Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 15

Lesbók Morgunblaðsins - 14.09.2002, Side 15
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 14. SEPTEMBER 2002 15 MYNDLIST Gallerí Skuggi: Kimmo Schroderus og Charlottu Mickelsson. Til 29. okt. Gallerí Sævars Karls: Ólöf Björg Björnsdóttir. Til 26.9. Gerðarsafn: Sigtryggur Bjarni Baldurs- son, Pétur Már Pétursson og Jónas Bragi Jónassonar. Til 29.9. Gerðuberg: Við – öðruvísi samtímaheim- ildir. Til 22.9. Hafnarborg: Eiríkur Smith. Til 7. okt. Hús málaranna, Eiðistorgi: Rúna Gísla- dóttir og Messíana Tómasdóttir. Til 22.9. i8, Klapparstíg 33: Helgi Þorgils Frið- jónsson/Kristinn G. Harðarson. Til 12. okt. Listasafn Akureyrar: Hollensk myndlist frá 17. öld. Olga Bergmann. Til 27. okt. Listasafn ASÍ: Guðrún Hrönn Ragnars- dóttir og Kristveig Halldórsdóttir. Til 22.9. Listasafn Borgarness: Sögusýning Rót- arýklúbbs Borgarness. Til 2. okt. Listasafn Einars Jónssonar: Opið alla daga kl. 14–18, nema mánudaga. Listasafn Íslands: Ljósmyndir úr safni Moderna Museet. Til 3. nóv. Listasafn Reykjanesbæjar: Einar Gari- baldi Eiríksson. Til 20. okt. Listasafn Rvíkur – Ásmundars: Listin meðal fólksins. Til 31. des. Listasafn Rvíkur – Hafnarhús: MHR-30 – afmælissýning. Til 6. okt. Listasafn Reykjavíkur – Kjarvalsstaðir: Arne Jacobsen – Hönnun í hundrað ár. Til 17. okt. Arkitektarnir Arno Lederer, Jórunn Ragnarsdóttir og Mark Oei. Til 27. okt. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar: Sumarsýningin Hin hreinu form. Til 22.9. Listasalurinn Man, Skólavörðustíg: Haukur Dór. Til 17.9. Listasetrið Kirkjuhvoli Akranesi: Margrét og Guðbjörg Hákonardætur. Til 29.9. Listhús Ófeigs: Eero Lintusaari og Harri Syrjanen. Til 25.9. Norræna húsið: Clockwise – Ný norræn samtímalist. Til 20. okt. Götulistaverk Kajols. Til 22.9. Nýlistasafnið, Vatnsstíg 3B: Grasrót 2002. Til 29.9. Ráðhús Reykjavíkur: Ulla Tarp Danielsen. Til 23.9. Safnasafnið, Svalbarðsströnd: Átta sýningar á alþýðulist. Til 15.9. Skaftfell, menningarmiðstöð: Farandsýningin Ferðafuða. Til 23.9. Skálholtsskóli: Benedikt Gunnarsson. Til 1. okt. Straumur, Hafnarfirði: Danny van Walsum og Elva Dögg Krist- insdóttir. Til 29.9. Þjóðarbókhlaða: Yfirlitssýning á verkum Laxness. Til 31. des. Þjóðmenningarhúsið: Landafundir. Ljósmyndir úr Fox-leið- angrinum. Vestur-Íslenskar bókmennt- ir. Skákeinvígi aldarinnar. Upplýsingamiðstöð myndlistar: www.umm.is undir Fréttir. TÓNLIST Sunnudagur Hafnarborg: Contrasti. Kl. 20. Hjallakirkja, Kópavogi: Kári Þormar, organisti. Kl. 15. Salurinn: Djassbandið Japonijazz. Kl. 21. Mánudagur Bústaðakirkja: Gospeltónleikar: Þóra Stefánsdóttir söngur, Óskar Einarsson píanó. Gosp- elkór Reykjavíkur. Kl. 20:30. Hafnarborg: Styrktartónleikar Kórs Flensborgar- skóla. Kl. 20. Þriðjudagur Tónlistarskóli Garðabæjar: Sigurgeir Agnarsson selló og Hannelott Weigelt-Pross píanó. Kl. 20. LEIKLIST Þjóðleikhúsið: Jón Oddur og Jón Bjarni, sun. Viktoría og Georg, frums. lau. Sun., fös. Borgarleikhúsið: Kryddlegin hjörtu, lau. Með vífið í lúk- unum, sun. Gesturinn, lau. Iðnó: Beyglur með öllu, fös., fim. Íslenska óperan: Rakarinn í Sevilla, frums. fös. Hafnarfjarðarleikhúsið: Sellófon, lau., sun., mán., mið., fim., fös. Loftkastalinn: Fullkomið brúðkaup, fim. MENNING LISTIR N Æ S T U V I K U S AGA ljósmyndarinnar frá upp- hafi miðilsins og fram á síðustu öld er viðfangsefni sýningar- innar „Þrá augans“ sem opnuð verður í Listasafni Íslands kl. 14 í dag. Sýningin hefur áður verið sett upp í listasöfnum í Prag, Vilnius, Litháen og Kaupmannahöfn, en hún er hingað komin frá Moderna Museet í Stokkhólmi. Verkin á sýningunni eru öll í eigu Moderna Museet sem hefur m.a. sérhæft sig í söfnun ljósmynda og er þar að finna verk eftir marga helstu frumkvöðla í sögu ljósmyndarinnar. Sýningin lýsir mikilvægustu þróunarskeiðum ljósmyndarinnar frá um 1840 en á henni eru rúmlega 200 frummyndir um 50 ljósmyndara. Leif Wigh er deildarstjóri ljósmyndadeildar Moderna Museet og er hann hingað kominn til að verða við opnun sýningarinnar hér á landi. Hann mun jafnframt flytja fyrirlestur um sýn- inguna kl. 16 á opnunardag. Blaðamaður slóst í för með Leif um sali safnsins þar sem finna má frummyndir ljós- mynda allt frá árinu 1845 til verka eftir ljós- myndara á borð við J.M. Cameron, Alfred Stieglitz, Man Ray, Henri Cartier-Bresson og Imogen Cunningham. Sýningin hefur verið sett upp í fjórum sölum sem hver um sig fjallar um ólíkt tímabil í sögu ljósmyndarinnar sem miðils. „Tímabilið sem við tökum fyrir nær allt frá miðri 19. öld til 1985. Eftir það fór svo mikið að gerast í ljós- mynduninni og yrði tímabilið fram til dagsins í dag of viðamikið fyrir sýningu á borð við þessa. Frumkvöðlarnir og ný sjónarhorn Í aðalsal safnsins sýnum við mjög gamlar frummyndir ljósmynda. Þar ber fyrst að nefna ljósmyndir eftir Skotana Robert Adamson og David Octavius Hill, sá fyrrnefndi var efna- fræðingur en sá síðarnefndi þekktur listmálari og urðu þeir miklir frumkvöðlar í þróun ljós- myndalistarinnar. Moderna Museet á frumein- tök af ljósmyndum þeirra af Edinborg frá fimmta áratugi 19. aldar, en þar er um að ræða svokallaðar saltpappírsljósmyndir. Þessar myndir eru sýndar ásamt negatívum, sem teknar voru á pappír í þá daga, sem þrykkt var eftir í mjög viðkvæmu ferli,“ segir Leif. Kyrra- lífsmyndir ýmiss konar eru viðfangsefni frum- kvöðla ljósmyndunarinnar. Í salnum eru myndir eftir Juliu Margaret Cameron en hún þróaði mjög ljóðrænan stíl í sínum portrett- ljósmyndum sem sett hafa mark á söguna. Þá er að finna nokkuð af ferða- og landslagsmynd- um eftir ljósmyndara á borð við Charleton Watkins sem ferðaðist um Kaliforníu og mynd- aði á risglerplötur, en glerið hafð þá tekið við af pappírnum við ljósnámið. „Í salnum er jafn- framt að finna ljósmyndir sem Roger Fenton tók á vettvangi Krímstríðsins og portrett- myndir Frakkans Nadar af Charles Baudel- aire, Söru Bernhardt og George Sand í París,“ bendir Leif á. Í öðrum sal sýningarinnar eru verk frá fyrstu áratugum tuttugstu aldar. „Í salnum eru annars vegar verk sem dæmigerð voru fyr- ir piktoríalisma fyrstu tveggja áratuga aldar- innar. Undir hann heyrðu ljósmyndarar á borð við Gertrude Käsbier, Heinrich Kühn og Alf- red Stieglitz og hneigðust þeir til þess að líta um öxl í sínum verkum og reyna að fanga and- rúmsloft eldri ljósmyndaverka, þó að tæknin væri farin að bjóða upp á aðra möguleika. Á móti þessum myndum er síðan stillt verkum eftir frumkvöðla nýju hlutlægninnar í Þýska- landi. Þetta eru ljósmyndarar á borð við Albert Renger-Patzsch, Werner Mantz og Piet Zwart. Þessir ljósmyndarar nálguðust við- fangsefni sína á allt annan hátt en gert hafði verið, fóru inn í þau og mynduðu nálægt, litu á óvenjuleg sjónarhorn, skoðuðu hluti í geometr- ísku samhengi og drógu fram hluti úr hvers- dagsumhverfinu. Þessari stefnu hefur verið lýst sem lofgerð ljósmyndalistarinnar til véla og hluta. Þetta var líka sá tími sem ólík svið at- vinnulífs, s.s. auglýsingastofur og fyrirtæki, voru að uppgötva ljósmyndalistina og hvernig hægt væri að nýta þetta listform á ólíkan hátt,“ segir Leif. Samverkun ljósmyndunar og málverksins Á efri hæð listasafnsins er að finna verk ljós- myndara sem tengdir voru framúrstefnuhóp- um í París á þriðja áratugnum. Meðal þeirra var Man Ray sem uppgötvaði ásamt Berenice Abbott aldamótaljósmyndarann Eugene Atg- et. „Á sýningunni er fræg ljósmynd eftir Atget er sýnir fólk fylgjast með sólmyrkva í París. Þessi mynd og fleiri eftir Abbott hafði áhrif á það sem ljósmyndararnir voru að gera sem söfnuðust saman á vinnustofu Man Ray,“ bendir Leif á. Í salnum eru einnig verk eftir ljósmyndarana Bill Brandt, Henri Cart- ier-Bresson, Helen Levitt og Ralph Gibson. „Sýningin er nefnd eftir frægri ljósmynd Brands sem þar er að finna, þ.e., „Þrá augans“. Titilinn vísar til tjáningu ljósmyndarans ann- ars vegar og ástríðu ljósmyndasafnarans hins vegar. Safneign Moderna Museet er byggð á tveimur einkasöfnum sem sænska ríkið eign- aðist árið 1964 og ’65, annars vegar tvítakasafn Helmuts Gernsheims og ljósmyndasögusafn Helmers Bäckströms. Það má ekki gleyma ástríðu safnarans og innsýn þeirra kynslóða sem varðveita og skilgreina verk ljósmyndar- anna sjálfra, þegar vísað er til sögu ljósmynd- arinnar. Berenice Abbott, aðstoðarmaður Man Ray, vann t.d. mikilvægt starf við að kaupa og safna saman verkum og filmum Mans Rays að honum látnum,“ segir Leif. Í salnum á efstu hæð Listasafns Íslands eru verk eftir bandarísku módernistana, Paul Strand, Ansel Adams, Edward Weston, Imo- gen Cunningham, Harry Callahan og Arnold Newman. „Þessir ljósmyndarar höfðu mikil áhrif á síðari kynslóðir, ekki síst Imogen Cunningham og Ralph Gibson sem er yngsti ljósmyndarinn á sýningunni. Í þessum sal má einnig sjá hvernig það sem var að gerast í mál- verkinu í Evrópu hafði áhrif á þessa ljósmynd- ara. Þeir notuðust við geómetrísk mótvíf sem sótt voru til málverksins. Þannig má á sýning- unni lesa í það samband sem ríkt hefur milli ljósmyndunar og nútímalista á 19. og 20. öld, ekki síður en áhrif og samspils ólíkra ljós- myndara innan sögunnar,“ segir Leif Wigh að lokum. Viðamikil fræðsludagskrá verður tengd sýn- ingunni „Þrá augans“ þar sem sérfræðingar á sviði ljósmyndunar halda fyrirlestra og veita leiðsögn, þ.e. Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri hjá Listasafni Íslands, Einar Falur Ingólfsson, myndstjóri Morgunblaðsins, og Hanna Guð- laug Guðmundsdóttir, listfræðingur og safn- vörður hjá Ljósmyndasafni Reykjavíkur. Í fræðsludagskránni verða sýndar heimildar- myndir um ljósmyndarana Annie Leibovitz, Paul Strand, Edward Steichen, Gordon Parks, Per Folkver, Helmut Newton og W. Eugene Smith. Þá verður starfrækt vinnustofa barna í tengslum við sýninguna. Nánari upplýsingar um fræðsludagskrána er að finna á vefsíðu Listasafns Íslands. Þrá augans nefnist sýning um sögu ljósmyndarinnar sem opnuð verður í Listasafni Íslands í dag, en þar er að finna ljósmyndir eftir marga af áhrifamestu ljósmynd- urum sögunnar. Sýningin er hingað komin frá Moderna Museet í Stokkhólmi og ræddi HEIÐA JÓHANNSDÓTTIR við Leif Wigh deildarstjóra. Pelikanahöfuð, 1925. Ljósmynd eftir Albert Renger-Patzsch. Myndin er dæmi um þær nýju nálg- anir við viðfangsefnið sem komu fram hjá frumkvöðlum „nýju hlutlægninnar“ í ljósmyndun. Rayograph, 1923/70. Ljósmynd eftir Man Ray, einn af áhrifamestu súrrealistunum. ÁSTRÍÐA LJÓS- MYNDARANS Fjalladís, 1866. Ljósmynd í ljóðrænum stíl Juliu Margaret Cameron (1815–1879). heida@mbl.is

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.