Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 4

Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 4
VÍSIR Hvernig var Snorrl i sjón? Fyrri hluti kvikmyndarinnar um Snorra Sturlu- son verður sýndur í sjónvarpinu annað kvöld. Ef- laust á hún eftir að vekja athygli og áhuga fólks á Snorra og öld Sturlunganna. Og eflaust verður mað- urinn Snorri umhugsunarefni — hvernig var hann og hvernig skyldi hann hafa litið út? í bók, sem Sögufélagið gaf út árið 1979, „Snorri átta alda minning” er að finna grein m.a. eftir Helga Þorláksson sagnfræðing, sem hann kaliar „Hvernig var Snorri i sjón?”. Þar veltir Helgi fyrir sér þeim hugmyndum, sem uppi hafa verið um útlit Snorra og stingur upp á nýjum. Helgi veitti Helgar- biaði Visis góðfúslega leyfi til að birta þessa grein og fylgir hún hér á eftir nær óstytt. Þó hefur verið sleppt stuttum inngangi Heiga og tilvisunum hans til annarra rita. Frægasta myndin „Langfrægastar allra Snorra- mynda eru myndir eftir norsku listamennina Krohg og Vigeland. Teikning Krohgs af Snorra mun sú Snorramynd, sem langoftast hefur boriö fyrir augu tslendinga allra slikra mynda, enda var hún tekin upp i íslandssögu Jónasar Jónssonar frá Hriflu áriö 1924 og siöar hinar ýmsu útgáfur hennar i rúm 40 ár. A þessari mynd er Snorri sýndur sköllóttur meö mikiö breitt skegg, ekki beint smáfriður en svipmikill og gild- vaxinn. I tilefni af hátíöarútgáfu Heimskringlu f Noregi snemma á árinu 1979 var dregið fram þaö, sem fáir vissu, aö Snorramynd Krohgs er talin „sjálfsmynd” hans. Var Krohg álasaö fyrir þetta I grein i blaöi i Osló áriö 1896, enda vel þekktur Oslóarbú- um i sjón og kunnur fyrir mikla þátttöku sina i listamannalifi, sem ekki þótti beint borgaralegt. Engu aö síöur var þessi mynd Krohgs sett framan viö útgáfu Gustavs Strom af Heimskringlu á norsku árin 1899 og 1900. Krogh teiknaöi a.m.k. tvær aörar Snorramyndir og var önnur notuö i kynningarblööungi á sinum tima, en báöar birtar i fyrsta sinn á bók i ár (1979) i framangreind- um hátiðarútgáfum Heims- kringlu i Noregi og á sýningum i Reykjavik. „Gamall istrubelgur” Hin fræga mynd Krohgs hefur haft mikil áhrif á hugmyndir Is- lendinga um útlit Snorra. Ekki er þó ætlandi, aö menn hafi almennt veriö ánægöir meö myndina. Halldór Hermannsson ritar aö hún sýni „gamlan istrubelg” og margir hafa vafalaust getaö tekiö undir meö myndhöggvaranum Vigeland, sem á aö hafa sagt um myndina: „Saa lasket og feit har Snorre ikke set ut”. Haukur Stef- ánsson hefur væntanlega viljaö taka undir þetta: hann málaöi á þriöja áratugnum mynd af Snorra og viröist hafa haft mynd Kroghs til hliösjónar en fégrar á- sýnd Snorra mikiö. Tryggvi Magnússon, sem teiknaöi m.a. Snorra á hin kunnu „islensku spil” eöa „formannaspil” vist skömmu fyrir 1930, bregöur á svipaö ráö, ljær honum svipmót Krohgs en fegrar all nokkuö. Ekki hafa þó allir myndlistar- menn Snorramynda stundaö slik- ar betrumbætur. 1 nýjustu útgáfu Islandssögu Jónasar frá Hriflu 1966) hefur mynd Krohgs veriö numin brott en birt teikning Hall- dórs Péturssonar af háöldruöum, sköllóttum manni meö breitt, sitt skegg og á að vera Snorri. Skyld- leikinn leynir sér ekki og er þetta sönnun um mikinn áhrifamátt Krogs. (Téikning Halldórs er á forsiöu blaðsins). Jóhann Briem listmálari hefur málaö mynd af Snorra, þar sem hann situr á barmi Snorralaugar og birtir okkur sköllóttan, háaldr- aðan hvitskegg, heldur svipþung- an. Áhrifin frá Krohg eru ótviræö. Víst var hann skartmaður Myndhöggvarinn Gustav Vige- land, sem gagnrýndi mynd Kroghs, birtir Snorra unglegri og grennri i styttu af honum, en þrekvaxinn er hann og viröist sækja svipmót sitt aö mestu til Kroghs. Sagter, aö Vigeland sæki hugmyndir sinar um kteöaburö Snorra til Olafs sögu helga, þar sem er lýsing Siguröar konungs sýr, „Engi var hann skartmaður” segir þar um Sigurö og á þaö varla vel viö um Snorra. Siguröur er Imynd stórbóndans, sagöur 'bæöi „friösamur og óágjarn” og er allt yfirbragö höggmyndarinn- ar meö þvi marki, sem varla hæf- ir Snorra eins og honum er lýst i Sturlungu. Mynd Vigelands var sett á Islenskt frimerki strax áriö 1941 en siöan hafa menn ekki látið mikið meö hana, enda ýmsir fundiö henni flest til foráttu. Lik- lega hefur mönnum þótt Snorri Krohgs illskárri. Unglegur, grannur, skegg- laus Nitjándu aldar Norömaöurinn, Snorri Kristjánsson Krohg, hef- ur orðiö Imynd Islendinga um Snorra Sturluson. Megin einkenni þessarar ímyndar eru alskegg, öldurmannlegt, þungbúiö svip- mót og all miklir iikamsburöir. Þessi einkenni koma einnig flest eöa öll fram á Snorrateikningum þeirra Þrastar Magnússonar, Ei- riks Smith og Kjartans Guöjóns- sonar. Ahrifamáttur imyndar Krohgs sést best, þegar skoöaöar eru myndir af Snorra, teikning og fjórar likneskjur, sem uröu til áö- ur en Krohg kom til skjalanna. Elst slikra mynda er, eftir þvi sem best veröur vitaö I Eddu- handriti sem komið er frá hendi Daöa Nielssonar gráa eöa fróöa, teiknuö á 4. eöa 5. áratug 19. ald- ar. Ekki mun vekja mesta athygli manna hár- eða/og klæöatiska sú, sem Snorri semur sig aö á mynd- inni, heldur hitt, að hann er ung- legur, grannur og skegglaus, öf- ugt viö Imyndina frægu. Eins og Móses Vitaö er um a.m.k. fjóra er- lenda myndhöggvara, sem gerðu myndir af Snorra áöur en Krohg teiknaöihina frægu „sjálfsmynd” sina. Elstar eru myndir eftir Norömanninn Julius Middelthun (1820-1886) og Christopher Borch (1817-1896). Mynd Middelthuns er mótuö I leir en Borchs i gips. Þriöji Norömaöurinn, Mathias Skeibrok lauk viö Snorramynd I bronsi áriö 1883 og loks lauk Dan- inn Otto Evens viö mynd af Snorra áriö 1885. Mynd Skeibroks nefnist „Snorri dikterer kongesagene” og hefur veriö sögö eiga aö sýna spennu „mellem deh rolig sittende figur og de store hændelser sem fyller hans sind, — en gjenklang af Mos- es av Michelangelo.” 1 raun standa myndir Middelthuns og Borchs nær mynd Michelangelos, mynd Middelthuns er einna likust henni. Þeir Borch og Middelthun dvöldust samtimis I Róm árin 1852-1854 og höföu' þá tækifæri til aö athuga likneskin af Móses. Snörramyndir þeirra uröu liklega til eftir þessa Rómardvöl. Mathi- as Skeibrok varö siöar nemandi Middelthuns. Eins og Norðmenn- irnir virðist Evans hafa viljað sýna hið sama, Snorra aö áköfu hugarstarfi, liklega aö lesa fyrir. Hóglífur og munaðargjarn Krohg hefur vafalitiö þekkt mynd Skebroks og e.t.v. myndir hinna lika og sýnir okkur á ný- birtri teikningu sinni hiö sama og hinir, Snorra grannvaxinn I stól, nálægt „miöjum” aldri, meö bók i hönd og heldur hugsi. Og enn situr Snorri i stól á hinni frægu „sjálfsmynd” Krohgs, en all breyttur, gildvax- inn og þungbúinn, nánast yggldur og munu flestir hafa fyrir augum jaröbundinn veraldarhöföingja, hóglifan og munaöargjarnan. Bókin er meö sem fyrr, en viröist ekki skipta máli. Hinn siöskeggj- aöi Móses, eftir Michelangelo er þá e.t.v. kveikjan aö „sjálfs- mynd” Krohgs, en breytingin er mikil. Myndir norrænu mynd- höggvaranna fjögurra eru hinar athyglisveröustu, enda ólikar sjálfsmynd Krohgs um margt. Heföi veriö ánægjuleg tilbreyting, aö hafa þær oftar fyrir augum og til þess var mælst I ágætri kynn- ingargrein I Lesbók Morgun- blaösins áriö 1948 aö Islendingar veittu mynd Evens meiri athygli, en kom fyrir ekki. //og bar merki áfengis- notkunar" Tveir Islenskir listamenn hirða litt um hina hefQbundnu Imynd Snorra. Þorbjörg Höskuldsdóttir fer eigin leiöir þegar hún kýs aö gefa Snorra fáa andlitsdrætti og litt mótaöan svip og hefur sú að- ferö ýmsa kosti. Einar Jónsson myndhöggvari hefur gert tákn- ræn verk i minningu Snorra. Mynd hans „Saga” ööru nafni „Minnismerki Snorra Sturluson- ar”, minnir á aöra mynd hans „Einbúann i Atlantshafi”. A báö- Var hann síö- skeggjadur, þrekvaxinn öldungur eöa smávaxinn, rauöhæröur og skegglaus? Laugardagur 19. september 1981 Stytta Norömannsins Christofers Borch um myndunum sést heimskringl- an aö hluta en andlrtsmyndina i siöarnefnda verkinu telur Agúst H. Bjarnasoq geta „lika vei veriö minningarmárk Snorra”. Um lik- ingu meö mynd Krohgs virðist ekki aö ræöa. Túlkun á mynd Einars er óviss, en ljóst að ekki hafa allir lista- menn veriö vissir um aö Snorri hafi veriö þrekvaxinn gráskegg- ur. Sú saga er sögö, aö Snorra hafi borið i draum Gunnlaugs Schevings. Gunnlaugur mundi drauminn og lýsti Snorra þannig: lágvaxinn og grannur, rauðhærö- ur og sköllóttur og bar merki langvarandi áfengisnotkunar. Líkur afkomendum sín- um? Þeir, sem ekki láta sér nægja „sjálfsmyndir”, hugarsýnir og drauma og vilja traustari vit- neskju um útlit Snorra gætu e.t.v. fariö þá leiö aö athuga samkenni meðal afkomenda hans. 1 grein i Lesbók Mbls. (1970) er rakin ætt frá Snorra til sr. Þorvalds Bjarnasonar á Melstaö (1840- 1906) Greinarhöfundur ritar að sér hafi „oft dottiö i hug aö sr. Þorvaldur hafi verið Snorri Sturluson endurborinn eöa imynd hans...” Hann bætir viö: „Og aö útliti var hann eins og Snorri heföi getaö verið”. Höfundur getur þess i lok greinar sinnar, aö dótt- ursonur sr. Þorvalds kenni sagn- fræöi viö Háskóla Islands, og á þar viö Björn Þorsteinsson pró- fessor. En hvað segja heimildir? Var Snorri likur hinni hefð- bundnu imynd eöa var hann ólik- ur henni? Hvaöa visbendingar veita heimildir? Um þaö skal fjallaö næst. Var Snorri skeggjaöur? Erfitt er aö fullyröa um þaö, en mjög liklegt er, aö skegg þaö hiö mikla, sem Krogh lætur breiöa sig niður um bringu Snorra sér tima- skekkja. Eftir myndum aö dæma, voru norskir höföingjar á fyrri hluta 13. aldar meö öllu skegg- lausir eöa meö mjög lítiö, finlegt skegg. Islenskir höföingjar hafa liklega almennt fariö að dæmi þeirra, ekki sist Snorri. Til er mynd, sem talin er sýna Skúla hertoga vin Snorra og er hann þar án skeggs. A þaö hefur veriö bent, að Sturla Þórðarson segi um Snorra fööurbróður sinn á dánardægri: „En hann hljópupp og úr skemm- unni og i hin litlu húsin, er voru viö skemmuna”. A grundvelli þess ályktar Siguröur Nordal, aö Snorri hafi „aldrei gerst mjög þungfær”. Þorgils skaröi af Sturlungaætt var i Noregi um 1250 og sat ein- hverju sinni aö drykkju meö Knúti Hákonarsyni, jarli Hákon- ar gamla i Þrándheimi. Jarlinn talaöi þá háöulega um Snorra Sturluson og einhverja ótil- greinda Islendinga, sem veriö höföu meö Skúla hertoga, liklega skáld hans. Sagan segir: „Tók jarl á þeim öllum heldur litilmannlega. En Þorgils svarar svo i móti, aö þeir frændur hans myndi veriö hafa (þ.e. aö þeir menn heföu veriö til meöal frænda hans) að eigi myndi sig all mikiö vanta þykja á við hann fyrir utan nafnbót”. Þorgils treystir sér greinilega ekki til aö jafna þeim saman, Snorra og Knúti, sem er lýst þannig „mikill maöur vexti og vænn sýnum”. Hann var lika her- skár og vopndjarfur en athygli hefur vakiö aö Snorri er hvergi oröaöur viö bardaga, þótt hann væri uppi á einni mestu bardaga- öld Islandssögunnar og nákvæm- lega sé greint frá vopnaviöskipt- um I Sturlungu. Eru mörg dæmi þess aö Snorri foröaöist þátttöku I bardögum. Léttur á fæti og fimur Sturla Þóröarson segir svo frá

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.