Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 03.03.2001, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 3. MARS 2001 15 þar sem ég tók talsvert af litmyndum. En lit- urinn getur verið erfiður, ég tók t.d. myndir af líki manns sem hafði verið drepinn. Fólk hafði safnast saman í kringum hann og sá sem stóð næstur líkinu var í ljósrauðri skyrtu. Í myndunum beinist öll athyglin að honum, mótívið, í þessu tilviki blóðugt líkið, hverfur í skuggann. Litmyndir eru bestar þegar ekki eru mjög margir litir í þeim. En svo eru auðvitað ljósmyndarar sem nota liti, sterka liti í myndum sínum, t.d. Martin Parr og gera það auðvitað frábærlega,“ segir Joachim sem sjálfur leitar alltaf aftur í svart-hvítar myndir. Þegar honum liggi mik- ið á hjarta vilji hann segja það í svart-hvítu. Ladefoged hefur dreymt um að komast inn í Magnum frá því hann var smástrákur. Nú þegar hann hefur stungið öðrum fætinum inn um gættina hjá samtökunum, verður hann að sanna getu sína í tvígang áður en hann verður fullgildur meðlimur. „Þetta er auðvitað ótrúlegt tækifæri, Magnum stendur að mörgu leyti fyrir það besta. Magnum er órjúfanlegur hluti sögu tuttugustu aldarinn- ar, myndir á borð við mynd Roberts Capa af deyjandi hermanni í spænsku borgarastyrj- öldinni er brennd í huga manns. Magnum ljósmyndarar hafa verið áhorfendur að mörgum merkustu atburðum sögunnar og gefið almenningi kost á að upplifa hana. Og þótt ljósmyndarinn hafi ekki bein áhrif á söguna, hefur hann vissulega áhrif með myndum sínum, t.d. myndir James Nacht- wey frá Bosníu og Rúanda og Gilles Peress frá Balkanskaga. Var varaður við Magnum En Magnum á sér marga gagnrýnendur, sem segja samtökin hafa runnið sitt skeið, þau séu deyjandi risaeðla. Ladefoged var vissulega varaður við er fréttist að honum hefði verið boðið að ganga til liðs við Magn- um. „Magnum hefur tekið inn unga ljós- myndara á allra síðustu árum og ég efast ekki um að það er tilraun gerð á elleftu stundu til að endurnýja blóðið, flestir með- limanna eru yfir fimmtugu. Þrátt fyrir aðvaranirnar segist Ladefoged hafa ákveðið að láta slag standa, einfaldlega vegna þess að í hans huga sé ekki hægt að líkja neinu við Magnum og að þrátt fyrir allt séu samtökin enn það besta sem bjóðist. „Heimurinn breytist, tími tímarita á borð við Life er liðinn. Menn leika sér meira með liti og format. Mér finnst spennandi að fá að taka þátt í því.“ Ljósmynd/Joachim Ladefoged Ungur Kosovo-Albani stingur sér til sunds, sumarið 2000. Lokamyndin í bók Ladefoged um Albaníu og Kosovo og átti að tákna vonina, að lífið héldi áfram. „Ofbeldinu linnir hins vegar ekki og nú hef ég svo til misst trúna á að bjartari tímar séu fram undan.“ sínum í myndröðum þar sem ekkert er heil- agt. Hefðir og trú eru viðfangsefnið í þriðja hluta sýningarinnar sem nefnist „Var- anlegir helgisiðir“ þar sem einstök mynd- röð íranska ljósmyndarans Abbas af trú- ariðkun um allan heim er í öndvegi. Í tengslum við Magnum-sýninguna er sýning á ljósmyndum eins nýjasta meðlims samtakanna og jafnframt fyrsta Danans sem fær inngöngu í þau, Joachims Lade- foged. Hann er aðeins þrítugur að aldri en hefur hlotið fjölmargar alþjóðlegar við- urkenningar fyrir svart-hvítar myndir sín- ar, einkum frá Albaníu og Kosovo, og er myndaröðin í Louisiana einmitt þaðan. Báðar sýningar standa til 22. apríl. Magnum/Peter Marlow Rútan kvödd; starfsmenn japansks hótels hneigja sig fyrir rútu við brottför. Magnum/Martin Parr Öðruvísi fólk/Ooh la la Keukenhoff kallar Martin Parr þessa svipmynd frá Hollandi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.