Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2001, Page 16

Lesbók Morgunblaðsins - 17.02.2001, Page 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 17. FEBRÚAR 2001 annars konar verk fyrir valinu sem gáfu Leikfélaginu ákveðið svipmót sem leikhúsi á þessum árum, svipmót sem hefur í rauninni haldist allar götur síðan en drættirnir hafa máðst og á köflum er engu líkara en skyldu- rækni hafi ráðið ferðinni fremur en grund- vallaður skilningur á því hvers vegna verið sé að velja saman verkefni með þessum hætti. Áhersla LR á sviðsetningu nýrra ís- lenskra verka og sú hvatning til höfunda sem í því fólst skilaði sér strax á 7. og 8. áratugnum og þar komu fram nokkrir af okkar sterkustu höfundum sem hafa lagt megináherslu leikritun á síðan. Má þar nefna Odd Björnsson, Guðmund Steinsson, Birgi Sigurðsson og Kjartan Ragnarsson að ógleymdum Jökli Jakobssyni sem var óska- barn LR frá því er Hart í bak var frumsýnt 1963. Sá höfundur sem naut þó hvað mestr- ar alþýðuhylli á 7. og 8. áratugnum (og gerir reyndar enn) var Halldór Laxness en leik- gerðir eftir skáldsögum hans voru meðal vinsælustu sýninga LR á þessu tímabili. Þetta verður að hafa í huga þegar mótun ís- lensks leikhúss á þessu tímabili er skoðuð þar sem framsetningarmáti þessara verka réð talsvert miklu um hugmyndir leikhús- fólks um hvernig mætti setja saman leikrit. Það er ennfremur athyglisvert að leikgerðir skáldsagna hans hafa haft meiri áhrif að þessu leyti en leikritin, fáir hafa tekið tón af skáldinu í leikritaskrifum þess en því meir af leikgerðunum. Er þar átt við hinn epíska frásagnarmáta og opna sviðsetningu með fjölmörgum atriðum og ólíkum staðsetning- um sem fremur eru gefnar í skyn en útfærð- ar í smáatriðum. Þetta leikritunarform á sér aldagamla hefð sem gekk í endurnýjun líf- daga með kenningum Brechts sem höfðu talsverð áhrif á íslenskt leikhúsfólk á þess- um tíma ekki síður en annars staðar. Útlendingar í eigin landi Þegar leikrit íslenskra höfunda frá 7. ára- tugnum eru skoðuð verður að hafa í huga að þeir voru ungir, framsæknir frumkvöðlar. Fyrirmyndir þeirra voru róttækir, evrópskir framúrstefnuhöfundar á borð við Genet, Ionesco, Beckett og Pinter sem allir voru að skrifa sig frá hefðum sem fáir þekktu til hér uppi á Íslandi. Ný íslensk leikrit á þessum tíma þóttu því sum hver nokkuð útlendings- leg og komu íslenskum almenningi stundum spánskt fyrir sjónir. Þetta var engu að síður mikilvægur tími tilrauna og frumrauna og afraksturinn skilaði sér á fáum árum með því að höfundarnir fundu þráðinn sem tengdi þá við sitt fólk. Tilraunastarfsemin tók á sig ýmsar myndir og verður að horfa í fleiri áttir en til LR og Þjóðleikhússins þeg- ar áhrifavaldar eru týndir til. Sjálfstæðir leikhópar 7. áratugarins, Gríma og Litla leiksmiðjan, höfðu talsverð áhrif því þar voru ekki aðeins kynntar framsæknustu hugmyndirnar í leikhúsinu heldur mótaði umræðan sem fram fór innan þessara hópa viðhorf stórs hluta heillar kynslóðar leik- húsfólks sem þá var að stíga sín fyrstu spor á leiksviðinu. Kynslóð sem átti eftir að hafa hvað mest áhrif í leikhúsinu á næstu áratug- um. Verður nánar fjallað um sjálfstæðu leik- hópana á þessum árum síðar. Náið samneyti sjálfstæðra leikhópa við at- vinnuleikhúsin tvö hefur allt frá þessum tíma verið sterkt einkenni á íslensku leik- húsi og lengst af verið atvinnuleikhúsunum ákveðin listræn brýning. Það er því nauð- synlegt að hafa starfsemi sjálfstæðu hóp- anna í huga þegar þróun stóru leikhúsanna síðasta aldarfjórðunginn er skoðuð. Óheft flæði frá jaðri að miðju Þétt og nær órofin sambúð allra þátta ís- lenskrar leiklistar, þ.e. menntunar leikara, sjálfstæðrar starfsemi leikhópa og stærstu leiklistarstofnananna tveggja – eða þriggja eftir að LA varð atvinnuleikhús 1970 – hefur í senn verið helsti styrkur íslensks leikhúss og þess mesti veikleiki. Styrkur í þeim skiln- ingi að hugmyndir á jaðrinum hafa átt greið- an aðgang inn að miðju ef svo má segja og listamenn hafa getað gengið hindrunarlaust þar á milli. Hugmyndafræðilegur ágrein- ingur hefur aldrei verið hindrun og þrátt fyrir misjafnar pólitískar skoðanir leikhús- fólksins hafa þær aldrei hindrað þetta flæði svo marka megi. Leiklistarmenntunin var fram yfir 1970 á vegum leikhúsanna sjálfra og þannig var samgangur nemanna við leik- húsin sjálfsagður. Með stofnun Leiklistar- skóla Íslands urðu samskiptin formlegri og aðgreindari en kennsla hefur lengst af verið í höndum starfandi leikhúsfólks og því hafa myndast tengsl sem nýútskrifaðir leikarar njóta strax í upphafi. Veikleiki þessa er á hinn bóginn sá að íslenskt leikhúslíf hefur haft tilhneigingu til að verða sjálfhverft og lokað og borið hefur á tortryggni gagnvart þeim sem sótt hafa menntun sína annað. Hugmyndaheimur og aðferðafræði íslensks leikhúss hafa einnig haft tilhneigingu til að takmarkast við áhrif fárra sem vakið hafa hrifningu eða stýrt leikhúsunum um árabil. Þróunin á seinni árum í átt til einsleitni staf- ar að hluta til vegna þessa. Áratugirnir þrír sem hér um ræðir hafa þó allir sitt sérstaka svipmót og í nokkrum greinum á næstu mánuðum verður gerð til- raun til að rekja í hverju það er fólgið. LEIKLIST Í ALDARFJÓRÐUNG Bríet Héðinsdóttir og Hugrún Gunnarsdóttir í Vinnukonum Jean Genets í sýningu Grímu 1963. Leikstjóri var Þorvarður Helgason. „VETTVANGUR ÍSLENSKRAR TILFINNINGAR“ Íslensk atvinnuleiklist hefur tekið gagngerum breytingum undanfarinn aldarfjórðung. Í þessari inngangsgrein skoðar HÁVAR SIGURJÓNSSON jarðveginn sem framhaldið spratt úr. Þ EGAR síðasti fjórðungur 20. aldarinnar í íslenskri leiklist er tekinn til skoðunar kemur þægilega á óvart hversu heppi- legt um margt árið 1975 er til viðmiðunar. Þá urðu ýmsar breytingar og nýjungar í ís- lensku leiklistarlífi sem áttu eftir að hafa afgerandi áhrif á þróun list- greinarinnar og eru í dag sú undirstaða sem íslensk leiklist hvílir á. Má segja að það eigi við hvort sem horft er til leikritunar, leik- húsvinnu eða menntunar leikhúsfólks þar sem 8. áratugurinn var tímabil mikilla hrær- inga í listrænum og pólitískum skilningi og höfðu þær ekki síst áhrif á leikhúsið. Má nefna til glöggvunar áður en lengra er hald- ið að árið 1975 var kvennafrídagurinn 24. október, Leiklistarskóli Íslands var stofn- aður og Alþýðuleikhúsið var stofnað. Allt átti þetta eftir að hafa mikil áhrif en konur urðu í fyrsta sinn atkvæðamiklar í íslensku leikhúsi sem leikstjórar á 8. áratugnum. Um hlut kvenna í leikhúsinu, Leiklistarskólann og Alþýðuleikhúsið verður fjallað nánar síð- ar í þessum greinaflokki. Fyrstu leikhússtjóraskiptin Þremur árum fyrr (1972) höfðu fyrstu leikhússtjóraskiptin átt sér stað í bæði Þjóð- leikhúsinu og hjá Leikfélagi Reykjavíkur; Sveinn Einarsson lauk 9 ára farsælum ferli sem fyrsti leikhússtjóri LR og tók við Þjóð- leikhúsinu af Guðlaugi Rósinkrans sem gegnt hafði starfinu frá opnun hússins 1950 og Vigdís Finnbogadóttir tók við LR af Sveini. Þau sátu síðan hvort á sínum stóli út áratuginn, en Vigdís lét af leikhússtjóra- starfi 1980 er hún var kjörin forseti lýðveld- isins og Sveinn var þjóðleikhússtjóri til 1983. Vigdís hélt áfram í aðalatriðum þeirri stefnu sem Sveinn hafði mótað hjá Leik- félagi Reykjavíkur og vitaskuld hélt hann sjálfur áfram á sömu braut í Þjóðleikhúsinu. Listfræðileg hugsun þeirra beggja var einn- egin sprottin úr svipuðum jarðvegi. Þau eru nær jafnaldra og bæði menntuð í Frakklandi þótt Sveinn hafi lokið fyrrihluta síns há- skólanáms í Svíþjóð. Áherslurnar og verk- efnavalið urðu því býsna keimlík í báðum leikhúsum næstu árin og helsti munurinn var fólginn í aðstöðu, fjármagni og mannafla, allt Þjóðleikhúsinu í vil þar til LR flutti í Borgarleikhúsið (1989) og aðstaða þess batnaði til muna. Sveinn Einarsson setti fram markmið sín fyrir hönd LR árið 1967 og fela þau orð í sér kjarna þeirrar list- rænu stefnu sem hann setti LR og síðar Þjóðleikhúsinu. „Markmiðið er í fáum orðum þetta: Að gera íslenska áhorfendur þátttak- endur í hugsun nútímans, gamalli eða nýrri, eins og hún birtist skörpust og skemmtileg- ust í ágætustu verkum erlendum og leitast við að koma henni til skila óbrenglaðri og með listrænum áhrifamætti. Að vera vett- vangur íslenskrar hugsunar eins og hún má vera skýrust og íslenskrar tilfinningar eins og hún má vera hreinust. Að vera hugheill þátttakandi í mótun íslensku þjóðarinnar, þátttakandi í sögu hennar í dag, þátttakandi sem vekur til umhugsunar um spurningar samtíðarinnar, þátttakandi sem eykur henni listræna fegurð.“ Allt er þetta í fullu gildi enn í dag og sumt jafnvel enn brýnna en áður þó brýningin sé hvort tveggja hátíðlega stíluð og efnislega almenns eðlis. Pólitískar hræringar á þess- um tíma, sem náðu hámarki í Evrópu nokkr- um mánuðum eftir að þessi orð voru skrifuð, höfðu vissulega áhrif á íslenskt samfélag og leikhúsið þar með talið en ekki þannig að endaskipti yrðu höfð á hinum borgaralegu stofnunum, Leikfélagi Reykjavíkur og Þjóð- leikhúsi, heldur varð yngra fólk til þess að stofna sjálfstæða leikhópa sem voru býsna áberandi á sjöunda áratugnum. Þríþætt val verkefna Verkefnavalið sem Sveinn lagði til grund- vallar hjá Leikfélagi Reykjavíkur og hélt áfram sem þjóðleikhússtjóri er skilgreint á eftirfarandi hátt í Aldarsögu Leikfélags Reykjavíkur (LR og Mál og menning 1997). „Frá skipulagsbreytingunni árið 1963 og fram að 75 ára afmæli Leikfélagsins árið 1972 sannaði það sig sem framsækið leikhús þar sem blésu ferskir vindar. Þrír höfuð- þættir réðu verkefnavalinu; íslensk verk, sí- gild verk og erlend nútímaverk sem fjölluðu um málefni líðandi stundar. Í vali verkefna var einmitt lögð rík áhersla á að kynna at- hyglisverð nútímaleikrit.“ Þegar þessi orð eru skoðuð verður að hafa í huga að Leikfélagið var knúið til að sníða sér stakk eftir vexti. Vafalaust hefur hugur Leikfélagsfólks ekki síður staðið til upp- færslu söngleikja en litla leikhúsið við Tjörnina bauð ekki upp á slíkt. Því urðu

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.