Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 20

Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 20
20 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MARS 2001 T ÓNLEIKARNIR hefjast kl. 17 á morgun, sunnudag, og eru haldnir í tilefni af því að Ragnar Björnsson hefði orðið 75 ára um þessar mundir. Efnisskráin er fjölbreytt og kemur fjöldi flytjenda fram. Frumflutt verða verkin Post- ludium eftir Jón Nordal og Minningar eftir Atla Heimi Sveinsson í flutningi kammer- sveitar. Þá verða á efnisskrá verk eftir Ragnar Björnsson sjálfan, Pál Ísólfsson læriföður Ragnars og náinn vin, auk er- lendra verka m.a. eftir Chopin og Buxte- hude. Að sögn Sigrúnar Björnsdóttur, ekkju Ragnars sem jafnframt er einn aðstandenda tónleikanna, var litið til þess breiða starfs- vettvangs sem Ragnar kom að í tónlistar- starfi sínu, við val á verkum og flytjendum á tónleikunum.Verkin vísa þannig til ólíkra þátta í starfi hans. Á efnisskránni er t.d. Tríó fyrir tvær fiðl- ur og selló sem Ragnar samdi og tileinkaði nemendum Nýja tónlistarskólans „Þetta verk er mjög lýsandi fyrir það hversu annt Ragnari var um nemendur sína, en segja má að hann hafi þekkt og fylgst náið með hverj- um nemenda. Ragnar var einnig duglegur að frumflytja verk eftir okkar íslensku tónskáld og átti gott samstarf með mörgum þeirra. Hann var nokkuð naskur á að fylgjast með því hvað var að gerast í þeim efnum. Hann átti mjög gott samstarf við Jón Nordal og Atla Heimi Sveinsson, og er því mjög ánægjulegt að frumflutt verði verk eftir þá á tónleikunum,“ segir Sigrún. Auk þess bendir hún á að margir flytjenda hafi átt samstarf við Ragnar með einhverj- um hætti á ferli hans. Árni Arinbjarnarson orgelleikari mun t.d. leika orgelverk eftir Ragnar, en þeir hafa verið kollegar allt frá því að Ragnar var skólastjóri í Tónlistar- skólanum í Keflavík. „Árni flytur verk sem Ragnar samdi og frumflutti í minningu Kjar- vals við útför hans. Verkið var síðar flutt við minningarathöfn um Ragnar sjálfan í Dóm- kirkjunnni,“ segir Sigrún og ítrekar að þessi hluti vísi til starfs Ragnars sem orgelleikara. „Þá mun Karlakórinn Fóstbræður syngja lög af ýmsu tagi og er þar minnst starfs Ragnars sem stjórnanda kórsins.“ Þá vísa verkin eftir Ragnar á efnisskránni til hans sem tónskálds. Í hópi flytjenda eru auk ofan- greindra Marteinn Hunger Friðriksson dómorganisti og tónlistarmenn úr hópi kenn- ara Nýja tónlistarskólans, gamalla nemenda og núverandi nemenda skólans. Þeirra á meðal eru Bjarni Þór Jónatanssson og Þor- steinn Gauti Sigurðsson píanóleikarar, Zbigniew Dubik og Auður Hafsteinsdóttir fiðluleikarar, Kolbeinn Bjarnason og Áshild- ur Haraldsdóttir flautuleikarar, Jóhanna Linnet, Ragnheiður Linnet og Birna Ragn- arsdóttir söngkonur. Helmingur ágóða tónleikanna mun renna til Krabbameinsfélagsins og helmingur til stofnunar Minningarsjóðs Ragnars Björns- sonar við Nýja tónlistarskólann. „Ragnar hafði alla tíð það á stefnuskrá að stofna sjóð til að styrkja nemendur við Nýja tónlistar- skólann til framhaldsnáms eftir burtfarar- próf. Í kjölfar tónleikanna verður sá sjóður formlega stofnaður,“ segir Sigrún. Hún bæt- ir því við að ágóði af tónleikunum muni renna til Krabbameinsfélagsins í framhaldi af því söfnunarátaki sem félagið stóð fyrir nýlega. „Ragnar lést úr krabbameini, eftir að hafa barist við sjúkdóminn í tvö ár. Þótt lífsvonin hafi verið lítil, lifði Ragnar engu að síður hamingjusamur með krabbameininu og var lífsglaður meðan hann fékk að lifa. Þetta viðhorf Ragnars gagnvart sjúkdómnum er þess virði að miðla til annarra,“ segir Sigrún að lokum. Eftirspil og augnabliksmyndir „Þetta er fremur stutt verk fyrir orgel sem ég samdi í minningu Ragnars,“ segir Jón Nordal tónskáld. „Ég nefni þetta verk Postludium, eftirspil, þar sem ég leik mér að ýmsum tónlistarlegum tilvitnunum. Við Ragnar Björnsson vorum æskuvinir og skólabræður. Ég samdi fyrir hann orgelverk m.a. „Forspil að sálmi sem aldrei var sung- inn“ og Ragnar frumflutti í Skálholti daginn sem Hekla byrjaði að gjósa 1980.“ Atli Heimir Sveinsson nefnir sitt verk Minningar. „Þetta eru þrjú smálög eða sakn- aðarstef fyrir tvær flautur, tvær fiðlur og tvö píanó. Það má kalla þetta augnabliks- myndir sem komu upp í huga minn eftir að Sigrún Björnsdóttir ekkja Ragnars fór þess á leit við mig að semja verk af þessu tilefni,“ segir Atli Heimir. „Mér var mikil ánægja að verða við þess- ari bón því okkur Ragnari var ávallt mjög vel til vina og hann reyndist mér haukur í horni þegar ég var hefja minn feril sem tón- skáld. Hann pantaði af mér tvö verk fyrir orgel sem hann flutti síðan víða um lönd og varð til þess að mér bárust pantanir um verk víða að. Ragnar var mikilhæfur tónlist- armaður og framúrskarandi organisti,“ segir Atli Heimir Sveinsson. Mikilvirkur tónlistamaður Ragnar Björnsson fæddist árið 1926 að Torfustaðahúsum, Vestur-Húnavatnssýslu. Hann hóf níu ára gamall að leysa föður sinn, Björn G. Björnsson kirkjuorganista af við jarðarfarir og messur. Þar lék hann jafn- framt á fiðlu og söng sálma. Um fermingu hóf hann orgelnám hjá doktor Páli Ísólfssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík en þar nam hann einnig píanóleik hjá Árna Kristjánssyni og Rögnvaldi Sigurjónssyni. Að loknum burtfararprófum hélt Ragnar til Kaup- mannahafnar, þar sem hann lagði stund á nám við hljómsveitarstjóradeild Konserva- torísins og nam auk þess píanóleik við sama skóla hjá prófessor Haraldi Sigurðssyni. Ári síðar hóf Ragnar nám við Vínarakademíuna hjá Hans von Swarovski. Þaðan lauk hann námi frá hljómsveitarstjóradeild, með píanó- leik sem hliðargrein árið 1954. Eftir að hann kom heim úr námi starfaði Ragnar sem aðstoðarorganisti Páls Ísólfs- sonar í Dómkirkjunni í Reykjavík, en tók ár- ið 1969 við starfi dómorganista af Páli. Ragnar gegndi jafnframt starfi skólastjóra Tónlistarskólans í Keflavík frá 1956. Eftir að hann lét af störfum sem dómorganisti, árið 1978 stofnaði Ragnar Nýja tónlistarskólann í Reykjavík og gegndi starfi skólastjóra til dauðadags í október árið 1999. Auk þessa var Ragnar mikilvirkur tónlistarmaður. Hann stjórnaði Karlakórnum Fóstbræðrum í 26 ár, og vann kórinn m.a. til verðlauna á al- þjóðlegri kórakeppni árið 1987, auk þess sem kórinn ferðaðist víða um lönd. Ragnar var einn stjórnenda Sinfóníuhljómsveitar Ís- lands, auk þess sem hann stjórnaði óperu- sýningum í Þjóðleikhúsinu. Þá hélt Ragnar orgeltónleika erlendis, m.a. í Evrópu, Sov- étríkjunum og Bandaríkjunum og hlaut víða lofsamlega dóma. Ragnari var m.a. boðið að leika á hátíðartónleikum í Notre Dame- kirkjunni í París og hlaut lofsamlegar við- tökur. Ragnar starfaði auk þess sem tónlist- arkennari alla tíð og hafði mikla ánægju af því starfi að sögn þeirra sem til hans þekktu. „Tónleikarnir endurspegla starfsvettvang Ragnars“ Tvö ný tónverk eftir Jón Nordal og Atla Heimi Sveinsson tónskáld verða frumflutt á minningartón- leikum um Ragnar Björns- son fyrrum dómorganista og skólastjóra við Nýja tónlistarskólann, sem haldnir verða í Langholts- kirkju á morgun. Morgunblaðið/Ásdís Frá æfingu á nýju verki eftir Atla Heimi Sveinsson sem frumflutt verður á minningartónleikunum. Atli Heimir Sveinsson. Jón Nordal. Ragnar Björnsson.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.