Lesbók Morgunblaðsins

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.2001, Qupperneq 5

Lesbók Morgunblaðsins - 10.11.2001, Qupperneq 5
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 10. NÓVEMBER 2001 5 Ö LLUM sem þekktu Magnús Ásgeirsson bar saman um að andstæðurnar í fari hans hefðu verið bæði áberandi og ör- lagaríkar. Þeim sem athuga verk hans verður ljóst að þær mótuðu líka verkefna- val hans og vinnubrögð og eru þess vegna lykill skilnings bæði á manninum sjálfum og verkum hans. Þessar andstæður voru fleiri og samband þeirra flóknara en rakið verði í örstuttu máli, en til einföldunar get- um við gripið til algengra orða og sagt sem svo að í megindráttum hafi þær verið tvær: Magnús hafi í senn verið maður dagsins og maður næturinnar. Þess vegna er Síðkveld til vitnis um draumlyndan fagurkera sem innst inni þrá- ir ekkert heitar en að fá að lifa ótruflaður fyrir listina í rökkurværð fílabeinsturnsins og lofsyngur jafnvel blekkingu og tálvonir af eigingirni síns innsta eðlis í von um framlengingu næturvímunnar. Samt gerir hann það með slæmri samvisku. Efinn og þunglyndið ásækja hann og hin eilífa Hamlet-spurning er honum ofarlega í huga, því að hann var ekki andvana fæddur prins sem aldrei kynntist öðru en mót- sagnaleysi móðurkviðarins. Hann veit að úti blása kaldir vindar og þar er háð stríð og barátta sem lætur hann ekki í friði, krefst af honum afstöðu og kallar hann eft- ir það nauðugan viljugan til liðveislu, enda voru þeir tímar sem Magnús Ásgeirsson lifði tímar mikillar og sögulegrar baráttu, sigra og ósigra innanlands og utan. Hann gat haft brennandi áhuga á því öllu, eins og sést af þýðingum hans bæði í bundnu og óbundnu máli, ritstjórn hans og stjórn- málaáhuga, ástríðu hans að fylgjast með og löngun hans til að hafa áhrif þegar honum bauð svo við að horfa. Samt var pólitískur áhugi hans áreiðanlega ekki fyrst og fremst fræðilegur, en hann sótti næringu sína í tilfinningalíf Magnúsar og storma- söm átök í tímanum og nærðist af heitu geði hans. Þó ætla ég að löngunin til að lifa í heimi skáldskapar og fagurfræði og fara einförum hafi verið miklu samgrónari eðli hans og sálarlífi en hinn þjóðfélagslegi áhugi, og það getur varla verið annað sem vinir hans frá æskuárum áttu við þegar þeir sögðu að vettvangur dagsins hefði aldrei orðið honum eiginlegt athafnasvæði og að honum hefði hundleiðst þegar þeir voru að reyna að draga hann á dansleiki eða aðrar samkomur þar sem vænta mátti fjölmennis. Það gat í hæsta lagi orðið hon- um stundargleði, en fullnægði ekki til lengdar hans innstu þrá, þeirri raunveru- legu æviástríðu sem var skáldskapurinn. Það var eitt með öðru lýsandi fyrir and- stæðurnar í fari Magnúsar að hann var að mörgu leyti eindreginn varðveislumaður hefðar og íhaldssamari í fagurfræðilegri af- stöðu sinni og skáldskaparviðhorfum en þjóðfélagsleg róttækni hans gat bent til. Hann þýddi margt ljóða frá 19. öld og það- an af eldri kveðskap, en samt var hann einn af áhrifavöldunum í þróun og endurnýjun íslenskrar ljóðlistar á 20. öld og kynnti ís- lenskum lesendum og yngri skáldum fyrst- ur ýmissa merka samtímahöfunda og verk sem voru boðberar nýs tíma í formi og hugsun, opnaði gluggann fyrir ferskum vindum. Þess vegna batt Magnús ævilanga tryggð við verk Goethes og þýddi ljóð eftir Heine, Shelley, Púskín, Southey og Tenny- son, Baudelaire, Runeberg, Welhaven og Tegnér, Snoilsky og Rydberg. En jafn- framt varð hann fyrstur til að kynna lönd- um sínum skáldskap af allt öðru tagi og af ýmsum tungum, ekki síst frá Bandaríkj- unum og Svíþjóð – ljóð t.d. eftir Masters, Sandburg, Ljungdal, Lundkvist, Aud- en,Werfel og Kästner. Vegna samspils skáldskapargáfu sinnar, ólíkra áhugamála og andstæðna í skapferli þýðir Magnús jöfnum höndum rómantísk kvæði og raunsæisskáldskap, klassík og nútímaljóð, ljóð frá tíma symbólisma og nýrómantíkur sitt hvorum megin við aldamót, ballöður og kvæði af epískum toga, expressjónísk kvæði, melankólska lýrik og kímnikvæði, sem Fröding er ágætur fulltrúi fyrir, söng- hæf gamankvæði eins og í Glaumbæjar- grallaranum og þjóðfélagslegan og ljóð- rænan skáldskap millistríðsáranna og styrjaldaráranna síðari. Þess vegna má oft ekki á milli sjá hvort hann túlkar betur efni og anda baráttukvæða jafnólíkra skálda og Överlands og Nordahls Griegs frá þeim tíma eða ljóðræn kvæði Hjalmars Gull- bergs, mótuð af klassísku viðhorfi hans og menntun, en jafnframt sprottin af djúpri íhygli og sterkri samtíðarskynjun og mörk- uð anda tímans í hugsun og stíl, málnotkun og vali yrkisefna. Vegna skynjunar sterkra andstæðna lét Magnúsi líka vel að þýða ljóð sem báru þær í sér með einhverjum hætti, eða voru tvíbotna og buðu upp á fleiri en eina túlkunarleið, eins og bylting- arkvæði Bloks. En einu má ekki gleyma í allri þeirri fjöl- breytni og fjölhæfni sem af andstæðunum spratt. Þegar þjóðfélagsáhugi Magnúsar verður til þess að hann þýðir t.d. jafn- augljóst áróðurskvæði og Sálm til jarðar- innar eftir Rudolf Nilsen er það ekki til- gangurinn sem helgar meðalið af því að kvæðið sé innlegg í baráttuna (þau eru allt- af legíó), heldur skarpskyggni og skap þýð- andans sem velur þetta kvæði af því að hann finnur að það ber í sér svo mikinn hita, kraft og skáldskapargildi af hálfu höf- undar síns og er maður til að koma hvoru tveggja til skila í þýðingunni. Ljóðalesendur geta bæði fundið í þýð- ingum Magnúsar hve sárt það er þegar brumhnappar bresta og orka nýrri sköpun og hvernig vindar þyrla haustsins hinstu blöðum. Þar geta menn leitað ljóðrænnar hvíldar og logandi stríðs, jafnvel í sömu andrá. En þótt ég hafi viljað minna hér á hve miklu ráðríkar andstæður í eðli hans og skapgerð skiptu um líf hans, verk og vinnubrögð hefðu þær aldrei nægt honum til afreka einar sér – hefðu þvert á móti getað lamað hann. Við bættust allir hæfi- leikar hans, skerpa og skáldgáfa, eindreg- inn skáldskaparvilji og mikil afköst á til- tölulega skömmum ferli og næsta einstæð orðvísi og málskynjun sem dugði honum til að setja sitt persónulega stílmark á allt sem hann gerði. Andstæður magna hver aðra og fléttast saman með ýmsu móti. Þegar neistar á milli pólanna myndast oft skilyrði skáld- skapar. Maðurinn getur brunnið upp í log- anum, en ljóðin lifa og bera í sér neistann. ANDSTÆÐUR STUTT HUGLEIÐING Á ALDARAFMÆLI MAGNÚSAR ÁSGEIRSSONAR E F T I R H J Ö RT PÁ L S S O N Höfundur er bókmenntafræðingur, skáld og þýð- andi og dvelur nú í Kaupmannahöfn þar sem hann vinnur að riti um Magnús Ásgeirsson, ævi hans og verk. Ef þú átt ró, er aðrir æðrazt hafa og uppnám sitt og vanda kenna þér, ef traust þín sjálfs er vaxið allra vafa, og veiztu þó, að hann á rétt á sér, ef kanntu í biðraun þoli þínu að halda og þreyta án lygi tafl við grannans róg, og láta ei heiftúð hatur endurgjalda, en hafa lágt um dyggð og speki þó, – Ef draumum ann þitt hjarta og hönd þín dáðum ef hugsun fleygri verðugt mark þú átt, ef sigri og hrakför, blekkingunum báðum, Þú brugðizt getur við á sama hátt, ef sannleik þínum veiztu snápa snúa í snörur flóna, en bugast ekki af því, og lítur höll þíns lífs í rústamúga, en lotnu baki hleður grunn á ný, – Ef treystist þú að hætta öllu í einu, sem ævilangt þér vannst, í hæpið spil, og tapa – og byrja á ný með ekki neinu og nefna ei skaðann sem hann væri ei til, ef færðu knúið hug og hönd til dáða, er hafa bæði þegar lifað sig, og þú átt framar yfir engu að ráða, nema aðeins vilja, er býður: Stattu þig! – Ef höfðingi ertu í miðjum múgsins flokki og málstað lýðsins trúr í konungsfylgd, ef hóf sér kunna andúð þín og þokki, og þó ertu ávallt heill í fæð og vild, ef hverri stund, er flughröð frá þér líður, að fullu svarar genginn spölur þinn, er jörðin þín og það, sem lífið býður, og þá ertu orðinn maður, sonur minn! EF ... RUDYARD KIPLING Magnús Ásgeirsson þýddi. FUNERAL BLUES Úr The Ascent of F6 (frumsýnt 26ta febrúar 1937) WYSTAN HUGH AUDEN (1907–1973) Stop all the clocks, cut off the telephone, Prevent the dog from barking with a juicy bone, Silence the pianos, and with muffled drum Bring out the coffin, let the mourners come. Let aeroplanes circle moaning overhead Scribbling on the sky the message He Is Dead, Tie crepe bands round the white necks of the public doves, Let the traffic policemen wear black cotton gloves. He was my North, my South, my East and West, My working week and my Sunday rest, My noon, my midnight, my talk, my song; I thought that love could last forever: I was wrong. The stars are not wanted now: put out every one, Pack up the moon and dismantle the sun, Pour away the ocean and sweep up the woods; For nothing now can ever come to any good. JARÐAR- FARARBLÚS Þorsteinn Gylfason þýddi í minningu Magnúsar Ásgeirssonar (1901–1955) VIÐ LAG EFTIR BENJAMIN BRITTEN (1913–1976) Stoppi hver klukka! Klippið símavír! Og kastið beini’ í seppa. Hann er hávært dýr. Píanó þagni! Deyfðan trumbudyn! Sjá, hér er kistan. Syrgið látinn vin! Lát flugvélar emja yfir landi og sjó, skrifa’ á loftin skýjastöfum að hann dó. Klæð hvítar dúfur svörtu af harmi eftir hann, svarta hanzka látið á hvern lögreglumann. Norður, suður, austur, vestur var hann mér, mín vinnuvika, sunnudagur hver, mín nótt, minn dagur með líf, með leik. Ég leit á ást sem væri hún eilíf. Ég óð reyk. Já hver þarf nú stjörnur? Lát myrkvast himins hjól, pakkið saman tungli, hlutið sundur sól. Sturtið niður sjónum, og sópið trjám burt. Um svona hluti verður aldrei framar spurt.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.