Lesbók Morgunblaðsins - 06.07.2002, Qupperneq 13
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 6. JÚLÍ 2002 13
BRESKA ríkisstjórnin hefur
selt fornmuni að verðmæti um
1,3 milljarðar punda, eða um
170 milljarða íslenskra króna,
frá því Verkamannaflokkurinn
komst til valda fyrir fimm ár-
um. En eftir stjórnarskiptin
var ákveðið að allar eignir rík-
isins skyldu skráðar og þær
sem ekki væru notaðar seldar.
Sá galli virðist hins vegar á
þessu fyrirkomulagi, að sögn
breska dagblaðsins Daily Tele-
graph, að fornmunir falla auð-
veldlega í þennan flokk. Sala á
fornmunum í eigu ríkisins hef-
ur víða vakið áhyggjur og á
síðasta ári var m.a. sú ákvörð-
un fjármálaráðuneytisins að
ætla að selja á uppboði 17. ald-
ar silfurmuni í þess eigu for-
dæmd af mörgum. Munirnir
eru metnir á um 15 milljónir
króna, en um var að ræða
gripi sem voru mikilvægur
hluti breskrar sögu. Rík-
isstjórnin hætti þó við söluna á
síðustu stundu og viðurkenndi
að ekki hefði verið leitað upp-
lýsinga um mikilvægi þeirra
jafnvíða og skyldi.
Einungis þeir forngripir sem
falla í flokkinn „ríkisarfleifð“
eru undanþegnir slíkri sölu,
sem og þeir fornmunir sem
metnir eru á yfir eina milljón
punda. Stofnanir og ráðuneyti
eru síðan jafnvel hvött enn
frekar til að losa sig við slíka
gripi með reglugerð sem sekt-
ar þær stofnanir sem kjósa að
halda slíkum munum eftir í
sinni eigu. „Þeir munir sem
ekki eru skilgreindir sem rík-
isarfleifð eru í mikilli hættu,“
segir Christopher English,
framkvæmdastjóri Silfursjóðs-
ins, sem hefur miklar áhyggjur
af þessari þróun og ekki hvað
síst þar sem ákvörðun um söl-
una er oftar en ekki tekin af
starfsfólki stofnanna án ráð-
gjafar sérfræðinga.
Póstmódernísk
list í Astrup
Fearnley
SÝNING á póstmódernískum
verkum í eigu Astrup Fearnl-
ey-safnsins í Noregi var opnuð
í byrjun júlímánaðar, en safnið
lýtur stjórn
Gunnars
Kvarans list-
fræðings.
Sýningin
nefnist
„Realitets-
fantasier“,
sem útleggja
má sem
Raunveru-
leikadraum-
sýnir, og er
á henni að
finna m.a. ný verk í eigu safns-
ins sem ekki hafa verið sýnd
áður. Meðal þeirra eru verk
eftir listamenn á borð við Jeff
Koons, Andy Warhol, Felix
Gonzales-Torres, Nan Goldin
og Bruce Nauman. Auk þess
má á sýningunni einnig sjá
verk eftir Damien Hirst, Rach-
el Whiteread, Gerhard Richter
og Sigmar Polke og hefur
þeim verið fundinn staður í ný-
uppgerðum sýningarsölum
safnsins.
Sala fornmuna
vekur áhyggjur
ERLENT
Fornmunasalan vekur áhyggjur.
Raunveru-
leikadraumsýnir
í Astrup Fearnley-
safninu.DYR/Portal nefnist sýning með myndverk-um Kate Leonard frá Colorado og Val-gerðar Hauksdóttur sem opnuð verður íListasafni ASÍ við Freyjugötu í dag kl.
14. Myndlistarmennirnir unnu að gerð sýningar-
innar bæði í Colorado og á Íslandi og fjallar hún
um myndræna túlkun þeirra á náttúru og menn-
ingu þessara landsvæða. Listamennirnir settu sér
engar fyrirfram ákveðnar takmarkanir né þemu
við gerð myndanna heldur létu umhverfið og eigið
innsæi ráða ferðinni. Á sýningunni gefur að líta
verk unnin í ólíka miðla, ljósmyndir, stálætingar
og verk unnin með blandaðri tækni. Sýningin er
styrkt af Colorado College og verður hún jafn-
framt sýnd í Coburn Gallery, Colorado Springs,
haustið 2003.
Kate Leonard er deildarstjóri myndlistardeild-
ar og stjórnandi grafíknáms við Colorado College.
Hún lauk BA-gráðu í myndlist frá Grinnel College
og MFA-gráðu frá University of Nebraska, Lin-
coln, 1994. Verk Kate Leonard hafa verið sýnd
víða í Bandaríkjunum og á alþjóðlegum vettvangi.
Hún hefur unnið til fjölda viðurkenninga, m.a. frá
14th National Drawing and Print Competitive
Exhibition við College of Notre Dame í Maryland
og Colorado College MacArthur Award sem efni-
legur ungur kennari ásamt ferðastyrkjum til Ís-
lands til áframhaldandi þróunar á verkum sínum
hér á landi. Verk hennar eru í opinberum söfnum
og einkasöfnum, þar á meðal New York City Publ-
ic Library Print Collection.
Valgerður Hauksdóttir hefur unnið sem mynd-
listarmaður og kennt myndlist síðastliðin 20 ár.
Sýningin er opin alla daga, nema mánudaga, kl.
14–18 og stendur til 28. júlí. Aðgangseyrir er
ókeypis.
Verk eftir Valgerði Hauksdóttur og Kate Leonard á sýningunni Dyr/Portal.
Myndræn túlkun á náttúru
Colorado og Íslands
ÖRN Þorsteinsson myndhöggvari opn-ar sýningu í Lónkoti í Skagafirði ídag. Ber hún heitið Steinar úr sjó, enhöggmyndirnar á sýningunni eru
unnar úr grágrýti sem tekið er úr sjónum í Lón-
koti.
„Í þessari fjöru við Lónkot er mjög gott efni,
grágrýti, og eru verkin sem nú eru sýnd allt að
eitt tonn að þyngd,“ segir Örn. „Ég hef í raun
verið að leita að svona efni í nokkurn tíma, og
lagði af stað með svipaða hugmynd fyrir rúmum
tveimur árum. Þá var ég að vinna úti á Stokks-
nesi við Hornafjörð hjá góðu fólki og vann þá í
gabbró, sem er algengt efni þar. Blessað gabbró-
ið bíður betri tíma. Nú er ég hins vegar kominn
með efni sem ég get notað og úr því er til orðin
þessi sýning, Steinar úr sjó.“ Sýning Arnar er
útisýning, og hefur hann dregið efnið úr fjörunni
upp í sýningarsvæðið sjálft, sem er stór malar-
hringur umkringdur grasi gróinni mön, sem
stendur í Lónkoti. „Þetta sýningarsvæði er mjög
hentugt fyrir þessi verk og ég er sáttur við þessa
umgjörð,“ segir Örn.
Hann segir aðstöðuna í Lónkoti vera mjög
hentuga fyrir myndlistarmann sem vinnur í stein
og að hann sé afar þakklátur fólkinu þar fyrir að
veita sér hana. „Ég er kominn með mikið af efni
til úrvinnslu. Það eru tugir steina sem liggja
þarna í fjörunni, margir á vörubrettum, svo ég
hef getað gengið á milli og unnið í verkin eftir
veðri og vindum,“ segir Örn, en verkin vinnur
hann öll á staðnum og mun halda þeirri vinnu
áfram í sumar og fram eftir hausti. „Þessari
vinnu fylgir oft á tíðum gríðarlegur rykmökkur.
Ég vinn með öflugar sagir og slípirokka, og svo
notar maður auðvitað hamarinn og meitilinn, sem
eru grunnverkfæri margra myndhöggvara.“
Hann segir að þessi verk sín beri vísun til sjáv-
arins. „Þetta eru einhvers konar sögur af skepn-
um og fólki, sem tengjast sjónum á einhvern hátt.
Í verkum mínum hef ég oftast fengist við við-
fangsefni, sem eru á mörkum raunveruleika og
ímyndunar. Eða að þegar rýnt er í hlutinn, þá
umbreytist hann yfir í eitthvað allt annað.“ Örn
hefur notað margskonar efni í myndverk sín
gegn um tíðina, til dæmis tré, brons og ál. „En að
vinna í svona náttúruefni og á staðnum, finnst
mér alveg einstakt. Á þessum stað er eins og
maður vinni undir hraðbraut fugla, það er svo
mikið fuglalíf hérna. Umhverfið hefur auðvitað
gífurlega mikil áhrif á mann við listsköpunina.“
Örn stundaði nám við Myndlista-og handíðaskóla
Íslands og Listaháskólann í Stokkhólmi á árun-
um 1966-1972. Verk hans eru í eigu helstu lista-
safna landsins, auk margra fyrirtækja og opin-
berra aðila. Opnun sýningarinnar Steinar úr sjó
verður í Lónkoti í dag kl. 15 og stendur sýningin
opin til ágústloka.
Sögur
steina
úr sjó
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Örn Þorsteinsson opnar höggmyndasýningu í Lónkoti í Skagafirði í dag.
Í TILEFNI af ald-
arafmæli Halldórs
Laxness verður mál-
þing tileinkað verkum
og lífi skáldsins hald-
ið í University Coll-
ege í London 14.
september nk. Mál-
þinginu hefur verið
gefið heitið „The Sil-
ent Music of the
Clouds: 100 Years
with Halldór Lax-
ness“, eða Hin þögla
tónlist skýjanna: 100
ár með Halldóri Lax-
ness.
Það er deild skand-
inavískra fræða við háskólann sem stendur fyr-
ir þinginu í samvinnu við íslenska sendiráðið í
London og með aðstoð styrkja frá Sjóði Egils
Skallagrímssonar.
Fræðimenn, útgefendur og þýðendur verka
skáldsins frá jafnt Bretlandi sem Íslandi munu
fjalla um verk Laxness og ævi, en þingið verður
sett með tölu Þorsteins Pálssonar, sendiherra
Íslands í Bretlandi. Meðal þeirra sem þar munu
flytja tölu eru Halldór Guðmundsson frá Eddu
– miðlun og útgáfu, Ástráður Eysteinsson pró-
fessor í bókmenntum við Háskóla Íslands,
Svanhildur Óskarsdóttir fræðimaður við Árna-
stofnun og sjónvarpsmaðurinn og þýðandinn
Magnús Magnússon.
Málþing
um Laxness
í London
Halldór Laxness