Vísir - 03.11.1981, Qupperneq 8
8
Þriöjudagur 3. nóvember 1981
■nfHT ______ Fréttastjóri: Sæmundur Guðvinsson. Aðstoðarfréttastjóri: Kjartan Stefánsson. Auglýsingastjóri: Páll Stetansson. 1
Fréttastjóri erlendra frétta: Guðmundur Pétursson. Blaöamenn: Axel Ammen- Dreifingarstjóri: Sigurður R. Pétursson
drup, Árni Sigfússon, Herbert Guðmundsson, Jóhanna Birgisdóttir, Jóhanna Ritstjórn: Síðumúli 14, simi 86611, 7 linur.
Sigþórsdóttir, Kristín Þorsteinsdóttir, Magdalena Schram, Sigurjón Valdi- Auglysingar og skrifstofur: Siðumúla 8, simar 86611 og 82260.
t raarsson, Sveinn Guðjónsson, Þórunn Gestsdóttir. Blaöamaður á Akureyri: Gísli Afgreiðsla: Stakkholti 2—4, simi 86611.
Sigurgeirsson. iþróttir: Kjartan L. Pálsson, Sigmundur O. Steinarsson. Ljósmynd- Áskriftargjald kr. 8^5 0 mánuði innanlands
ir: Emil Þór Sigurðsson, Gunnar V. Andrésson. . og verð i lausasölu 6 krónur eintakið.
útgefandi: Reykjaprent h.f. 'utlitsteiknun: MagnúsÖlafsson, Þröstur Haraldsson.
Ritstjóri: Ellert B. Schram. Safnvörður: Eirikur Jónsson. Vísir er prentaður i Blaðáprenti, Síðumúla 14.
VENDIPUNKTUR
Vegna þeirrar óvanalegu stöðu
sem ríkt hefur í Sjálfstæðis-
flokknum hefur stjórnmálaþró-
unin tekið nokkurt mið af því,
hvað gerast myndi á landsfundi
flokksins. Fundurinn átti upp-
haflega að fara fram í vor, en
honum var frestað til að vinna
tíma. En um leið og þannig skap-
aðist aukið svigrúm fyrir sjálf-
stæðismenn, og þá einkum
st jórnarandstæðinga innan
flokksins, til að ráða ráðum sín-
um, þá var af leiðingin sú að f jöl-
mörg úrlausnaratriði fóru í bið.
Það hefur lengi verið Ijóst, að
andstæðingar Sjálfstæðisflokks-
ins hafa hlakkað yf ir þeim klofn-
ingi, sem myndast hefur vegna
stjórnarmyndunarinnar. Þeir
haf a séð sér leik á borði að grafa
undan stærsta flokknum og ýta
undir ágreining innan hans. Þeir
hafa hampað ráðherrum Sjálf-
stæðisf lokksins, en níðst á stjórn-
arandstöðuliðinu, einkum for-
manninum.
Margvíslegar stjórnarathafn-
ir, ákvarðanirog málatilbúnaður
hefur beinlínis tekið mið af
landsfundinum og stöðunni í
Sjálfstæðisf lokknum. Aðstæður
skyldu vera eins hagstæðar fyrir
ríkisstjórnina og Gunnar Thor-
oddsen og kostur væri, til að
styrkja vígstöðu hans á fundin-
um. Andstæðingar Sjálfstæðis-
flokksins gerðu sér ákveðnar
vonir um að til algjörs uppgjörs
kæmi á landsfundinum, staða
formannsins skyldi verða sem
veikust.
Þessar vonir hafa brugðist.
Áferðarfallegt yfirborð í stjórnar.
samstarfi, hagstæðir verðbólgu-
útreikningar og glansmynd í
efnahagsmálum var vissulega
skrautfjöður í málflutningi
stjórnarsinna. En það réð ekki
úrslitum. Landsf undurinn lét það
sem vind um eyrun þjóta. Það
voru önnur mál ofar í hugum
landsfundarfulltrúa, og þau
snerustekki um stjórnarathafnir
heldur f lokkshagsmuni, ekki um
efnahagsmál, heldur flokksá-
stand.
Landsfundarfulltrúar tóku af-
stöðu til manna en ekki málef na í
þessum skilningi.
Og nú er þessi landsfundur af-
staðinn, og öllum Ijóst, að ósk-
hyggjan um endanlegan klofning
rættist ekki. Gunnar situr sem
fastast. Geir einnig, og tæp tvö ár
í næsta landsfund.
Það er of langur tími f yrir and-
stæðinga Sjálfstæðisflokksins að
láta allt vaða á súðum í þeirri von
að upp úr sjóði. Þeir munu ekki
lengur geta haft annað augað á
innanmeinum Sjálfstæðisflokks-
ins við afgreiðslu á vandamálum
í stjórnarráðinu. Nú verður erf-
iðum ákvörðunum ekki lengur
frestað fram yfir landsfund
sjálfstæðismanna. Þetta mun
hafa sín áhrif á atburðarásina á
næstunni. Nú er til lítils að draga
upp glansmyndir eða f ramlengja
víxla. Nú hefur alvara lífsins
tekið við.
Erfiðar ákvarðanir bíða ráð-
herra og ríkisstjórnar. Verka-
lýðshreyfingin hefur sett fram
sínar kröfur, fiskverðshækkunin
hefur aukið vanda f iskvinnslunn-
ar, verðhækkunum verður illa
haldið t skef jum, ef forðast á at-
vinnuleysi. Alvarlegar horfur í
loðnuveiðum setja stórt strik í
reikninginn og f jölgengisstefnan
er að bresta.
öll þessi vandamál eru stærri
en svo, að unnt sé að láta lausn-
irnar ráðast af sólstöðunni í
Sjálfstæðisflokknum. Þetta vita
ráðherrarnir, þetta vita þing-
menn. Almanak stjórnmála-
mannanna mun ekki lengur taka
mið af landsfundi, heldur þeim
óumf lýjanlega vanda, sem eykst
stöðugt.
Það kæmi því ekki á óvart, þótt
breytt viðhorf muni setja svip
sinn á stjórnmálaþróunina á
næstunni. Landsf undurinn og úr-
slit hans geta orðið vendipunkt-
urinn í fleiru en einu tilliti.
Ragnhildur P. Ofeigsdóttir skrifar fréttapistil að vestan:
Tungliö var fullt. Marglitur
mannfjöldinn sveigöist og
beygöist í dýonísku algleymi i
fjólublárri næturslikjunni. Loft-
iö var þrungiö ilmi ekki ósvip-
uöum reykelsi. Gulglitrandi
goöiö þeyttist fram og aftur á
vængjum eigin tóna uppi á sviö-
inu, sem einna helst minnti á
altari.
Var senan grisk helgiathöfn
undir fullum mána frá þvi fyrir
kristsburö? Nei, senan var Coli-
seum i" Los Angeles þann 9.
október 1981 á langþráöum tón-
leikum Rolling Stones, hassilm-
urinn fyllti vit manna og goöiö
var Mick Jagger.
Rolling Stones sem ekki hafa
komiö fram opinberlega í þrjú
áreru á tveggja mánaöa hljóm-
leikaferö um heiminn.
Mikil spenna hefur veriö sam-
fara þessari hljómleikaferö.
Fjölmiölar hafa fylgst náiö meö
Rolling Stones upp á siökastiö
og útvarpsstöövar hafa útvarp-
að lögum þeirra i tima og ótima.
Um 400 blaöamenn og ljós-
myndarar voru viöstaddir
fyrstu tónleika feröarinnar I
Filadelfiu, Pennsylvaniu, sem
er meira en nokkru sinni áöur.
Allir
kvíðnir
Eftirvæntingin sem hefur
beinst að þessum tónleikum
viröist lika hafa haft dhrif á
Rolling Stones sjálfa. Mick
Jagger lýsti því yfir á undan
öðrum konsertinum iFiladelfi'u,
aö allir „yröu kviönir og efuðust
um sjálfa sig, eftir aö hafa ekki
komið fram i þrjú ár”.
Enginn vafi er á þvi aö þessi
mikli áhugi á þessari tónleika-
ferð Rolling Stones er sumpart
tilkominn vegna morösins á
John Lennon fyrirárisiöan. Þaö
geröi fólki ljóst aö timaskeiö
væri á enda sem kæmi aldrei
aftur.
Aköfustu aödáendur Rolling
Stones bjuggu um sig fyrir
framan leikvanginn kvöldið fyr-
ir konsertinn til aö biöa átrún-
aöargoða sinna. Rolling Stones
spiluöu bæöi lög frá nýjustu
plötu sinni „Tattoo You” og
gömlu góöu lögin sin á konsert-
inum. Hápunktur tónleikanna
var þegar Mick Jagger sté upp i
vinnupallinn á endanum á löng-
um krana, sem hóf hann á loft
viö hrifningaröskur áhorfenda
um leið og hann söng „Jumpin’
Jack Flash”. Fólkið tjáöi til-
finningar sinar meö þvi að lyfta
logandi sigarettukveikjurum
sinum hátt upp yfir höfuð sér.
Angurværö, söknuöur eftir
liönum tima var hin rikjandi til-
finning á tónleikunum. SU tii-
finning náöi hámarki i lokin
með laginu „Satísfaction”.
Demonisk
imynd
Angurværöin dtti mikinn þátt
I hinni óvenjulegu stillingu sem
áhorfendur sýndu á þessum tón-
leikum. Stór hluti af niutiu þús-
undum sem sóttu konsertinn
voru af Rolling Stones kynslóð-
^inni og jafnvel eldri.
' Vinsældir Rolling Stones hafa
siður en svo þorrið meö árun-
um, enda viröast Rolling Stones
skynja þaö manna best sjálfir
að þeim hefur tekist aö standa
af sér lok sins eigins timabils.
Keith Richards, gitarleikari
Rolling Stones, sagöi nýlega:
„Þaö er erfitt aö gera sér grein
fyrir öllu þvi sem hefur hent
okkur. Stundum finnst mér eins
og þaö hafi verið i gær sem við
spiluöum i klúbbunum i Eng-
landi. Okkur datt það aldrei i
hug þá aö viö ættum eftir aö
spila i Ameriku. Okkur datt þaö
aldrei ihug aö neinn heföi áhuga
á þvi sem við vorum aö gera.
Samt finnst mér lika stundum
aö þetta hafi allt skeö fyrir
hundrað árum. Það er furðulegt
aö við skulum hafa lifað þetta
af.”
Hin hálfdemóniska imynd
Rolling Stones hefur gjörbreyst
á siöastliönum árum. Sú var tiö-
in aö þeir voru kallaðir „synir
Satans” og ollu frómum og
borgaralegum sálum skelfingu
meö liferni sinu. Nú eru þeir
fyrir löngu búnir aö semja frið
við kerfiö og tilheyra klikum há-
tiskufdlksins. Meira að segja
ströngustu siöapostular nenna
dcki lengur að beina spjótum
sinum aö þeim.
Hinn nærfertugi Mick Jagger
lagöi sjálfur áherslu á breytta i-
mynd sina á konsertinum. þeg-
ar hann sagði við áhorfendurna
sem kepptust um aö troöa sér
sem næst sviðinu: „Þið getiö
slasaö ykkur. Gerið svo vel aö
færa ykkur aftar.” Þetta atvik
stakk áberandi i sttíf við Alta-
mont tónleikana 1969 þegar 18
ára unglingur var óhindraö
stunginn til bana i aflogum sem
urðu fyrir framan sviöið.
Sá orðrómur hefur komist á
kreik að þetta yrði seinasta
hljómleikaferð Rolling Stones,
en aöspuröur neitaði Keith
Richards þvi. Þessi orðrómur
jók án efa mjög á saknaöartil-
finninguna sem rikti á konsert-
inum. Ahorfendur vissu ekki
hvort þeim myndi nokkurn tím-
ann auönast að sjá þessi átrún-
aöargoö sin framar. Ný goö
hrinda gömlum af stalli.