Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MARS 2001
MYNDLIST
Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýn-
ing opin kl. 14-16. Til 15. maí.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Vagna Sól-
veig Vagnsdóttir. Til 8. apr.
Gallerí Reykjavík: Derek Mundell. Til
31. mars.
Gallerí Sævars Karls: Katrín Sigurð-
arsdóttir. Til 29. mars.
Gerðarsafn: Úr einkasafni Sverris Sig-
urðssonar. Til 31. mars.
Hafnarborg: Barbara Vogler. Til 26.
mars.
Hallgrímskirkja: Kristín Geirsdóttir.
Til 20. maí.
i8: Karin Sander. Til 29. apr.
Íslensk grafík: Ragnar Óskarsson. Til
1. apr.
Listasafn ASÍ: Guðrún Gunnarsdóttir.
Til 1. apr.
Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug-
ardaga og sunnudaga, kl. 14-17.
Listasafn Ís: Náttúrusýnir.Til 22. apr.
Listasafn Reykjavíkur - Ásmundar-
safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur
Sveinsson. Til 29. apr.
Listas. Rvík - Hafnarh.: Frásagnarmál-
verkið og Sófamálverkið. Til 25. mars.
Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstað-
ir: Austursalur: Jóhannes S. Kjarval.
Gullpensillinn. Til 24. mars.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: 30 ára
í list Sigurjóns, 1930-1960. Til 1. júní.
MAN: Jóna Thors. Til 11. apr.
Mokkakaffi: Ragnar Stefáns. Til 8. apr.
Norræna húsið: Vatnslitamyndir frá
Færeyjum. Til 25. mars.
Nýlistasafnið: Steingrímur Eyfjörð,
Ragna Hermannsd., Finnur Arnar
Arnarsson og Hulda Stefánsd. Til 25.
mars.
Ráðhús Rvíkur: Sri Chinmoy. Til 8. apr.
Sjóminjas. Ísl.: Jón Gunnars. Til 2. apr.
Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og
Þorgerður Sigurðardóttir. Til 31. des.
Slunkaríki, Ísafirði: Ragnhildur Stef-
ánsdóttir myndhöggvari. Til 1. apr.
Þjóðarbókhlaða: Elsa E. Guðjónsson.
Til 30. apr.
Upplýsingamiðstöð myndlistar:
www.umm.is undir Fréttir.
TÓNLIST
Laugardagur
Salurinn: Himnastigatríóið. Kl. 17.
Seltjarnarneskirkja: Samkór Mýra-
manna. Kl. 16.
Ýmir: Karlakór Reykjavíkur. Kl. 16.
Sunnudagur
Hallgrímskirkja: Hulda Guðrún Geirs-
dóttir sópran, Sigríður Jónsdóttir alt og
Douglas A. Brotchie orgel. Kl. 17.
Kirkjuhvoll, Gbæ: Vilbergsdagar. Kl.
17.
Langholtskirkja: Minningatónleikar
um Ragnar Björnsson. Kl. 17.
Langholtskirkja: Gradualekór Lang-
holtskirkju. Kl. 20.
Salurinn: Sigríður Aðalsteinsdóttir og
Jónas Ingimundarson. Kl. 20.
Þriðjudagur
Kirkjuhvoll, Gbæ: Vilbergsd. Kl. 20.
Miðvikudagur
Kirkjuhvoll, Gbæ: Vilbergsd. Kl. 20.
Fimmtudagur
Áskirkja: Gunnar Spjuth gítar. Kl. 20.
Föstudagur
Laugardalshöllin: Carmen. Kl. 19:30.
LEIKLIST
Þjóðleikhúsið: Með fulla vasa af grjóti,
25., 29., 30. mars. Blái hnötturinn, 24.,
25. mars. Horfðu reiður um öxl, 24.
mars. Laufin í Toskana, 30. mars. Já
hamingjan, 24., 29. mars.
Borgarleikhúsið: Blúndur og blásýra,
30. mars. Skáldanótt, 24., fim. 29. mars.
Móglí, 24., 25. mars. Öndvegiskonur,
25. mars.
Íslenski dansflokkurinn: Kraak een og
Krak twee, Pocket Ocen, sun. 25. mars.
Loftkastalinn: Á sama tíma..., 25. mars.
Iðnó: Sniglaveislan, .24., . 25., þrið. 27.,
28., 29., 30. mars.
Íslenska óperan: La Boheme, lau. 24.
mars.
Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysing-
arnir, lau. 24., fös. 30. mars.
Möguleikhúsið: Skuggaleikur, lau. 24.,
25., 26. mars. Lóma, 25. mars.
Kaffileikhúsið: Bannað að blóta í brúð-
arkjól, lau. 24. mars. Ég var beðin að
koma, sun. 25. mars.
Nemendaleikhúsið: Stræti, 24., fim. 29.
mars.
Leikfélag Akureyrar: Gleðigjafarnir,
lau. 24. mars.
MENNING
LISTIR
N Æ S T U V I K U
Á BOÐUNARDEGI Maríu á morgun, sunnu-
dag, verða tónleikar í Hallgrímskirkju kl. 17
með yfirskriftinni „Magnificat“ – Lofsöngur
Maríu. Flytjendur eru Hulda Guðrún Geirs-
dóttir sópran, Sigríður Jónsdóttir alt og
Douglas A. Brotchie orgel.
„Þegar engillinn hafði vitjað Maríu söng hún
lofsönginn sem birtist í Lúkasarguðspjalli og
hefst á orðunum „Önd mín miklar Drottin“.
Þessi lofsöngur, sem er einn þriggja þekktra
lofsöngva úr Biblíunni, hefur verið yrkisefni
tónskálda gegnum aldirnar. Á tónleikunum
gefst áheyrendum tækifæri til að heyra ýmsar
túlkanir á honum og atburðum dagsins. Þetta
eru orgelverk eftir Buxtehude og og söngverk
eftir Bach, César Frank, Merikanto og Gór-
ecki auk sálms úr Grallaranum. Magnificat,
orgelfantasía eftir Buxtehude er önnur af
tveimur sem hann samdi um Lofsöng Maríu.
Hún samanstendur af tveimur samfelldum
þáttum sem báðir sækja tónefni sitt í greg-
órska tónsetningu Magnificat sem er í fyrstu
kirkjutóntegundinni,“ segir Erla Elín Hans-
dóttir umsjónarmaður tónleikanna sem eru á
dagskrá Listvinafélags Hallgrímskirkju.
„Hugsanlegt er að þessir orgellofsöngvar hafi
verið hugsaðir sem forspil að hátíðarflutningi á
Magnificat með kór og hljóðfæraleikurum.
Sálminn „Guð þann engill sinn Gabriel“, sem
tileinkaður er boðunardegi Maríu, er að finna í
Grallaranum 1594. Lagið er þýskt að uppruna
og textinn eftir Erasmus Alberus. Þýðingin
fylgir upprunalega textanum mjög náið, er ef
til vill eftir síra Ólaf Guðmundsson í Sauðanesi.
Arían „Schäme dich, o Seele nicht“ er úr
147. Kantötu eftir Johann Sebastian Bach.
Hún er þekkt í tveimur gerðum og var síðari
útgáfa frumflutt í Leipzig árið 1723,“ segir
Erla Elín.
Þrjár Maríubænir
Síðar á efnisskrá koma þrjár Maríubænir.
„Ave Maria“ eftir Cesar Franck fyrir einsöng
eða kór er ekki sérlega þekkt eða hátt skrifað
af tónlistarfræðingum. Hann skrifaði þrjú tón-
verk við þessa frægu.
Önnur Ave Marian er eftir finnska tónskáld-
ið Oskar Merikanto. Hann er þekktur meðal
Finna fyrir vinnu sín við menntun kirkjutón-
listarmanna í heimalandi sínu og fyrir að hafa
frumkvæði í óperuflutningi. Hann samdi m.a.
fyrstu óperuna á finnsku, „Pohjan neiti“, 1899.
Síðasta og jafnframt langyfirgripsmesta
verkið er „O Domina nostra“ eftir pólska tón-
skáldið Henryk Górecki. Hann er kaþólskur og
er trúin honum afar mikilvæg auk þess sem
hann leggur mikla rækt við menningararf
þjóðar sínar. Verkið var samið 1982 í tilefni af
600 ára afmæli hinnar frægu Svörtu meyjar
frá Jasnogora-klaustrinu. Hún hefur lengi ver-
ið tákn sjálfstæðishugsjóna Pólverja auk þess
sem þeir beina bænum sínum til hennar á
neyðartímum,“ segir Erla Elín.
HALLGRÍMSKIRKJA
LOFSÖNGVAR
MARÍU Á
TÓNLEIKUM
Morgunblaðið/Jim Smart
Sigríður Jónsdóttir, Douglas A. Brotchie og Hulda Guðrún Geirsdóttir við æfingar í Hallgríms-
kirkju.
GRADUALEKÓR Langholtskirkju heldur
tónleika í Langholtskirkju annað kvöld,
sunnudagskvöld, kl. 20. Undirleikari á píanó
og orgel er Lára Bryndís Eggertsdóttir og
nokkrir einsöngvarar úr röðum kórfélaga
koma fram. Stjórnandi er Jón Stefánsson.
Á efnisskránni eru bæði þekkt lög sem
fylgt hafa kórnum frá upphafi og nýrri verk.
Má nefna m.a. Sálm 100 eftir Tryggva E.
Baldvinsson, Verk eftir kanadíska tónskáldið
Ruth Watson Henderson og þætti úr „Lapsi-
messu“ (barnamessu) eftir Einohuhani
Rautavaara.
Að sögn Jóns Stefánssonar hefur á sl.
tveimur árum enn verið aukin áhersla á
raddþjálfun. Til viðbótar reglulegri radd-
þjálfun hópsins hefur Ólöf Kolbrún Harð-
ardóttir kennt kórfélögum í þriggja til fjög-
urra manna hópum og munu þessir hópar
koma fram á tónleikunum og syngja.
Miðaverð er kr. 1.000 og í hléi mun for-
eldrafélag Gradualekórsins selja veitingar til
styrktar Finnlandsferð kórsins, sem fyr-
irhuguð er í júní, þar sem hann tekur m.a.
þátt í kórakeppni í Tampere. Þá verður einn-
ig komið við í Danmörku. Tónleikarnir eru
ein helsta fjáröflunarleið kórsins vegna far-
arinnar.
Ljósmynd/Anna Fjóla Gísladóttir.
Gradualekór Langholtskirkju.
TÓNLEIKAR GRADUALEKÓRS
LANGHOLTSKIRKJU
NÝVERIÐ kom út
hjá Like-forlaginu í
Helsinki finnsk út-
gáfa af Svaninum
eftir Guðberg Bergs-
son í þýðingu Tapio
Koivukari.
Guðbergi var boð-
ið til Finnlands í til-
efni af útgáfunni og
kom hann fram í
mörgum stærstu
fjölmiðlum Finna af
þessu tilefni. Meðal
annars gerði Rás 1
50 mínútna þátt um
Guðberg sem sendur verður út tvisar í maí
auk þess sem tekið var sjónvarpsviðtal við
hann.
Like-forlagið hefur áður gefið út bækur
eftir íslenska höfunda en meðal erlendra
höfunda forlagsins má nefna Kjell Askild-
sen, Karin Fossum, Erlend Loe, Marguerite
Duras, Jean Genet og Primo Levi.
Svanurinn hlaut á sínum tíma Íslensku
bókmenntaverðlaunin og var tilnefnd til
Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Hún
hefur verið gefin út víða um heim og hlotið
mjög góðar viðtökur lesenda og gagnrýn-
enda. Þetta er tíunda erlenda útgáfan á bók-
inni en JPV útgáfa annaðist samninga vegna
útgáfunnar.
SVANURINN
GEFINN ÚT
Á FINNSKU
Guðbergur Bergsson
SÝNINGARGESTUR í Royal Academy
of Arts listasafninu í London hlýðir hér
áhugasamur á segulbandsleiðsögn um
Víti Dantes á sýningu á myndlýsingum
við Hinn guðdómlega gleðileik.
Myndir ítalska endurreisnarlista-
mannsins Sandro Botticelli við Hinn guð-
dómlega gleðileik Dantes eru alls 92 að
tölu. Þær eru nú allar til sýnis í Royal
Academy of Arts, en Botticelli er aðeins
einn fjölmargra listamanna sem í gegnum
tíðina hafa myndskreytt þetta þekkta
verk.
Eins og Morgunblaðið sagði frá í vik-
unni hefur Vatikanið hætt við sýningu á
myndunum í Metropolitan safninu í New
York af ótta við að myndirnar verði bit-
bein í málaferlum sem höfðuð hafa verið
gegn því í Kaliforníu. AP
VÍTI BOTTICELLIS