Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2001, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 24.11.2001, Blaðsíða 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 24. NÓVEMBER 2001 SATT að segjavar kveikjanað þessu mjögeinföld. Mig langaði að gefa út bækur en hafði engan pening til þess. Ég þekkti marga fína höfunda sem áttu óút- gefið efni og fannst ég hreinlega verða að finna leið til þess að safna fé til útgáfunn- ar.“ Þannig lýsir Axel Dielmann aðdragand- anum að stofnun Axel Dielmann Verlag, bókaútgáfunnar sem hann á og rekur í Frankfurt með þrjá fasta starfs- menn. Útgáfan gefur út nokkrar ólíkar ritraðir, en sú sem vakið hefur hvað mesta athygli er röðin Etikett sem kostuð er af fyrirtækj- um. „Ég byrjaði í útgáfubransanum á níunda áratugnum og gaf þá út bókmenntatímaritið Schritte. Hug- myndin með því var að dreifa ljóð- um til lesenda, ekki einungis í hill- ur bókabúða, auk þess sem mér fannst forleggjarar í Þýskalandi vera nær hættir að gefa út ljóð.“ Ritið var í stóru broti og hékk á priki þannig að hægt var að fletta því en ekki taka það með sér. Því var dreift á kaffihús, alls þúsund kaffihús um land allt, og Dielmann segist áætla að um fimm lesendur hafi séð hvert eintak á hverjum virkum degi. „Það þýðir að á þrem- ur mánuðum náði ritið til 300 þús- und lesenda, sem er ekki svo lítið. Vegna þessarar útbreiðslu var auð- velt að fá auglýsingar í Schritte, stórir kúnnar hjá mér voru Honda, Þýska póstþjónustan og fleiri stór- fyrirtæki.“ Lestarmiði prýðir bókakápu Í kjölfarið tók Dielmann að velta fyrir sér að fá einkafyrirtæki til þess að styrkja útgáfu bóka. „Ég hugsaði: hvað myndu kostunaraðil- arnir vilja fá í staðinn? Auglýsingu. Og hver er „verðmætasti“ hluti bókarinnar, hvað er það sem mað- ur sér fyrst? Kápan og titillinn. Þannig var hugmyndin fædd, ég ákvað að viðkomandi fyrirtæki fengi hlutdeild í kápunni,“ útskýrir Dielmann. „Fyrsta bókin í röðinni, skáld- saga, gerðist að dálitlum hluta í lest milli Frankfurt og Parísar og hana styrktu Þýsku járnbrautirn- ar. Á kápunni var mynd af lest- armiða og það varð strax ljóst að áætlunin gekk upp. Bókin gekk vel í bóksala og seldist ágætlega. Þýsku járnbrautirnar styrktu út- gáfuna á tvennan hátt, þeir lögðu fram fé til prentunarinnar og létu svo lesa upp úr bókinni á ákveðnum lestarleiðum.“ Dielmann segir það hafa skipt miklu máli að hefja ritröðina á svo stóru og traustu fyrirtæki sem Þýsku járnbrautunum. „Það var gott að nota þá til kynningar á verkefninu þegar við heimsóttum önnur fyrirtæki. Búsáhaldafram- leiðandinn Alessi sagð- ist til dæmis hafa litið til framlags Þýsku járnbrautanna, þegar hann ákvað að kosta útgáfu ljóðabókarinnar Ablauf der Dinge eftir Thomas Schwab.“ Tit- ill þeirrar bókar gæti útlagst Rás hlutanna, en Alessi framleiðir einmitt „hluti“ sem nýtast í daglegu lífi. Sú tenging nægði til þess að samningar næðust. Og til enn frekari skýringar má nefna að titill skáldsögunnar Rent a Friend eftir Susanne Bartsch, varð til þess að Loft- house’s, framleiðandi hálstaflnanna Fisherman’s Friend, styrkti útgáf- una gegn mynd af hinum vel þekkta lakkríspoka á kápunni. „Rétt er að taka fram að ég vel ævinlega fyrst bækur til útgáfu, áður en ég leita að kostunaraðilum. Ég fæ aldrei höfund til þess að skrifa bók sem fellur að stefnu eða framleiðslu ákveðins fyrirtækis. Enda fjalla bækurnar heldur alls ekki um fyrirtækin, það eru bara einhver abstrakt tengsl eða tilvilj- anir sem ráða því hver styrkir út- gáfuna. Fyrsta bókin fjallar til dæmis alls ekki um lestir. Meg- inhluti hennar gerist í París, en lestarferðin í upphafi sögu dugði til þess að Þýsku járnbrautirnar vildu vera með.“ Lífseig auglýsing Þegar eru komnar út 35 bækur í Etikett-ritröðinni og að þeim standa 24 styrktaraðilar; iðnaðar- fyrirtæki, bankar, þjónustufyrir- tæki og heildsölur svo nokkur séu nefnd. „Fyrirtækið greiðir eins mikið og það hefur tök á. Það skiptir ekki máli hvort við biðjum þau um 200 eða 2000 þúsund krónur, aðal- atriðið er að ná forsvarsmönnum fyrirtækjanna á okkar band og finna hvort bókin fellur að þeirra smekk.“ Dielmann bendir á að yfirleitt sé erfiðara að eiga við stórfyrirtæki og samsteypur, þar kosti hver mín- úta markaðsdeildarinnar svo mikið. „Forsvarsmenn þeirra segja stund- um sjálfkrafa nei, því þeir skynja hættuna á því að umsýslan kring- um verkið verði dýrari en sjálft framlagið. Það þarf til dæmis ein- hver að lesa bókina og í það fara kannski tveir heilir vinnudagar. Og það þykir ekki snjöll kaupsýsla á sumum bæjum.“ Hann bætir því við að í raun sé markmið útgáfufyrirtækis hið sama og allra annarra fyrirtækja. Að reyna að láta vöru sína ná til sem flestra. „Að þessu leyti fer vinna okkar vel saman. Ég er í sannleika satt að selja þeim aug- lýsingu á mjög sanngjörnu verði, hún nær til svo margra og endist lengi.“ Ef Dielmann fær í hendurnar gott handrit en dettur ekki í hug neitt fyrirtæki sem kostað geti prentunina, er ekki þar með sagt að hann sendi handritið til föð- urhúsa. „Ef þetta er bók sem pass- ar ekki í kostunarritröðina, þá gef ég hana einfaldlega út óstuddur. Etikett-ritröðin er einungis einn angi af starfsemi forlagsins – reyndar sá angi sem halar inn fé fyrir annars konar útgáfustarf- semi. Ég gef til dæmis út hand- saumaðar smábækur með klassísk- um textum og óþekktum eftir þekkta höfunda,“ segir hann og nefnir til sögunnar síðasta viðtalið sem tekið var við Federico Fellini og ritgerð um fagurfræði eftir Victor Hugo sem aldrei hefur kom- ið út í Frakklandi. „Svo gef ég út í annarri ritröð metnaðarfull verk eftir núlifandi höfunda, innbundin í harðspjöld. Þeirra á meðal eru þýðingar, en ég er að byrja að fikra mig inn á þá braut.“ Sjálfstæðið er ómetanlegt Allar þrjár ritraðirnar hafa kom- ið út frá upphafi, en Dielmann Ver- lag hóf störf árið 1992. „Af þeim tólf útgáfufyrirtækjum sem stofn- uð voru það ár í Þýskalandi hafa öll farið á hausinn eða gefist upp, nema Dielmann-Verlag,“ segir Dielmann og örlar á dálitlu stolti í svipnum. Hann segir lánið liggja í því að yfirbygging sé lítil og að út- gáfan hafi ekki þanið sig út á góð- æristímum eins og mörg hinna for- laganna. „Starfsmennirnir eru aðeins þrír og þegar minna er að gera dreg ég saman seglin, sendi þá í verkefni á eigin vegum, í nám eða annað. Þegar vel gengur ræð ég hins vegar verktaka til viðbótar við okkur fjóra. Stærri forlög neyð- ast til þess að halda allri vélinni gangandi, hvernig sem árar, en ég get leyft mér þennan sveigjanleika. Og ég hef lært af dæmum í kring- um mig að um leið og fyrirtæki verður það stórt að stjórnandinn missir yfirsýn, er voðinn vís. Hins vegar á ég fullt í fangi með að halda í mína fáu, góðu starfs- menn, því stór forlög sem fylgst hafa með okkur eru dugleg við að reyna að krækja í þá með gylliboð- um um hærri laun. Og við það er erfitt að ráða.“ Við smæðina eru sem sagt kostir og gallar. Auk fjárskortsins nefnir Dielmann afskiptaleysið sem helsta ókost. „Minni forlög njóta ekki mikillar athygli, til dæmis þegar upplestrar eru skipulagðir, vefsíð- ur settar upp eða bækur gagn- rýndar í fjölmiðlum. Ég er ánægð- ur með að vera sjálfstæður, en vildi samt fá að vera meira „með“,“ segir hann og dæsir dálítið. Svo brosir hann og hristir höfuðið. En þótt líf hinnar litlu útgáfu sé ekki alltaf dans á rósum, borgar hún sig nú samt. „Já, sjálfstæðið er ómetanlegt. Ég gef bara út þær bækur sem mér finnst að eigi það skilið. Öðrum reglum fylgi ég ekki og veit satt að segja ekki eftir hverju bókaútgefendur almennt fara. Þetta er bara leið sem ég hef þróað fyrir mig og mitt forlag. Og ef peningurinn er ekki til, þá finn- um við einfaldlega leiðir til fjár- mögnunar. Þetta mætti auðvitað tortryggni fyrst – að blanda mark- aðssetningu fyrirtækja í útgáfu gæðabókmennta – en fljótlega sá fólk að þetta er ein af þeim leiðum sem fær er til þess að fá meira fjármagn í bransann. Ég varð aldr- ei fyrir verulegu aðkasti fyrir að reyna þessa óhefðbundnu leið,“ áréttar Dielmann. „Þrátt fyrir allt það snobb sem oft vill fylgja list- heiminum, voru það í raun bara örfáir sem gerðu grín að hugmynd- inni um kostun bókmennta í upp- hafi. Og ég hef ekki heyrt frá þeim lengi.“ BÆKUR MEÐ VERÐ- MÆTAR KÁPUR Axel Dielmann er bókaútgefandi sem nýtir sér markaðinn út í æsar. Hann fær fyrir- tæki til þess að kosta útgáfu bóka sinna gegn því að merki þeirra prýði bókakáp- urnar. SIGURBJÖRG ÞRASTARDÓTTIR spurði forleggjarann út í þetta sérstæða samkrull ritlistar og auglýsinga. sith@mbl.is Ljósmynd/Martin Civín Axel Dielmann bókaútgefandi. NÝLEGA tryggði þýski útgáfuris- inn Bertelsmann sér kiljuréttinn á tveimur skáldsögum Einars Kára- sonar og Einars Más Guðmunds- sonar, Kvikasilfri og Fótsporum á himnum. Áður hafði Réttindastofa Eddu – miðlunar og útgáfu samið við hið virta bókaforlag Hanser um að gefa bækurnar út á þýsku í innbundnu formi og komu þær á markað á vegum þess fyrr í haust. Hanser gefur m.a. út verk eftir Umberto Eco, Kurt Vonnegut, Milan Kundera og Michael Onda- atje. „Kiljudeild Bertelsmann-sam- steypunnar, btb, tryggir gríðar- lega útbreiðslu á bókunum á þýska málsvæðinu en þess má geta að bæði Englar alheimsins og Eyja- bækur Einars Kárasonar hafa áð- ur komið út í kilju hjá henni. Um er að ræða mjög góða samninga sem treysta stöðu höfundanna á þýska markaðnum,“ segir Pétur Már Ólafsson hjá Réttindastofu Eddu miðlunar – og útgáfu. Um síðustu helgi lauk upplestr- arferð Einars Más og Einars Kárasonar um Þýskaland í boði Hanser-forlagsins. Þeir komu fram meðal annars fram í Münch- en, Essen, Berlín, Köln og Brem- en. Þetta er í annað sinn sem Hanser stendur fyrir slíkri upp- lestrarferð hjá þeim félögum. Einar KárasonEinar Már Guðmundsson EINAR MÁR OG EINAR KÁRASON Í KILJU Í ÞÝSKALANDI

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.