Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Blaðsíða 14

Lesbók Morgunblaðsins - 21.04.2001, Blaðsíða 14
14 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 21. APRÍL 2001 U PPHAFSMAÐUR þessa risaverkefnis er Michael Colgan, sem er eini leik- stjórinn í veröldinni sem sett hefur saman á svið öll 19 leikrit Becketts. Það gerði hann í Gate-leikhús- inu í Dublin. Hann varð staðráðinn í að færa verk þessa helsta leik- skálds Íra á 20. öld yfir í hið aðgengilega og áhrifamikla kvikmyndaform á árþúsundamót- um. Hann fékk til þess leyfi rétthafa Becketts og myndirnar voru samstarfsverkefni Channel 4 á Englandi, írska ríkissjónvarpsins, Blue An- gel Films og Gate-leikhússins í Dublin. 19 bíómyndir eftir 19 leikstjóra tók 18 mán- uði að fullgera. Leikstjórarnir fengu sjálfir að velja hvaða leikrit Becketts þeir vildu kvik- mynda og með hvaða leikurum. Ætlunin var ekki að kvikmynda leiksýningu á sviði; þvert á móti var markmiðið að flytja verkin milli for- ma, aðlaga þau kröfum og lögmálum mynd- málsins, gera úr þeim bíómyndir, en þess má geta að þótt þessar myndir verði nú sýndar ein af annarri næstu vikur til 13. maí í Sjónvarpinu hér hafa sumar þeirra verið víða sýndar í kvik- myndahúsum undanfarið og á kvikmyndahá- tíðum. Þetta var hins vegar ekki venjulegt kvikmyndaverkefni. Við gerð bíómynda leyfist leikstjóranum jafnan töluvert frelsi í meðferð fyrirliggjandi handrits; hann getur yfirleitt breytt samtölum og senum og uppröðun þeirra, jafnvel spunnið á tökustað og tök- ustund. Ekkert af þessu var leyfilegt við gerð Beckettmyndanna. Beckett þykir ofurná- kvæmur höfundur og gaf skýr fyrirmæli um útlit sýninga og sviðshreyfingar. Rétthafar verka hans halda fast við þessi fyrirmæli. Allt varð að ákveða fyrirfram, allar tökuhreyfing- ar, sjónarhorn, smáatriði leikmynda og bún- inga. Gott dæmi er gerð Rough For Theatre 1, sem Kieron J. Walsh leikstýrði með David Kelly og Milo O’Shea. Verkið er samtal tveggja gamalla manna í nöturlegu borgarlandslagi og Walsh vildi taka það á raunverulegu götuhorni en ekki tilbúinni leikmynd. Hann þurfti að berjast vel og lengi fyrir þeirri hugmynd en fékk að lokum leyfið. Um verkefnið segir framleiðandinn og upp- hafsmaðurinn Michael Colgan: „Við urðum að vera anda Becketts trú, sem var auðvitað ná- kvæmasti höfundur í heimi. Hann var líka mjög myndrænn höfundur. Jafnvel þótt fólk muni ekki nöfnin á leikritum hans man það myndir þeirra – náungana í pokunum, fólkið sem var grafið upp að hálsi, persónurnar í öskutunnunum. Hann skapaði einfaldar, spar- samar en sterkar myndir sem lifa í minninu.“ Karel Reisz: Act Without Words 1 Reisz, sem nú er 75 ára að aldri, fæddist í Tékkóslóvakíu en gerðist einn helsti kvik- myndaleikstjóri Bretlands á 7., 8. og 9. ára- tugnum með myndum á borð við Night Must Fall, Morgan, Saturday Night And Sunday Morning, Who’ll Stop the Rain og The French Lieutenant’s Woman. Hann kveðst hafa valið þetta verk, sem er 16 mínútna langt, „vegna snjallrar beitingar á meðulum leikhússins og þess hvernig Beckett blandar saman gaman- semi og ömurleika“. Verkið er látbragðsleikur þar sem maður nokkur (Sean Foley) situr í auðninni og rembist við að ná í vatnspela og önnur úrræði til að gera sér vistina bærilegri og gefst ekki upp þótt illa gangi. Enda Hughes: Act Without Words 2 Þessi 10 mínútna látbragðsleikur sýnir tvær persónur, sem kallast A og B (Pat Kinevane og Marcello Magni), og eru í tveimur stórum sekkjum á sviðinu og bregðast með andstæð- um hætti við hlutskiptinu þótt niðurstaðan sé sú sama, vítahringur endalausra og tilgangs- lausra endurtekninga. Leikstjórinn, Enda Hughes, sem kunnur er af stuttmyndum, seg- ir: „Beckett var svo upptekinn af forminu að ég held að hann myndi hafa notað lögmál kvik- myndarinnar af sömu hugvitssemi og hann beitti við lýsingu og leiksvið, þ.e. sem lifandi nærveru, jafnvel dramatískar persónur. Það vildi ég reyna að gera sjálfur.“ Damien Hirst: Breath Knappasta verk Becketts, aðeins 45 sekúnd- ur, birtir lífið sem skímu milli tveggja ópa og tvenns konar myrkurs fæðingar og dauða og sviðið er ruslahaugur. Hirst segir: „Á meðan ég undirbjó tökuna las ég textann aftur og aft- ur og leiðarljós mitt var sú leiðbeining Bec- ketts að „bíða í um það bil fimm sekúndur“. Þá áttaði ég mig á að Beckett bjó yfir þessari rosalegu kímnigáfu.“ David Mamet: Catastrophe Mamet, eitt þekktasta leikskáld, handrits- höfundur og leikstjóri Bandaríkjanna, stýrir óvenjulegum úrvalsleikhópi í þessu 6 mínútna verki, Sir John Gielgud, en þetta er síðasta hlutverk hans, Harold Pinter, sem er þekktari sem eitt fremsta leikskáld Breta en leikari, og Rebecca Pidgeon, sem áður hefur leikið í mörgum leikritum og bíómyndum Mamets. Catastrophe þykir sérstætt meðal verka Bec- ketts að því leyti að það hefur pólitískan brodd. Pinter leikur alráðan leikstjóra á æfingu, Pid- geon undirgefna aðstoðarkonu hans og Giel- gud er leikarinn, strengjabrúða leikstjórans. John Crowley: Come and Go Þessi 8 mínútna stuttmynd er fyrsta mynd Crowleys, sem er reyndur sviðsleikstjóri, og sýnir þrjár eldri konur (Anna Massey, Paola Dionisotti og Sian Phillips) sitjandi á bekk minnast lönguliðinna skóladaga. Hver þeirra yfirgefur sviðið stutta stund og á meðan af- hjúpa hinar tvær leyndarmál viðkomandi í hvísli sem áhorfandinn heyrir ekki. Crowley kveðst hafa gert myndina í anda handmálaðra andlitsljósmynda frá aldamótunum 1900 sem svar við fallegri formfestu verksins og óvenju- sterkri litanotkun Becketts á búningum. Conor McPherson: Endgame Beckett var mikill skákáhugamaður og titill- inn Endatafl á bæði við lok lífs og skákar. Stór- leikararnir Michael Gambon og David Thewlis leika Hamm og Clov og spurning leiksins er hvort Clov yfirgefur Hamm en samband þeirra er í senn samband þræls og húsbónda og sonar og föður. Endgame er talið meðal helstu verka Becketts og jafnan borið saman við Waiting For Godot – Beðið eftir Godot; sjálfur mat Beckett það mest allra verka sinna en taldi það bölsýnna en „Godot“. Gagnrýnandi einn hefur sagt að Beðið eftir Godot sé örvæntingarfullt leikrit um von en Endatafl örvæntingarfullt leikrit um örvæntingu. Verkið er 1 klst. og 24 mínútur og leikstjórinn McPherson, sem einn- BECKETT-BÍÓ Í SJÓNVARPI Annað kvöld hefjast í Sjónvarpinu sýningar á nýjum kvikmyndum sem gerðar hafa verið eftir öllum 19 leikritum Samuels Becketts. Margir af þekktustu leik- stjórum og leikurum samtímans koma að gerð myndanna, s.s. Atom Egoyan, Neil Jordan, David Mamet, Anthony Minghella, John Gielgud, John Hurt, Jeremy Irons og Harold Pinter. ÁRNI ÞÓRARINSSON fjallar um þetta einstæða framtak. Act Without Words 1: Ekki gefist upp þótt illa gangi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.