Pressan - 30.09.1988, Page 14
14
Föstudagur 30. september 1988
Viltu auka
SKRIFSTOFUNÁM
í Tölvuskóla íslands
er hnitmiöaö nám
í skrifstofu-, viðskipta-
og tölvugreinum.
250 stunda nám kostar
aðeins kr. 79.000-
Einn nemandi um hverja tölvu.
Bjóóum einnig upp á fjölda annara tölvunámskeiða.
HÖFÐABAKKA 9 O 671466 O 671482
Á Bflbeltin
^ hafabjargað
Elton verður
geimfari
Söngvarinn Elton John hefur
pantað far með geimflaug fyrir
2,5 milljónir íslenskra króna.
Þegar er byrjað að taka við pönt-
unum frá almenningi, sem vill
komast út í geim, en ferðirnar
hefjast þó ekki fyrr en á næsta
áratug. Tvöhundruö manns frá
fjórtán þjóðlöndum hafa þegar
lagt inn pöntun, þrátt fyrir hinn
gífurlega kostnað. Þetta verður
kannski næsta æðið meöal
uþpanna.
Rétt skal vera
rétt
Móðir Elísabetar Bretadrottn-
ingar er komin til ára sinna.
Nánar tiltekið er hún 88 ára og
lætur auðvitað á sjá með aldrin-
um eins og aðrir. En drottningar-
móðirin tekur ekki í mál að
myndir af henni séu „falsaðar"
með því að slétt sé úr hrukkun-
um á andliti hennar. Þegar hún
var fimmtug harðbannaði hún
hirðljósmyndaranum að gera
sllkar kúnstir, en þær munu
annars algengar hjá fína og/eða
ríka fólkinu. Það er a.m.k. margt
myndað með afskaplega tillits-
sömum linsum. (Við nefnum
engin nöfn og þá síst af öllu
Joan Collins.)
Ný sending af
finnskum kutdafatnaði
a dömur og herra
Jí 5^ 3t=
ÚTILÍFf
Sími 82922
Meryl Streep í
staí Mðdonnu
Mikill slagur hefur staðið
vestanhafs um hlutverk Evitu
Peron í kvikmyndinni, sem á að
gera eftir söngleik Andrews
Lloyd Webber. Á tímabili var það
talið nokkuð öruggt að Ma-
donna hreppti hnossið, enda
mun hún hafa róiö að þvi öllum
árum. En nýjustu fregnir herma
að hin heppna verði engin önnur
en Meryl Streep.
GÚÐAR RtTTlR FYRIR
UNGT FERÐAFÓLK
Flugieiðir hafa' tekið upp sérstaka nýjung í fargjöldum
fyrir ungt fólk á aldrinum 12 til 21 árs í innanlandsflugi. Þessi
unglingafargjöld gilda allt árið og þeim fylgja engar kvaðir um
lágmarksdvöl en hámarksdvöl er eitt ár.
Farmiðarnir eru „stand by“ þannig að ekki er hægt að
bóka sætið fyrirfram og farþegarnir eru háðir því að pláss sé
í vélinni hverju sinni. En það sem mestu máli skiptir: Þeir
sem kaupa unglingafargjöld fá 55% afslátt af ársfargjaldi.
FLUGLEIÐIR ^ - w
Söluskrifstofur, ferðaskrifstofur og umboðsmenn um land allt.