Pressan - 30.09.1988, Blaðsíða 25
Föstudagur 30. september 1988
25
PRESSUMYND: MAGNÚS REYNIR
llDUR EKKI SÁ
DAGUR AÐ ÉG FÁI
EKKISKÆTING
Ætlunin var sú að tala við frægasta strætóbílstjórann
um strætóbílaakstur. Það varð ekki minni hasar þegar
Magnús Skarphéðinsson var rekinn frá Strætisvögnum
Reykjavíkur en þegar átti að reka séra Gunnar Björns-
son úr Fríkirkjunni. En nú er Magnús kominn aftur
undir stýrið á strætó, nú í Kópavoginum, og við vitum
ekki betur en hann keyri þar við góðan orðstír. Áður en
varði vorum við farnir að tala um hluti sem koma strætó
ekki hætishót við — sveitarstjórnarmál, skattheimtu,
frjálshyggju, lífsgæðakapphlaup, músagildrur, fram-
haldslíf, hvali og sögulega ákeyrslu sem Magnús varð
fyrir í marsmánuði. En við byrjum þó alltént á strætó...
„Um árið þegar ég var rekinn
með söng og hljóðfæraslætti frá
Strætisvögnum Reykjavíkur var
það með því fororði að ég væri svo
ónothæfur starfsmaður að ég yrði
að hætta tafarlaust. Ég var álitinn
svo hættulegur að ég fékk ekki einu
sinni að vinna út uppsagnarfrest-
inn. Sumarið eftir fór ég svo að
keyra strætó hjá Kópavogsbæ og er
búinn að vera þar í þrjú sumur. Það
hefur gengið áfalláíaust. Raunar
eru þau ófá þakkarávörpin sem ég
hef fengið.“
— Þii þóttir býsna litríkur
strætóbílstjóri í Reykjavík, ertu
ekki sá skrautlegasti í Kópavogi?
EGILL
HELGASON
„Það hugsa ég. Annars sést það
viða hvílíkur reginmunur er á sveit-
arfélögunum hér sunnan og norðan
við lækinn. Aldraðir fá ókeypis í
strætó í Kópavogi, en þurfa að
greiða farið í Reykjavík. Aldraðir fá
ókeypis í sundlaugar í Kópavogi, en
ekki í Reykjavík. Það eru 2.000
Reykvíkingar sem bíða eftir elli-
heimilisplássi, en enginn í Kópa-
vogi. 1.800 krakkar bíða eftir dag-
heimilisplássi í Reykjavtk, en eng-
inn í Kópavogi. Það er í raun for-
kostuiegt að svona stór sveitarfélög
hlið við hlið geti verið þetta ólík í
grundvallaratriðum. Göturnar eru
allar í klessu i Kópavogi. Þær eru
holóttar og undirlagið meira og
minna ónýtt. Það er ekkert gaman
að keyra þær. í Reykjavik vantar
ekki að þar er stifmalbikað og
gangstéttir steyptar. En félagsmálin
eru öll í ólestri. Það vantar ljósa-
•staura i Kópavogi og mörg skipu-
lagsmál sitja á hakanum, en á fé-
lagsmálunum er fádæma vel og
mannlega haldið.“
— Ætlarðu þá ekki bara að
flytja í Kópavoginn?
„Ég hef oft velt því fyrir mér. Af
prinsíppástæðum ætti ég eiginlega
að flytja lögheimili mitt í Kópavog-
inn og borga útsvarið mitt þar. Mér
finnst satt að segja að allt hugsandi
fólk ætti að flytja lögheimili sitt í
Kópavog, sérstaklega fólk sem á
einhvern pening. Og sérilagi ættu
öll fyrirtæki sem hafa einhverja
hugsjón að vera skrásett I Kópavogi
og greiða aðstöðugjöld þar. Maður
á að verðlauna sveitarfélög fyrir að
fara vel með fólkið sitt.
— Hefurðu nokkuð verið að
keyra Ikarus-vagna þarna í Kópa-
voginum?
„Nei, ég hef ekki gert það. Ég réð
mig upp á býti að ég þyrfti ekki að
keyra slik ökutæki. Það eru hálf-
gerðir hörmungarbílar, enda eru
menn orðnir nokkuð sammála um
það. Jú, þeir eru hreinlega ónýtir.“
MEDLIMUR í FJÖRUTÍU 0G
EITTHVAD FÉLÖGUM
— Hvað liefurðu verið að gera á
veturna, þegar þú ert ekki að keyra
strætó?
„Ég gf í háskólanum. Þegar ég
var rekinn frá Strætó dreif ég mig í
háskólann og er hálfnaður í sagn-
fræðinámi. Námið mætti svosem
ganga hraðar, en það er eiginlega
full vinna hjá mér að hafa skoðanir
á þorskveiðum og hvalveiðum ís-
lendinga."
— Hvernig hefurðu tíma, ertu ekki
meðlimur í fimmtíu félögum?
„Ja, ég er meðlimur í fjörutíu og
eitthvað félögum. En ég hef aldrei
sótt fundi í flestum þeirra og kem
sennilega aldrei þar inn fyrir dyr.
Þetta eru ýmis félög sem mér finnst
sjálfsagt að styðja, til dæmis
Styrktarfélag vangefinna, Styrktar-
félag lamaðra og fatlaðra, Sjálfs-
björg og Krabbameinsfélagið. Mér
finnst að sem flestir íslendingar
ættu að vera í góðum félögum á
borð við þessi, þó ekki væri nema til
að greiða"félagsgjöldin, sem er líka
það eina sem ég legg af mörkum.
1 Þótt ekki væru nema tíu prósent
þjóðarinnar í þessum félögum
myndu þau án efa geta unnið ótrú-
leg þrekvirki á hverju ári.“
— Er þetta ekki dýrt spaug að
►
Magnús Skarphéðinsson
keyrir strætó og reynir að ná
sambandi við önnur
tilverustig.