Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 8
8.
Föstudagur 30. september 1988
.......—
PRESSAN
VIKUBLAD Á FÖSTUDÖGUM
Útgefandi Blað hf. — Alþýðublaðið
Framkvæmdastjóri Hákon Hákonarson
Ritstjóri Jónína Leósdóttir
Auglýsingastjóri Hinrik Gunnar Hilmarsson
Ritstjórn skrifstofur: Ármúla 38, sfmi: 68 18 66. Auglýsingasimi:
68 18 66. Áskrift og dreifing: Ármúla 38, sími 68 18 66. Setning og
umbrot: Filmurog prent. Prentun: Blaöaprent hf.
Áskriftargjald: 400 kr. á mánuði. Áskriftargjald: Pressan og Alþýðu-
blaðið: 800 kr. á mánuði. Verð í lausasölu: 100 kr. eintakið.
Hörmulegur atburður
á Landspítala
Nútímafólk er orðið ýmsu vant hvað varðar fréttir af harm-
leikjum, bæði innan lands og utan. Það líður vart sá mánuð-
ur að við heyrum ekki um eitthvert stórslysið eða aðrar hörnt-
ungar og það venst aldrei — sem betur fer. En sumar fréttir
snerta mann sárar en aðrar. Það er til dæmis alltaf jafnsárt
að fregna af því, þegar börn skaddast á einhvern hátt, hvort
sem það er andlega eða líkamlega og hvort sem þau eru nær
okkur eða fjær. í þessu tölublaði Pressunnar segjum við frá
því alvarlega atviki að þrjú börn sýktust af sjaldgæfri
bakteríu í þurrmjólk á fæðingardeild Landspítalans. Allt
bendir til þess að mjólkurblandan hafi ekki vcrið með-
höndluð samkvæmt leiðbeiningum framleiðandans og það
liafi orsakað sýkinguna. Þetta er mikil sorgarsaga, sem hlýtur
að snerta strengi i brjóstum okkar allra. Það er þó mikilvægt
og þakkarvert að mál þetta upplýstist áður en meiri skaði
hlaust af og nú hafa veriðgerðar ráðstafanir til að fyrirbyggja
að fleiri börn geti sýkst af sömu orsökum. Þurrmjólk er ekki
lengur notuð á Landspítalanum, heldur einungis dauðhreins-
uð og tilbúin mjólk I litlum einingum.
Það er hins vegar nauðsynlegt að hafa í huga að nýburarnir
þrír, sem veiktust hér á íslandi, eru einungis örlítið brotabrot
af öllum þeim milljónum barna, sem nærst hafa á þurrmjólk
og dafnað ljómandi vel. Og ekkert bendir til að um mörg slík
tilvik hafi verið að ræða. Ekki er því um neinn faraldur að
ræða — eða líkur á faraldri — og ofsahræðsla við mjólkur-
duft frá viðurkenndum framleiðendum er þess vegna gjör-
samlega ástæðulaus.
Dapur dagur fyrir
jafnréttissinna
Ný ríkisstjórn hefur tekið við völdum á íslandi. Það eina,
sem kom verulega á óvart við myndun hennar, var ráðherra-
listi Alþýðubandalagsins. Jafnréttissinnar gerðu eflaust
flestir ráð fyrir því að kona yrði meðal ráðherra þessa flokks,
sem hvað harðast hefur deilt á Kvennalistann. Allaballar hafa
jú frá upphafi sagt kvennaframboð algjörlega óþörf og
hamrað á því að í þeirra flokki hefðu konur nákvæmlega
sömu möguleika og karlar. Þar væri það hið eina sanna jafn-
rétti, sem gilti.
En hvað gerist, þegar flokkurinn fær tækifæri til að koma
konu í ráðherrastól? Flokkur, sem hefur þá reglu að leiðar-
ljósi að konur skuli ekki vera undir fjörutíu prósentum í
ábyrgðarstöðum. Hann setur stól undir þrjá karla og gengur
þar með framhjá fjölhæfum og frambærilegum konum, sem
hefðu eflaust staðið sig með ágætum í ráðherraembættum!
Slíkt hlýtur að vera ófyrirgefanlegt í róttækum, jafnréttis-
sinnuðum flokki og gæti átt eftir að draga dilk á eftir sér, ef
allaballakonur eru ekki dauðar úr öllum æðum. Það verður
líka erfitt fyrir þingmenn flokksins að hlaupa upp í ræðustól
á sama hátt og áður og lýsa velþóknun sinni á málflutningi
Kvennalistaþingmanna, taka þar undir hvert orð og tárast
jafnvel af eldmóði. Þeir eru búnir að missa niður um sig
buxurnar og standa nú berstrípaðir, því það er ekkert skjól í
þeim rökum að kona hafi ekki komist að sökum þess að ráð-
herrastólarnir voru „bara“ þrír. Kvenmaður hefði nefnilega
„bara“ þurft einn stól!
Fæðing málefnasamnings
m U| H Tr
v i\
Albert: „En Denni, gerðu það, leyfðu mér að vera
með, ég þarf ekkert utanríkisráðuneyti og skítt með
forseta sameinaðs þings — barci smásendiherrastöðu í
París — eða svoleiðis!!??“
hin presscm
„Það er Ijóst að við búum við
vanda hérlendis sem kallast
stjórnvöld.“
— Gunnar Helgi Hálfdánarson
I Morgunblaðinu.
Alusuisse óttast ekki nýju
stjórnina.
— Fyrirsögn I Morgunblaðinu.
„Island á alla mína samúð.“
— Þjálfari Sovétmanna I Morg-
unblaðinu.
Hagkaup segir upp öllu „poka-
fólkinu".
— Fyrirsögn í Morgunblaöinu.'
Svartnættið sem hvilir yfir is-
lenskum handknattleik er ógn-
vekjandi.
— Sigmundur Ó. Steinarsson I
Morgunblaðinu.
„Móðir mín sagði mér að ég
ætti að verða samgönguráðherra
þvi vegirnir úti á landi væru svo
vondir.“
— Steingrimur J. Sigfússon
samgönguráðherra I Þjóðviljan-
um.
Danir sluppu með sigur.
— Fyrirsögn I Þjððviljanum af
sigri Dana á Islendingum I knatt-
spyrnu.
„Mér líst mjög vel á Svavar."
— Birgir ísleifur Gunnarsson,
fráfarandi menntamálaráðherra, í
Tlmanum um eftirmann sinn.
„Ég kemst að þeirri niðurstöðu
að enn séu dreifðar byggðir þessa
lands góður vettvangur mannlegs
og menningarlegs lifs.“
— Kristinn G. Jóhannsson í
Timanum.
Fljótlega sáust tölurnar, 2:6,
á Ijósatövlunni, sem blikkaði
siðan eins og um flugeldasýn-
ingu væri ao ræða.
— íþróttafréttir Morgunblaðsins um leik (slands og Sovétmanna á
Ólympiuleikunum í Seoul.
„Þegar ég sé að
nemendur mínir eru
farnir að blána við
cefingarnar þá veit
ég strax hvað er að. “
— MargrétÓlafsdóttirleikfimi-
kennari í DV.
„Við Borgarar erum svona eins
og falleg hjákona."
-* Albert Guðmundsson I Tím-
anum.
„Þetta er viðkvæmt mál. Ég er
úr Hafnarfirði."
— Siguröur Þórðarson vararík-
isendurskoöandi í Þjóðviljanum
um frammistöðu handboltaliðs-
ins í Seoul.
„Ég var á þeirri skoðun að börn
á Selfossi væru sérstaklega vel
upp alin...“
— Regina Thorarensen í DV.