Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2001, Side 6
6 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. FEBRÚAR 2001
H
ÖRÐUR fer lotningarfull-
um höndum um umfangs-
miklar nótur Hafliða að
verkinu, og bendir á fínlega
handskriftina. „Hann er
einnig myndlistarmaður
hann Hafliði, hann er al-
hliða listamaður og fagur-
keri,“ segir Hörður og bætir því við að hann
telji Hafliða Hallgrímsson að mörgu leyti falla
inn í hina rómantísku ímynd listamannsins.
„Sköpunin er honum glíma, og hann er í þessu
af mikilli ástríðu. Þannig held ég að í þessu
verki, Passíu, sem setur boðskap píslarsög-
unnar að mörgu leyti inn í samhengi nútímans,
sé Hafliði alveg hreint staddur í kviku sinnar
eigin þjáningar.“ Í nýlegu viðtali segir Hafliði
að fegurðin muni bjarga heiminum í þeirri
vaxandi nautnahyggju og tölvuvæðingu sem
einkenni vestrænt samfélag, og segir Hörður
að í því samhengi megi líta á tónverkið sem
nokkurs konar nútímafagnaðarerindi.
Hörður Áskelsson hefur unnið að undirbún-
ingi fyrir frumflutning verksins síðan í haust.
Hann segir það vera í senn krefjandi og stór-
kostlegt að sökkva sér ofan í vinnu við tón-
verkið. „Þetta er spennandi vinna, en leiðin er
einnig gríðarlega löng að svona frumflutningi.
Í svo flóknu verki er mikið í höndum stjórn-
andans.“ Hörður segir tónverkið vera hreint
meistarastykki og að vandi flytjenda við að
svara kröfum verksins sé gríðarlegur. „Satt að
segja erum við á nálum yfir því sem við erum
með í höndunum og ég vona að við reynumst
vandanum vaxin. Ég hef sagt við kórinn að
gamni mínu að við séum búin að setja í þann
stóra, en nú verðum við að leggjast á eitt með
að landa honum,“ segir Hörður og brosir.
Framlag Hallgrímskirkju
Passía ópus 28 er umfangsmesta verk Haf-
liða Hallgrímssonar til þessa. Það tekur um 75
mínútur í flutningi en flytjendur eru banda-
ríska messósópransöngkonan Mary Nessin-
ger, Mótettukór Hallgrímskirkju og Kamm-
ersveit Hallgrímskirkju. Konsertmeistari er
Gerður Gunnarsdóttir.
Tónverkið er tileinkað Herði Áskelssyni og
er samið sérstaklega fyrir Mótettukórinn í til-
efni þúsund ára afmælis kristnitöku á Íslandi.
Verkið var pantað af Listvinafélagi Hallgríms-
kirkju með styrk frá kristnihátíðarnefnd og
verður flutningur þess stærsti listviðburður í
sögu félagsins. „Flutningur verkins er fram-
lag sóknarkirkjunnar til Kristnitökuhátíðar-
innar, en það stóð til að flytja það í tengslum
við Hallgrímsdaginn, 27. október, en þá er
dánardagur Hallgríms Péturssonar haldinn
hátíðlegur. Sköpunarferli tónverksins tók hins
vegar lengri tíma en reiknað hafði verið með
og því verður verkið frumflutt nú,“ segir
Hörður. Verkið var pantað með þeim óskum
að Passíusálmar Hallgríms Péturssonar yrðu
eins konar kjarni í verkinu, en að ljóð 20. aldar
skálda kæmu líka við sögu. Þannig koma fyrir
brot úr ljóðum eftir Matthías Johannessen,
Hannes Pétursson, Baldur Óskarsson og
Stein Steinarr í inngangi verksins sem smátt
og smátt leiða að erindum úr Passíusálmun-
um.
Hlutur hljómsveitarinnar í verkinu er stór,
en alls leika þar 35 hljóðfæraleikarar, margir
á fleira en eitt hljóðfæri. „Gert er ráð fyrir 22
strengjaleikurum, tréblásarakvintett, tveimur
málmblásurum og hörpuleikara. Þá er einnig
gert ráð fyrir tveimur orgelum í verkinu, en
það útfærum við með því að skipta stóra org-
elinu milli tveggja organista, sem spila sam-
tímis frá tveimur hljómborðum hljóðfærisins.
Síðan er heilmikið slagverk, en þrír slagverks-
menn leika á alveg hreint mýgrút af hljóð-
færum, s.s. klukkur, marimbur, víbrafón,
klukkuspil, pákur, trommur af ýmsum gerð-
um. Allt gefur þetta verkinu lit,“ segir Hörður.
Textaflutningur skiptist milli kórsins og
einsöngsraddarinnar. Í verkinu eru engin
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá æfingu á Passíu ópus 28 í Hallgrímskirkju.
ÚR KVIKU
EIGIN
ÞJÁNINGAR
„Það er þjáningin sem verið er að fjalla um í þessu
verki,“ segir Hörður Áskelsson, organisti Hallgríms-
kirkju, um Passíu ópus 28 eftir Hafliða Hallgrímsson
sem frumflutt verður í Hallgrímskirkju á morgun kl.
17. Hörður mun stjórna tónleikunum og var hann
önnum kafinn við undirbúninginn þegar HEIÐA
JÓHANNSDÓTTIR hitti hann að máli.
Morgunblaðið/Jim SmartHörður Áskelsson stjórnandi.