimpluö auglýsing um
sparilán Landsbankans. 1 stað
frimerkis er stimpill á bréfinu
og ef prentun heppnast vel má
sja númeriö P.B. 210, sem er
númer vélarinnar, sem
stimplað er með. Visir fékk
staðfest hjá póstinum aö Lands-
bankinn á þá vél.