Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. MARS 2001 13
í baráttu fyrir umbótum í húsnæðis- og skipu-
lagsmálum. Þó að aðstæður hér væru ólíkar
átti áhugi Guðmundar á húsagerð og skipu-
lagsmálum rætur í sömu hugsun og hjá dönsku
læknunum að mótun byggðar skipti sköpum
fyrir andlega og líkamlega vellíðan fólks og því
væri hún mikilvægt heilbrigðismál.
Árið 1916 kom út sem fylgirit við Árbók Há-
skóla Íslands bókin „Um skipulag bæja“ eftir
Guðmund Hannesson. Í henni var í fyrsta sinn
fjallað um skipulagsmál hér á landi með fræði-
legri yfirsýn. Bókin er öðrum þræði gagnrýni á
stöðu mála hér á landi, einkum það skipulags-
leysi sem einkenndi hina nýju þéttbýlisstaði
landsins.
Í ritinu setti Guðmundur fram úthugsaða
framtíðarsýn um skipulag þéttbýlis við íslensk-
ar aðstæður. Hugmyndir sínar sótti hann í nýj-
ustu og framsæknustu skipulagskenningar
þess tíma, en í bókaskrá ritsins er vitnað í verk
alkunnra höfunda á borð við Raymond Unwin
og Camillo Sitte. En Guðmundur Hannesson
tók ekki upp útlendar hugmyndir gagnrýnis-
laust. Það er ekki síst hæfni hans til að aðlaga
þessar hugmyndir íslenskum aðstæðum sem
gerir rit hans merkilegt í fræðilegu tilliti.
Bresku og þýsku fyrirmyndarbæirnir sem
Guðmundur vitnar til í bók sinni voru svar þess
tíma við vandamálum sem skapast höfðu í stór-
borgum í kjölfar iðnbyltingarinnar. Áhersla
var lögð á aðskilnað íbúðar- og atvinnusvæða.
Íbúðarbyggðin var samfelld en lágreist, 2–3
hæða hús, oft lítil raðhús með garðbletti til
ræktunar.
Guðmundur sá fyrir sér þétta og samfellda
byggð í bæjum landsins en varaði við því að
húsin væru of há, svo tryggt væri að allar vist-
arverur nytu sólar. Ein nýjungin sem hann
kynnti var regla um skipan húsa á lóðir með til-
liti til sólarátta, þannig að stærstur hluti
óbyggðrar lóðar lægi sólarmegin húss, óháð því
hvorum megin götu það var. Þessi regla var
tekin upp í skipulagi nýrra hverfa í Reykjavík á
3. áratug aldarinnar og var hafði hún mikil
áhrif á útlit reykvískra gatna fram yfir seinni
heimsstyrjöld.
Fleiri atriði má nefna, svo sem legu gatna
miðað við sólarátt og ríkjandi vindstefnu, og
lokun þeirra til beggja enda til að auka skjól. Í
ritinu útskýrir hann hvers vegna sveigð gata sé
fegurri en bein þar sem húsaröðin lokar götu-
rýminu þegar horft er eftir götunni. Mikilvæg-
um byggingum skyldi valinn staður við torg,
við enda gatna eða á opnum svæðum þannig að
þær settu sem mestan svip á umhverfið. Fag-
urfræði í mótun bæjarmyndar taldi hann engu
veigaminni þátt í því að tryggja góða heilsu og
vellíðan fólks en tæknileg atriði, svo sem veitu-
kerfi og gatnagerð.
Fyrsta skipulagsnefndin
Bók Guðmundar Hannessonar hafði mikil
áhrif á skipulag íslenskra bæja. Hún var fræði-
leg undirstaða fyrstu skipulagslaganna sem
samþykkt voru árið 1921, en hliðstæð löggjöf
var þá ekki til á hinum Norðurlöndunum. Á
vegum skipulagsnefndar ríkisins, sem Guð-
mundur sat í ásamt Guðjóni Samúelssyni húsa-
meistara og Geir Zoëga vegamálastjóra, voru
gerðir skipulagsuppdrættir af flestum þétt-
býlisstöðum landsins. Teikningar þeirra vitna
um metnað og stórhug þessara frumherja í
mótun þéttbýlis á Íslandi. Tillögunum var sjal-
dast fylgt eftir út í ystu æsar en engu að síður
höfðu þær víðtæk áhrif á þróun margra ís-
lenskra bæja.
Í Reykjavík var gert heildarskipulag fyrir
bæjarlandið innan Hringbrautar á árunum
1924–27. Skipulagið hlaut ekki staðfestingu en
því var engu að síður fylgt í mótun byggðar á
óbyggðum svæðum umhverfis Landakotshæð
og á sunnanverðu Skólavörðuholti. Þessi hverfi
eru eitt heillegasta dæmi um byggð sem mótuð
var í anda skipulagskenninga Guðmundar
Hannessonar. Þar má finna glæsihús efna-
manna í bland við sambyggingar með litlum
íbúðum og minni sérbýlishús fyrir fólk úr milli-
stétt.
Sé litið til þeirra þátta sem mest áhrif hafa á
gæði skipulags, svo sem yfirbragð byggðar,
fagurfræði í hönnun húsa, skjólmyndun og af-
stöðu til sólarljóss, má með réttu segja að óvíða
hafi betur tekist til með skipulag byggðar hér á
landi en í þessum hverfum. Í dag eru þau með
þeim eftirsóttustu í bænum til búsetu. Styrkur
skipulagsins felst í því að það sameinar hug-
myndir úr fortíð og samtíð, annars vegar sam-
fellda bæjarmynd hinnar evrópsku hefðar og
hins vegar kröfu 20. aldarinnar um skipulag
með tilliti til sólarljóss. Ólíkt módernismanum
fólu hugmyndir Guðmundar ekki í sér höfnun á
hefðbundinni bæjarmynd heldur aðlögun
hennar að breyttum aðstæðum.
Störf þeirra Guðmundar og Guðjóns að
skipulagsmálum vöktu athygli út fyrir land-
steinana á 4. áratug aldarinnar. Erlend fagrit
birtu lofsamlega dóma um framlag þeirra og
var þeim boðið að halda fyrirlestra erlendis um
vinnu nefndarinnar. Formaður alþjóðlegra
skipulagssamtaka, Gjerlöff að nafni, sem hing-
að kom árið 1936 lét svo ummælt í blaðaviðtali
„að íslendingar [stæðu] meðal fremstu þjóða,
hvað byggingarlist og skipulagningu bæja
snertir.“ (Mbl, 8. 1936) Brautryðjendastarf
Guðmundar Hannessonar að skipulagsmálum
skipar honum sess meðal merkustu hugsuða
þjóðarinnar á 20. öld. Fáir hafa hins vegar gert
sér grein fyrir mikilvægi hugmynda hans á
þessu sviði, enda hefur framlag hans lítið verið
rannsakað.
Aldamótakynslóðina íslensku dreymdi stóra
drauma um verðandi höfuðborg landsins sem
smám saman tók á sig mynd á 3. og 4. áratug
aldarinnar, sem kalla mætti gullöld íslenkrar
bæjarhefðar. Veglegar steinsteypubyggingar
risu í miðbænum, verslunarhús, bíó og hótel,
sem gáfu erlendum borgarhúsum lítt eftir í
glæsileik. Einna lengst náði þessi glæsta sýn á
Reykjavík sem höfuðborg í tillögum Guðjóns
Samúelssonar að háborg á Skólavörðuholti,
sem og þeim opinberu stórhýsum sem hann
teiknaði á þessum árum: Landspítala, Þjóðleik-
húsi og Háskóla.
Hnignun borgarlífs
Hér er ekki rúm til að fjalla um ástæður þess
að sá vísir að íslenskri bæjarhefð sem til var á
fyrri hluta aldarinnar fjaraði smám saman út á
árunum eftir stríð. Það er hins vegar ljóst að
þróun þéttbýlis hér á landi hefur á síðari árum
mjög farið inn á þær óheillabrautir sem marg-
ar þjóðir reyna nú að vinna sig frá. Á höfuð-
borgarsvæðinu hefur uppbyggingin líkt og víða
erlendis leitað út í jaðra byggðarinnar á sama
tíma og eldri miðbæjum hefur hnignað. Nýju
íbúðarhverfin eru dreifbyggð svefnhverfi þar
sem bifreið er lífsnauðsyn til að sinna dagleg-
um erindum. Verslun og atvinnurekstur hefur
færst yfir á jaðarsvæðin, í þess konar byggð
sem á ensku kallast „business park“, þar sem
ekkert samhengi er í byggðinni og hvert hús er
eyland með bílastæðum allt í kring. Gallinn við
slíka uppbyggingu er sá að fyrirtæki og sam-
félagið fara á mis við þau samlegðaráhrif sem
eru lykillinn að fjölbreytni hefðbundinna
borga.
Heilsteypt bæjarskipulag er tæki til þess að
beina framtaki einstaklinga í þann farveg að
heildin verði sterkari en einingarnar sem hana
mynda, á þann hátt að allir njóti góðs af. Á því
byggist sú bæjarhefð sem svo lengi hefur lifað
með vestrænni menningu. Borg er ekki hug-
verk eins manns eða einnar kynslóðar heldur
er hún samsafnaður menningararfur margra
kynslóða. Í því eru töfrar hennar fólgnir. Hún
er flókið vistfræðilegt og hagrænt fyrirbæri,
mótun hennar er félagslegt og listrænt við-
fangsefni ekki síður en tæknilegt.
Þrátt fyrir hnignunarskeið síðustu áratuga
er bæjarhefð óumdeilanlega hluti af íslenskri
menningu. Hugmyndin um endurreisn bæja á
því jafnmikið erindi hér sem annars staðar. Já-
kvætt dæmi um þróun í þessa átt má finna í ný-
lega samþykktu deiliskipulagi fyrir miðbæ Ak-
ureyrar, sem er sá staður á landinu sem á hvað
elsta bæjarhefð. Skipulagið tekur tillit til þeirr-
ar sérstöðu sem einkennir byggð í miðbæ hvað
varðar form húsa og starfræn tengsl þeirra við
almenningsrými bæjarins, götur og torg.
Reynt er að fylla upp í skörð og laga skemmdir
í eldri bæjarmynd og er þar að hluta til byggt á
forsendum skipulags frá 3. áratugnum sem
Guðjón Samúelsson vann.
Þétting byggðar –
endurnýting lands
Sú umræða sem verið hefur upp á síðkastið
um þéttingu byggðar á höfuðborgarsvæðinu
vitnar um vaxandi áhuga á gildi bæjarlífs. Í
þeim efnum ber þó margs að gæta. Þétting
byggðar er ekki ein og sér markmið í sjálfu sér
nema þá og því aðeins að hún leiði til bætts um-
hverfis og blómlegra samfélags. Í raun eru
hugtök á borð við endurnýtingu lands og end-
urreisn bæja heppilegri í þessu sambandi.
Vöxtur borgarinnar inn á við á ekki að vera á
kosnað opinna almenningssvæða. Né heldur á
hann að fela í sér eyðileggingu á mikilvægum
náttúrulegum sérkennum. Endurnýting lands
felst í uppbyggingu á vannýttun svæðum innan
borgarinnar í stað þess að brjóta nýtt land til
byggingar. Efling miðborga erlendis beinist
einkum að endurnýtingu svæða sem eru hætt
að þjóna tilgangi sínum eða eru bundin undir
plássfreka starfsemi sem betur er komin utan
við borgirnar. Gömul og úrelt iðnaðarhverfi, at-
hafnasvæði járnbrauta, vöruport við hafnir og
flugvellir eru dæmi um slík svæði. Ef vel er að
gáð leynast mörg slík vaxtarsvæði innan
byggðar í Reykjavík: við Elliðavog og Ártúns-
höfða, Skeifuna og Múlahverfi, Borgartún og
Sætún og umhverfis gömlu höfnina.
Síðast en ekki síst er flugvallarsvæðið í
Vatnsmýri, sem er einstakt vegna stærðar
sinnar og þeirra möguleika sem felast í
tengslum þess við miðbæinn, Skerjafjörðinn og
Öskjuhlíðina. Fáar borgir búa yfir öðru eins
tækifæri til framtíðarþróunar miðborgar. Öllu
máli skiptir að þegar að það tækifæri verður
nýtt verði það vel nýtt, til að skapa borgarhluta
sem rís undir þeim væntingum sem menning-
arþjóð gerir til höfuðborgar sinnar. Ekki má
sólunda svo dýrmætu vaxtarsvæði undir van-
hugsaða byggð eða byggingar sem hannaðar
eru út frá forsendum úthverfa.
Mikið verk er fyrir höndum að efla vitund
hér á landi á því sviði sem á ensku kallast „urb-
an design“ (borgarhönnun, mótun bæjarmynd-
ar) sem er forsenda þess að vel takist til með
mótun þéttrar byggðar. Í því sambandi má
margt læra af hinni gleymdu íslensku bæjar-
hefð, ekki síst það hvernig móta má mann-
eskjulegt bæjarumhverfi sem sniðið er að ís-
lenskum aðstæðum.
Greinin byggist á texta erindis sem höfund-
ur flutti á málþingi um endurreisn bæja sem
haldið var á seinasta ári á vegum Háskóla Ís-
lands, Reykjavíkurborgar og Samtaka um
betri byggð.
Reykjavík séð úr lofti um 1930. Ljósmyndari óþekktur.
Höfundur er arkitekt og deildarstjóri við bygging-
arlistardeild Listasafns Reykjavíkur.
Bolungarvík. Tillaga að skipulagi íslensks sjávarþorps árið 1924.
Höfundur: Guðjón Samúelsson húsameistari ríkisins.
Blómaskeið borgarmenningar. Friedrichstrasse í Berlín um 1925.
Ljósmynd/Jón J. Dahlmann. Þjóðminjasafn Íslands
Fjölnisvegur í Reykjavík. Skipulag með tilliti til sólarljóss og fagurfræði.