Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Side 4

Lesbók Morgunblaðsins - 19.10.2002, Side 4
4 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ˜ MENNING/LISTIR 19. OKTÓBER 2002 Í MORGUN fékk ég fluguauglýsingu frá Flugleiðum um „lucky fares“ til nokk- urra Evrópuborga fyrir viðskiptavini Flugleiða í Bretlandi og gildir tilboðið fyrir tvo. Af gömlum vana renndi ég í gegnum auglýsinguna í leit að kynferð- islegri tilvísun, svona í anda þess að hafa „tvær í takinu“ en það var tilboð fyrir íslenska viðskiptavini til tveggja Evrópu- borga. En nú brá svo við að í auglýsingunni var fátt um neðanbeltisbrandara, þó að vissulega sjáist til gamalla kunningja eins og djamm- arans Sebastian (en í tilboði frá 7. ágúst 2002 hefur komið fram að hann er gefinn fyrir ljós- kur og ferðast því til Reykjavíkur). Svo eyddi ég flugunni. Allur skilningur er misskilningur: eða var það öfugt? Þetta byrjaði allt með voðalegum misskiln- ingi og kvenlegri fákunnáttu: eða kannski karl- mannlegri ævintýraþrá? Þegar ég skráði mig í netklúbb Flugleiða var ferðavonin svo gífurleg að ég merkti við allt sem hægt var að merkja við og það var ekki fyrr en auglýsingum á frönsku, þýsku, hollensku og ensku fór að rigna inn í flugnahólfið mitt, með þessum líka fínu tilboðum um flug til Íslands, að ég áttaði mig á að ég hafði merkt í gríð og erg við staði sem ég ætlaði að fljúga frá en ekki til. Og áður en ég hafði náð að afboða þessi freistandi – en ómögulegu – áflog, tók ég eftir því að auglýs- ingar þessar voru giska áhugaverðar fyrir margar sakir. Brjóstahaldarar ekki nauðsynlegir Söfnunaráráttan fór þó ekki á flug fyrr en ég fylgdi slóð sem gefin var upp í auglýsingu 3. apríl 2001, en þar var áhugasömum ferðalöng- um til Íslands bent á að kynna sér grein með heitinu „Iceland’s beauties beckon“ sem birt var í netútgáfu USA Today, 30.3. 2001 (www.usatoday.com). Um þessa grein hef ég fjallað í tímaritinu Veru 2: 2002, en greinin fjallar um hópferð bandarískra karlmanna á fegurðarsamkeppnina Ungfrú Ísland.is. Grein- arhöfundur leggur konurnar markvisst að jöfnu við náttúruauðlindir Íslands, talar um konurnar sem þekktustu náttúruundur lands- ins, kinnbein þeirra gætu hoggið ís og líkam- arnir svo náttúrulega stinnir og stæltir að brjóstahaldarar eru spurning um val, ekki þörf. Í samtölum við karlana verður ljóst að þeir álíta íslenska náttúru ábyrga fyrir fegurð- inni, engin sól til að hrukka húðina, ómengað vatn og fiskmeti bera sameiginlega ábyrgð á hinni óbeisluðu fegurð kvennanna, sem þó reyndust ekki fylgja ‘náttúru’ sinni eins óhikað og þeir höfðu vonað. Í víking Önnur ástæða fyrir hinni geislandi fegurð kvennanna var góð ræktun: víkingarnir sem námu hér land frá og með árinu 874 komu nefnilega við á Bretlandseyjum og tíndu þar til allan álitlegan kvenpening. Með þessu hófust náttúrulegar kynbætur, því þrátt fyrir að fáum sögum fari af útlitsfegurð karlanna þá hafa kvengenin greinilega reynst vel – þó ekki í öll- um tilfellum, því ekki stoppa allar íslenskar konur umferð. Allt ber því að sama brunni, Ís- land er landið sem varðveitir Náttúruna með stórum staf, hvort sem það er í sögu, (kven) þjóð eða landgæðum. Sumarið 1998 skrifaði ég kjallaragrein í DV, þarsem ég velti því fyrir mér hvort ekki mætti markaðssetja Ísland á markvissari hátt á þess- um nótum. Pistilinn kallaði ég „Karl-eyju“ og þar vitnaði ég til ummæla Dana sem eru orðnir dauðleiðir á Íslendingum en þeim mun hrifnari af Íslandi sjálfu. „Þetta þykir mjög karlmann- legt,“ var mér sagt „allt þetta með snjósleða, jökla, jeppa og svaðilfarir.“ Og þá laukst upp fyrir mér að rómantíska klisjan um kvengerv- ingu náttúrunnar er alls ekki liðin undir lok. Erlendir karlmenn sjá eyjuna ekki einungis sem uppsprettu fagurra kvenna, heldur líta á landið allt sem kvenlegt, einskonar óspjallaða náttúru sem þeir verða að sigrast á. Og ekki spillir að óspjallaða náttúran býður upp á dá- litlar hættur. Mér fannst þetta strax kjörið fyr- ir íslenska ferðamannaþjónustu að gera útá og benti á að nú ætti að auglýsa Ísland sem þema- land fyrir karlmennsku. Hingað gætu karlar komið og hlýtt kalli náttúrunnar, lagst út, vandlega útbúnir stórdekkjuðum jeppum og kraftmiklum snjósleðum og í krafti þessara tækja, og hinnar kraftmiklu náttúru, upplifað sig sem kraftakarla. Komið svo heim í hús, temmilega lerkaðir og reynslunni ríkari, og skellt sér beint út á lífið og drukkið íslenskt Brennivín með stórkarlalegum aðförum. Vík- ingaarfurinn er lykilatriði hér, því víkingurinn er sjálf táknmynd karlmennskunnar. Ekki hvarflaði að mér, í algleymi háðsádeil- unnar, að ég myndi verða tekin á orðinu. Náttúrulega svalt Það er í sjálfu sér áhugavert hvað þessi hug- mynd um Ísland sem ferðamannaparadís er að verða sjálfsögð, því ekki hefði nokkrum dottið til hugar að Ísland væri vænlegur áfangastað- ur fyrir nokkrum árum. Dæmi um hvernig ferðamannaminnið kemur víða fram er að finna í bréfi frá í fyrra sem Edda: miðlun og út- gáfa sendi völdum viðskiptavinum til að kynna ritröðina Íslands þúsund ár. Bréfið hefst svo: „Það kemur eflaust fyrir flesta sem ætla að leggja land undir fót að hrista höfuðið yfir hefðbundnum ferðamannastöðum, segja sem svo að þeir ætli að forðast þá og halda sér utan alfaraleiða. En komi menn síðan til þessara staða, hafa þeir einatt til að bera þann kraft og þá töfra sem skýra hversvegna svo margir vilja líta þá eigin augum. Það sama má segja um sí- gild bókmenntaverk.“ Ísland, sögueyjan sjálf, virðist stundum taka á sig þetta form sígilds bókmenntaverks í hug- um erlendra gesta sem koma hér í leit að vík- ingum, hryssingslegri náttúru og skapheitum ljóshærðum valkyrjum. Lítum á hvernig ferða- mannaparadísin Ísland í dag lítur út sam- kvæmt Flugleiðum, hverjir eru þessir hefð- bundnu ferðamannastaðir sem bera slíkan kraft og töfra að þá ber að líta eigin augum. Þrátt fyrir að náttúran sé ávallt nálæg þá vill svo til að íslenskt næturlíf er mest áberandi í fluguauglýsingunum og líkt og kvenleg fegurð er náttúruafurð birtist næturlífið sem einskon- ar náttúruafl. 10. maí 2001: „Búmm! út að skemmta sér á götum Reykjavíkur, skjótast á milli partía og bara, bjórs og pylsu með öllu.“ Breski dansklúbburinn Cream, Sigur Rós og Rammstein auka enn á fjölbreytnina, „og hey… við erum með miða!!!“ Þrípunktar skapa eftirvæntingu og upphrópunarmerki æsing, og eru þess stílbrögð ofnotuð til að leggja áherslu á afslappað tungutak. „Eins og við töluðum um í síðustu auglýsingu þá byrjar nóttin aldrei al- mennilega á Íslandi á sumrin; dagurinn fjarar út í átta tíma dularfull ljósaskipti, bara til að byrja upp á nýtt. Svo þú ferð inn á bar í kvöld- sólinni seint á laugardagskvöldi, skokkar yfir á einhvern klúbb undir sláandi bleikum og app- elsínugulum himni um miðnættið, bara til að koma út í glampandi sólina um morguninn…“ Tilboðið er kallað „Reykjavík rokkar“ og innifalið í því er Jónsmessunótt í Bláa lóninu. Það er greinilega nokkuð sem ekki má missa af því ekki aðeins er boðið upp á að dýfa sér í hið einstaka náttúruundur sem lónið er (orðið ein- stakt kemur fyrir þrisvar í sjö línum), heldur færðu líka að njóta lifandi tónlistar, léttrar hreyfingar, miðnæturgönguferðar, spennandi matseðils og afslappandi nudds. Og svo er bál. Ekki veitir af hitanum, því í ljós kemur að Ís- lendingar trúa á heilunaráhrif Jónsmessu- daggar og sumir velta sér um naktir í henni meðan aðrir bera hana á sig og lofa henni að þorna náttúrulega á húðinni. Í tilefni þessa mun Bláa lónið útbúa sérstakt svæði þarsem gestir geta notið krafta Jónsmessudaggarinn- ar. Auglýsingin endar svo á stórkostlegu freudísku mismæli, en þar er sagt að hver mat- seðill verði sérsniðin þjónustustúlka („tailor maid“ en ekki „made“) eftir því hvaða tími dagsins er. Svipuð auglýsing birtist á ný fyrir Jónsmessu 2002, og hefst á orðunum að „þar- sem við njótum lengsta dags ársins hér á norð- lægum slóðum virðast sumir nota hann sem af- sökun til að gera óvenjulega hluti“, eins og til dæmis „að velta sér nakinn upp úr morgun- dögginni“. Það verður að segjast að textahöfundar Flugleiða eru hreint ótrúlega lúnknir við að tengja náttúru landsins við næturlíf og gefa svo öllu saman kynferðislega undirtóna (þótt það virðist ekki allaf vera viljandi). 3. maí 2001 er vitnað í fræg ummæli Damons Albarn sem segir um Íslendinga: „Þeir fara út á miðnætti, drekka alla nóttina, dansa eins og óðir og svo… þetta er frábært!“ Býstu við að Reykjavík sé gamalt, friðsælt fiskiþorp, sem hniprar sig í rökkrinu við heimskautsbaug? „Ef svo er – reyndu aftur!! Nú þegar sólin skín alla nóttina er hún björt og kraftmikil allan sólarhringinn og Íslendingarnir bara geta ekki verið kyrr- ir…“ Og 5. september: „Getur þú nefnt land, einungis í þriggja tíma fjarlægð frá Bretlandi þarsem þú getur lifað dögum saman á adr- enalíni? Þar sem þú getur prófað flúðasigingu, ekið snjósleða á jökli, veitt fisk neðansjávar, siglt á jökullóni, farið á hestbak, spilað golf á miðnætti og notið stórkostlegs næturlífs?“ Í þessari auglýsingu er síðan vitnað í veftímarit- ið Icelandculture.com (styrkt af Flugleiðum) en þar fá ferðamenn að kynnast annarri hlið á Íslandi að sögn textahöfundar. Því „það er ekki allt bara jöklar, fossar og náttúra. Búa Íslend- ingar í snjóhúsum og eru allar íslenskar stelp- ur 1.80, ljóshærðar og bláeygðar? Finndu út allt um tískuna á Íslandi og hvað er að gerast í listum, tónlist, hönnun og síðast en ekki síst hinu alræmda næturlífi.“ Til þessarar vefsíðu er víða vísað í auglýsingunum, en 3. apríl 2002 er bent á að á vefsíðunni fari fram það sem kallað var „ljóta rökræðan“, en hún fór að því er virðist af stað í kjölfar greinarinnar um Ungfrú Ísland.is þarsem áhugasamir ræddu einmitt þessar víkinglegu kynbætur íslensku kvennanna, og hversu fallegar þær væru í sam- anburði við nágrannaþjóðirnar, Skota og Breta. Í ágúst 2002 er tilboðshafa vísað á Ice- landculture.com til að skoða frakkar myndir af fyrrverandi söngkonu gusgus, Hafdísi Huld. Það er því nokkuð ljóst að ævintýralandið Ís- land, með sínum svaðilförum og ólifnaði, hent- ar fyrst og fremst karlmönnum, því varla eru það meira en 15% kvenna sem hafa áhuga á því að taka þátt í umræðu um það hvort allar ís- lenskar konur séu afkomendur ambátta, séu 1.80 og ljóshærðar, eða því að skoða frakkar myndir af Hafdísi Huld. Staðgengill ferða- langsins, Sebastian, bendir einnig til að mark- hópurinn sé karlkyns. 10. október 2001: Nýr pakki frá Flugleiðum í kjölfar auglýsinganna í neðanjarðarlestar- stöðvum London (hinar frægu „Dirty Week- end“-auglýsingar), „þemað er byggt á íslenskri útgáfu af gömlum frökkum póstkortum frá ensku sjávarsíðunni“. Nokkrar ferðir eru í pakkanum: „Dansaðu brjálæðislega“ er fyrir þá sem vilja stunda næturlífið, „Dirty Week- end“ ef þú vilt sulla í drullunni í Bláa lóninu og „Útreiðartúr á asna“ er einnig í boði fyrir þá sem vilja öðlast þá einstöku súrrelísku ánægju að ríða um hraunbreiður, en ýmist er íslenski hesturinn kallaður asni, „pony“ (smáhestur), eða víkingahestur. Að lokum er boðið uppá ís- lenskan mat eins og hann gerist bestur, en þetta matarþema á eftir að birtast aftur í aug- lýsingum frá janúar og febrúar 2002 um þorra- blót, sem álitin eru mjög skuggaleg, enda leika hrútseistu þar lykilhlutverk. 19. janúar 2002 er NÁTTÚRULEGA SVALT ÍSLENSK NÁTTÚRA, NÆTURLÍF OG NAUTNIR Í BOÐI FLUGLEIÐA E F T I R Ú L F H I L D I D A G S D Ó T T U R „Ísland í dag eins og það birtist í fluguauglýsingum Flugleiða er exótískt ævintýraland sem býður sam- tímis upp á æsandi og villta og umfram allt hreina náttúru (snjósleða- og jeppaferðir), æst næturlíf (drykkja og lausgirt samskipti) og linnulaust nautnalíf (í Bláa lóninu og óhóflegum matarveislum). Landið er byggt sérviskulegri og siðspilltri þjóð sem trúir á hé- giljur (veltir sér nakin uppúr Jónsmessudögg) og stundar skefjalausan ólifnað. Er þetta landið þitt?“ Morgunblaðið/RAX „Náttúran er í auknum mæli færð í táknrænan búning, sem náttúruauðlind, sem tákn fyrir þjóð, sem tákn fyrir hreinleika.“ Í Kringilsárrana.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.