Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 17

Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 17
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MARS 2001 17 arstjórar, sem yfirleitt er í þeirri stöðu að sýna list. Þarna hafa hlutverkin snúist við og það er sjálft til sýnis sem hluti af listsköp- uninni,“ segir Karen og hlær. „Mitt hlutverk er að gefa eitthvað í skyn sem áhorfandinn getur síðan tekið lengra eða heimfært upp á sitt eigið umhverfi. Ég er samt ekkert endi- lega að reyna að móta hugmyndir áhorfand- ans. Þegar ég t.d. lyfti upp gólfi í galleríi og bý til eins konar svið er mér alveg sama þótt enginn komi til með að standa á því. Verkið er til á sínum eigin forsendum og eigindi þess eru hin sömu hvort sem einhver skoðar það eða ekki. Skyldleiki slíks verks við litlu stytturnar í i8 er þó óneitanlega fyrir hendi og áhorfandinn stendur frammi fyrir sínum eigin væntingum. Hann kemur til að horfa á eitthvað en stendur í staðinn sjálfur mitt í því sem er til sýnis.“ Miðillinn ræðst af hugmyndinni Karin hefur lagt á það mikla áherslu þeg- ar hún ræðir um listsköpun sína að hug- myndin komi alltaf fyrst, efniviðurinn eða sú tækni sem notuð er til útfærslu ráðist af hugmyndinni en ekki öfugt. „Maður hugsar sér eitthvað sem hlutgerist síðan í gegnum ákveðið ferli. Ég myndi aldrei hugsa með mér; tölvur eru frábærar, hvað get ég gert með þeim? Eða mér finnst gaman að mála, hvernig mynd ætti ég að mála? Slíkar að- ferðir eru orðnar frekar útþynntar núna á 21. öldinni. Ég hef fremur kosið að vinna út frá forsendum ákveðinnar hugmyndar sem síðan tekur á sig þá mynd sem þjónar henni best. Í gegnum tíðina hef ég unnið mikið með hugmyndir er tengjast rými. Í einu til- felli bjó ég til verk sem fyllti eiginlega alveg út í rými gallerísins. Hlutlaust sýningarrým- ið varð þannig að hlutgerðu rými – að sýn- ingunni sjálfri sem samanstóð af fjórum risa- stórum kössum sem hægt var að ganga á milli. Þannig var áhorfandinn neyddur til að ganga í kringum það rými sem hann myndi venjulega ganga inn í,“ segir Karin. „Ég vann einnig verk fyrir Museum of Modern Art í Bandaríkjunum þar sem ég notaði mér aðstæður sem þar skapast og fel- ast í skilgreiningum á ólíku rými, þ.e.a.s. sýningarrými, útirými, náttúru, manngerðu umhverfi o.s.frv. Safnið hefur ákveðið fjár- magn til að skapa „náttúru“ úti fyrir, sem er auðvitað þversögn í sjálfu sér því náttúran er á afmörkuðu svæði og hefur þannig verið „tamin“. Ég bjó til svæði úr gervigrasi sitt hvorum megin við glervegg, svo helming- urinn var inni og hinn helmingurinn úti. Með því að tengja rými sem eru ætluð til ólíkra nota með gervigrasinu gat ég á einhvern hátt raskað eða afhjúpað þetta skipulag og þá þversögn sem í því felst. Enda var mjög athyglisvert að fylgjast með því hvernig sýn- ingargestir notuðu grasið. Inni í bygging- unni litu þeir á það sem listaverk og þorðu tæpast að stíga á það, en hinum megin við gluggann, úti í sólinni, var það notað eins og hver önnur glasflöt; fólk fór í sólbað, borðaði nestið sitt og slappaði af. Þetta var því eins konar tilraun um manngerðan raunveruleika náttúru og listar.“ Mörk hins sýnilega og ósýnilega Iðulega er eins og Karin leiki sér með mörk hins sýnilega og ósýnilega í verkum sínum. Hún segist meira að segja hafa unnið verk af því tagi sem lýsa mætti sem and- stæðu málverks. „Í stað þess að búa til mynd með því að mála fjarlægi ég málningu með því að pússa yfirborð sjálfs veggjarins þang- að til hann er orðinn eins og spegill. Verkið endurspeglar umhverfið og áhorfendur hverju sinni. Á þann máta er það síbreytilegt og um leið tímalaust eða hafið yfir stöðnun. Eðli sínu samkvæmt endurspeglar verkið ekki einungis það sem er fyrir framan það, heldur einnig sögu og þróun málverksins, því málverk hafa alltaf þjónað því hlutverki að endurspegla samfélagið að einhverju leyti, hlutlægt eða huglægt,“ segir Karin. Karin Sander hefur ekki bara slípað veggi til að rannsaka hlutverk málverksins. Hún hefur einnig tekið sjálft yfirborð veggjanna og sett það í ramma. Á þann hátt tekst henni að búa til „málverk“ úr veggnum í stað þess að setja málverk á vegginn. Þegar hún er spurð um þetta ferli segir hún: „Já, ég tók ljósmyndir af veggjunum og setti þær í ramma, svo það er eins og sýningargest- urinn horfi á vegginn í gegnum síu. Ég not- aði allar stærðir tilbúinna ramma sem fram- leiddar eru, en þær eru 27, til að hengja myndirnar á veggina. Sem heild mynda rammarnir eins konar huglægt burðarvirki því þeir líta út eins og vegghleðsla. Í gamla daga var ekki óalgengt að myndir væru hengdar upp á þennan hátt. Endurtekningin gegnir líka ákveðnu hlutverki því um leið og búið er að fjarlægja einn rammann breytast tengslin við vegginn. Sá hluti veggsins sem ekki er lengur hulinn er ekki bara hlutlaus veggur lengur heldur þáttur í flóknu ferli.“ Endurtekningin skapar ótrúlega fjölbreytni Karin hefur unnið fleiri verk sem byggjast á slíkum endurtekningum. Meðal annars inn- setningu þar sem hún límdi mannshár í ramma svo þau mynduðu eins konar teikn- ingar. „Sú sýning tengist að nokkru leyti litlu sjálfsmyndunum sem ég sýni hér núna,“ segir hún, „því það hefur vísun í eiginleika portrettsins. Ég fæ tíu hár af hverjum ein- staklingi og ramma þau inn, eitt og eitt í ramma. Þannig myndast tíu teikningar sem saman gefa ákveðna mynd af persónunni. Allt í allt voru þetta 776 myndir og þegar þær eru skoðaðar hver fyrir sig eru „teikn- ingarnar“ ótrúlega fjölbreyttar. Það er eins og í þeim megi finna alla hugsanlega mögu- leika af kroti og formum; sumt er mjög fíg- úratíft, annað mjög abstrakt, sumt er eins og skopteikningar eða landslagsmyndir og nokkrar „teikningarnar“ eru jafnvel erótísk- ar. Endurtekningin varð því reyndar til þess að skapa óendanlega fjölbreytni í þessu verki á sama hátt og litlu sjálfsmyndirnar í i8.“ Hér var samtal okkar Karin Sander eig- inlega komið í hring þótt enn væri ekki búið að gera skil öllum þeim hugsanatengslum sem vakna við að skoða verkin hennar. Þau byggjast á ólíkum hugmyndum en eiga þó sameiginlegan þráð sem auðvelt er að rekja sig eftir. Öll eru þau tilraun til að rannsaka tengsl listarinnar við umhverfi sitt, sem er auðvitað hefðbundin hugmynd. En í verkum Karin felst oftar en ekki óhefðbundin upp- lausn þessa umhverfis fyrir tilstuðlan sjálfr- ar listarinnar, eins og t.d. þegar hún hengir vegg í ramma á vegg. Það sem Karin nefnir „fáránleika“ slíkra tilrauna afhjúpar sam- bandið á milli áhorfandans, sýningarrýmisins og gefinna gilda, sem allir þekkja án þess þó að geta skilgreint þau. Í þeim frumleika felst styrkur hennar og hugmyndafræðilegur ferskleiki sem vissulega á brýnt erindi við samtímann og þá ekki síður mótun sjálfsvit- undar okkar. Í þessu rými leikur Karin með viðsnúning hefðarinnar; veggurinn er hengdur upp eins og málverk í stað þess að málverk séu hengd á vegginn. Í Museum of Modern Art kaus Karin að leika sér að stöðluðum hugmyndum um hlutverk, takmarkanir og notkun rýmis. Hér má sjá hvernig sýningarrýmið sjálft er hlutgert í stórum kössum þannig að áhorfandinn get- ur aðeins fetað sig í kringum það, í stað þess að ganga inn í það eins og hann á von á. Eitt verka Karin Sander sem hún lýsir sem „andstæðu við málverk“. Þar fægir hún hluta veggjar þar til hann fer að spegla umhverfi sitt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.