Lesbók Morgunblaðsins - 08.09.2001, Qupperneq 10
10 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 8. SEPTEMBER 2001
Þau áttu fagrar vonir um vaska drenginn sinn,
en vor er stundum alltof fljótt að líða.
Þá dauðans myrkur kemur svo hljótt í húsið inn,
að harmi slær á alla menn og kvíða.
En vissulega er dauðinn í vitund okkar hér
sem vegur gagnsær milli tveggja geima.
Því líkamsdauðinn fæðing til fullkomleikans er,
sem flytur oss í nýja og betri heima.
ARNÓR ÞORKELSSON
Þetta ljóð Arnórs er endurbirt að ósk sendanda sökum þess að það
var birt í rangri útgáfu er barst blaðinu. Höfundur er aldraður mál-
ari í Reykjavík.
MINNING
Í
SKÁLDSÖGUM sínum hefur DeLillo
dregið upp myndir af atburðunum sem
mótað hafa nýliðna öld, tímaskeið sem
kallað hefur verið „bandaríska öldin“.
Hann verður þó seint sakaður um upp-
hafningu á bandarískum gildum og lífs-
venjum, fremur hefur DeLillo beint
sjónum að „veruleikanum“ á bak við
ímyndirnar og því sem fjölmiðlafárið felur.
Hann skyggnist undir yfirborðið, hvort sem
fjallað er um launmorðið á Kennedy eða tákn-
mál stórmarkaðarins ráðið. Þá ganga ákveðin
viðfangsefni sem rauður þráður í gegnum verk
hans: Hnattvæðing rafmiðla, upplausn gilda í
nútímasamfélagi, varhugaverður máttur
fjöldahreyfinga, hryðjuverk og samsæri.
Nýjan tón kveður þó við í hans nýjustu skáld-
sögu, The Body Artist, sem leikur á mörkum
draugasögunnar og þroskasögunnar. Bókin
hefst á langri lýsingu á morgunverði hjónanna
Lauren og Rey sem í stílsnilld og hnitmiðun
kallast á við rómað upphaf síðustu skáldsögu
höfundarins, Underworld (1997). Að morgun-
verðinum loknum sækir Rey fyrrverandi eig-
inkonu sína heim þar sem hann fremur óvænt
sjálfsmorð. Sagan lýsir tilvistarkreppu Lauren
og undarlegum atburðum sem hana henda í
kjölfarið. Skáldsagan, sem er allnokkuð styttri
en fyrri verk höfundar, hefur verið ausin lofi og
gagnrýnendur jafnvel haft það á orði að þarna
hafi DeLillo e.t.v. fórnað breidd fyrir dýpt.
Þegar Lauren snýr aftur í sumarhúsið sem
þau hjónin höfðu dvalið í nokkru fyrr gerir und-
arlegur maður, sem virðist hafa dvalið þarna
um nokkurt skeið án vitundar þeirra hjóna,
vart við sig. Í fyrstu virðist maðurinn mállaus,
hugsanlega vangefinn og eitthvað ókennilegt er
við hann: „Það var erfitt að henda reiður á
manninum lengur en í andartak, líkamleiki
hans virtist flöktandi.“ Þessi dularfulla vera
tekur síðan að tala með rödd Reys, og hennar
eigin, með svo mikilli nákvæmni að heilu sam-
ræðurnar sem hjónin höfðu átt eru endursagð-
ar orðrétt. Gæti verið um einhverskonar aft-
urgöngu að ræða? Endurholdgun? Hver er
þessi maður og leynist einhvers konar upphaf-
inn sannleikur í fjarstæðukenndri orðræðu
hans? Þetta eru spurningar sem DeLillo leyfir
lesendum að velta fyrir sér í framrás sögunnar
um leið og hann fjallar um einmanaleika og
dauðleika einstaklingsins.
Afspilunartæki guðanna
Einn helsti styrkur nýjustu bókar DeLillos
er óræður persónuleiki mannverunnar sem
birtist Lauru, og hún nefnir hr. Tuttle, en er þá
rétt að hafa í huga að persónuflóran í verkum
DeLillos hefur í gegnum tíðina verið afar
óvenjuleg. Helst mætti líkja sögupersónum
hans við fólk sem lifað hefur einhverja óræða
framtíð sem enn er ekki skollin á og virðist því á
skjön við þann veruleika sem lesendur þekkja.
Hr. Tuttle, sem hefur ekkert tímaskyn, og er
ókleift að sundurgreina tíma í þátíð, nútíð og
framtíð, er ein sterkasta birtingarmynd þessa í
verkum höfundarins. Sökum tímaleysisins tjáir
hann sig heldur ekki á neinn hefðbundinn hátt
og í gegnum orðræðu hans, sem er í senn dul-
arfull, fjarstæðukennd og forspá, gefst DeLillo
tækifæri til að fjalla á áhugaverðan hátt um við-
fangsefni sem honum hefur alltaf verið hug-
leikið: Merkingarkerfið sem liggur samskiptum
okkar til grundvallar; tungumálið, orðin sjálf.
Miðlun frásagnarinnar er jafnan í forgrunni í
verkum DeLillos, segja má að hann leiti í sög-
um sínum að sannleikanum „á bak við táknin“,
eins og aðalpersóna fyrstu bókar hans, Americ-
ana (1971), orðar það og áhugavert er að skoða
hr. Tuttle í þessu samhengi. Hefur hann losnað
úr viðjum táknkerfisins sem mótar hugsun okk-
ar farveg? Er hægt að sjá orðræðu hans, líkt og
gjarnan var litið á orðræðu vitfirringsins á öld-
um áður, sem beintengingu við einhvern sann-
leika handan tungumálsins? Miðlun í ýmsum
myndum er algeng í verkum DeLillos. Sjón-
varp, útvarp, kvikmyndir, ljósmyndir, verald-
arvefurinn – þessir þættir koma sífellt fyrir í
bókum hans. Í persónu hr. Tuttles er sem De-
Lillo hafi klætt einhvern frumstæðan, og á
sama tíma framandlegan, miðil holdi, líkt og um
nokkurs konar afspilunartæki guðanna sé að
ræða.
Hlutverk höfundarins
„Allar fléttur stefna í átt að dauðanum,“ segir
rithöfundurinn í White Noise (1985) og sögu-
þráður Mao II (1991), tíundu bókar DeLillos, er
þar engin undantekning. En forgengileikinn
birtist þó hér með nýstárlegum hætti. Rithöf-
undurinn Bill Grey, einfari gæddur pynchon-
ískum mikilfengleika, hefur við upphaf sögunn-
ar ekki skrifað bók í tuttugu ár og dregið sig í
hlé frá umheiminum. Hann lifir í endalausri
hringrás tungumálsins, skrifar og endurskrifar
sömu orðin í skáldsögu sem aldrei virðist ætla
að klárast. Til að lífga upp á litlausa tilveruna
leyfir hann sænskum ljósmyndara, Britu, að
taka af sér mynd – þá fyrstu sem birtist af hon-
um á prenti í rúm þrjátíu ár. Sjálf er Brita und-
arleg persóna. Hún er sannfærð um að rithöf-
undar séu tegund í útrýmingarhættu og flýgur
því um heiminn til að varðveita ímyndir þeirra á
filmum. Kunningsskapurinn við Britu leiðir til
þess að hinn einræni höfundur kemst aftur í
snertingu við mannlífið og dregst að lokum inn í
hringiðu alþjóðastjórnmála sem nær hámarki
þegar Grey samþykkir að fara til London og
lesa upp ljóð eftir svissneskt ljóðskáld í tilraun
til að heimta það úr gíslingu hryðjuverkamanna
í Beirút. Þar kemst hann hins vegar að því að
raunverulegt skotmark hryðjuverkamannanna
er hann sjálfur en ekki svissneska ljóðskáldið. Í
kjölfarið hefst ferðalag Grey á vit örlaganna.
Áberandi viðfangsefni DeLillo í Mao II er
máttur fjöldans og birtist það jafnt í myndmál-
inu sem umræðum sögupersónanna. Við lifum í
ljósaskiptum einstaklingsvitundarinnar, sam-
kvæmt bókinni, og framtíðin tilheyrir fjölda-
hreyfingum. Þetta er strengur sem birtist á
fjölda vegu í bókinni. Við sjáum risamúg safn-
ast saman í Kína; sama gerist á fótboltaleikjum
og þrettánþúsund meðlimir Moonie-sértrúar-
safnaðarins taka þátt í fjöldabrúðkaupi. Við
sjáum þetta í jarðarför Khomeini í Íran.
Ímyndirnar flæða yfir lesandann í gegnum
sjónvarpið, í gegnum ljósmyndir og í gegnum
fjöldaframleiddar andlitsmyndir Andy War-
hols, en titill bókarinnar vísar einmitt til sam-
nefnds verks eftir Warhol.
Í skáldsögunni er Grey hlutverk rithöfund-
arins í samfélaginu ofarlega í huga, en mik-
ilvægi þess fer minnkandi að hans mati. Þjóðfé-
lagið – bandarískt þjóðfélag í öllu falli – er orðið
svo gegnsýrt af offlæði upplýsinga og ímynda,
suðinu í sjónvarpinu og ekkifréttum slúður-
blaðanna að skoðanir rithöfunda og listamanna
bókstaflega týnast í kraðakinu. „Fyrir mörgum
árum,“ segir Grey á einum stað, „hélt ég að rit-
höfundurinn gæti umbreytt menningunni inn-
an frá. Núna hafa sprengjuvargar og byssu-
menn tekið við því hlutverki. Þeir gera
skyndiárásir á samvitund samfélagsins.“ Ekki
er þó aðeins við yfirborðskennda dægurmenn-
inguna að sakast, rithöfundarnir sjálfir eiga
hlut að máli. „Hættan sem hryðjuverkamenn
standa fyrir samsvarar nákvæmlega hættunni
sem okkur rithöfundum mistókst að skapa í
verkum okkar.“ Velta má fyrir sér hvort þarna
sé ekki skoðun DeLillos sjálfs á ferðinni því
svipaða þræði má rekja í fleiri verkum hans síð-
ustu ár. Í Players (1977) flækist bitur uppi inn í
ráðagerð hryðjuverkamanna um að sprengja í
loft upp Kauphöllina í New York; í The Names
(1982) lendir áhættusérfræðingur á kafi í bak-
tjaldamakki bandarísku leyniþjónustunnar og,
líkt og það flæki ekki atburðarásina nægilega,
einnig í skotlínu morðóðs sértrúarsafnaðar; og í
Libra ráðgerir Lee Harvey Oswald hvernig
hann geti sett mark sitt á mannkynssöguna.
Lokuð kerfi
Enda þótt táknaveröld og tilvísanaheimur
skáldsagna DeLillos sé afmarkaðri en í fjórum
útgefnum skáldsögum Thomasar Pynchons
eiga þessir höfundar ýmislegt sammerkt, ekki
síst í viðhorfi sínu til kreppu nútímamannsins.
Báðir ganga þeir út frá því sem vísu að tilhneig-
ing hins vestræna manns til að skilgreina veru-
leikann í formi lokaðra kerfa sem ekki eiga við
neinn þekkingarfræðilegan grunn að styðjast
leiði til sundrungar sjálfsins og hugsanlega
endaloka mannkynsins. Í fyrstu bók sinni, Am-
ericana, gaumgæfir DeLillo rafræna sam-
skiptakerfið sem liggur öllu nútímalífi til
grundvallar, og þá sérstaklega hina kvikmynd-
uðu ímynd. Aðalsöguhetja bókarinnar, David
Bell, dagskrárgerðarstjóri á sjónvarpsstöð,
uppgötvar skyndilega að „orð og merking voru
ekki sami hluturinn. Orð þýddu ekki það sem
var sagt, og ekki andstæðuna heldur“. Bell, af-
sprengi „Godards og Coca Cola“, tekur að sjá
sjálfan sig og aðra í kring sem tilbúning úr
ímyndum sem safnast hafa saman í gegnum
æviskeið sjónvarps- og kvikmyndaneyslu. Svo
virðist, hugsar David snemma í sögunni, sem
fólk sé farið að líta á kvikmyndalinsuna sem
sagnfræði. Sanna má veruleika þess sem tekið
er upp en allt annað er óraunverulegt eða eitt-
hvað þaðan af verra.
Fjölmiðlakóngarnir sem í Americana smíða
hinn kvikmyndaða sannleika eru enn að verki
við að búa til óskasjálfsmyndir einstaklinga og
breyta hörmungum í afþreyingu í nýlegri
skáldsögum höfundarins og í ljósi þess að De-
Lillo hitti naglann á höfuðið í sinni fyrstu bók er
engin ástæða til annars en að fagna því að hann
sé óþreyttur að fást við sömu þemu og í upphafi.
Á sama hátt er hans nýjasta bók forvitnileg því
þar notast hann ekki við svið alþjóðastjórnmála
heldur skoðar líf einstaklings í smáatriðum en
það er einmitt það sem að hans mati glatast í of-
flæði ímyndanna.
HÖFUNDURINN SEM
HRYÐJUVERKAMAÐUR
Nýjan tón kveður við í nýjustu skáldsögu bandaríska
rithöfundarins Don DeLillo, The Body Artist, sem kom
út í sumar. Rithöfundurinn Don DeLillo er tvímælalaust
í fremstu röð bandarískra skáldsagnahöfunda og
hverju nýju verki þessa háðska póstmódernista fylgir
mikill viðbúnaður bókmenntaunnenda.
Don DeLillo
Höfundur er bókmenntafræðingur.
E F T I R B J Ö R N Þ Ó R V I L H J Á L M S S O N
Nýjan tón kveður við í nýjustu skáldsögu De-
Lillos, The Body Artist, sem leikur á mörkum
draugasögunnar og þroskasögunnar.