Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 8

Vísir - 19.09.1981, Blaðsíða 8
vtsm Laugardagur 19. september 1981 Skattborgarar mátaöir Vísir hef ur f lutt athyglisverðar fréttir af kostnaði við gerð úti- taflsins við Lækjargötu. Það er komið í Ijós, að nú er búið að eyða 1.7 milljón króna í þetta taf I og þó eru ekki öll kurl komin til grafar. Upphaf lega var gert ráð fyrir að gerð taflsins kostaði 300 þúsund krónur. Þá hafa starfsmenn borgarinnar upplýst, að al- menningi verði ekki veittur að- gangur að taflmönnum þeim er þarna skal nota nema þegar vel viðri. Er helst að skilja, að til greina komi að stilla mönnunum upp ef ekki blaktir hár á höfði, sól skín i heiði og ekki spáð úr- komu næsta sólarhringinn. Hins vegar eigi enn eftir að ráða gæslumenn til að aka tafl- mönnum til leiks þá sjaldan að viðri til slíks. Nú er það í sjálfu sér ósköp saklaust að koma upp þessu úti- tafli við Lækjargötu þótt þetta sé umdeild framkvæmd og vafi leiki á notagildi hennar. Hins vegar er það fyrir neðan allar hellur að ota 1.7 milljón króna reikningi framan í skatt- greiðendur f yrir verk sem átti að kosta 300 þúsund krónur. Það er siðleysi af vinstri meirihlutanum að láta sem ekkert sé þótt kostnaður við eitt verk fari að minnsta kosti 1400 þúsund krónum f ram úr áætlun. Ekki svo að skilja að hér sé um einsdæmi að ræða. Það hefur alltof lengi viðgengist að opinberir aðilar hafa orðið uppvísir að ótrúlegu kæruleysi í meðferð fjármuna skattgreiðenda eins og mörg dæmi eru til um. En það afsakar ekki bruðl þótt aðrir hafi einnig bruðlað. Úti um allt land standa mis- heppnuð minnismerki sem mis- vitrir stjórnmálamenn hafa reist sér. Opinberum fjármunum hefur verið sóað í framkvæmdir sem reyndust óþarfar eða ónot- hæfar þegar til átti að taka. En vinstri meirihlutinn í borgar- stjórn Reykjavíkur hefur ekki miklar áhyggjur af því þótt úti- taf lið muni standa lítt sem ekkert notað. Sigurjón Pétursson hefur lýst því yfir að ekkert mál sé að f jarlægja tafliðef menn vilja. Að matí forseta borgarstjórnar er það ekkert mál að moka yfir 1,7 milljón króna framkvæmd og vekja þessi ummæli þá spurningu hvort ekki sé ástæða til að grennslast fyrir um ýmislegt fleira í rekstri Reykjavikur- borgar. Ef framkvæmd, sem kostað hefur útsvör nokkur- hundruð verkamanna, er litin svo smáum augum, hvernig ætli sé þá haldið utan um peningana þegar um er að ræða verk sem kosta nokkra tugi milljóna. Á sama tíma og upp kemst um útitafIshneykslið eru borgaryfir- völd að fjalla um stórfelldan niðurskurð á framkvæmdum og rekstri Hitaveitu Reykjavíkur. Þetta fyrirtæki er komið í slík f jarhagsvandræði undir vinstri stjórn á ríki og borg, að ekki er lengur hægt að sinna bráðnauð- synlegum viðgerðum og endur- bótum á eldra kerfi, hvað þá að fylgja áætlunum um nýlagnir og boranir. ( sumar var ákveðið að skera niður framkvæmdir Hita- veitunnar um liðlega 14 milljónir og nú verður enn að skera niður um nær 12 milljónir til viðbótar. Fáist ekki 12% hækkun á gjald- skrá þarf að auka þennan niður- skurð enn frekar og daglegum rekstri stefnt í hættu. Meirihlutinn lætur sér fátt um finnast þótt Hitaveitan svelti. Það er svo miklu skemmtilegra að dunda sér við að leggja mis- litar hellur í Lækjargötu og eyða stórfé í grasbala í kring sem að vísu er farinn að láta mikið á sjá. Otgefandi: Reykjaprenth.f. Ritstjóri: Ellert B. Schram. Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Auglýsingastjóri: Páll Stefánsson. Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaðamenn: Axel Ammen- Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson drup, Árni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Ritstjórn: Siðumúli 14, simi 86611, 7 línur. Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- Auglýsingar og skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260. marsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaðamaður á Akureyri: Gisli Afgreiðsla: Stakkholti 2—4, sími 86611. Sigúrgeirsson. Iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmynd- Áskriftargjald kr. 85 á mánuði innanlands j ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. og verð i lausasölu 6 krónur eintakið. Utlitsteiknun: Magnús Olafsson, Þröstur Haraldsson. Vísir er prentaður í Blaðaprenti, Siðumúla 14. Safnvörður: Eirikur Jónsson. P-“---------------------------- Hláturinn lengir lifið, syngur ■ Ómar Ragnarsson. Gangan ■ lengir li'fið og léttir geðið, segir I Magnús Asmundsson. Hann ■ hefur aðeins komið mér á I bragðið eða öllu heldur sporið, ■ sá mikli göngugarpur, fyrst _ með Halldóri Blöndal. Hann I þarf líki að léttast. Ég hef að ■ visu heyrt menn leggja honum ! út til lasts, að hann sé ekki nógu I virðulegur þingmaður. Kannski ■ ætti hann ekki að léttast. Virðu- [ leikinn minnkaði kannski enn | meira við það. Merkilegt hvað ■ þingmenn eru óvinsælir d þess- 1 um siðustu ti'mum. Mér finnst | allt sem þeir gera lagt út á ■ versta veg. ■ En þetta átti að vera um I göngu, og nú er Halldór Blöndal ■ að fundast Ut um allt kjördæmi ■ og tala við atkvæðin sin, fyrr- I verandi, núverandi og verðandi, og taka ákúrum fyrir að vera I hér, þegar hann ætti að vera | þar.og fyriraðsegja þetta, þeg- [ ar hann ætti að segja hitt. En I maður kemur i manns stað, og i það ekki af lakara taginu. Sjálf- ’ ur Stefán Þorláksson hefur | komið túrhestum sinum i haust- Ihaga og til vetrarbeitar og er kominn i bæinn laus og liðugur. _ Það er hann sem hringir og I stingur upp á gönguferð með | Magnúsi frammi i Firði. Við . þurfum aö skoöa nýju brúna I (eða brUnna eins og margir | segja nú) hjá Hrafnagili. Við klöngrumst yfir brúna yf- I irána (eða ánna eins og margir ■ segja nú) og sjáum ekki stiga, ' sem heföi auðveldaö okkur för | og losaö okkur við klifrið, fyrr ■ en á leiöinni til baka. Og ósköp ' vorum við fegnir stiganum. 1 | fyrri ferðinni vogaöi að visu I enginn aö viröast hræddur, og ■ liklega hafa þeir Magnús og I Stefán ekki verið það. Stefánkennirokkur svabisku, I og það er nU ekki dónalegt I tungumál, öll nafnorð hvorug- Gisli Jóns-, son skrifar Þetta er nefnilega allt of auð- velt, en þá rifjast upp að höf- undur tók sér einu sinni refsi- vald, þegar Stefán kom of seint til skólasetningar. Höfundur hafði þá nýlært frábæra danska þýðingu á grásleppuvfsu Frey- steins Gunnarssonar, en hefur nú gleymt henni og finnur ekki Kjartan i Asi'ufélaginu til að rifja hana upp. En refsingin, sem lögö var á Stefán Þorláks- son, var að þýða grásleppuvis- una á þýsku. Svo kvað Frey- steinn: AF kyns og enda öll á -le, og allar sagnir enda á a i' nafnhætti eins og i islensku. Þessi kollótta þýska er sem sagt töluð i þvi gamla Schwaben, þar sem nú er rikið Wurttemberg (meö tveim- ur t-éum) og Stóðgarðar (Stutt- gart) höfuöborg. Þar er Sverrir Páll á ættarmóti. Kveöskapurinn streymir upp úrStefáni Þorlákssyni, og hann heldur áfram að tala tungum. Viö Magntls komum aðeinni og einni visu. Magnús fer með nýja gerð af augnavisu Vatnsenda- Rósu og ber meira að segja Moggann minn fyrir, þegar ég segi aö mér þyki visan ekki GÖNGV Vatnsenda-Rósuleg i þeirri gerö: Augað mitt er eins og þitt með ofuriitla steina. Ég á þitt og þú átt mitt, þú veist hvað ég meina. Af þvi að orðiö Vatnsenda- Rósulegur kemur fyrir, er vitn- að i vi'su eftir Benedikt Gröndal, þar sem fyrirfinnst I lokalinu lengsta atviksorð i islensku: Mér er sem ég sjái hann Kossút á sinni gráu að reka hross út. Sina gerir hann svipu upp vega s érastef áns á mos f ellilega. Kossút var ungversk frelsis- hetja á öldinni sem leið, en það gerir ekkert, og Stefán er búinn að þýöa hina klassisku gerð vis- unnar hennar Rósu Guðmunds- dóttur á þýsku (ekki svabisku) og er nú ekki mikill vandi: Augen mein und Augen dein, oh, die schönen Steine. Mein ist dein und dein ist mein, du weisst was ich meine. Grásleppan lifir suður með sjó, sýnir hvað hún er gáfnasljó, að flestir fá þar i nætur nóg næstum á hverjum vetri. En aðrir fiskar I öðrum sjó eru vist litið betri. Stefán þýddi: Der Fishnlumben lebt im fernen Meer an Frankreichs Ufer, so dumm ister, dass viele Leute ihn fast zu sehr fangen durch Netz und Köter. Als andere Fische woanders her ist er doch wenig blöder. Þannig veröa Suöurnesin að Frakklandsströnd, þegar menn kunna sitt fag. 15.9.’8i G.J.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.