Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2001, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2001, Blaðsíða 2
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 31. MARS 2001 MYNDLIST Árnastofnun, Árnagarði: Handrit. Opin þri.–fös. kl. 14–16. Til 15. maí. Gallerí Fold, Rauðarárstíg: Vagna Sól- veig Vagnsdóttir. Til 8. apr. Gallerí Reykjavík: Derek Mundell. Til 31. mars. Gallerí Sævars Karls: Sigríður Erla Guðmundsdóttir. Til 19. apr. Gerðarsafn: Úr einkasafni Sverris Sig- urðssonar. Til 30. mars. Gerðuberg: Drasl 2000. Til 29. apr. Grafarvogskirkja: Og sjá – fimm lista- konur. Til 1. júní. Hafnarborg: Steinunn Helgadóttir og Sveinn Lúðvík Björnsson. Alice Olivia Clarke. Fimm færeyskir listamenn. Til 23. apr. Hallgrímskirkja: Kristín Geirsdóttir. Til 20. maí. i8, Klapparstíg 23: Karin Sander. Til 29. apr. Íslensk grafík: Ragnar Óskarsson. Til 1. apr. Listasafn ASÍ: Guðrún Gunnarsdóttir. Til 1. apr. Listasafn Einars Jónssonar: Opið laug- ardaga og sunnudaga, kl. 14–17. Listasafn Íslands: Náttúrusýnir. Til 22. apr. Listasafn Reykjavíkur – Ásmundar- safn: Páll Guðmundsson og Ásmundur Sveinsson. Til 29. apr. Listasafn Reykjavíkur: Kjarvalsstað- irAustursalur: Jóhannes S. Kjarval. Hafnarhús: John Isaacs. Til 29. apríl. John Baldessari. Til 17. júní Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: 30 ár í list Sigurjóns. Til 1. júní. MAN: Jóna Thors. Til 11. apr. Mokkakaffi: Ragnar Stefánsson. Til 8. apr. Norræna húsið: Fimm myndlistarmenn frá Svíþjóð. Til 13. maí. Sjóminjasafn Íslands: Jón Gunnarsson. Til 2. apr. Skálholtskirkja: Anna Torfadóttir og Þorgerður Sigurðard. Til 31. des. Slunkaríki, Ísafirði: Ragnhildur Stef- ánsdóttir. Til 1. apr. Þjóðarbókhlaða: Elsa E. Guðjónsson. Til 30. apr. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Laugardagur Digraneskirkja, Kópavogi: Kór Víkur- kirk. og kór Digranesk. Kl. 17. Kirkjuhvoll, Garðabær: Vilbergsdagar. Kl. 17. Laugardalshöllin: Carmen. Kl. 17. Salurinn, Kópavogi: Tveir Strengjasext- ettar. Sex tónlistarmenn. Kl. 17. Salurinn: Jón Múli áttræður. Kl. 20:30. Sunnudagur Bessastaðakirkja: Tónlistardagskrá. Kl. 20:30. Hafnarborg: Tríó Reykjavíkur. Kl. 20. Mánudagur Neskirkja: Reynir Jónasson og Hjörleif- ur Valsson. Kl. 17. Salurinn, Kópavogi: Jónas Ingimundar- son. Kl. 20. Fimmtudagur Háskólabíó: SÍ. Söngleikjatónlist. Kl. 19:30. Hjallakirkja, Kópavogi: Kór Hjalla- kirkju.Tryggvi Valdimarsson og Loftur Erlingsson. Orgel: Lenka Matová. Kl. 20:30. Föstudagur Háskólabíó: SÍ. Söngleikjatónlist. Kl. 19:30. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Horfðu reiður um öxl, 31. mars. Blái hnötturinn, 1. apr. Með fulla vasa af grjóti, 1. apr. Já, hamingjan, 31. mars. Borgarleikhúsið: Blúndur og blásýra, 31. mars. Móglí, 31. mars. 1. apr. Kontra- bassinn, 5. apr. Öndvegiskonur, 1. apr. Íslenski dansflokkurinn: Kraak een og Kraak twee, 1., 5. apr. Loftkastalinn: Á sama tíma síðar, 6. apr. Sjeikspír.., 31. mars. Iðnó: Sniglaveislan, 31. mars. 1., 4., 5. apr. Gamla bíó: Fífl í hófi, lau. 31. mars. Fim. 5. apr. Möguleikhúsið: Langafi prakkari, 1., 4. apr. Skuggaleikur, 31. mars. 2., 5. apr. Lóma, 3. apr. Kaffileikhúsið: Eva, 1., 3. apr. Hafnarfjarðarleikhúsið: Vitleysingarn- ir, 31. mars. 6. apr. Hugleikur: Víst var Ingjaldur í rauðum skóm, frums. 31. mars. 5., 6. apr. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U SÝNING á verkum breska listamannsins Johns Isaacs verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi í dag. „Viðbrögð áhorfenda við verkum Isaacs eru ýmist hlátur eða hrollur,“ segir Soffía Karlsdóttir, kynningarstjóri Listasafns Reykjavíkur, en víst er að listamaðurinn leggur mikið upp úr því að hreyfa við fólki, á hvorn veginn sem er. Isaacs býr að jafnaði til tvær stórar innsetningar á ári og blandar þá gjarnan saman ólíkum miðlum eins og skúlptúrum, myndböndum og ljósmyndum. Útkoman þykir oftar en ekki ögrandi. Á sýningunni í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi gefur m.a. að líta sláandi ná- kvæma sjálfsmynd listamannsins, sem þar skyggnist undir eigið yfirborð í orðsins fyllstu merkingu. Um er að ræða höggmynd úr plasti þar sem bæði húð og bein hafa ver- ið fjarlægð og eftir stendur líkaminn sem virðist í fyrstu eiga meira sameiginlegt með læknisfræði og vísindum en list. Allt frá því Isaacs vakti fyrst athygli í Lisson Gallery í London hefur hann sýnt verk sín á alþjóðavettvangi í ýmsum gall- eríum og söfnum. Nokkur verk eftir hann voru m.a. sýnd í Charles Saatchi-safninu á sýningunni Young British Artist nr. 6 árið 1996. Eftir það hefur hann sýnt með lista- mönnum á borð við Hirst, Emin og Coll- ishaw, sem eru þekkt nöfn meðal yngri lista- manna í bresku listalífi. Síðar á þessu ári mun Isaacs sýna verk sín í Þýskalandi, Pól- landi, Grikklandi, Bandaríkjunum og Belgíu. „Sýning Isaacs gefur Íslendingum kær- komið tækifæri til að upplifa listræna sýn eins fremsta listamanns Breta af yngri kyn- slóðinni án þess, eins og hann sjálfur segir, að eiga á hættu að smitast af kúariðu eða bera með sér heim gin- og klaufaveiki,“ segir Soffía. Hlátur eða hrollur? Morgunblaðið/Þorkell Sjálfsmynd listamannsins Johns Isaacs í Hafnarhúsinu. TVEIR sextettar fyrir strengi verða fluttir í Salnum í Kópavogi í dag, laugardag, kl. 17. Tónleikarnir eru í Tíbrár-röð Salarins. Sá fyrri, Souvenir de Florence, er eftir Tsjajk- ovskíj, en sá síðari er B-dúr sextett Brahms. Flytjendur eru Sigrún Eðvaldsdóttir, Zbigniev Dubik, Ásdís Valdimarsdóttir, Helga Þórarinsdóttir, Michael Stirling og Bryndís Halla Gylfadóttir. Ásdís og maður hennar, Michael Stirling, eru búsett í London. Hún er víóluleikari í Chilingirian-strengjakvartettin- um en hann spilar með ýmsum kunnum kamm- erhópum og hljómsveitum. Hin fjögur leika öll með Sinfóníuhljómsveit Íslands en stunda að auki einleiks- og kammertónbókmenntirnar. „Það hefur verið hugmynd hjá okkur lengi að halda strengjasextettstónleika. Það var ekki fyrr en með tilkomu hinnar góðu aðstöðu Salarins að þeir gátu orðið að veruleika. Það er ánægjulegt að svo hafi loks orðið,“ segir Ásdís Valdimarsdóttir víóluleikari. „Við Sigrún Eð- valds vorum í Miami-kvartettinum fyrir um tólf árum, og höfum ekki spilað mikið saman síðan. Það er því mjög gaman að spila saman aftur. Þá hefur eiginmaður minn, Michael Stirling, ekki leikið á Íslandi áður,“ bætir hún við. Efnisskráin hefst á sextett op.18 í B-dúr eft- ir Brahms. Verkið var skrifað vorið 1860 í Bonn og var strax mjög vel tekið. Það er fullt af æskufjöri og er stundum kallað „vor“-sext- ettinn. „Þetta er eitt af fallegustu verkum strengjabókmenntanna. Það er uppáhald margra og við hlökkum öll mikið til að flytja það,“ segir Ásdís. „Brahms skrifaði tvo sext- etta og er þetta sá fyrri. Scherzóið í verkinu er strákslegt og fjörugt og jaðrar við að fara úr böndunum í animato miðhlutans. Rondóið ber kannski keim af Mozart. Sellóið fær að skína í fallegum laglínum en í síðasta animato kaflans skemmta allir sér með pizzicato nema 1. víóla sem spilar eins og hún eigi lífið að leysa.“ Sextettinn samdi Tsjajkovskíj á 17 dögum meðan hann dvaldi í Flórens á Ítalíu árið 1890. Þótt hann hafi verið ánægður með verkið breytti hann því nokkuð og gaf því nafnið Souvenir de Florence áður en það var frum- flutt tveimur árum seinna í Pétursborg. „Þó er ekki margt ítalskt við verkið nema e.t.v. syngj- andi laglínur og sólrík stemmning. Tsjajk- ovskíj sýnir sinn rússneska karakter eins og svo oft, til dæmis í 3. kaflanum sem ber sterkan þjóðlegan keim. Þetta er ákaflega flott verk. Það er hressilegt, en hefur einnig mjög fal- legar melódíur. Bæði verkin eru í raun tónbók- menntir eins og þær gerast bestar fyrir strengjaleik,“ segir Ásdís að lokum. Tveir sextettar fyrir strengi í Salnum kl. 17 í dag Morgunblaðið/Árni SæbergStrengjasextettinn á æfingu í Salnum. „Tónbókmenntir eins og þær gerast bestar fyrir strengi“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.