Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 7

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 7
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 2002 7 Himinninn var heiður en það var eins og stjörnurnar væru of máttfarnar til þess að skína. Allt var þungt, dautt, kyrrt. Hann hafði áður átt við hugarangur að stríða, fyrst þegar hann var fimmtán ára og hestur hreppsnefndarmannsins fótbrotnaði vegna kæruleysis hans. Já, hann tók allt nærri sér – allt. Hann gat aldrei tjáð sig við nokkurn mann um hvað amaði að honum, það sem aðrir gátu slegið frá sér með gam- ansemi hringaði sig innra með honum eins og eitraður ormur. Hann var ekki kjaftfor eins og margir sem hann vann með en það var heldur ekki hægt að beygja hann og buga eins og hægt var að gera við suma af þeim. Kæmi einhver illa fram við hann var hefndin ávallt ofarlega í huga hans. En fram að þessu hafði hann ekki gert neitt illt. Einu sinni hugðist hann kveikja í bænum og í ann- að sinn ætlaði hann að liggja fyrir húsbónda sínum og kála honum, það gekk þó ekki lengra en svo að það voru hugsanir einar. Og honum hafði fundist hann hafa vald til þess að ákveða hvort hann léti slag standa eður ei. En raunin var ekki sú núna. Þótt hann yrði að þjást í víti sökum þess var engin undankomuleið í þetta sinn; annaðhvort hann sjálfur eða hún. Hann varð leiður af því að standa og henti sér í heyið. Ef hann gæti bara sofið! Þvílík nótt, svo löng! Hann ferðaðist í hug- anum gegnum líf sitt, allt sem hann ætti að gera, allt sem myndi gerast og þegar hann leit á klukkuna voru ekki nema fimm mín- útur liðnar og hann hóf göngu hugsananna að nýju. Að lokum var eins og hann hefði legið í mauraþúfu, hann stundi af kvölum og hann gat ekki losað sig við hugsanirnar. Þær voru að kæfa hann. Nei, það var ekki til neins að reyna að liggja. Hann reis aftur á fætur upp við hlöðuopið. Hann var oft andvaka. Marga nótt hafði hann eins og núna staðið og starað út í geim- inn, aleinn með erfið heilabrot. Úr víðáttu himinsins hafði svalur vindur strokið yfir gagnaugu hans og andvari næturinnar hafði vakið hann af vondum draumi. Ekki núna. Hann leit undrandi til himins, hann var þröngur og grár eins og lokaður kassi. Nú var það ekki frískt loft sem hann and- aði að sér heldur molluleg hitasvækja sem vakti með honum ógleði. Sérkennileg nótt! Það var eins og ekkert væri á lífi. Engin sjáanleg ský á himnum, enginn fugl sem tísti og vindurinn bærðist ei. Og innra með honum var eitthvað sem hann gat ekki losað sig við, eitthvað sem gerjaðist eins og ólögulegur sveppur sem hægt væri að eyða í dag en myndi svo skjóta upp kollinum enn stærri á morgun. Hann hafði á tilfinningunni að eitthvað gæti komið honum til hjálpar en hann vissi líka að það myndi ekki gerast. Það var of seint núna. Var þá enga hjálp að fá? Nei … það myndu allir hlæja eða gera grín að honum. Enginn gæti fundið lausnarorðið sem þyrfti til þess að leysa þann hnút sem ver- öldin öll var komin í þessa nótt. Allir myndu láta hann fara án þessa orðs sem hann kunni ekki sjálfur. Hann var þurr í hálsinum og þjáðist í dauðans angist en hann stóð kyrr sljór og beygður eins og ekkert væri að gerast. Því allt var til einskis. Sérkennileg nótt! – Hann strauk hendinni yfir hárið sem var klesst og blautt. Yrði hann gráhærður á morgun? Yrði þessi nótt brennimerki lífs hans? Gætu menn séð að tuttugu eða þrjátíu ár hefðu liðið hjá þessa nótt? * En morgunninn kom eins og ekkert hefði gerst og þegar næturvökunni lauk var kom- inn tími til að vinna. Hár hans var ekki grátt – og andlitið var ekki gult – eins og hjá þeim gamla heima – kraftar hans höfðu ekki dvín- að og hann var hinn sami og í gær. En hugsanirnar voru dauðar, allt líf var dautt, það var aðeins eitt: gjörningurinn. Það sem varð að gerast. Hann sjálfur eða hún. Það kom út á eitt núna. Hann vildi tala við hana fyrst. Það var kannski hægt að bjarga þessu við en hann hélt þó ekki. Þegar kvöldaði sat hann enn á troginu í skógarjaðrinum. Hann beið þolinmóður þar til hann sá hana koma og það var ekki fyrr en hún var komin nálægt honum sem hann reis á fætur. – Almáttugur! … Mér brá svo, æpti hún upp yfir sig. – Þú ert nú líklega ekki hrædd við mig, þú ert hrædd við það sem þú ferð til. Þú skammast þín! – Fyrir hvað ætti ég að skammast mín? – Ég þarf að segja þér nokkuð, sagði hann, án þess að svara nokkuð spurningu hennar, sestu við verðum að tala saman. Hann benti henni á trogið þar sem hann hafði setið. Hún svaraði ekki. – Þú hefur nú verið með mér svo mörg kvöld að þú ert nú líklega ekki bangin við að setjast, sagði hann hásum rómi. Það var eitthvað í andlitinu sem vakti ótta hennar en hún hlýddi. – Ég sest hér, sagði hún og tyllti sér á stein. Hann fékk sér sæti aftur á troginu. – Þig skortir ekki kærasta um þessar mundir, byrjaði hann eftir nokkra þögn. – Ég held það skipti nú engu máli hvað mig skortir eða hvað ég hef, svaraði hún með tilgerðarlegum þóttasvip. – Nú? En það skiptir mig máli. Ekkert svar. Máninn hvarf bak við skógarþykknið þannig að myrkrið var algert. Hann sat og horfði á hana. Hún leit út eins og kaupstaðarbarn, fölleit og uppábúin. Og meðan hann virti hana fyrir sér drógust andlitsvöðvar hans saman og úr svipnum mátti lesa eins konar ógnandi sársauka. Hún hörfaði undan þessu starandi augnaráði. – Ég hef nú líklega ekki ráðið mig í lífstíð- arstarf hjá þér. Hún reyndi að hrista af sér óttann – ég hef fullt leyfi til að gera það sem mér sýnist. – Já, þú hefur það, sagði hann. – En þú hefðir getað komið í Höghultet á laugardagskvöldið eins og ég bað þig, hélt hann áfram eftir nokkra þögn. – Nei. Vegna þess að þessu er lokið núna, sagði hún og horfði í augu hans. Hann lyfti upp hendinni og strauk með handarbakinu yfir höku og munn. Það leið nokkur stund þar til hann svaraði: – En þú vissir að þetta var alvara, sagði hann þá. – Það er ekki alltaf til gagns það sem mað- ur veit! – Nei, það er ekki alltaf til gagns. Hann barði krepptum hnefa í trogið. – Og nú vil ég fara, sagði hún og reyndi að rísa á fætur. – Nei, þú verður kyrr, sagði hann og stjak- aði við henni þannig að hún settist niður. – Ég botna ekkert í því hvað er með þig í kvöld, sagði hún óörugg. – Það sem er með mig er að nú er komið að því að það verður annaðhvort eða okkar á milli. – Það getur aðeins farið á einn veg. Ég er ekki lengur með þér. – En þú getur verið með honum, hann benti í átt að aðalbyggingunni, þú getur ver- ið með Per Ols Henrik og þú getur verið með öðrum. – Þú lýgur! – Er það, geri ég það? Hún reyndi aftur að rísa á fætur en hann þeytti henni til baka þannig að hún varð að beita höndunum fyrir sig til þess að detta ekki. – Jesús minn, hvað er eiginlega að þér! hrópaði hún hálfkæfðum rómi. Hún var nú orðin svo hrædd að hún skalf. Skuggi karlmanns leið framhjá aðalbygg- ingunni og hvarf inn í lágvaxinn skóginn handan garðsins. Þau sáu hann bæði. – Hvað ímyndar þú þér að herramaður eins og hann vilji stelpu eins og þig? En ég vil giftast þér, ég! – Takk – það verður að bíða. – Og ef þú hefur lent í einhverju þá skal ég samt giftast þér, hvíslaði hann æstur. Hinn gæti verið það nálægt að hann heyrði orðin ef þau voru sögð of hátt. – Og eignast tengdaföður sem setið hefur inni! Flott ætt það. Ef hann hefði viljað berja hana núna gæti hún bara hrópað á hjálp. En hann sýndi enga slíka takta. Hann kipptist aðeins til eins og hann sjálfur hefði verið sleginn. – Pabbi var fullur og vitlaus, þú veist það, svaraði hann næstum því feimnislega. Við erum með svo ólgandi blóð. Afhausum, sé gert eitthvað á okkar hlut. Þetta – með föður minn – hefur verið mér nógu erfitt þótt þú þurfir ekki að vera að minna á það. – Það er ekki hægt að hvítþvo sig af slíku? – Það er mikið sem er ekki hægt að hvítþvo sig af eftir að maður hefur lent í því. – Bænadagatextana fáum við fjórum sinn- um á ári og það er meira en svo að það nægi. Nú reis hún á fætur að nýju og hann lét hana standa en greip fast um úlnliði hennar. – Þú hefðir ekki þurft að byrja ef þú hefðir ekki viljað mig! Nú verður það að vera eins og það var. Hún reyndi árangurslaust að losa sig úr greip hans. – Og ef þú getur það ekki, hélt hann ákveðinn áfram, vertu mér þá góð aðeins í kvöld eins og áður. Mér verður svo órótt inn- anbrjósts þegar ég hugsa um það hvernig við tvö höfum haft það saman … Hversu oft ég hef setið hér við göngu- brúna og beðið þín … Ef þú hefðir betlað hjartað úr brjóstinu á mér hefði ég sagt já, taktu það. – Ég læt mér nægja minna. – Þú ættir ekki að nota þennan tón. Þú veist ekki hvað býr innra með mér. – Það er kannski ekki þess virði að vita það. Hann var risinn á fætur. Hann starði á hana en augu hennar viku undan stingandi augnaráði hans. Honum fannst að hún ætti að skynja að hann vildi fremur fara burt og deyja en gera henni mein, ef hún bara vildi tala blíðlega til hans með einu orði. Honum fannst eins og hún yrði að skilja það. Þess vegna stóð hann og horfði á hana. Það er sama hvað hann segði, svar hennar yrði alltaf háð. – Þú ert eina manneskjan sem mér hefur þótt vænt um, sagði hann bara, og við sjáumst kannski aldrei framar. – Ertu að reyna að telja mér trú um að þú ætlir að hengja þig? sagði hún háðslega og hló áhyggjulaust. Hún vissi jú alveg að hér væri aðeins um vindhögg að ræða. – Það – eða kannski eitthvað annað. Rödd hans var orðin hás og ógreinileg. – Þá vil ég gefa þér gott ráð, sagði hún og litaðist um gegnum runnana eftir einhverj- um sem gæti hjálpað henni. Finndu þér reipi sem borið getur ungnaut og komdu því þannig fyrir að það séu ekki neinir hnútar á því. Það er svo létt gert að hengja sig en lifa þó. – Þú ert ekki manneskja – djöfull! Hann heyrði óp gegnum gárugjálfur vatnsins eftir dauft hljóð höggsins, hann hélt áfram að höggva og höggva, hann óttaðist að hlátrasköllin færu aftur að óma það yrði hlegið að þeim sem lifðu þó. En það varð þögn, undarleg þögn. Það var enginn sem hló lengur. Einhver kom á harðahlaupum þannig að greinar brotnuðu og hann sá eitthvað sem lá á jörðunni. Þeir stóðu tveir og störðu á hann. Kenn- arinn og einn af vinnumönnunum, nú þekkti hann þá. Hann náði aftur áttum. – Farið með mig til lénsmanns, sagði hann og henti hnífnum frá sér um leið og andlit hans afmyndaðist af ógleði, en engin iðrun mun fylgja þessu verki. Morgunblaðið/Þorkell Þröstur Leo Gunnarsson og Guðrún S. Gísladóttir í hlutverkum Georgs Brandesar og Viktoríu Benedictsson í leikriti Ólafs Hauks Símonarsonar. Elísabet Brekkan þýddi.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.