Lesbók Morgunblaðsins - 31.03.2001, Blaðsíða 17
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 31. MARS 2001 17
A
NDREAS Gursky er á sí-
felldum faraldsfæti og
sækir sér myndefni um
víða veröld. Titlar verk-
anna eru vísanir í staði allt
frá Tókýó til New York,
frá Frakklandi, Brasílíu,
Kaíró, Shanghai, Los
Angeles, Stokkhólmi og Hong Kong auk
heimalandsins, Þýskalands, þar sem ferill
hans hófst fyrir tæpum tveimur áratugum.
Þessi fyrsta stóra sýning á verkum Gurskys
vestan hafs hefur vakið verðskuldaða athygli.
Á henni eru að finna 45 ljósmyndir sem
spanna feril listamannsins frá upphafi 9. ára-
tugarins til verka frá síðasta ári.
Áhrif úr ólíkum áttum
Líkt og nafnarnir Thomas Ruff og Thomas
Struth var Andreas Gursky nemandi ljós-
myndaranna Bernds og Hillu Bechers við
Listakademíuna í Düsseldorf í byrjun áttunda
áratugarins. Þau vöktu fyrst athygli hug-
myndalistamanna á sjöunda áratugnum fyrir
það sem nú er orðið áratugalangt heimild-
arverk sitt, ljósmyndir af vatnsturnum sem
draga í senn fram sérkenni og einkenni slíkra
strúktúra, og þar sem hlutleysi ljósmyndar-
ans er framar öllu.
Andreas Gursky hafði kynnst ljósmyndun
frá unga aldri í foreldrahúsum en faðir hans
var þekktur auglýsingaljósmyndari. Þá hafði
hann einnig lokið námi í blaðaljósmyndun í
Essen áður en leið hans lá til Dusseldorfs og
má lesa áhrif þessa alls úr verkum hans. Þar
fara saman ströng vinnubrögð agaðs lista-
manns sem lætur ekki nema fáar myndir frá
sér fara á hverju ári og er myndefnum sínum
fylginn um leið og hann hefur auga fyrir því
óvænta líkt og sannur blaðaljósmyndari. Með-
an á námi stóð framfleytti Gursky sér með
auglýsingaljósmyndun sem hann var þegar
vel kunnugur og má sjá áhrif þessa í litanotk-
un og hárbeittri skerpu myndanna, stærð
þeirra og ekki síst því hversu snemma Gursky
fór að tileinka sér tölvutækni við vinnslu
verka sinna.
Hversdagsglys
Myndefnið er fjölbreytt en sameiginleg ein-
kenni eru hinir alheimsvæddu heimar háhýsa
og einsleitra fjölbýlishúsahverfa stórborg-
anna; skrifstofu- og hótelbyggingar, ráð-
stefnusalir, kauphallir og uppskipunarsvæði
hafna, hillur tískuverslana og bónusbúða,
íþróttakappleikir, rokktónleikar og reifpartý í
risavöxnum vöruskemmum.
Í verkum Gurskys er gjarnan iðandi mann-
þröng sem tekur á sig mynd óreiðukenndra
litaskella. Þannig má sjá samsvörun milli
verka á borð við mynd sem tekin var í kaup-
höllinni í Japan, þar sem fjöldi hamslausra
verðbréfamanna æða um gólf, og verks án tit-
ils og úr sölum MoMA, af málverkinu Haust-
rythma eftir Jackson Pollock.
Linsa myndavélarinnar stendur klárlega
utan við sjónarspil verkanna.
Sjónarhorn myndavélalins-
unnar er upphafið, nánast
guðleg yfirsýn á heiminn.
Gursky hindrar þannig bein-
an aðgang áhorfandans að
myndefninu sem verður í
senn ofur raunsætt og fjar-
rænt. Heimur Gurskys minn-
ir okkur á smæð okkar gagn-
vart umhverfinu.
Að þrátt fyrir allan mann-
fjöldann, allar tæknilegar
umbyltingar og stórvirki,
menningu og siði, neyslu og
framleiðslu, þá erum við ekki
annað en maurar á þúfu jarð-
arinnar.
Hverfipunktar eru ýmist
dregnir fram með hjálp
myndvinnslu í tölvu, með tilvísun í málverk
frá tímum endurreisnarinnar á Ítalíu, eða að
íbúðarblokkir eru flattar út sem módernísk
strangflatarmálverk þar sem skurður mynd-
arinnar nemur við framhlið byggingarinnar.
Á stundum er myndhlutum speglað og þeim
skeytt saman til að magna dýptaráhrif verk-
anna og mikilfengleik, s.s. í ljósmyndum úr
hótelanddyrum í Atlanta, New York og
Shanghai. Stærð verkanna getur verið allt að
5 metrum að lengd og 2 metrum að breidd en
skerpa þeirra er slík að í senn er óhætt að
rýna í smáatriði og að njóta verkanna úr fjar-
lægð.
Meðal þeirra áhrifavalda á list Andreas
Gurskys sem hvað oftast eru nefnir eru
málararnir Gerhard Richter og Sigmar Polke
sem auk Bernds og Hillu Becher og Josephs
Beuys kenndu öll við akademíuna í Düsseldorf
og áttu stóran þátt í að ávinna henni það orð-
spor sem hún nýtur í dag. Þá má ekki vanmeta
áhrif dagblaða- og auglýsingaljósmyndunar.
Sjálfur hefur Gursky lýst yfir hrifningu sinni
á verkum 17. aldar málarans Kasper Davids-
Friedrichs og áhrifum kanadíska ljósmynd-
arans Jeff Wall á verk sín.
Augljós tengsl eru einnig á milli verka
Gurskys og Thomasanna Struths og Ruff, auk
hins fjórða sem fylgdi á eftir snöggri heim-
frægð hinna stuttu eftir að námi lauk, ljós-
myndarans Thomas Demand.
Sýningin á verkum Gurskys í New York
stendur yfir til 15. maí nk. en fyrirhugað er að
setja hana einnig upp í Reina Sofia í Madríd,
Pompidou-listamiðstöðinni í París og sam-
tímalistasafninu í Chicago.
Rín II, frá 1999. Byggingar sem stóðu hinum megin við árbakkann voru þurrkaðar út í tölvuvinnslu myndarinnar.
MEÐ HEIMINN
AÐ FÓTUM SÉR
Yfirþyrmandi stærðir ásamt ríkulegu og fallegu
litasamspili eru nokkur af einkennum ljósmynda-
verka þýska listamannsins Andreas Gurskys.
HULDA STEFÁNSDÓTTIR segir frá yfirlitssýningu
á verkum hans sem stendur yfir í Nútímalista-
safninu, MoMA, í New York.
Times Square frá 1997.
Eitt af eldri verkum Gurskys, Rínardalurinn, frá 1989. Verk þar sem mörgum þykir kenna áhrifa
frá rómantískum landslagsmálverkum 18. aldar málarans Kaspers David-Friedrichs.
Ljósmynd/ Matthew Marks Gallery, New York, 2001