Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. MARS 2001
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritas.
opin þri.–fös. kl. 14–16 til 15. maí.
Galleri@hlemmur.is: Magnús Sigurð-
arson. Til 4. mars.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Kjartan
Guðjónsson. Til 11. mars.
Gallerí Sævars Karls: Gabríela Frið-
riksdóttir. Til 8. mars.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Sverris Sig-
urðssonar. Til 31. mars.
Hallgrímskirkja: Kristín Geirsdóttir.
Til 20. maí.
Listasafn ASÍ: Sigrún Eldjárn. Til 11.
mars.
Listasafn Borgarness: Tolli. Til 11.
mars.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14–17.
Listasafn Íslands: Náttúrusýnir. Til 22.
apr.
Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar-
safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson. Til 29. apr.
Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús:
Frásagnarmálverkið. Sófamálverkið.
Til 25. mars. Höggmyndir Roberts Dell.
Til 20. mars.
Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstað-
ir: Gullpensillinn – samsýning 14 lista-
manna. Til 24. mars. Austursalur: Jó-
hannes S. Kjarval.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Til 1.
júní.
Listhús Ófeigs, Skólavörðustíg: Ásgeir
Lásusson. Til 4. mars.
MAN. Skólavörðustíg 14: Ingunn Ey-
dal. Til 11. mars.
Norræna húsið: Sex norrænir ljós-
myndarar. Til 18. mars. Vatnslitamynd-
ir frá Færeyjum. Til 25. mars.
Nýlistasafnið: Steingrímur Eyfjörð,
Ragna Hermannsdóttir, Finnur Arnar
Arnarsson og Hulda Stefánsdóttir. Til
25. mars.
Oddi, Háskóli Íslands: Ljósmyndas.
Andlit örbirgðanna. Til 16. mars.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðard. Til 31. des.
Stöðlakot: Hrönn Eggertsdóttir. Til 11.
mars.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Fella- og Hólakirkja: Fjórir kórar. Kl.
16.
Salurinn: Una Sveinbjarnardóttir og
Anna Guðný Guðmundsdóttir. Kl. 17.
Ýmir: Ingunn Ósk Sturludóttir, Guðrún
Anna Tómasdóttir og Þórunn Ósk Mar-
inósdóttir. Kl. 16.
Sunnudagur
Háskólabíó: Sinfóníuhljómsveit Tón-
listarskólans í Reykjavík. Sex nemend-
ur tónfræðid. skólans. Kl. 14.
Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur. Kl. 20.
Salurinn, Kópavogi: Ása Briem píanó-
leikari. Kl. 17.
Þriðjudagur
Salurinn, Kópavogi: Valgerður Andr-
ésdóttir píanóleikari. Kl. 20.
Fimmtudagur
Háskólabíó: SÍ. Hljómsveitarstjóri er
Rumon Gamba. Einleikari er Domenico
Codispoti. Kl. 19.30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Blái hnötturinn, lau. 3.,
sun. 4. mars. Horfðu reiður um öxl, lau.
3., fim. 8. mars. Með fulla vasa af grjóti,
sun. 4., mið. 7., fös. 9. mars. Já, ham-
ingjan, lau. 3., fös. 9. mars.
Borgarleikhúsið: Öndvegiskonur, 3., 4.,
8., 9. mars. Beðið eftir Godot, mán. 5.,
þrið. 6. mars.
Íslenski dansflokkurinn. Krakk een og
Kraak twee, lau. 3. frums., sun. 4., fös. 9.
mars.
Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, 4., 9.
mars. Sjeikspír... lau. 3. mars. Wake me
up... lau. 3., mið. 7.. mars.
Íslenska óperan: La Bohéme, lau. 3.,
fös. 9. mars.
Möguleikhúsið: Lóma, sun. 4. mars.
Völuspá, þrið. 6. mars.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingarn-
ir, fös. 9. mars.
Nemendaleikhúsið, Sölvhólsgötu 13:
Strætið, sun. 4., þrið. 6., fim. 8., fös. 9.
mars.
Kaffileikhúsið: Eva bersögull sjálfs-
varnareinleikur, sun. 4., fim. 8. mars.
Háaloft, þrið. 6. mars.
Leikfélag Akureyrar: Sniglaveislan,
lau. 3., sun. 4., fös. 9. mars.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
UNDANFARIN tvö ár hafa verið settar upp
myndlistarsýningar í Vestmannaeyjum undir
heitinu Myndlistarvor Íslandsbanka í Eyjum.
Ákveðið hefur verið að hleypa myndlistinni
hið þriðja sinn út í vorið í Eyjum og verður
fyrsta sýningin opnuð í dag kl. 17, á verkum
Sigurðar Örlygssonar.
Þeir listamenn sem koma til Eyja á þessu
vori eru Sigurður Örlygsson, Birgir Snæ-
björn Birgisson, Sigtryggur Bjarni Baldvins-
son, Björg Örvar og Daði Guðbjörnsson.
Þetta eru einkasýningar utan ein, samsýn-
ing þeirra Birgis Snæbjörns Birgissonar og
Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar.
Hver sýning er opin tvær helgar í röð frá
kl. 14–19, en lokað er á virkum dögum.
Sýningarnar verða settar upp í gamla
Vélasalnum á horni Vesturvegar og Græð-
isbrautar. Salurinn er í eigu Vestmannaeyja-
bæjar sem lánar hann endurgjaldslaust til
starfseminnar og er um leið mikilvægur
stuðningur við Myndlistarvorið.
Íslandsbanki í Vestmannaeyjum er stærsti
stuðningsaðili Myndlistarvorsins. Aðrir
stuðningsaðilar eru Eyjaprent/Fréttir, HSH-
flutningar og Apótek Vestmannaeyja.
Aðgangur að sýningunum er ókeypis.
SIGURÐUR ÖRLYGSSON SÝNIR Í EYJUM
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sigurður Örlygsson myndlistarmaður við tvö verka sinna í Eyjum.
ÞRIÐJU tónleikarnir í tónleikaröð Tríós Reykjavíkur og Hafnarborgar,
menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar, verða haldnir á morgun kl.
20. Flutt verður síðrómantísk tónlist frá Frakklandi; sónata fyrir fiðlu
og píanó eftir César Franck og tríó fyrir fiðlu, selló og píanó eftir Ernest
Chausson, en einnig verður flutt hið sívinsæla smáverk Méditation úr
óperunni Thaïs eftir Massenet, fyrir fiðlu og píanó.
„Höfundar þeirra verka sem leikin verða á tónleikunum voru samtíð-
armenn sem þekktust vel. Verkin eru samin í Frakklandi á síðari hluta
nítjándu aldar, og má því segja að þau lýsi frönskum síðrómantískum
tíðaranda,“ segir Gunnar Kvaran sellóleikari í Tríói Reykjavíkur.
„Þekktasta verkið á tónleikunum er án efa Méditation eða Hugleiðing
eftir Massenet. Um er að ræða millispil úr óperu sem hét Thaïs. Óperan
er ekki flutt lengur, en millispilið hefur varðveist og má segja að það sé
eitt allra frægasta lag fyrir fiðlu og píanó sem um getur. Þetta er ynd-
islegt lag og góð byrjun á þeirri miklu rómantík sem heldur síðan áfram
með sónötu fyrir fiðlu og píanó eftir César Franck,“ segir Gunnar. „Í
þessu stórbrotna verki fer Franck nokkuð ótroðnar slóðir, ekki síst með
tilliti til hins klassíska sónötuforms sem hann brýtur upp að hluta til.
Verkið var brúðkaupsgjöf Francks til hins fræga belgíska fiðluleikara
Ysaye. Franck var vanmetinn í samtíð sinni, þar sem hann féll ekki inn í
tónlistarelítuna í París á þessum tíma.“ Chausson, þriðja tónskáldið sem
leikið verður verk eftir á tónleikunum, var nemandi bæði Massenets og
Francks í tónsmíðum. „Hann þótti snemma mjög efnilegur og samdi
þetta stórbrotna tríó aðeins 26 ára gamall, sem er ótrúlegt þar sem um
er að ræða fullþroskað verk,“ segir Gunnar og bætir því við að tríóið eft-
ir Chausson hafi ekki verið leikið áður á Íslandi, eftir því sem hann best
veit.
Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari, Gunnar
Kvaran sellóleikari og Peter Máté píanóleikari. Tríóið hefur reglulega
haldið tónleika í samvinnu við Hafnarborg frá árinu 1990, en tónleika-
gestum gefst kostur á að skoða myndlistarsýningar safnsins í hléi eða að
dagskránni lokinni. Síðustu tónleikar raðarinnar verða 1. apríl en ekki 8.
apríl eins og auglýst var, en þar verða flutt verk eftir Beethoven.
Áskriftarkort gilda á tónleikana en einnig verða seldir miðar við inn-
ganginn.
Tríó Reykjavíkur heldur þriðju tónleika sína í vetur annað kvöld kl. 20
FRÖNSK SÍÐ-
RÓMANTÍK
Í HAFNARBORG
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Peter Máté píanóleikari, Guðný Guðmundsdóttir fiðluleikari og Gunnar
Kvaran sellóleikari skipa sem fyrr Tríó Reykjavíkur.
KANADÍSKI brúðugerðarmaðurinn
Ronnie Burkett sést hér sitja við hlið
leikenda í verki hans „Happy“, sem
útleggja má á íslensku sem Hamingjan.
Nafn leikverksins er hins vegar
öfugmæli, þar sem um er að ræða frek-
ar sársaukafullt verk er veltir upp
spurningunni um það hvort hamingjan
falli einungis í hlut fárra einstaklinga.
Með uppsetningu sinni á Hamingju
notar Burkett brúðuleikhúsið til nýrra
hluta er hann blandar saman al-
vörugefnum texta og þessu leikformi
sem oftast er kennt við börn frekar en
fullorðna. Reuters
Hamingja
á svið í
brúðuleikhúsi