Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2001, Blaðsíða 8
8 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. SEPTEMBER 2001
Á
RHOLT er ef til vill róm-
antískasta hús á Húsavík,
þegar á allt er litið, segir
Karl Kristjánsson í fyrsta
bindi Sögu Húsavíkur.
Þegar ég ber þessi orð
undir íbúa Árholts, Huldu
Þórhallsdóttur, brosir hún
við. „Ætli það sé ekki það að þetta hús er öðru-
vísi en öll önnur. Svo þykir fólki til um þessi
litlu herbergi, þegar inn er komið.
Alla vega er húsið mikið ljósmyndað og ég
hef séð menn við málaratrönur að festa það á
blað eða striga.
Einu sinni kom ég í búð í Reykjavík með
systur minni. Búðarkonan fór þá að segja
henni, að hún væri nýkomin úr fríi og hefði far-
ið út á land. Meðal annars hefði hún komið við
á Húsavík og séð þar algjört draumahús, rautt
með hvítum gluggum. Systir mín sagði: „Það
er gaman. Það er nefnilega þessi kona við hlið-
ina á mér sem á þetta hús.““
Í fyrsta bindi Sögu Húsavíkur, sem Karl
Kristjánsson er aðalhöfundur og safnari að,
segir að hjónin Anna Vigfúsdóttir og Sigtrygg-
ur Sigtryggsson hafi byggt Árholt. Árið 1891,
8. september, fluttust þau í nýja húsið með tvo
drengi sína, Þórhall og Vigfús Albert. Húsið
var þá að ýmsu leyti enn í smíðum og telur
Karl byggingarár þess 1889–1891.
Sigtryggur Sigtryggsson hélt dagbækur,
sem eru mjög merkar heimildir um veðurfar
og viðburði á Húsavík þess tíma. Frumritin
eru geymd í Þjóðarbókhlöðu syðra en Hulda á
afrit sem gaman var að glugga í. Hulda segist
reyndar vilja sjá frumritin í Safnahúsinu á
Húsavík. Beiðni um flutning norður var hafnað
á sínum tíma, en kannski er nú orðið tímabært
að dagbækur Sigtryggs komi heim.
Síðustu daga ágústmánaðar 1891 skrifar
Sigtryggur í dagbók sína:
„26. ágúst: Norðan snjóveður, hvítt ofan í sjó
um morguninn og festi öðru hvoru um daginn.
Unnið að veggjahleðslu.“
„27. ágúst: Ekkert gjört. Vont snjóveður
norðan.“
„28. ágúst: Þurrt en kalt. Unnið að byggingu
minni.“
„29. ágúst: Bjart en harða frost. Sama verk
unnið.“
8. og 9. september færir Sigtryggur saman
til bókar: „Allgott veður báða dagana. Flutt í
hús mitt Árholt 8. þ.m.“
Og 1. janúar 1892 skrifar hann: „Tekin lega
húss míns eftir compás í dag. Það horfir þá
svona við: – Suður til ¼ vest. Norður til austur,
¼ austur. Þá veit maður það."
Þegar Sigtryggur dó 1911 keyptu Jakobína
dóttir hans og maður hennar, Klemens Klem-
ensson, Árholt og árið eftir byggðu þau við það
þverhús með stofu og herbergi. Í Árholti fædd-
ust börn þeirra, Sigtryggur og Sigríður.
Þegar Jakobína og Klemens fluttu suður
1942 keypti Þórhallur bróðir hennar húsið.
Hann bjó aldrei í því, en 6. nóvember 1943
fluttu Hulda, dóttir hans, og Jónas Egilsson í
húsið. Þau festu svo kaup á því 1954. Þremur
árum síðar byggðu þau fordyri við húsið og síð-
ar bílskúr við norðurstafninn og breyttu hlöðu
þar í búr og þvottahús undir sama þaki.
Börn Huldu og Jónasar eru sex talsins; Eg-
ill, Kristbjörg, Baldur, Garðar, Hörður og
Hulda Jóna. Báðar systurnar og einn bróðir
búa á Húsavík, tveir bræðranna búa í Reykja-
vík og einn á Hornafirði.
Jónas Egilsson dó 1998 og hefur Hulda búið
ein í húsinu síðan.
Hulda segir að húsið hafi verið byggt af
miklum vanefnum. Þar var moldargólf í fyrstu
og segir Hulda, að þegar þau hjón hafi skipt
um gólf í stofunni hafi gengin skán verið þar
undir. Reyndar sé mesta furða miðað við upp-
hafið, hversu vel húsið hafi staðizt tímans tönn.
Viðbyggingarnar eru smekklega gerðar í sam-
ræmi við húsið, segir í Sögu Húsavíkur.
Þeir voru margir, segir Hulda, sem spurðu
afa hennar, meðan húsið var í byggingu, hvort
það væri til sölu. En hann gaf það aldrei falt.
Það gerir Hulda ekki heldur. Ég spyr, hvort
hún hafi fengið einhver tilboð í húsið. „Tilboð,
ég veit nú ekki,“ segir hún dræmt. „Það sagði
einn maður við mig: Ef þú selur húsið, þá lætur
þú mig vita.
Ég hef nú aldrei gert honum orð út af því.“
Hulda og Jónas fluttu inn í Árholt á brúð-
kaupsdaginn, 6. nóvember 1943. Á gullbrúð-
kaupsdeginum, 6. nóvember 1993, orti Jónas
til konu sinnar:
Aldurinn er orðinn hár,
öldin hálf að baki.
Við höfum lifað öll þau ár,
undir sama þaki.
„Þegar við fluttum inn var ein kolavél í eld-
húsinu og kolaofn í stofunni,“ segir Hulda.
„Rafmagnseldavél fékk ég fyrst 1948.
Við höfum endurnýjað veggfóður, lagað gólf
og teppalagt, en húsaskipun er óbreytt frá því
sem var.“
Samkvæmt mælingum nútímans er íbúðar-
plássið í Árholti upp á 99,9 fermetra og bíl-
skúrinn 38, 9 fermetrar.
Úr fordyrinu er gengið inn í forstofu, þaðan
sem dyr eru í baðherbergi, eldhús og stofu.
Hulda tekur mér vara við að reka ekki höfuðið
í. Stofan er 3x3,10 m og þar er óbreyttur horn-
skápur, sem Björn Björnsson snikkari smíðaði
í húsið nýtt. Úr stofunni má ganga áfram inn í
hliðarherbergi, sem er 3x1,3 m, og í þverhúsið,
sem skiptist í stofu, 5,5x3 m, og herbergi, sem
er 3,5x3 m.
Á eldhúsgólfinu er hleri yfir kjallaraopi en
kjallarinn var grafinn árið 1950 þegar miðstöð
var sett í húsið.
Úr eldhúsi er stigi upp á loft, þar sem eru tvö
herbergi og framloft og er loftið aðeins yfir
gamla húsinu. Úr eldhúsinu er svo innangengt
í búr og áfram í þvottahús, þaðan sem komast
má inn í bílskúrinn.
Karl Kristjánsson slær botninn í frásögn
sína af Árholti með þessum orðum: „Hús þetta,
sem eigendur ganga um með mikilli snyrti-
mennsku og prýði, hefur við sig töfra frumleik-
ans. Það er talandi tákn þess, hvernig hagnýta
má gamlar byggingar á virðulegan hátt og
njóta þeirra nýtískulega.“
Það eru ró og friður í andrúmi Árholts. Hús-
ið heldur fasi sínu fullkomlega, þótt þröskuldar
hafi mismunað sér til og enginn dyrastafur sé
lengur öðrum jafnhár eða beinn.
Ég spyr Huldu hvort það hafi aldrei flögrað
að henni að flytja í annað húsnæði. Hún lítur til
UNDIR
SAMA ÞAKI
Neðst í skrúðgarðinum á Húsavík, sunnan Búðarár,
stendur fagurrautt hús með hvítum gluggum. Þetta
er annað elzta íbúðarhús á staðnum, það hefur
alla tíð verið í eigu sömu ættar og í dag eru 110 ár
síðan frumbyggjarnir fluttu inn. FREYSTEINN
JÓHANNSSON leit inn í Árholt.
Mynd úr Sögu Húsavíkur
Jakobína Sigtryggsdóttir og Klemens Klemensson
keyptu Árholt 1911 og bjuggu þar til 1942.
Jónas Egilsson og Hulda Þórhallsdóttir fluttu inn í Árholt 6. nóv-
ember 1943 og keyptu húsið 1954.
Myndir úr Sögu Húsavíkur
Sigtryggur Sigtryggsson og Anna Vigfúsdóttir fluttu inn í Árholt
8. september 1891.
Árholt 1947, þverhúsið er komið við suðurstafninn.
Ljósmynd/Hörður Jónasson
Árholt
Ljósmynd/Hörður Jónasson