Vísir - 19.09.1981, Síða 20

Vísir - 19.09.1981, Síða 20
20 Laugardagur 19. september 1981 myndin er þaö lika. Hún byrjar, eins og bókin, á kartöfluakri, þar sem situr kona i mörgum pilsum. Viö sjóndeildarhringinn sjást löggur aö elta mann. Þessi maöur leitar skjólsundir pilsum konunnar, sem hristir hausinn, þegar lögreglumennimir spyrja hana um þann elta. 1 sama mund er móöir Óskars getin undir pilsunum og þannig hefst saga stráksins með trommuna! Erfið kvikmyndunar Marga kvikmyndagerðar- menn haföi dreymt um aö búa til mynd um Óskar. En Gunter Grass var ekki á þvi. Og raunar voru flestir á þvi, aö þaö væri útilokaö að búa til kvikmynd eftir þessari bók. Schlöndorff leistilla á það i byrjun. Honum fannst máttur skáldsögunnar liggja i orðunum, orðum sem ekki er hægt að breyta i kvik- mynd. Schlondorff var hálft ár að hugsa sig um áöur en hann gaf framleiðendum kvik- myndarinnar jákvætt svar. Hann fór á fund Grass og þeir ræddu handritiö. Grass var raunar meö i ráðum allan timann, skipti sér mikiö af handritinu og siðar af upp- tökunum. Hann skrifaði sjálfur mörg samtöl myndarinnar og einnig eintal öm mu Óskars, sem hún talar fram i lokin. Hann ræddi einnig persónurnar viö leikarana og skýrði Ut fyrir þeim, hvaöa fólk þetta væri, sem veriö væri að lýsa. „Lágstéttarfólk, þaö fólk, sem kom Hitler til valda. Þaö var hugsunarháttur þessa fólks, sem náði yfirhöndinni — ekki einhver machiavelliskur djöful- máttur.” Kenning Grass — og hann er alls ekki einn um þá kenningu — er að rætur nasistatímabilsins, sé að finna i sjúku hugarfari þýskrar borgarastéttar þegar i lok fyrri heimstyrjaldarinnar. Enda tekur óskar ákvöröun sina um að halda áfram að vera barn, áður en nasistarnir ná völdum. 1 huga Óskars er nasisminn aðeins afleiðing alls þess, sem hann hefur þegar snúið baki við. Óskar, aðalhlutverk sögu og kvikmyndar, er leikinn af 13 ára gömlum dreng, David Bennent, sem Schlöndorff var bent á þegar hann innti lækna eftir hliðstæðum'óskars, mann.sem hættir að vaxa. David þessi hefur vaxtarlag 4 ára drengs, en hefur haldið áfram að þroskast andlega þ-átt fyrir það. Schlöndorff sagði um hann, að það hefði ekki verið smæð Dacids, sem réði úrslitum þegar hann réðihann i aðalhlutverkið, heldur augu drengsins, „stór, alsjáandi augu, sem um leið virtust hafá alla sögu Tintrommunnar á bak við sig.” Leikur David Bennents er ekki hvað sist það sem gerir þessa kvikmynd stórbrotna ,,Reyndi að þjóna bókinni.” Si"ðasti hluti bókarinnar segir frá þeim tima er þýska efna- hagsundrið var að koma undir sigfótunum, en Schlöndorffnam staðar árið 1956, enda átti hann fullt i fangi með að klippa tæp- lega 4 klukkustunda kvikmynd niður i hæfilega lengd eins og var. En hann hefur gefið i skyn að e.t.v. eigi hann eftir að kvik- mynda siðasta hlutann seinna. Hrósyrðum um kvikmyndina Tintrommuna eins og hún stendur, svaraði Schlöndorff á þessa leið: ,,Ef maður er.með svo frum- legt listaverk á milli handanna eins og skáldsaga Grass er, þá leggur maður sig ekki niður við að reyna að gera eitthváð enn frumlegra. Þá er um að gera að gleyma sjálfum sér, þá má ekki segja sem svo: Grass skrifaði bókina en sjáður hvað ég gerði flott mynd um hana! Ég reyndi dcki að gera Tirv trommuna að minni eigin mynd, ég reyndi bara að þjóna bókinni.” Tintromman hlaut óskars- verðlaunin árið 1980 sem besta erlenda kvikmyndin. Hún verður sýnd i Tjamarbiói á sunnudaginn, fimmtudaginn og sunnudaginn annan kemur. Samantekt/Ms David Bennent I hlutverki Óskars. Kvikmynda- klúbburinn Fjala- kötturinn hefur starf- semi vetrarins á morgun með sýningu þr i g g j a mynda: Bhumika, Tin- trommunni og Jane Austen in Manhattan. Tintromman Kvikmyndin eftir skáldsögu Gunters Grass veröur frumsýnd hér á landi á sunnudaginn á vegum Fjalarkattarins Bhumika er indversk kvikmynd, leikstjórinn heitir Shyam Benegal, og fjallar um leik- konuna Usha og van- mátt hennar til að lifa sjálfstæðu lifi í heimi sem sniðinn er á karl- menn. Kvikmyndin Jane Austen in Manhattan er ensk/bandarisk (1980) og leikstjórinn er James Ivory. Sagan segir frá tveimur leikflokkum, sem keppast við að koma á fjalirnar nýuppgötvuðu leikriti eftir Jane Austen (vonandi vita allir hver Jane Austen var!) og eins og segir i kynningu Fjalakattarins, er „fyndin hugleiðing um leikhús.' Rúsinan i pulsuendanum ku vera sú, að i lok myndarinnar hefur maður fengið þá stórkost- legu reynslu að horfa á nýja Jane Austen sögu. Þriðja kvikmyndin, sem Fjalakötturinn hefur sýningar á á morgun er svo Die Blechtrommel, Tintromman, kvikmynd frá 1979 eftir þýska leikstjórann Volker Schlöndorff, gerð eftirsamnefndriskáldsögu Gunter Grass. Meö allri virðingu fyrir hinum myndunum báðum, verður að segjast að þetta er kvikmynd sem allir ættu aö sjá, enda hefur sýninga á henni verið beðið með nokkurri óþreyju hérlendis. Tintromman er ein fárra kvik- mynda, sem gerðar hafa verið eftir bókm enntaverki og náð anda orðanna á þann hátt að kvikmyndin verður jafnmikið afrek og bókin. Og þá er mikið sagt. Die Blechtrommel Bók þýska rithöfundarins Gnnters Grass, Die Blech- trommel, eða Tintromman^ kom fyrst út árið 1956. Hún hefur alla tið siðan verið talin með þvf sem hæst ris á þýskum menningarhimni eftir strið. Bókin hefur verið þýdd á 20 tungumál (nei.ekkiá islensku!) og selst i yfir þremur milljónum. Tintromman er bdk, sem nær allir Þjóðverjar kaupa sér og langflestir lesa og hafa gaman af, enda er þetta makalaus bo"k. Hún segir frá Óskari sem býr i Danzig, (heimaborg Grass nú Gdansk), Óskar neitar að vaxa nokkuð úr grasi frá þriggja ára aldri þvi hann getur ekki hugsað sér að taka þátt i' samfélagi fullorðna fólksins. Þess í stað ber hann bumbu og öskrar svo hátt að gler brotnar i mola og yfir- gnæfir þannig brjálæði um- heimsins. Hann horfir stórum barnsaugum á veröldina hrynja i rúst fyrir hendi fullorðinna brjálæðinga, nasistanna. Saga Óskars tengist sögu Þýskalands , Þjóðverja og Pólverja og er auk þess að vera djúpúðug og full alvöru, bráðskemmtileg og á köflum sprenghlægileg. Kvik- Atriði úr myndinni. David Bennent, GUnter Grass og Volker Schlöndorff. Myndin var tekin á meðan kvikmyndun Tintrommunnar stóð.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.