Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.2002, Page 7

Lesbók Morgunblaðsins - 27.07.2002, Page 7
til þess að fullorðnir geti trúað því að börn hafi gaman af henni. Eyjan hans múmínpabba kom út á Íslandi 1972 og næsta bók, Ósýnilega barnið, kom ekki út á íslensku fyrr en 1998. Ósýnilega barnið er smásagnasafn sem gerist í múmíndalnum eða meðal þeirra sem múmínálfabækurnar hafa áð- ur sagt frá. Sögurnar eru frekar dimmar og vart við hæfi barna, þ.e. ef kona heldur börn eigi bara að lesa jákvæðar og skemmtilegar bækur. Ein sagan, ‘Fillífjonkan sem trúði á hörm- ungar’, er um Fillífjonku sem býr ein af skyldu- rækni í húsi sem henni hafði verið talin trú um að amma hennar hefði búið í. Þegar í ljós kemur að amma hennar bjó aldrei í húsinu getur Fillíf- jonkan samt ekki flutt í burt: „Þau gætu haldið að hún væri skrítin.“ Fillífjonkan hefur safnað að sér allskyns smáhlutum og dóti sem gera eiga heimili hennar heimilislegt. En húsið er ómögulegt í laginu og kuldalegt og skrautmunir jafnt sem húsgögn njóta sín ekki. Henni finnst húsið hræðilegt og ströndin sem það stendur á jafn hræðileg. Hún reynir að segja Hrifsu sem kemur í heimsókn frá því hve mikil ógn henni stafi af staðnum en Hrifsan skilur ekki tal um kvíða og vægðarlausar ógnir. Þegar svo storm- urinn skellur á og eyðileggur allt innanstokks í húsi Fillífjonkunnar, flýr hún út og áttar sig þá á því að hljóðin sem gerðu hana svo hrædda heyrðust ekki úti, heldur tilheyrðu húsinu og húsmununum. „Stormurinn hélt áfram að hvína rólega og stöðugt. En öll hræðilegu hljóðin voru á bak og burt, allt sem hvein, krafsaði, splundraðist, dun- aði og rifnaði í sundur. Það hættulega var inni í húsinu, ekki fyrir utan.“ Þarna tekst höfundi á áhrifaríkan hátt að lýsa kvíða sem býr innra með fólki og Fillífjonkum. Óttinn er ekki raunverulegur, hann er heima- tilbúinn og lausnina er að finna úti í náttúrunni. Eða að minnsta kosti með því að sættast við um- hverfið og hætta að láta stjórnast af innri ótta. Þegar storminn lægir veltir Fillífjonkan fyrir sér hvort hún eigi að endurreisa heimili sitt, þvo, strjúka og mála. „O, nei! Og síðan að stilla allri eymdinni upp aftur á sama hátt í sömu dap- urlegu herbergjunum og halda áfram að reyna að láta sér finnast þau heimilisleg ...“ „Nei, ég geri það ekki!“ hrópaði Fillífjonkan og stóð upp stirðum fótum. „Ef ég reyni að gera allt eins og það var áður verð ég líka eins og ég var áður. Ég verð aftur hrædd, ég finn það á mér. Þá læðast stormsveipirnir aftan að mér og hvirfilbyljirnir ... “ Aðsteðjandi hvirfilbylur tekur ákvörðunina fyrir Fillífjonkuna; hann rífur þakið af húsinu hennar og tæmir það. Hún gleðst ákaflega yfir þessu og leikur sér í briminu. „Nú verð ég aldrei aftur hrædd,“ sagði hún við sjálfa sig. „Nú er ég algjörlega frjáls. Nú get ég gert hvað sem er.“ Önnur saga segir frá ‘Ósýnilega barninu’. Ninna, sem er á stærð við Míu litlu, bjó hjá meinfýsinni frænku sinni. Smám saman varð Ninna ósýnileg, eftir því sem sjálfsvirðing henn- ar minnkaði. Þegar hún kemur til múmínfjöl- skyldunnar mætir hún allt öðru viðmóti og smám saman öðlast hún sýnileika/ sjálfsvirð- ingu. Það eina sem vantar er andlitið. Míu litlu líkar alls ekki við Ninnu og reynir sífellt að ögra henni. „Hún kann ekki að reiðast,“ sagði Mía litla. „Það er það sem er að henni. Heyrðu,“ hélt Mía áfram og gekk alveg að henni og horfði ógnandi á hana. „Þú færð aldrei þitt eigið andlit aftur fyrr en þú hefur lært að slást. Sannaðu til.“ Með brögðum tekst múmínfjölskyldunni að gera Ninnu öskuilla og þá kemur höfuð hennar loks í ljós. Í enn einni sögunni, Jólatrénu, vakna múm- ínálfarnir upp með andfælum um miðjan vetur við það að hemúll rekur þau á fætur vegna þess að jólin séu að koma. Múmínálfarnir, sem hafa upplifað halastjörnu og ýmsar aðrar hættur, reyna sitt besta til að blíðka þessi ógnvænlegu jól. Sagan er frábær ádeila á tilstandið í kring- um jólin. Múmínstelpan og Fillífjonka. Höfundur er bókmenntafræðingur. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 27. JÚLÍ 2002 7 MARGIR styðja þá tilgátu að saganendurtaki sig sífellt. Þegar sögursem varla eru til fara að endurtakasig hlýtur það að styðja þessa til- gátu. Sú tilvistarlitla saga sem ég vísa hér í er ís- lensk heimspekisaga. Mér datt þetta í hug þar sem ég sat á síðastliðinni aðventu og sauð saman opinbert svar gegn fyrirlestri um notkun vís- indalegrar verufræði í samtímafrumspeki á með- an aðrir gátu leyft sér að hita rauðvín á mann- fögnuðum. Fyrir 246 árum var landi minn og kollegi í sömu sporum í Kaupmannahöfn. Líkt og ég nú eyddi hann síðustu dögunum fyrir jól í að rökstyðja skoðanir sínar um hvernig útskýra bæri uppbyggingu veruleikans og verja þær gagnrýni frá andstæðum kenningum. Slíkar vangaveltur eru líklega ekki uppi á borðum hjá flestum á þessum árstíma og því ekki að undra að það hafi tekið þennan kafla íslenskr- ar heimspekisögu óramörg ár að endurtaka sig. Hins vegar geymir saga heimspekinnar í víðasta skilningi óteljandi dæmi um þær. Allt frá dögum Forn-Grikkja hafa menn velt fyrir sér uppbygg- ingu veruleikans, eðli hans og hverjar séu smæstu eindir hans. Enn þann dag í dag er varla hægt að segja með vissu hverjar þessar eindir eru og í hvaða skilningi þær séu efnislegar. Einn- ig hlýtur hver sá sem les í dag um frumeindir að eiga bágt með að skilja hvernig margar slíkar geta tengst og myndað saman sjáanleg fyrir- bæri. Íslenskur námsmaður ver mónöðufræði Leibniz Eitt þekktasta dæmi heimspekisögunnar um tilraun til þess að útskýra samsetningu veru- leikans er svokölluð „mónöðufræði“ þýska heim- spekingsins Gottfried W. Leibniz (1646–1716). Samkvæmt þeim samanstendur veruleikinn af óefnislegum, ódeilanlegum eindum – mónöðum – sem hvorki geta eyðst né virkað hver á aðra og hafa frá sköpun heimsins starfað saman í fyr- irfram stilltri samhljóðan. Endanlega mynd þessara fræða setti Leibniz fram í upphafi upp- lýsingaraldar og áttu margir heimspekingar og vísindamenn á þeim tíma erfitt með að setja sig inn í svo frumspekilega heimsmynd. Það voru þó margir sem studdu heimspeki Leibniz, sérstak- lega í þýskumælandi ríkjum Evrópu sem og á Norðurlöndum. Ritdeilur um hana voru því tíðar og mörg löng og lærð rit sett saman ýmist gegn eða til stuðnings heimspeki hans, jafnvel þótt augljóst sé nú að margir hafi aðeins þekkt til verka hans af afspurn eða frá ýmsum minni heimspekingum sem höfðu lagt misnákvæmlega útfrá þeim. Má jafnvel deila um hvort margir helstu stuðningsmenn Leibniz hafi í raun og veru verið að verja kenningu hans. Ein slík ritdeila er einmitt ástæða þess að ég sting niður penna núna eftir að ég ætti að vera löngu sestur við arin á hlýrri krá. Hún átti sér stað á síðum Kiøbenhavnske Nye Tidender om lærde og curieuse Sager eða Lærde Efterretn- inger eins og það var stundum kallað. Í því birt- ust innsendar greinar um mennta- og menning- armál víðs vegar í Evrópu. Eins og svo margar slíkar hófst ritdeilan að sjálfsögðu ekki sem slík. Hinn 18. desember 1755 birtist ritfregn frá París um að út sé komið verkið Refutation du Systeme des Monades. Ekki er tekið fram hver sé höf- undur verksins, en það mun vera lítt þekktur franskur klerkur og kennimaður, Gilbert-Joseph Vallé (1715–1784) að nafni. Höfundur ritfregn- arinnar getur heldur ekki nafns en það er þegar augljóst að tilgangurinn með því að segja frá út- gáfu þessa verks er að lýsa yfir stuðningi við gagnrýni Vallé á mónöðufræðin og í raun hafna þeim í flestum atriðum vegna þeirra innbyggðu mótsagna sem Vallé taldi sig finna í þeim. Við sjálfan Kaupmannahafnarháskóla studdu guð- fræðingar og heimspekingar á þessum tíma mónöðufræðin í einni eða annarri mynd og er fréttaritarinn því væntanlega lærður maður með aðsetur í París sem hefur hugsað sér gott til glóðarinnar að geta verið gagnrýninn úr fjar- lægð í skjóli nafnleyndar. Í sjálfu sér var gagn- rýnin ekki sérstaklega frumleg. Menn sem áttu erfitt með að setja sig inn í frumspekilegan heim hugsunar Leibniz vildu gjarnan meina að það hlyti að orsakast af mótsögnum í henni. Leibniz sjálfur taldi sig hafa losað heimspeki sína við all- ar slíkar mótsagnir í Lögmálum heimspekinnar eða Mónöðufræðunum (Principes de la Philosophie ou Monadologie) frá 1714, en eins og áður sagði gerðu flestir þeir sem gagnrýndu mónöðufræðin á 18. öld það eftir kynni af end- ursögnum og túlkunum á kenningu Leibniz þar sem ýmislegt hafði skolast til. Svo má einnig leik- andi rangtúlka og misskilja allar kenningar ef vilji manna stendur til þess, en það var leikur sem margir léku í þeim umbrotum sem fylgdu upplýsingunni. Ritfregnin og greinin sem henni fylgdi tók yfir fleiri en eitt tölublað og áður en henni lauk birtist á jóladag sama ár tilkynning um að „einn lærður stúdent hafi ákveðið að deila með lesendum hugsunum sínum um mónöðurnar til þess að bjarga þeim frá þeirri gagnrýni sem á þeim hafi dunið á síðum blaðsins“. Grein stúdentsins birt- ist í nokkrum hlutum fram til 15. janúar 1756 og í henni setur hann fram þrjár röksemdir fyrir því að mónöðufræðin standist alla gagnrýni og að til- raunir til þess að saka þau um að vera mótsagna- kennd stafi af vanþekkingu. Þessi stúdent var Þorleifur Þorleifsson, sem einmitt lauk lárvið- arprófi frá heimspekideild Kaupmannahafn- arháskóla árið 1755. Var það eina prófið sem hann lauk við. Um Þorleif þennan er lítið vitað nema hvað hann er talinn hafa fengist eitthvað við bóksölu í Kaupmannahöfn þar sem hann lést árið 1782, 49 ára gamall. Hann virðist þó hafa verið meðal fremstu heimspekinema háskólans á þeim tíma eins og sést best á því að kennarar heimspekideildarinnar hafa látið nægja að leyfa þessum unga stúdent að halda uppi vörnum fyrir svo mikilvæga kenningu í heimsmynd þeirra á svo áberandi vettvangi. Kallar hinn merki pró- fessor J. E. Gunnerus (1718–1733) Þorleif meira að segja „hinn lærðasta Íslending“ í einu verka sinna og vitnar í það sem Þorleifur hefur að segja í ritdeilunni. Hef ég ekki séð Gunnerus sýna öðr- um ungum hugsuðum þvílíka virðingu í verkum sínum. Þrátt fyrir að Þorleifur hafi ekki, svo vit- að sé, sett saman önnur verk um heimspeki síðar þá dugir þetta framlag hans fyllilega til þess að honum ber mikilvægur sess í íslenskri heim- spekisögu. Svarbréfið með þremur röksemdum Þorleifs dró hann inn í ritdeilu sem stóð fram á sumar 1756. Andstæðingur hans gaf aldrei upp sitt eigið nafn, eftir því sem hann taldi vera franska tísku, og gaf heldur ekki eftir neinar af skoðunum sín- um á mónöðufræðunum. Það kemur augljóslega fram í greinum hans að þar er um að ræða mun reynslumeiri mann í slíkum þrætum. Í svörum Þorleifs kemur einnig skýrt fram að hann álítur sjálfan sig ekki vera mikinn bóg og minnir hann á í upphafi að hann sé aðeins ungur stúdent sem standi í þakkarskuld við þá meistara sem hann dregur röksemdir sínar frá. Því miður eyðir Þor- leifur mestu púðri í það sem hann taldi sjálfur vera vísindaleg rök, s.s. þau að verund sem sam- astandi af óendanlega mörgum hlutum hljóti þar með að vera óendanlega stór. Stærð hvers hluta ráði stærð þess sem hlutarnir mynda. Andstæð- ingur hans hafði reynt að skjóta þessa röksemd í kaf með því að segja sem svo að jafnvel þó að sú fjárupphæð sem þú gengur með á þér sé deil- anleg endalaust þá sé hún ekki þar með óend- anlega mikil. En sem betur fer hafði Þorleifur meira til málanna að leggja. Andstæðingur hans hafði haldið því fram að mónöðurnar væru í raun og veru ekki neitt, þ.e. þær væru ekki einu sinni mögulegar. Ritdeilan rennur einmitt út í sandinn eftir að Þorleifur setur fram röksemdir sínar um hina frumspekilegu ástæðu tilveru hluta. Þessar röksemdir eru í raun það sem mónöðufræðin snúast um og það sem andstæðingar mónöðu- fræðanna vildu ekki skilja. Helsti tilgangur þeirra var ekki svo mikið að útskýra hvernig hinn efnislegi veruleiki er uppbyggður frá því vísindalega sjónarhorni sem síðar varð viðtekið eftir upplýsinguna. Tilgangur þeirra var fremur að útskýra hvers vegna veruleikinn er eins og hann er. Mónöðufræðin byggjast meðal annars á heim- speki sem á sér rætur í skólaspeki miðalda, sem sjálf sótti flest til Aristótelesar (384–322 f.kr.). Eitt af því sem þessi heimspeki kenndi var að eiginleikar vera væru tvenns konar. Annars veg- ar væru frumlegir eiginleikar sem hefðu ástæður sínar frá sjálfum sér, þ.e. þeir eru sjálfir ástæðan fyrir því að þeir eru eins og þeir eru. Hins vegar væru til eiginleikar sem draga tilvist sína frá hin- um frumlegu eiginleikum. Frumspekileg vera er samkvæmt þessari hugsun vera sem hefur ákveðna frumlega eiginleika sem geta mögulega verið til staðar á sama tíma í samsettri veru. Samsetningin er möguleg ef þessir eiginleikar standa ekki í mótsögn hver við annan. Frum- spekileg vera er sem sagt „möguleg vera“, en efnisleg vera er raunveruleg. Veruleikinn getur ekki komið inn í myndina nema vegna þess að sum möguleg fyrirbæri hafa til að bera eitthvað „afl“ sem er orsök tilveru þeirra. Mónöðufræð- unum er sem sagt ætlað að varpa ljósi á hvers vegna svo lítill hluti allra mögulegra fyrirbæra sé raunverulegur. Ef við gerum einungis ráð fyrir að hinn efnislegi veruleiki sé samansettur af efn- islegum eindum sem hver um sig er deilanleg niður í minni efnislegar eindir, þá er varla hægt að hugsa sér að ein þeirra geti verið ástæða ann- arrar. Leibniz taldi sig þurfa að sýna fram á að einhvers staðar í veruleikanum væru til staðar upplýsingar og ástæður þess sem er. Skaparinn hefði þegar valið þann farveg sem sköpunarverk- inu var ætlað að taka og það val er hin eina sanna fullnægjandi ástæða fyrir því hvaða möguleikar eru raunverulegir. Það er því tilgangur í öllu sem mónöðunum er ætlað að uppfylla. Heimsmynd okkar þarf að gera ráð fyrir einhverju sem getur varðveitt það val sem sköpunin setti af stað. Í tilraunum sínum til þess að halda í við and- stæðing sinn með „vísindalegum dæmum“, gerði Þorleifur því miður of lítið úr þessari grunnhugs- un mónöðufræðanna. Þess í stað lentu svör hans báðum megin þeirrar gjár sem hafði verið að myndast frá því á endurreisnartímanum milli heimspekinga sem vildu annars vegar leitast við að setja fram heimsmynd sem lýsir virkni og uppbyggingu veraldarinnar og hins vegar þeirra sem leitaðu enn tilgangs í fyrirbærum hennar. En hann var ekki einn á báti. Flestir sporgöngu- manna Leibniz lentu í þessari togstreitu upplýs- ingaraldarinnar og var það ein ástæða þess að I. Kant (1724–1804) hafnaði frumspeki þeirra und- ir lok aldarinnar. Hann gerði það ekki vegna þess að menn hefðu verið að fást við frumspeki sem slíka, heldur vegna þess að hann taldi þetta slæma frumspeki. Svar Þorleifs er dæmi um þessa þróun. Vísindi leitast við að skilja veru- leikann til þess að geta myndað forspár um hvaða stefnu hann kunni að taka. Mónöðufræðin snúast um að viðurkenna að hann hafi yfirleitt ákveðna stefnu og hvers vegna sú stefna sé sú sem hún er. Glæsilegur vitnisburður Eins og ég nefndi í upphafi er ég ekki viss um að við séum miklu nær því að svara þeim spurn- ingum sem brunnu hvað mest á heimspekingum 18. aldar. Sú heimspeki sem ég hef núna á að- ventunni í upphafi 21. aldar reynt að finna svör gegn telur að heimspekin skuli sækja verufræði sína í samtímaeðlisfræði. Aðeins þannig fáum við efnivið til þess að leysa þau heimspekilegu vandamál sem brenni á mönnum. Ég er hins veg- ar þeirrar skoðunar að þeir sem yfirgefa þær vangaveltur sem Þorleifur fæst við undir lok rit- deilunnar gefi frá sér um leið möguleikann á að takast á við mikilvægan hluta spurningarinnar um eðli veruleikans. Hér gefst auðvitað ekkert rúm til þess að fara ofan í ástæður þessarar skoð- unar minnar. Ég læt nægja að segja að það virð- ast ávallt fylgja því óleysanleg vandamál að halla sér um of að verufræði sem neitar að taka tillit til spurninga hvers vegna veruleikinn er eins og hann er. Þorleifur tók tillit til hennar með vísun til þess Guðs sem hann þekkti. Ég er ekki viss um að Guð sé nauðsynlegur fyrir þá mynd. En sú spurning má bíða. Fyrir mig er nóg að minnast þess að enda þótt skrif Þorleifs geti kannski ekki talist hafa heppnast sem best að öllu leyti sem varnarræða fyrir mónöðufræðin um miðbik 18. aldar, þá eru þau sem heimild um þau átök sem áttu sér stað um þetta efni á þessum tíma ómet- anleg. Veit ég ekki til þess að það séu til önnur slík skrifuð á dönsku um þetta leyti. Að það skuli hafi verið ungur íslenskur námsmaður sem stóð þar í fremstu röð hlýtur að hrekja ýmsa fordóma um áhuga Íslendinga fyrr á heimspeki ásamt því að standa sem glæsilegur vitnisburður um þann árangur sem margir íslenskir námsmenn náðu við Kaupmannahafnarháskóla á 18. öld. Og það er meðal annars í ljósi þess sem ég vil meta brölt mitt í dag. Ég vil geta metið það sem hluta af sögu, sem ýmist endurtekur sig eða ekki, og er lifandi að því leyti að ennþá leitum við svara sem tilgangur okkar segir okkur að leita en sem okk- ur um leið virðist ekki vera ætlað að finna. KAFLI ÚR ÍSLENSKRI HEIMSPEKISÖGU E F T I R H E N RY A L E X A N D E R H E N RY S S O N Höfundur er heimspekingur.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.