Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Blaðsíða 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. MARS 2001 13 í baráttu fyrir umbótum í húsnæðis- og skipu- lagsmálum. Þó að aðstæður hér væru ólíkar átti áhugi Guðmundar á húsagerð og skipu- lagsmálum rætur í sömu hugsun og hjá dönsku læknunum að mótun byggðar skipti sköpum fyrir andlega og líkamlega vellíðan fólks og því væri hún mikilvægt heilbrigðismál. Árið 1916 kom út sem fylgirit við Árbók Há- skóla Íslands bókin „Um skipulag bæja“ eftir Guðmund Hannesson. Í henni var í fyrsta sinn fjallað um skipulagsmál hér á landi með fræði- legri yfirsýn. Bókin er öðrum þræði gagnrýni á stöðu mála hér á landi, einkum það skipulags- leysi sem einkenndi hina nýju þéttbýlisstaði landsins. Í ritinu setti Guðmundur fram úthugsaða framtíðarsýn um skipulag þéttbýlis við íslensk- ar aðstæður. Hugmyndir sínar sótti hann í nýj- ustu og framsæknustu skipulagskenningar þess tíma, en í bókaskrá ritsins er vitnað í verk alkunnra höfunda á borð við Raymond Unwin og Camillo Sitte. En Guðmundur Hannesson tók ekki upp útlendar hugmyndir gagnrýnis- laust. Það er ekki síst hæfni hans til að aðlaga þessar hugmyndir íslenskum aðstæðum sem gerir rit hans merkilegt í fræðilegu tilliti. Bresku og þýsku fyrirmyndarbæirnir sem Guðmundur vitnar til í bók sinni voru svar þess tíma við vandamálum sem skapast höfðu í stór- borgum í kjölfar iðnbyltingarinnar. Áhersla var lögð á aðskilnað íbúðar- og atvinnusvæða. Íbúðarbyggðin var samfelld en lágreist, 2–3 hæða hús, oft lítil raðhús með garðbletti til ræktunar. Guðmundur sá fyrir sér þétta og samfellda byggð í bæjum landsins en varaði við því að húsin væru of há, svo tryggt væri að allar vist- arverur nytu sólar. Ein nýjungin sem hann kynnti var regla um skipan húsa á lóðir með til- liti til sólarátta, þannig að stærstur hluti óbyggðrar lóðar lægi sólarmegin húss, óháð því hvorum megin götu það var. Þessi regla var tekin upp í skipulagi nýrra hverfa í Reykjavík á 3. áratug aldarinnar og var hafði hún mikil áhrif á útlit reykvískra gatna fram yfir seinni heimsstyrjöld. Fleiri atriði má nefna, svo sem legu gatna miðað við sólarátt og ríkjandi vindstefnu, og lokun þeirra til beggja enda til að auka skjól. Í ritinu útskýrir hann hvers vegna sveigð gata sé fegurri en bein þar sem húsaröðin lokar götu- rýminu þegar horft er eftir götunni. Mikilvæg- um byggingum skyldi valinn staður við torg, við enda gatna eða á opnum svæðum þannig að þær settu sem mestan svip á umhverfið. Fag- urfræði í mótun bæjarmyndar taldi hann engu veigaminni þátt í því að tryggja góða heilsu og vellíðan fólks en tæknileg atriði, svo sem veitu- kerfi og gatnagerð. Fyrsta skipulagsnefndin Bók Guðmundar Hannessonar hafði mikil áhrif á skipulag íslenskra bæja. Hún var fræði- leg undirstaða fyrstu skipulagslaganna sem samþykkt voru árið 1921, en hliðstæð löggjöf var þá ekki til á hinum Norðurlöndunum. Á vegum skipulagsnefndar ríkisins, sem Guð- mundur sat í ásamt Guðjóni Samúelssyni húsa- meistara og Geir Zoëga vegamálastjóra, voru gerðir skipulagsuppdrættir af flestum þétt- býlisstöðum landsins. Teikningar þeirra vitna um metnað og stórhug þessara frumherja í mótun þéttbýlis á Íslandi. Tillögunum var sjal- dast fylgt eftir út í ystu æsar en engu að síður höfðu þær víðtæk áhrif á þróun margra ís- lenskra bæja. Í Reykjavík var gert heildarskipulag fyrir bæjarlandið innan Hringbrautar á árunum 1924–27. Skipulagið hlaut ekki staðfestingu en því var engu að síður fylgt í mótun byggðar á óbyggðum svæðum umhverfis Landakotshæð og á sunnanverðu Skólavörðuholti. Þessi hverfi eru eitt heillegasta dæmi um byggð sem mótuð var í anda skipulagskenninga Guðmundar Hannessonar. Þar má finna glæsihús efna- manna í bland við sambyggingar með litlum íbúðum og minni sérbýlishús fyrir fólk úr milli- stétt. Sé litið til þeirra þátta sem mest áhrif hafa á gæði skipulags, svo sem yfirbragð byggðar, fagurfræði í hönnun húsa, skjólmyndun og af- stöðu til sólarljóss, má með réttu segja að óvíða hafi betur tekist til með skipulag byggðar hér á landi en í þessum hverfum. Í dag eru þau með þeim eftirsóttustu í bænum til búsetu. Styrkur skipulagsins felst í því að það sameinar hug- myndir úr fortíð og samtíð, annars vegar sam- fellda bæjarmynd hinnar evrópsku hefðar og hins vegar kröfu 20. aldarinnar um skipulag með tilliti til sólarljóss. Ólíkt módernismanum fólu hugmyndir Guðmundar ekki í sér höfnun á hefðbundinni bæjarmynd heldur aðlögun hennar að breyttum aðstæðum. Störf þeirra Guðmundar og Guðjóns að skipulagsmálum vöktu athygli út fyrir land- steinana á 4. áratug aldarinnar. Erlend fagrit birtu lofsamlega dóma um framlag þeirra og var þeim boðið að halda fyrirlestra erlendis um vinnu nefndarinnar. Formaður alþjóðlegra skipulagssamtaka, Gjerlöff að nafni, sem hing- að kom árið 1936 lét svo ummælt í blaðaviðtali „að íslendingar [stæðu] meðal fremstu þjóða, hvað byggingarlist og skipulagningu bæja snertir.“ (Mbl, 8. 1936) Brautryðjendastarf Guðmundar Hannessonar að skipulagsmálum skipar honum sess meðal merkustu hugsuða þjóðarinnar á 20. öld. Fáir hafa hins vegar gert sér grein fyrir mikilvægi hugmynda hans á þessu sviði, enda hefur framlag hans lítið verið rannsakað. Aldamótakynslóðina íslensku dreymdi stóra drauma um verðandi höfuðborg landsins sem smám saman tók á sig mynd á 3. og 4. áratug aldarinnar, sem kalla mætti gullöld íslenkrar bæjarhefðar. Veglegar steinsteypubyggingar risu í miðbænum, verslunarhús, bíó og hótel, sem gáfu erlendum borgarhúsum lítt eftir í glæsileik. Einna lengst náði þessi glæsta sýn á Reykjavík sem höfuðborg í tillögum Guðjóns Samúelssonar að háborg á Skólavörðuholti, sem og þeim opinberu stórhýsum sem hann teiknaði á þessum árum: Landspítala, Þjóðleik- húsi og Háskóla. Hnignun borgarlífs Hér er ekki rúm til að fjalla um ástæður þess að sá vísir að íslenskri bæjarhefð sem til var á fyrri hluta aldarinnar fjaraði smám saman út á árunum eftir stríð. Það er hins vegar ljóst að þróun þéttbýlis hér á landi hefur á síðari árum mjög farið inn á þær óheillabrautir sem marg- ar þjóðir reyna nú að vinna sig frá. Á höfuð- borgarsvæðinu hefur uppbyggingin líkt og víða erlendis leitað út í jaðra byggðarinnar á sama tíma og eldri miðbæjum hefur hnignað. Nýju íbúðarhverfin eru dreifbyggð svefnhverfi þar sem bifreið er lífsnauðsyn til að sinna dagleg- um erindum. Verslun og atvinnurekstur hefur færst yfir á jaðarsvæðin, í þess konar byggð sem á ensku kallast „business park“, þar sem ekkert samhengi er í byggðinni og hvert hús er eyland með bílastæðum allt í kring. Gallinn við slíka uppbyggingu er sá að fyrirtæki og sam- félagið fara á mis við þau samlegðaráhrif sem eru lykillinn að fjölbreytni hefðbundinna borga. Heilsteypt bæjarskipulag er tæki til þess að beina framtaki einstaklinga í þann farveg að heildin verði sterkari en einingarnar sem hana mynda, á þann hátt að allir njóti góðs af. Á því byggist sú bæjarhefð sem svo lengi hefur lifað með vestrænni menningu. Borg er ekki hug- verk eins manns eða einnar kynslóðar heldur er hún samsafnaður menningararfur margra kynslóða. Í því eru töfrar hennar fólgnir. Hún er flókið vistfræðilegt og hagrænt fyrirbæri, mótun hennar er félagslegt og listrænt við- fangsefni ekki síður en tæknilegt. Þrátt fyrir hnignunarskeið síðustu áratuga er bæjarhefð óumdeilanlega hluti af íslenskri menningu. Hugmyndin um endurreisn bæja á því jafnmikið erindi hér sem annars staðar. Já- kvætt dæmi um þróun í þessa átt má finna í ný- lega samþykktu deiliskipulagi fyrir miðbæ Ak- ureyrar, sem er sá staður á landinu sem á hvað elsta bæjarhefð. Skipulagið tekur tillit til þeirr- ar sérstöðu sem einkennir byggð í miðbæ hvað varðar form húsa og starfræn tengsl þeirra við almenningsrými bæjarins, götur og torg. Reynt er að fylla upp í skörð og laga skemmdir í eldri bæjarmynd og er þar að hluta til byggt á forsendum skipulags frá 3. áratugnum sem Guðjón Samúelsson vann. Þétting byggðar – endurnýting lands Sú umræða sem verið hefur upp á síðkastið um þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu vitnar um vaxandi áhuga á gildi bæjarlífs. Í þeim efnum ber þó margs að gæta. Þétting byggðar er ekki ein og sér markmið í sjálfu sér nema þá og því aðeins að hún leiði til bætts um- hverfis og blómlegra samfélags. Í raun eru hugtök á borð við endurnýtingu lands og end- urreisn bæja heppilegri í þessu sambandi. Vöxtur borgarinnar inn á við á ekki að vera á kosnað opinna almenningssvæða. Né heldur á hann að fela í sér eyðileggingu á mikilvægum náttúrulegum sérkennum. Endurnýting lands felst í uppbyggingu á vannýttun svæðum innan borgarinnar í stað þess að brjóta nýtt land til byggingar. Efling miðborga erlendis beinist einkum að endurnýtingu svæða sem eru hætt að þjóna tilgangi sínum eða eru bundin undir plássfreka starfsemi sem betur er komin utan við borgirnar. Gömul og úrelt iðnaðarhverfi, at- hafnasvæði járnbrauta, vöruport við hafnir og flugvellir eru dæmi um slík svæði. Ef vel er að gáð leynast mörg slík vaxtarsvæði innan byggðar í Reykjavík: við Elliðavog og Ártúns- höfða, Skeifuna og Múlahverfi, Borgartún og Sætún og umhverfis gömlu höfnina. Síðast en ekki síst er flugvallarsvæðið í Vatnsmýri, sem er einstakt vegna stærðar sinnar og þeirra möguleika sem felast í tengslum þess við miðbæinn, Skerjafjörðinn og Öskjuhlíðina. Fáar borgir búa yfir öðru eins tækifæri til framtíðarþróunar miðborgar. Öllu máli skiptir að þegar að það tækifæri verður nýtt verði það vel nýtt, til að skapa borgarhluta sem rís undir þeim væntingum sem menning- arþjóð gerir til höfuðborgar sinnar. Ekki má sólunda svo dýrmætu vaxtarsvæði undir van- hugsaða byggð eða byggingar sem hannaðar eru út frá forsendum úthverfa. Mikið verk er fyrir höndum að efla vitund hér á landi á því sviði sem á ensku kallast „urb- an design“ (borgarhönnun, mótun bæjarmynd- ar) sem er forsenda þess að vel takist til með mótun þéttrar byggðar. Í því sambandi má margt læra af hinni gleymdu íslensku bæjar- hefð, ekki síst það hvernig móta má mann- eskjulegt bæjarumhverfi sem sniðið er að ís- lenskum aðstæðum. Greinin byggist á texta erindis sem höfund- ur flutti á málþingi um endurreisn bæja sem haldið var á seinasta ári á vegum Háskóla Ís- lands, Reykjavíkurborgar og Samtaka um betri byggð. Reykjavík séð úr lofti um 1930. Ljósmyndari óþekktur. Höfundur er arkitekt og deildarstjóri við bygging- arlistardeild Listasafns Reykjavíkur. Bolungarvík. Tillaga að skipulagi íslensks sjávarþorps árið 1924. Höfundur: Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins. Blómaskeið borgarmenningar. Friedrichstrasse í Berlín um 1925. Ljósmynd/Jón J. Dahlmann. Þjóðminjasafn Íslands Fjölnisvegur í Reykjavík. Skipulag með tilliti til sólarljóss og fagurfræði.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.