Pressan - 30.09.1988, Page 1
5. tbl. 1. árg. 30. sept. 1988. Verð kr. 100.
Mistök við meðferð þurrmjólkur á fœðingardeild Landspítalans
Þrjú börn sýktust alvarlega á vökudeild
Landspítalans cí síðasta ári vegna þess að
þurrmjólkurblanda var ekki meðhöndluð á
réttan hátt. Sjaldgœf og hœttu/eg baktería
fannst íþurrmjólkurdufti og vegna mistaka
fékk bakterían að fjölga sér í pelunum.
Landlœknirfékk málið í hendur og sendi
heilbrigðisráðherra álitsgerð embœttisins
þar sem segir að ekki hafi verið farið eftir settum reglum við meðferð þurr-
mjólkurinnar. Ráðherra fékk ríkislögmanni má/ið, sem leggur til að ríkið
greiði foreldrum barnanna bœtur vegna þess varanlega skaða sem þau hlutu.
Heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra hafa viðurkennt bótaskyldu ríkis-
sjóðs.
Landlœknir hefur varað sjúkrahús við hœttum af meðferð þurrmjólkur
og Landspítalinn hefur nú stöðvað alla notkun þurrmjólkurdufts og flytur
þess í stað inn dauðhreins-
aða mjólk handa nýburum.
Að sögn sérfrœðinga stafar
engin hœtta af notkun þurr-
mjólkur í heimahúsum.
„Þetta er einstakt dœmi sem
á ekki að geta endurtekið
sig, “ segir landlœknir.
I
G
ulltékki með mynd eykur öryggi þitt,
öryggi viðtakanda og öryggi bankans þíns.
Það fer ekki milli mála hver þú ert.
Sérprentun án aukakostnaðarl
BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
*—
Hi wBm