Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2001, Síða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. FEBRÚAR 2001
EYDÍS Franzdóttir óbóleikari, Kristín Mjöll
Jakobsdóttir fagottleikari og Unnur Fadila
Vilhelmsdóttir píanóleikari halda tríótón-
leika í Hafnarborg annað kvöld, sunnu-
dagskvöld, kl. 20. Á efnisskránni eru verk
eftir Michael Head, Alun Hoddinott, Hróð-
mar Inga Sigurbjörnsson og André Previn.
Hljóðfæraskipan tríósins, óbó, fagott og
píanó, er heldur óhefðbundin, og segir Ey-
dís að lengi vel hafi mjög lítið verið til af
verkum fyrir slík tríó. Til að mynda mun
verk Hróðmars Inga, sem hann samdi að
beiðni tríósins sumarið 1999, vera fyrsta
verkið sem íslenskt tónskáld hefur samið
fyrir þessa hljóðfærasamsetningu.
Mikið skrifað fyrir
alþjóðaráðstefnu tvíblöðunga
Eydís, Kristín og Unnur hafa starfað
saman sem tríó frá því í október 1997. Þær
hafa haldið fjölda tónleika víða um landið, í
Bandaríkjunum og í Kanada, þ.á m. haldið
tónleika á alþjóðaráðstefnu tvíblöðunga,
þ.e. óbó- og fagottleikara, í Madison, Wis-
consin í Bandaríkjunum 1999. „Þetta eru
svolítið merkilegar samkundur. Þangað
koma óbó- og fagottleikarar víðsvegar að
úr heiminum, bera saman bækur sínar og
spila hverjir fyrir aðra. Það var náttúru-
lega mikill heiður fyrir okkur að fá að taka
þátt í þessari ráðstefnu en þetta var í
fyrsta sinn sem Íslendingar spiluðu þar á
tónleikum,“ segir Eydís. Það var einmitt
fyrir ráðstefnuna og tónleikana þar sum-
arið 1999 að þær fengu Hróðmar Inga til
að semja fyrir sig. „Okkur langaði svo mik-
ið til að fara með íslenska tónlist og kynna
á ráðstefnunni,“ segir Eydís. Hin verkin
sem þær spila á tónleikunum í Hafnarborg
eru einmitt verk sem þær kynntust á téðri
ráðstefnu. Verkið eftir Michael Head er
elst, samið á fyrri hluta áttunda áratug-
arins. „Það er mikið skrifað fyrir þessa
ráðstefnu, sem er haldin á hverju ári,“ seg-
ir Eydís og fagnar því að smátt og smátt
bætist í safnið. „Svo er það svolítið
skemmtilegt að eftir að Hróðmar skrifaði
fyrsta íslenska verkið þá er Sveinn Lúðvík
Björnsson farinn að skrifa fyrir okkur. Við
gerum okkur vonir um að í framtíðinni
verði til meira af íslenskri tónlist fyrir
þessa hljóðfæraskipan. Hver veit nema við
getum farið með alíslenskt prógramm á
næstu ráðstefnu.“
Tónlist tveggja tíma
Fyrst á efnisskrá tónleikanna er verk
eftir enska tónskáldið Michael Head en
hann var fæddur árið 1900 og lést 1976.
Verkinu lýsir Eydís sem tónlist glaums og
gleði, milli syngjandi fallegra laglína. Jafn-
framt því að vera tónskáld var Michael
Head bæði píanóleikari og söngvari og hélt
gjarnan tónleika þar sem hann lék undir
eigin söng. „Hann hafði því einstaka til-
finningu fyrir laglínum sem tónsmíðar hans
bera glöggt vitni,“ segir Eydís. Annað
verkið á efnisskránni er tríóið Masks eða
Grímur eftir Alun Hoddinott, sem fæddur
er árið 1929. „Þar er brugðið upp ýmsum
grímum í tónlistinni og píanistinn endar í
hringekju á ofsahraða í miklum fingurbrjót
lokakaflans,“ segir Eydís. Alun Hoddinott
hefur á ferli sínum verið í fararbroddi tón-
skálda í Wales. Hann hefur samið fjöldann
allan af tónverkum; hljómsveitarverk,
kammerverk, kórverk o.fl. og hlotið fjölda
viðurkenninga fyrir.
Þá er komið að verki Hróðmars Inga
Sigurbjörnssonar sem áður var getið.
Verkinu lýsir Eydís sem „einskonar tónlist
tveggja tíma, þar sem skiptist á tif tölvu-
aldar og líðandi rómantík.“
Leikur með hryn og hljóma
Lokaverk tónleikanna er eftir André
Previn, sem fæddur er árið 1930, en hann
er þekktari fyrir að vera bæði hljómsveit-
arstjóri og píanóleikari en tónskáld. Hann
hefur stjórnað flestum helstu hljómsveitum
heims, leikið sem einleikari, flutt kamm-
ermúsík, auk þess að vera djasspíanisti.
Engu að síður liggja eftir hann allmargar
tónsmíðar, svo sem píanókonsert sem hann
samdi að beiðni Ashkenazys, sellósónata,
ljóðaflokkur fyrir söngrödd og hljómsveit
og leikhústónlist. Í tríói Previns fyrir óbó,
fagott og píanó frá árinu 1994 gætir að
sögn Eydísar mikilla áhrifa frá djassinum,
þar sem hann leikur sér með hryn og
hljóma í kraftmiklum rytmískum leik og
angurværum laglínum.
ÓBÓ, FAGOTT OG PÍANÓ Í HAFNARBORG
Í HRING-
EKJU Á
OFSA-
HRAÐA
Unnur Fadila Vilhelmsdóttir, Kristín Mjöll Jakobsdóttir og Eydís Franzdóttir.
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing opin þri.–fös. kl. 14 og 16. Til 15. maí.
Galleri@hlemmur.is: Magnús Sigurðar-
son. Til 4. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Magnús
Þorgrímsson. Til 18. feb.
Gallerí Sævars Karls: Gabríela Frið-
riksdóttir. Til 8. mars.
Gerðuberg: Eggert Magnússon næfisti.
Til 18. feb.
Hafnarborg: Sveinn Björnsson. Rut Re-
bekka Sigurjónsdóttir. Til 26. feb.
Hallgrímskirkja: Kristín Gunnlaugs-
dóttir. Til 19. feb.
Íslensk grafík: Frumherjar í grafík. Til
25. feb.
Listasafn Akureyrar: Margmiðlunar-
sýningin DETOX. Til 2. mars.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Gerhard Richter,
Rúrí og Jón Stefánsson. Til 18. feb.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson. Til 29. apr.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhúsi:
Robert Dell í útiprotinu. Til 20. mars.
Sófamálverkið. Frásagnarmálverkið.
Verk frá 1961–1999: Valerio Adami, Pet-
er Klasen, Jacques Monory, Hervé Tél-
emaque, Bernard Rancillac og Erró. Til
25. mars.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstöð-
um: Austursalur: Jóhannes S. Kjarval.
Gullpensillinn – samsýning 14 lista-
manna. Til 24. mars.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur, Grófar-
húsi.: Nökkvi Elíasson og Brian Swee-
ney. Til 1. mars.
Mokkakaffi: Páll Banine. Til 11. mars.
Norræna húsið: Sex norrænir ljósmynd-
arar. Til 18. mars. Vatnslitamyndir frá
Færeyjum. Til 25. mars.
Nýlistasafnið: Samræður við safneign.
Til 18. feb.
Stöðlakot: Jón A. Steinólfsson. Til 18.
feb.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Grafarvogskirkja: Karlakórinn Stefnir
og Gunnar Guðbjörnsson. Kl. 16.30.
Listasafn Íslands: Myrkir músíkdagar:
Íslensk gítartónlist. Hinrik D. Bjarna-
son, Laufey Sigurðardóttir, Páll Eyjólfs-
son, Pétur Jónasson, Rúnar Þórisson,
Símon H. Ívarsson og leynig. Kl. 17.
Salurinn, Kópavogi: Daníel Þorsteins-
son, Sigurður Halldórsson og Finnur
Bjarnason. Kl. 16.
Sunnudagur
Hafnarborg: Ásdís Franzdóttir, Kristín
Mjöll Jakobsdóttir og Unnur Fadila Vil-
helmsdóttir. Kl. 20.
Hallgrímskirkja: Myrkir músíkd: Passía
op. 28 eftir Hafliða Hallgrímsson. Kl. 17.
Mánudagur
Listasafn Sigurjóns: Myrkir músíkdag-
ar: Stelkur – Gestir að austan. Flytjend-
ur Charles Ross, Suncana Slamnig, Jón
Guðmundsson, Maria Gaskell og Páll Ív-
ar Pálsson. Kl. 20.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Gunnar Kvaran og
Selma Guðmundsdóttir. Kl. 20.
Miðvikudagur
Gerðuberg: Myrkir músíkdagar: Ís-
lenska einsöngslagið. Kl. 20.
Fimmtudagur
Háskólabíó: SÍ. Stj. Gary Brain. Einl.
Miklós Dalmay. Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Antígóna, lau. 17. feb.
Horfðu reiður um öxl, fös. 23. febr. Blái
hnötturinn, sun. 18. febr. Með fulla vasa
af grjóti, lau. 17., sun. 18., fim. 22. feb. Já,
hamingjan, lau. 17., fös. 23. feb.
Borgarleikhúsið: Skáldanótt, fös. 23.
febr. Abigail heldur partí, fös. 23. Önd-
vegiskonur, lau. 17., sun. 18., fim. 22.
febr. Móglí, sun 18. febr.
Íslenska óperan: La Boheme, lau. 17.,
fös. 23. febr.
Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, lau.
17. Sjeikspír... fös. 23. febr.
Iðnó: Medea, fim. 22., fös. 23. febr.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingarn-
ir, lau. 17., fös. 23. febr.
Kaffileikhúsið: Háaloft... lau. 17., þrið.
20. febr.
Leikfélag Akureyrar: Sniglaveislan,
lau. 17., sun. 18. febr.
Möguleikhúsið: Lóma, þrið. 20., fim. 22.,
fös. 23. febr. Völuspá, sun. 18. feb.
Snuðra og Tuðra, sun. 28. feb.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
SKOSKA listakonan Joanne Tatham kemur hér gaddavír fyrir í
kringum neonljós er hún stillir upp verki sínu „The Glamour“,
sem útleggja má á íslensku sem Töfraljómi.
Verkið er hluti af ARCO, alþjóðlegri nútímalistasýningu, sem
nýlega var opnuð í Madríd á Spáni og stendur fram í næsta mán-
uð.
AP
Töfraljómi Joanne Tatham