Vísir - 02.10.1981, Page 28

Vísir - 02.10.1981, Page 28
V.’Jj Föstudagur 2. október 1981 síminner 86611 veöurspá úagsins Fjárhagsvandi hjá Félagsstoinun stúdenta: Háll mllllon slað hálfrar Yfir noröanveröu Grænlandj er 1040 mb hæð og -þaðan hæöarhryggur suður um Grænlandshaf. Um 500 km austur af Langanesi er 985 mb lægð og önnur álika yfir Eng- landi. Báðar þessar lægðir hreyfast norðaustur. Frost verður áfram, nema sunnan- lands veröur frostlaust um miðjan daginn. Suöurland: Norðanátt allhvöss austantil i fyrstu, en annars kaldi og siðar gola. Léttskýjað. Faxaflói til Stranda og Norðurlands vestra: Norðan gola og léttskýjað. Norðurland eystra: Norðan kaldi eða stinnings- kaldiogdálitilél I dag, engola og bjart veöur i nótt. Austurland að Glettingi: Allhvöss norðanátt, en stormur á miðum og él i fyrstu, en mun hægari i nótt og fer þá ab létta til. Austfiröir: Norðanátt i dag, en kaldi i nótt. Éljaveður norðantil. Suð-Austurland: Allhvöss norðanátt i dag en kaldi I nótt. Léttskýjað. Veðrið hér og har Kl. 6 I gær: Akureyri snjóél h-2, Bergen aiskýjað 18, Helsinki þoka 9, Kaupmannahöfn þokumóða 15, Oslóþokumóða 13, Reykja- vik léttskýjað -^2, Stokkhóim- ur þokumóða 12, Þórshöfn slydduéi 3. Kl. 18 i gær: Aþena heiðskirt 23, Berlín skýjab 17, Chicago skýjað 14, Feneyjar léttskýjað 18, Nuuk skýjaö 5, London alskýjað 17, Luxemburgléttskýjaö 13, Las Palmas léttskýjað 23, Mailorka skýjað 27, Montreal alskýjaö6, New Yorkalskýjaö 12, Paris úrkoma á slöustu klukkustund 15, Róm léttskýj- a6 20, Malagaalskýjað 26, Vin þokumóða 14, Winnipeg íiálf- skýjaö 8. Loki segir Er ólafur Ragnar genginn i breska Verkamannaflokkinn? - gieymdlsl að gera ráð fyrir afborgun lána I fyrrl rekstraráætlun Mikill fjárhagsvandi steöjar nú að Félagsstofnun stúdenta. Hefur komið I ljós, að ranglega hefur veriö staðiö að rekstaráætluninni fyrir árið I ár, og muni það hvorki meira né minna en hundrað milljónum gömlum eða einni nýrri miljón. Forsaga þessa máls er sú, að þegar fyrrum framkvæmdastjóri Félagsstofnunar, hætti störfum þar fyrir rúmum mánuöi, lagði hann fyrir stjórn Félagsstofnunar rekstraráætlun fyrir áriö I ár, og átti húii að skila 50 milljónum gömlum I rekstrarafgang. Um þaö leyti tók til starfa viö stofnun- ina fjármálastjóri, sem endur- reiknaöi rekstraráætlunina og kom þá i ljós, aö þaö haföi gleymst að gera ráð fyrir lánaaf- borgunum, útistandandi skuldir ofreiknaðar og annað slikt, svo útkoman varð 1 staöinn 50 milljónir gamlar i rekstrarhalla, eða hálf milljón nýkr. „Jú, þetta er rétt, þaö var ekki rétt staöið að rekstraráætlun- inni,” sagði Pétur J. Eirlksson, núverandi stjórnarformaður Félagsstofnunar, i samtali viö VIsi, þegar þetta mál var borið undir han. — En hvað er til ráða? „Ja, þetta komst ekki upp fyrr en nú I vikunni, þannig að við höf- um ekki gert ráðstafanir ennþá, en þaö er ljóst, aö við þurfum að þefa uppi einhverjar tekjuleiðir. Þaö þarf að skera niður kostnað og reyna að fá meiri tekjur af þeim stofnunum, sem við rekum, svo sem matsölunni, feröaskrif- stofunni og fleiru,” sagði Pétur J. Eiriksson. Aætluð velta Félagsstofnunar fyrir árið 1981 er um 30 milljónir nýjar, svo það munar um minna en milljón. — KÞ. „Við heföum beðið i allan dag, ef þú hefðir ekki látiö okkur vita, að vagninn kæmi ekki”, sögðu þessar konur, sem vorubúnar aðbiða drykklanga stund eftir strætó i nepjunni við Breiðagerði. Innskotsmynd- in sýnir þengingu vegarins, sem er strætóbilstjórum þyrnir Iaugum. — (Visism.: GVA). STRÆTÓ SNEIBIR FRAM HJA BREIÐAGERÐINU Strætisvagnabilstjórar á leiöum 6 og 7 hafa i vikunni neitað að aka Breiðagerði vegna þess að gatan hefur verið þrengd á kafla viö Breiðageröisskóla. Fyrir vik- iö hafa margir misst af strætó og oröið fyrir óþægindum. Nokkrir strætisvagnar hafa orðið fyrir hnjaski viö keyrslu um þrengslin. Samkvæmt upplýsingum Gutt- orms Þormars á skrifstofu borgarverkfræöings, var þetta gert að beiðni Foreldrafélags Breiðagerðisskóla og á að minnka slysahættu við skólann. „Ég tel þessar framkvæmdir eiga rétt á sér, bifreiðar verða að minnka hraðann niður i 10 km.svo að slysahætta minnkar töluvert við skólann. Svipaö fyrirkomulag hefur gefist ágætlega i Breiðholti, en að sjálfsögðu er þetta óþægi- legt fyrir alla umferð, strætis- vagna, snjómokstur o.s.frv.” — gb. 1-0 fyrir Karpov Karpov hreppti vinninginn i fyrstu skák heimsmeistaraein- vigisins I Meranó á ttaliu, þar sem Korchnoi hafði þó hvitt. Beitti Korchnoi drottningar- bragði, sem Karpov hafnaði, og virtist skákin stefna i jafnteflis- slóðir, þegar nálgaðist miðtaflið. Þá yfirsást Korchnoi, að Karpov gat eyðilagt peðastöðu hans og stýrt skákinni iendatafl, þar sem hvitu peðin voru dauðans matur og yfirburðir svarts leiddu til vinnings. Enn leitaö Leitin að Indriða Jónssyni, sem saknað hefur verið siöan i fyrra- dag, hefur enn engan árangur borið. Leitað var á öllu höfuðborgar- svæðinu i gær, og einnig i Mos- fellssveitinni. Nokkrar upplýs- ingar hafa borist til lögreglunnar, en engar sem að halda hafa kom- iö við að finna Indriða. Lögreglan skorar á fólk að lita vel i kringum sig og athuga sumarbústaðalönd sin i nágrenni Reykjavikur. ennfremur eru starfsmenn stórra fyrirtækja beðnir um að leita á lóðum fyr- irtækja sinna. — ATA. Byggöasjóður: Heldur fund um JöKul í dag I dag mun stjórn Byggöasjóðs ræða beiðni Jökuls h/f á Raufar- höfn um ábyrgð fyrir tveggja mil- jón króna láni. Jökull á i miklum rekstrarerfiðleikum, togarinn Rauöinúpur hefur verið bundinn viö bryggju i fimm vikur, og sjó- menn og verkafólk i landi ekki fengið kaup sitt greitt svo vikum skiptir. — gb. —Sjá frétt bls.9 STÓR HLUTI UPPSKER- UNNAR ENN UNDIR SNJð fcrfiðlelkar hjá kartðflubændum I Eyjafirði: „Þessi hvita úrkoma á eftir allri blautu úrkomunni að undan- förnu, veröur eflaust til að fylla mælinn hjá mörgum kartöflu- bændum við Eyjafjörð”, sagöi Sveinberg Laxdal, kartöflubóndi við Eyjafjörð I samtali við Visi i gær. A miðvikudagskvöldið gekk I norðan garra nyröra, sem stend- ur enn. Að sögn Sveinbergs eiga margir kartöflubændur viö Eyja- fjörö stóran hluta af uppskeru sinni undir snjónum, þvi að upp- takan hefur reynst tafsöm vegna óvenju mikilla rigninga. Hún fór einnig seinna af stab vegna lé- legrar sprettu. Taldi Sveinberg ekki óliklegt aö verðmæti þeirrar uppskeru, sem enn er i jöröinni, væri tvær og hálf til þrjár milljón- ir króna. Margir bændur hefðu verið rétt byrjaðir aö taka upp, þegar norðangarrinn brast á, aörir voru rétt hálfnaðir, en að- eins örfáir voru búnir. Taldi Sveinberg, að þessar kartöflur yrðu ónýtar, ef ekki kæmi þiða innan viku. Fyrir þetta áfall var sýnt, að uppskeran hjá kartöflubændum við Eyjafjörö yrði ekki nema um helmingur af meðaluppskeru þar sem best var, en viöast hvar ekki nema fjórðungur. Taldi Svein- berg sennilegt, aö margir gæfust upp eftir slikt árferöi. GS, Akureyri/-jsj.

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.