Vísir - 02.10.1981, Síða 9

Vísir - 02.10.1981, Síða 9
Föstudagur 2. október 1981 Lánafvrirgreiösla tii Jökuis á Raufarhöfn: „Eggert Haukdai tefur lánln” - segír Haraldur Jðnsson skip- stjóri á Rauðanúpi „Það er augljóst að Eggert Haukdal form. stjórnar Byggðasjóðs, hefur tafið lánveitingar til okkar, vegna þess að þær hafi ekki verið ræddar formlega i stjórn sjóðsins, eins og hann orðar það i Visi i fyrra- dag”, segir Haraldur Jónsson skipstjóri á Rauðanúpi i samtali við blm. „Samkvæmt þvi sem Svavar Gestsson ráðherra sagði hér á Raufarhöfn á fimmtudag var ráðherranefnd búin að sam- þykkja þessa fyrirgreiðslu. En á fundi með þingmönnum kjör- dæmisins á sunnudag kom fram að einhver hafði kippt i spotta og tafið afgreiðslu málsins. „Eggert segir i Visi að málið hafi ekki verið rætt formlega i Byggðasjóði og sé þvi óafgreitt. Hann klykkir út með þvi að viðar séu vandamál en á Raufarhöfn. „Geir hann sér ekki grein fyrir þvi að atvinnulif staðarins er i rústum. Rauðinúpur hefur verið bundinn við bryggju i fimm vikur og sjómennirnir hafa ekki fengið kaup i tvo og hálfan mánuð. Starfsmenn frystihússins hafa verið kauplausir i einn og hálfan mánuð. Mér er alveg sama hvort málið hafi ekki verið rætt form- lega eða óformlega, hvað sem það á nú að þýða. Staðreyndirnar liggja ljósar. Eitthvað verður að gera og það fljótt”. -gb. „Hef ekkl taflð lán tll Jökuis" segip Eggert Haukdal , ,Það er mesta firra að ég hafi tafið lán til Jökuls h/f á Raufarhöfn og ég veit ekkert um ákvarðanir ráðherra- nefndarinnar”, sagði Eggert Haukdal, stjórnarformaður Byggðasjóðs, i tilefni af ásökunum Raufar- hafnarbúa i Visi. „Beiðni um ábyrgð Byggða- sjóðs fyrir þessum lánum hafði ekki komið fyrir stjórn Byggða- sjóðs, þegar siðasti fundur var haldinn fyrirstuttu. Málið verður rætt á fundi sjóðsins á föstudag og get ég ekkert sagt fyrir um ákvaröanir hans”. —gb vlsm Prjónastofan Pólarprjón á Blönduósi en á Norðurlandi hafa verió starfræktar 15 prjóna- og saumastofur sem ekki fá lengur neinar pantanir frá Evrópulöndum. Alvarlegur verkefnaskortur hjá 60 prjöna- og saumastofum um alll lanfl: Hundruð hafa missl alvinnuna nú hegar „Þetta er stóralvarleg þróun, óhófleg framleiðslugeta miðaö við sölumöguleika, sölustöðvun á Evrópumarkað vegna gengis- mála og gengistap frá fyrri helm- ingi ársins allt þetta og fleira til er að kippa fótunum undan stór- um hluta þeirra sextiu prjóna- og saumastofa viðs vegar á landinu, sem framleiða islenskan ullar- fatnað á erlendan markaö. Það munu vinna á þriðja þúsund manns f þessum iönaði og hundruö hafa þegar misst atvinn- una”, sagði Jonny Simonarson á Selfossi, formaður nýlega stofnaðra Hagsmunasamtaka prjóna- og saumastofa, þegar Visir ræddi við hann i gær. Hann sagði að 23 nýjar sauma- stofur hefðu verið stofnaðar i fyrra. A sama tima hefðu hag- ræðingaraögerðir hjá eldri stof- um aukið afkastagetu þeirra. Og ofan I kaupið heföi sala á flikum breyst i þá átt, að aukist hefði framleiðsla á þvi sem væri ófóörað en það þýddi mun styttri saumatima. Þá sagði Jonny að prjóna- og saumastofur hefðu til skamms tima orðið að taka rekstrarlán á dollaragengi, þótt þær seldu yfir-' leitt útflytjendum i islenskum krónum. Þetta hefði verið afar óhagstætt að undanförnu og grafiö undan stöðu margra stof- anna. Zophonias Zophoniasson á Blönduósi sem stjórnar Pólar- prjóni, stórri prjónastofu og er framkvæmdastjóri Samtaka prjóna- og saumastofa á Norður- landi sagði að þau 15 fyrirtæki sem væru innan þessara samtaka hefðu selt um 70% á Evrópu- markað en þaðan bærust nú eng- ar pantanir eftir undanfarandi gengisþróun. Aðeins átta fyrir- tæki i þessum samtökum eru i gangi en öll með lágmarksfram- leiðslu. Zophónias sagði sér hafa veriö tjáð að gengisbætur Seðla- bankans til þeirra sem hefðu tek- iödollaralán en selt gegn greiöslu i Evrópumyntum, næði ekki til prjóna- og saumastofanna þar sem þær fengju yfirleitt greitt frá útflytjendum i islenskum krón- um. Þó væri verð stofanna auð- vitað miöað viö gengi Evrópu- gjaldmiöla. Þá skýrði Jonny Simonarson frá þvi að töluverð brögð væru nú að útflutningi einstakra stofa i gegn um vini og kunningja er- lendis á útsöluveröi. Þetta hefði þegar truflað sölustarfsemi út- flytjenda i einhverjum mæli. HERB f tmf ' &>, v WkxTM Helgarferðir til Luxemborgar hafa notið mikilla vinsælda og nú bætast við feröir til Kaupmannahafnar, Oslóar) Stokkhólms og London. Flugleiðir bjóöa ódýrar helgar- ferðlr til Evrópu Frá þessum mánaðamótum bjóða Flugleiðir ódýrar ferðir, svokallaðar helgarpakkaferðir, til Kaupmannahafnar, London, Luxemborgar, Oslo og Stokkhólms. Innifalið i flugfargjaldi er gisting og morgunverður á góðum hótelum. Flugleiðir annast einnig pantanir á bilaleigubilum og skoðunar- ferðum. Til Kaupmannahafnar verður flogið alla föstudaga og dvalið þrjár nætur á hótelum i miðborg- inni. Verð helgarpakkans til Kaupmannahafnar er frá 3.374.00 kr. til 3.968.00 kr. Sama fyrirkomulag verður á ferðum til Oslo, fram til 27. okt. en þá lengist dvölin um einn sólarhring og verður flogið heim á þriðjudögum. Verð á ferðunum til Oslo á fyrra timabilinu er frá 2.133.00 kr. til 2.846.00 kr. en verð- ur á seinna timabilinu 2.149.00 kr. til 2.842.00 kr. Helgarferðir til Luxemborgar verða með svipuöu sniði og i sum- ar. Brottför er alla laugardaga og dvalið i þrjár nætur. Verð per. mann i tvíbýlisherbergi er 2.466.00 kr. en 2.631.00 kr. i ein- býli. Nú er i fyrsta skipti boðið upp á ferðir til Stokkhólms, brottför alla föstudaga og dvalið i þrjár nætur. Verð er 2.647.00 kr. til 2.949.00 kr. Frá 27. okt. verður gisting ytra i f jórar nætur og verð - á bilinu frá 2.812.00 kr. til 3.330.00 kr. Þá verða einnig helgarferðir til London og brottför á fimmtudög- um. Hlé verður á þessum helgar- ferðum yfir jól og nýár frá 15. des. til 15. jan. Þá hefjast þær aftur og verða til 31. mars nema til Luxemborgar en þangað verða ferðir til 28. feb. Flugvallar- skattur er ekki innifalinn i ofan- greindu verði. -gb

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.