Lesbók Morgunblaðsins - 11.05.2002, Qupperneq 16
16 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 11. MAÍ 2002
SUNDHÖLL, REYKJAVÍK, 1991: Hönnuð af Guðjóni Samúelssyni á árunum 1929–37. Hér
erum við stödd við búningsklefana. Hefur þú einhvern tíma verið þar? Skoðaðu þessa ljós-
mynd gaumgæfilega. Tókstu eftir því að dyrnar eru bæði opnar og lokaðar í senn? Ef þú
hefur komið í þessa sundlaug þekkirðu fyrirkomulagið sem á skylt við völundarhús og leik-
gleði skáklistar. Þegar ég aðgreini gluggana, gægjugötin, veggskotin, rýmin án skarpra
brúna og dyr sem eru bæði opnar og lokaðar eða lokaðar og opnar finnst mér ég komast í
snertingu við heimspeki.
Þetta er fimmti hluti flokks sem í heild ber heitið: Iceland’s Difference (Sérkenni Íslands). © fyrir ljós-
mynd, 1991, og texta, 2002, Roni Horn.