Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 15

Lesbók Morgunblaðsins - 24.03.2001, Blaðsíða 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. MARS 2001 15 nefndur og bendir það til að greinin sé eftir rit- stjórann séra Matthías Jochumsson. Í upphafi segir m.a.: „... nú á dögum standa sem hæst þau sólhvörf, sem breyta gömlum gangi fleiri hluta en nokkurn áður óraði fyrir. Við margar nýung- ar má kenna þessa öld... Nú hefir tíminn svo að segja á svipstundu umsteypt nálega öllu; er sú skoðun alls þorra manna, að efling alþýðu- menntunarinnar sé sjálfsagt lífs- og framfara- skilyrði nú á dögum. Og meðalið eru skólarnir.“ Ennfremur segir: „Kirkjur og kirkjuleg upp- fræðing er ekki lengur einhlýtt hjá oss, því veld- ur breyting tímanna og hugmyndanna; með nýju þjóðfrelsi þurfum vér nýja þjóðmentun; með nýju þjóðlífi þurfum vér nýja þjóðkrapta; til nýrra framkvæmda þurfum vér nýja kunn- áttu, nýjan undirbúning, nýtt uppeldi, ný sam- tök, nýjan anda. Oss vantar skóla.“ (Undirstrik- að í Þjóðólfi). Nokkrar helstu ritgerðir Channings Í bréfum sem til eru frá hendi Matthíasar nafngreinir hann þrjá fyrirlestra eftir Channing sem hann hafði þýtt og sent Bókmenntafélaginu (hann sendi því raunar fjóra) til útgáfu árið 1887, þeir eru On Temperance, The Present Age og On Religion. Einhverju sinni (1875) get- ur hann þess að hann hafi nýlokið við að þýða On Selfculture eftir W. E. Channing. Í bréfi sem séra Matthías ritaði frá Odda til Hannesar Hafstein 27. mars ‘85 segir: „Ég hef þessa daga þýtt dr. Channings masterpiece, Remarks on Napoleon – ætla að reyna að fá styrk í Englandi til að gefa hans ágætustu ritgerðir út. Odda 21.2.1887 til séra Valdimars Briem: „... ég hef þýtt 3–4 fyrirlestra dr. Channings – On Temperance, – The Present Age, – On Relig- ion.... Reyndu að lesa Chr. Life of Channing, eða áttu hann ekki?“ [Christian Life kallar Matthías í sama bréfi „uppáhaldið“ sitt]. Þótt hér séu aðeins fáein rit tilgreind leikur enginn vafi á því að Matthías hefur oft lesið verk Channings á langri ævi sinni og aldrei virðist áhugi hans dvína á ritum þessa guðfræðings. Eitt þeirra rita sem nefnt er hér að ofan, On Selfculture, er raunar meðal helstu rita Chann- ings; þar kemur hinn bjartsýni mannskilningur hans vel í ljós. Hugtakið selfculture átti eftir að hafa veruleg áhrif m.a. á áhrifamikla menn eins og skáldið Ralph Waldo Emerson (1803–1882), sem var um skeið prestur í Boston og aðdáandi Channings. Af þessum ritum hefur On Selfculture (Sjálfs- menntun) verið prentað á íslensku, tvö eru í handriti á handritadeild Landsbókasafns (On Temperance og Remarks on the Character and Writings of Fénelon). Ritgerðirnar On Religion og Remarks on Napoleon hefur mér ekki tekist að finna á íslensku, hvorki í handriti né á prenti. Ritgerðina On Selfculture frá 1838, sem er ein merkasta ritsmíð Channings, þýddi séra Matthías og birti í Tímariti Bókmenntafélags- ins árið 1886 undir heitinu Sjálfsmenntun. Í þessari ítarlegu ritgerð (rúmar 60 prentaðar bls.) kemur mann- og þjóðfélagsskilningur Channings vel fram. Hugsun hans grundvallast á þeirri sannfæringu að manninn megi bæta, hann trúir á „ljós skynseminnar, samviskunnar, elskunnar“. Hann trúir á manneðlið: „Látum oss eigi gjöra lítið úr sameiginlegu manneðli. Enginn hugur megnar að mæla þess mikilleik. Það er ímynd guðs, jafnvel ímynd hans óend- anlegleika, því engin takmörk verða sett þess vexti og framförum.“ Þess vegna er sjálfs- menntun „möguleg; hún er enginn draumur; hún er grundvölluð á eðli voru“. Í ritgerðinni um inntak sjálfsmenntunar flokkar hann efnið í fimm meginflokka þar sem sjálfsmenntun er a) siðferðisleg, b) trúarleg, c) vitsmunaleg, d) félagsleg og e) verkleg (prakt- ísk). Hún er siðferðisleg vegna þess að í eðli mannsins er „uppspretta máttugrar hugmynd- ar sem kemur þvert í bága við síngirni hans, hugmyndar um skyldu, að í honum talar rödd...“ Þetta óeigingjarna afl í mannsins eðli köllum vér stundum skynsemi, stundum samvizku og stundum hina siðferðislegu tilfinningu. Þá er hún trúarleg vegna þess að í manninum er „afl sem sækist eftir hinni óendanlegu ósköpuðu or- sök“. Hún er vitsmunaleg vegna þess að „ég hlýt að velja hið sanna án þess að spyrja hið minnsta hvaða áhrif það hafi mér til handa. Ég verð að fylgja því hvert sem það leiðir mig, hvaða hagsmuni sem það truflar fyrir mér, hvaða ofsóknir og tjón sem af því kunna að leiða“. Í síðari hluta ritgerðarinnar fjallar Channing um leiðir til þess að efla sjálfsmenntun hinna al- mennu borgara. Þar kemur skýrt fram að grundvallarhugsjón hans er frelsi og menntun handa alþýðunni, verkalýðnum. Með það í huga að ritgerðin var skrifuð 1838 eru þessi orð auð- skilin: „Hver getur borið saman ástand Evrópu fyrir fáum árum við ástand heimsins nú án þess að lofa guð fyrir umskiptin? Hin miklu batn- aðarskipti vorra daga eru fólgin í upprisu alþýð- unnar frá dýrslegri niðurlægingu í dagvaxandi þekkingu hennar á réttindum sínum, í meiri og meiri útbreiðslu menntunar og farsældarmeð- ala, í uppkomu þess valds í ríkjunum sem heitir alþýðuvald.“ Channing hefur ekki gleymt hin- um trúarlega þætti sjálfsmenntunar: „Það var trúin sem kenndi mönnum að þekkja skyldleika sinn við guð og vakti með því meðvitund þeirra um hvers einstaks manns gildi og ágæti. Það var baráttan fyrir réttindum trúarinnar sem opnaði augu manna fyrir öllum þeirra réttind- um.“ Í ritgerðinni Remarks on the Life and Char- acter of Napoleon Bonaparte (1827–28) eru svipaðar kenningar um vald alþýðunnar. Í loka- orðum ritgerðarinnar segir Channing: „Vér höfum reynt að afhjúpa ástríðu valdsins, löng- unina til þess að stjórna mannkyninu. Vér höf- um reynt að sýna að siðferðislegt afl og áhrif er sterkara því yfirráðaafli sem hrifsað hefur verið um aldir með blóðugum höndum. Vér höfum leitast við að afhjúpa grimmd og ómennsku þess sem reyndi að stofna heimsveldi með því að beita skynsemi gæddar verur grimmdarvaldi.“ Í ritgerðinni Address on Temperance (1837), Um bindindi, er Channing í essinu sínu. Fyrst leiðir hann huga hins fjölmenna áheyrendahóps að því hvers vegna þeir beri í brjósti umhyggju vegna þeirra sem helst hafa úr lestinni af félagslegum ástæðum, fátæktar eða annars. „Höfum vér lært hana í skólum hinnar fornu heimspeki eða fengið hana frá helgihofum Grikkja og Rómverja? Nei. Vér höfum erft hana eftir Jesúm Krist. Vér höfum meðtekið hana af vörum hans, frá lífi hans, frá krossi hans. Ættum vér að komast fyrir upptök þessa fundar yrðum vér að fara til Betlehems og Golgata.“ Channing segir að drykkjumaðurinn sé „reið- innar teikn meðal sinna félagsbræðra... kennari hvar sem hann birtist, kennari sem sýnir með svipnum og með hverjum legg og lið sem hann hreyfir hversu voðaleg sök það sé að fyrirfara skynseminni“. Hegningin sem hann kallar yfir sig, ofdrykkjan og allt sem henni fylgir, er að dómi Channings sálarböl í sýnilegri mynd. Meðal vondra afleiðinga ofdrykkjunnar er fá- tæktin. Channing segir að skattleggja eigi þjóð- félagið til þess að hjálpa fórnarlömbum of- drykkjunnar: „Ég tek alls eigi til þess þó mannfélagið borgi skatt sakir ofdrykkjumanns- ins. Ég vildi að sá skattur væri þyngri. Ég vildi að framfærslubyrði hans væri svo þung að hún neyddi oss til að vakna við og spyrja hver ráð væri til að frelsa hann frá glötun... Þjáist einn limur mannfélagsins hljóta aðrir einnig að kenna sviða; og þetta er vel.“ Í ritgerðinni um bindindi skilgreinir Chann- ing ekki aðeins hinar ýmsu orsakir ofdrykkju heldur einnig leiðir til þess að komast hjá þess- um vanda – sem var vissulega gífurlegur. Hér grípur hann til hugmyndanna um sjálfsmennt- un. Allt byggist á því að mennta fjöldann, kenna honum að meta það sem er fagurt, veita honum aðgang að menningarlífinu. „Það sem þannig er nú eytt [í óþarfa og lúxus], mætti nægja ekki einungis til fræðslustofnana í vísindum heldur og í fagurlistum. Sönglist mætti gjöra hér eins almenna eins og á Þýskalandi svo hún yrði að létti við strit manna, upplífgun í margmenni, dægrastytting í einveru og huggun í hvíld.“ Og síðan heldur hann áfram og tekur dæmi frá Evrópu, m.a. bendir hann á hina fögru garða Parísar. Það þarf að efla menntun og kennslu: „Það að kenna öðrum hvort heldur er í orði eða verki er hin æðsta starfsemi á jörðinni. Menn þurfa að eiga aðgang að hinum fögru listum, læra að meta bókmenntir, leiklist, danslist.“ Um það fjallar Channing í þessari ritgerð. Enginn efi er á því að þessar hugmyndir hafa talað beint til séra Matthíasar. Dómur sögunnar Skömmu eftir áföllin sem Matthías varð fyrir þegar hann sat í Móum hvarf hann frá prests- skap um nokkurra ára skeið. Tók hann þá við ritstjórn þjóðmálablaðsins Þjóðólfs (1874–81) og ritaði að staðaldri um þjóðmál. Þegar hann settist í ritstjórastólinn hafði hann um nokkurt skeið lesið verk Channings dyggilega. Vel er hugsanlegt og raunar afar líklegt, að hinn mikli áhugi Matthíasar á þjóðmálum eigi rætur sínar að rekja til áhrifa frá Channing. En eitt megineinkenni únitara vestanhafs á nítjándu öld – og enn – var mikil virkni í þjóðlíf- inu og þátttaka í stjórnmálum. Það er augljóst að andi séra Matthíasar nærðist af verkum Channings alla starfsævina og raunar enn lengur. Þar náði hann fyrst sambandi við guðfræðilegar hræringar samtím- ans. Því er þó ekki gleymt að hann kynntist einnig evrópskri guðfræði, bæði hinni klassísku lúthersku guðfræði (Grundtvig) og frjálslyndu guðfræðinni (m.a. Adolf von Harnack). Auk þess dróst hann að hinni stundum guðlausu heimspeki aldamótanna svo sem kenningum Brandesar. Í þessari ritgerð hef ég reynt að draga fram ákveðinn þátt í ævi séra Matthíasar Jochums- sonar sem ég tel að menn hafi ekki gefið gaum sem skyldi til þessa, það eru hin sterku og rót- tæku áhrif sem hann varð fyrir frá William Ell- ery Channing og þar með frá hinum áhrifamiklu kirkjumönnum á f.hl. nítjándu aldar í Boston. Þar voru guðfræðingar, prédikarar, skáld og listamenn sem gerðu sér grein fyrir hinni menn- ingarlegu og þjóðfélagslegu skírskotun sem býr í kristnum boðskap. Hinn sterki, lýðræðislegi arfur í kirkjulífi Nýja-Englands kemur skýrt fram í því að frelsi alþýðunnar er sett á oddinn. Það var meðal annars þetta sem höfðaði sterkt til séra Matthíasar. Það er svo önnur saga hvernig jarðvegurinn var hér á landi fyrir hinar framsæknu hugsjónir. Séra Matthías virðist ekki hafa átt marga sálufélaga um hinar rót- tæku þjóðfélagsskoðanir og framsæknu guð- fræði. Hér urðu þessi viðhorf til þess að gera hann að hálfgerðum einfara í kirkjunni. Þær fram- sæknu skoðanir í guðfræði, menningu og þjóð- félagsmálum almennt áttu langt í land hér á landi þegar eldmóður séra Matthíasar var hvað mestur og væntanlega hefur honum þegar frá leið fundist baráttan tilgangslítil í fásinni og fá- menni. Hann á það jafnvel til að líkja sér við hrópandann í eyðimörkinni. Kannski var það þess vegna sem hann dróst að Channing og Brandesi, siðbótarmönnunum. Þannig rödd vildi séra Matthías áreiðanlega vera í íslensku þjóðlífi, í það minnsta í kirkjunni. Hann fær þann dóm sögunnar að hann hafi ásamt séra Páli Sigurðssyni í Gaulverjabæ rutt brautina fyrir hina frjálslyndu guðfræði alda- mótanna innan kirkjunnar, en sú guðfræði var ríkjandi hér á landi fram yfir miðja tuttugustu öld þegar aftur var horfið til íhaldssamrar kirkjuguðfræði. Enginn ryður nýjum hugsjón- um braut án þess að hafa til þess eldmóð. Þann eldmóð hafði séra Matthías þótt hann hafi með aldrinum lagað sig hægt og sígandi að ríkjandi aðstæðum eins og skynsamlegt var og honum var unnt samvisku sinnar vegna. Í vitund flestra er hann því ekki sá siðbótarmaður sem hann vildi vera og var í hjarta sínu, heldur fulltrúi mildrar guðfræði þar sem „ljóssins Faðir vakir yfir hverju mannsins barni um tíma og eilífð“. Í elli sinni ritaði séra Matthías mörg bréf, m.a. til Brandesar – sem ritaði Matthíasi einnig nokkur bréf. Í bréfi til Brandesar 29. okt 1906 ritar Matthías á þessa leið: „Ég er maður líð- andi stundar, allt sem nýtt er vekur áhuga minn og ég nýt þess, ég trúi litlu, vona allt og elska mikið.“ Og tæpum áratug síðar ritar hinn 75 ára aldni skáldprestur í bréfi til Brandesar (29. nóv. 1915): „... aðeins fáir hinna mörgu vina minna hafa skilið mig, t.d. meðfædda velvild mína og umhyggju fyrir öllum mönnum... Eitt hef ég tal- ið mig skilja, að maðurinn er mikilvægari en hann heldur: “We are greater than we know“, segir Wordsworth.“ Á tímum séra Matthíasar var leitað að stórmennum. Í huga séra Matth- íasar Jochumssonar var enginn efi: Channing var stærstur! Heimildaskrá Matthías Jochumsson, Sögukaflar af sjálfum mér, Reykjavík 1959. Matthías Jochumsson, Bréf til Matthíasar Jochumsson- ar, Akureyri 1935. Matthías Jochumsson, Bréf Matthíasar Jochumssonar til Hannesar Hafstein, Reykjavík 1959. Matthías Jochumsson, Bréf til Hornafjarðar, Skírnir 1972, bls. 89–124. Matthías Jochumsson, „Dr.Kjanning (W. E. Channing)“, Eimreiðin 1901, bls. 181–187. Adams, James Luther, The Prophethood of all Believers, Boston 1986. Brandes, Georg, Taler, Kbh 1920. Brandes, Georg, Bréfasafn (3.bd). Chadwick, John White, William Ellery Channing, Boston and New York 1903. Channing, William Ellery, The Works of William E. Channing, D.D. With an Introduction. New and complete edition, rearranged to which is added The Perfect Life, Am- erican Unitarian Association, Boston 1886. Channing, W.E., „Sjálfsmenntun“. Fyrirlestur, sem Dr.W. E. Channing hélt í Boston í Ameríku 1838 [Self- Culture], þýðing séra Matthíasar, Tímarit Bókmennta- félagsins 1886, bls. 106–169. Skáldið á Sigurhæðum. Safn ritgerða um þjóðskáldið Matthías Jochumsson. Davíð Stefánsson tók saman. Ak- ureyri (Bókaforlag Odds Björnssonar) 1963. Gudmundsson, V.Emil, The Icelandic Unitarian Conn- ection, Winnipeg 1984. Gunnar Kristjánsson, „Lífsviðhorf séra Matthíasar“, Skírnir vor 1987, bls. 15–40. Jón Hjaltason, „Matthías Jochumsson og Þjóðólfur“, Skírnir vor 1987, bls. 41–58 Marty, Martin E., Pilgrims in their own Land, Grand Rapids 1982. Mendelsohn, Jack, Channing. The Reluctant Radical, Boston 1986 (3rd printing). Madeline Rice, Federal Street Pastor. The Life of Will- iam Ellery Channing, New York 1961. Sigurður Bjarnason, „Trúarhugmyndir Matthíasar Joch- umssonar“, Skírnir 1982, bls. 140–158. Tillich, Paul, Perspectives on Nineteenth and Twentieth Century Protestant Theology, London 1967. Theologische Realenzyklopädie, Band VII, Berlín, New York 1981. The New Schaff-Herzog Encyclopedia of Religious Knowledge, New York, London 1903 vol. IV. Þjóðólfur 1879 og 1880, 31. og 32. árg. Handrit Prédikanir eftir séra Matthías í handriti á Landsbóka- safni. Tveir pakkar, Lbs 2931 og 2980. Channing, William Ellery, „Um ofdrykkju [On Temper- ance]“, þýðing séra Matthíasar. Lbs 2813,4to Channing, W.E., „Trúin og lífið [Faith and Life]“, þýðing séra Matthíasar. Lbs. 2812,4to Á nítjándu öld voru únitarar framsækinn og frjálslyndur kristinn trúflokkur, ekki hvað síst í Boston sem löngum hefur verið höfuðborg únitara og hinn virti Harvardháskóli var löngum höfuðvígi þeirra. Myndin er tekin í Harvard. Höfundur er sóknarprestur á Reynivöllum í Kjós. Presslink

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.