Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Blaðsíða 10

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Blaðsíða 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. MARS 2001 „Hvað er myndlistin? Hún er bókmenntir. Hvað eru þá bókmenntirnar? Þær eru myndlist. Og jamm og já – og jæja.“ (Marcel Broodthaers.) A LLT frá því að málarar hófu að túlka fjarvídd í verkum sínum á fimmtándu öld, og fram til loka nítjándu aldar, með tilkomu impressjónism- ans, er hægt að tala um mál- verkið sem glugga. Glugga sem áhorfandinn horfði út um og inn í heim goðsagna, Biblíunnar, á atburði mannkynssögunnar, eða á raunsæjar myndir af daglegu lífi til dæmis sveitafólks. Málverkið var eiginlega í þrívídd. Um miðja nítjándu öld litu fyrstu ljósmyndirnar dagsins ljós. Þó að áhrifa þeirra gætti ekki þegar í stað er augljóst að til- koma þeirra breytti hlutverki og stöðu mál- verksins óafturkallanlega. Nýr miðill var kominn fram sem á sinn hátt gat fangað raunveruleikann og birt hann á máta sem var málverkinu ómögu- legt. Og í lok nítjándu aldar komu fram hug- myndir í málaralist sem byltu stöðu málverksins og listarinnar allrar síðan. Sú hugmynd að hægt væri að líta á málverkið sem verk sem lyti sínum eigin lögmálum, þar sem pensilför og litir ynnu saman samkvæmt fagurfræði málverksins, og að málarinn ætti fyrst og fremst að virða málverkið en síðan umheiminn, var byltingarkennd, en ef til vill skiljanlegri í ljósi þess að málverkið þurfti að sanna sig gagnvart nýjum miðli. Þessi hug- mynd hefur svo gengið aftur í ýmsum myndum fram til dagsins í dag og enn er verið að kýta um hvort list listarinnar vegna eigi eða hafi nokkurn tíma átt tilverurétt. Franski málarinn Manet var mikill framúr- stefnumaður og á síðari hluta nítjándu aldar málaði hann afar umdeild verk, þó þau væru fíg- úratíf, þ.e. sýndu fólk og hluti á frekar raunsæj- an hátt. Hann notaði skýrt afmarkaða litafleti og sagt var að sumar myndir hans væru afar flatar. Þessar myndir voru kannski fyrsta skref- ið í því að breyta sýn áhorfandans á málverkið, það hætti að vera gluggi og varð myndflötur, var ekki spegill af raunveruleikanum heldur takmark í sjálfu sér. Nú varð að horfa á mynd- ina, ekki í gegnum hana. Tvívíddin var aftur komin til sögunnar og opnaði myndflötinn fyrir nýjum þáttum í málverkinu. Manet neitaði alla tíð að kalla sig impressjónista, eins og þeir sem fetuðu í fótstpor hans gerðu, Monet, Degas, Cézanne og fleiri. Í myndum þeirra varð hlut- verk pensilfarsins æ mikilvægara, málverkin voru byggð upp með afar sýnilegum pensil- dráttum, sem að vissu leyti má segja að minni á eins konar letur. En þó að málverkið væri á miklu breytingaskeiði var enn nokkuð langt í að orð héldu þar innreið sína. Orðin hófust hins vegar á flug hjá rómantísku skáldunum á þess- um tíma, Rimbaud, Baudelaire að ógleymdum Mallarmé, en uppsetning hans á ljóðinu „Un coup de dés...“ var myndræn og langt á undan sinni samtíð. Þar má frekar segja að myndin sæki inn í ljóðin. En einnig er fullvíst að skáld sóttu innblástur til málara eins og til dæmis Odilon Redon og Gustave Moreau, eins hafa málarar sótt til ljóðskálda og höfunda eins og til dæmis Edgar Allan Poe. En það var ekki fyrr en í kringum 1910 að fyrstu stafirnir fóru að birtast á myndflötum málaranna og þá í allt öðru samhengi. Að lesa myndir Í upphafi aldarinnar rak hver listastefnan aðra. Fauvistarnir, hinir villtu, expressjónism- inn og abstraktmálverkið leit dagsins ljós. Svo vitnað sé í franskan listfræðing, Gérard-George Lemaire, segir hann: „tilkoma kúbismans og abstraktmálverksins sem og þeirra listrænu hreyfinga sem mest bar á fyrir fyrra stríð (fút- úrisminn og dadaisminn), einkennist af því að ritað mál birtist í æ meiri mæli innan myndlist- arinnar“. Þær stefnur sem hér eru nefndar komu allar fram um svipað leyti. Kúbisminn varð til í Frakklandi, Fútúrisminn stökk fram á sjónarsviðið í forsíðugrein hins ítalska Mar- inettis í franska blaðinu le Figaro 1909. Dada- isminn hóf göngu sína líklega í Austurríki um 1915, en deilt er um hver má kalla sig upphafs- mann þeirrar hreyfingar. Picasso hefur hins vegar verið nefndur sem upphafsmaður kúb- ismans. Kúbisminn túlkar raunveruleikann á brotakenndan hátt, gjarnan með hörðum línum, brotum, þríhyrningum og kössum, en „cube“ þýðir kassi á frönsku. Meiri áhersla er lögð á form en litagleði, og myndirnar eru gjarnan í mildum tónum, brúnleitum. Franski málarinn George Braque var einnig einn af upphafs- mönnum stefnunnar og oft erfitt að þekkja myndir hans og Picassos í sundur á ákveðnu tímabili. Kúbisminn hófst með uppbroti raun- veruleikans í myndunum, næsta skref var svo innrás letursins. Í upphafi var það í formi verka þar sem dagblöð eða önnur efni voru límd á myndflötinn og letrið er hluti af myndbygging- unni, það birtist ekki sem texti sem ætlaður er til lestrar. Í þessum „collage“-myndum sem svo eru kallaðar, birtist letrið í formi dagblaða, sem gátu táknað nútímann, tæknivæðinguna sem var í fullum gangi í byrjun aldarinnar, eða letrið var notað sem tákn eða form sem að byggja upp myndina, útlit letursins hafði álíka gildi og það sem það gat gefið í skyn, oft voru notuð hálf orð eða brot úr orðum sem vísuðu í eitthvað ákveðið utan myndarinnar. Kúbisminn var byltingar- kennd stefna innan listarinnar en byltingin náði ekki út í þjóðfélagið eins og ætlunin var hjá fútúrismanum og dada en þau verk eru mun árásargjarnari í viðfangsefnum sínum. Orðin frelsuð Fútúrisminn var fyrst og fremst áróðurs- stefna og þar af leiddi að orð voru þörf. Hann var ekki langlífur og hefur liðið fyrir það að vera, að hluta til á óréttmætan hátt, tengdur fasismanum á Ítalíu. Kvenhatur þeirra var líka með eindæmum en í samræmi við tíðarandann vakti sá hluti stefnunnar varla mikla athygli. Þessi listastefna var eiginlega framtak eins manns, Marinettis, sem að með ótrúlegri atorku tókst að auglýsa stefnu sína svo rækilega að fútúristarnir fengu mikla athygli á sínum tíma. Þeir voru hinir fyrstu sem að birtu svokallað manifesto, eða stefnuskrá, en ýmsar listastefn- ur hafa skráð sínar eigin stefnuskrár síðan, til dæmis var súrrealistinn Breton atorkusamur við það og á sjöunda áratugnum blómstruðu manifestóin enn aftur, með tilkomu hugmynda- listar. Fútúrisminn er um margt skemmtilegur, hneykslanlegur, heimskulegur og byltingar- kenndur en þeir voru á móti öllu svo að segja, dýrkuðu tæknina og framtíðina. Þeir vildu frelsa allt úr viðjum, – þó ekki kvenfólkið – og fundu upp nokkuð sem þeir kölluðu „frjáls orð“. Þar áttu þeir við að ekki þyrfti að fara eftir mál- fræði- eða stafsetningarreglum, né hefðbundum reglum við uppsetningu texta við framsetningu hans. Þarna sameinuðust ljóð, prósi og mynd- list. Í myndlistinni var letrið notað til að byggja upp myndir eins og verk Marinettis og Balla sem sjást hér á síðunni og lýsa sér best sjálfar. Þetta frelsi orðanna notuðu þeir þó mest í bók- menntunum, leikritum sem þeir skrifuðu mikið af og í ljóðum en alla vega Marinetti þekkti meðal annars ljóð Mallarmés sem minnst var á áður. Fútúristarnir voru þeir fyrstu sem lögðu áherslu á allsherjarlistaverk, samruna mynd- listar, leikhúss, hljóða, tónlistar og orða og það er helst á þann hátt að þeir koma með orðin inn í myndlistina og koma fram með nýjar hug- myndir í því sambandi. Þeir reyndu að sameina listgreinarnar, en með misjöfnum árangri. Áhugaverðasta framlag þeirra til listarinnar var án efa í leikhúsinu, en svokölluð fútúristakvöld og leiksýningar þeirra voru vægast sagt fram- úrstefnulegar og lögðu grundvöllinn fyrir fram- hald á þeirri braut á tuttugustu öldinni. Abstrakt ljóð Eins og fútúristarnir hneigðust dadaistarnir mjög til ljóða og höfðu uppi hugmyndir um alls- herjarlistaverk, „gesamtkunstverk“, þar sem sameina átti allar listgreinar. Raoul Hausmann var einn listamannanna sem kallaði sig dada- ista. Verk hans þar sem hann notar letrið sem efnivið eru þó af annarri gerð en upphrópanir fútúristanna. Það er eins og að við gerð mynda með letrið sem efnivið hafi hann reynt að nota þá möguleika málverksins sem fram komu með abstraktmálverkinu, nefnilega það að standa eitt og sér án tilvísana í ytri raunveruleika. Hausmann málaði myndverk með letri og orð- um en einnig komu fram svokölluð abstrakt ljóð, þar sem merkingarlaus orð voru búin til og ljóðin byggðust á hljóðum, rytma og sjónrænni framsetningu. Ég myndi frekar flokka þau ljóð undir ljóðlist en myndlist þó þetta tvennt skar- ist að einhverju leyti. Verk Marcel Duchamp sem vöktu mikla at- hygli í New York undir 1920, hafa verið flokkuð með verkum dadaistanna, þó að hann hafi nú aldrei verið hallur undir fjöldahreyfingar. Notk- un hans á orðum í nafngiftum á verkum sínum UM ORÐ Í MYNDLIST FYRR OG NÚ – ANNAR HLUTI AÐ LESA MYND Gluggar, áróður tekur á sig ýmsar myndir, um blekkingar og drauma, pissuskál og pípu, að ógleymdum sjálfum kræk- lingakóngnum. Interventionist Manifesto, mynd eftir fútúristann Carlo Carrà, 1914, Mattioli safnið, Mílanó. Marcel Broodthaers, atriði úr myndin Án titils eftir Kurt Schwitters, 1921, Nord- rhein-Westfalen listasafnið í Düsseldorf. E F T I R R Ö G N U S I G U R Ð A R D Ó T T U R

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.