Pressan - 30.09.1988, Side 28

Pressan - 30.09.1988, Side 28
28 dagbókin hennar dúllu Kœra dagbók. Ég er komin með eitt orð á heil- ann, en skil bara ekkert hvað það þýðir. Það er þessi „millifærsla“, sem stjórnmálamennirnir eru búnir að tuða um í marga daga. Pabbi segir að þetta sé eitthvað með að færa peninga á milli staða, en ég hélt nú að það kallaðist fragtflutn- ingar. Mig langar ægilega til að fá þetta á hreint, vegna þess að þá ntyndi ég vita hvor er lygari, Ólafur Ragnar Grímsson eða Friðrik Sophusson. (Annar er sko kommi og amrna seg- ir að þeir kunni ekki að segja satt, en mamma segir að það séu for- dómar. Henni finnst ekkert verra en fordómar, nema kannski karl- remba... og hávaði á sunnudags- morgnum...) Þessi Friðrik sagði í útvarpinu áðan að millifærslan, sem nýja ríkisstjórnin ætlar að gera, sé HELMINGl MEIRl en l'or- stjórinn hans (hann Þorsteinn, sem ég passaði einu sinni hjá og ömmu l'innst svo fallegur), var að stinga upp á um daginn. En Ólal'ur Ragnar (scm er ráðherra en ekki þingmaður, sem er enn eitt scm ég fatta ekki) sagði rétt áðan i sjón- varpinu að millifærslan, sem á að gera, væri ógeðslega lítil miðað við Þorsteins. Hvernig á maður að vita hvort er rétt, þegar rosalega ntikil- vægir kallar segja sitt á hvað? Ég reyndi að hringja í ömmu á Einimelnum, en það reddaði engu. Hún spurði bara „í hvurslags kreðs- um ert þú eiginlega þessa dagana, Dúlla mín? Ertu byrjuð að vera með rauðhærða Heimdellingnum, sem var eitthvað að sjarma fyrir þér?“ Guuuuð, hún amma! Það kemur ekki orð af viti út úr henni þessa dagana. Mamma heldur að hún sé l'arin að kalka, en pabbi segir að þetta séu bara efnin, sem hún notar við framköllunina. (Hún er nefni- lega enn með Ijósmyndadelluna.) Annars ætti ég ekki að vera að skrifa um pólitíkusa, þegar líf mitt er í rúst. Málið er það, að ég er ást- fangin og það er alveg ferlegt. Ef ég hefði verið almennileg hefði ég náttúrulega orðið skotin í einum gæjanum i B-bekknum, en mér tókst að klúðra því eins og öðru. Ég fór að fá áhuga á enskukennaran- um mínum og núna er ég alveg veik... (Fríða föðursystir er með konunni hans í saumó og hún er víst meiriháttar sæt og myndó, svo þetta er gjörsamlega vonlaust.) Ég er helst að hugsa um að verða sjálf- boðaliði í Afríku og vonast til að smitast af einhverju hræðilegu í „fórnfúsu starl'i í þágu bág- staddra“. (Það myndi örugglega einhver skrifa í minningargrein um mig!) Bless, Dúlla. FÖstudagur 30. septémber 1988 sjúkdómar og fólk Tvíeinn hrotusjúkdómur hjónanna Umtal og dilkadráttur: Fáar stéttir þjóðfélagsins eru eins umtalaðar og læknar. Allir kannast við einhvern lækni, sem hefur einhvern tímann haft eitthvað með þá að gera, lækn- að þá eða reynt það án árangurs. Margir eiga lækni í ættinni eða hafa heyrt einhverjar spennandi sögur um lækna, ævi þeirra, ástir og starfsferil, keypt af þeim bíl, drukk- ið með þeim brennivín á Glaum- bæjarárunum eða spilað við þá golf. Læknar hitta marga í starfi isínu, svo það er ekki að undra, að þeir séu umtalaðir oft á tíðum og dregnir í dilka. Sjúklingarnir skipta þannig Iæknum sínum í marga gæðaflokka eftir framkomu, menntun, ættgöfgi, klæðaburði, læknishæfni og síðast en ekki síst gáfum. Eins og öðrum á íslandi er lækni fyrirgefið allt ef hann telst í meira lagi gáfaður. Á hinn bóginn er það ekki almennt vitað, að lækn- ar skipta sjúklingum sínum í flokka eða hópa líka og fara þá eftir ýmsu. Tvíeinn sjúklingur: Einn hópur sjúklinga er sá, sem ég kalla hinn tvíeina, þ.e. þá fylgir einhver að- standandi með inn á lækningastof- una og síðan talar hann í belg og biðu og oft illmögulegt að átta sig á því hver er sjúkur og hver ekki. Að- standandinn lýsir þá einkennum þess sjúka af mun meiri innlifun en liann gerir sjálfur og virðist þjást meira. Hinn tvíeini sjúklingur getur verið af mörgu tagi, en oftast þó hjón komin yfir miðjan aldur og öll vandamál sem upp koma þá álitin sameiginleg, og finni annað hvort til sársauka þjáist hitt líka og sýnir þannig samstöðu um hinn tvíeina verk. Hinn tvíeini getur líka verið foreldri með barn á öllum aldri allt OTTAR GUÐMUNDSSON LÆKNIR frá fæðingu og upp úr. Þannig minnist ég aldraðra mæðgina sem búið höfðu saman um Tangt árabil. Þegar þau rak á mínar fjörur var móðirin 87 ára en sonurinn 64. í viðtalinu hafði hún ávallt orð fyrir „drengnum“, eins og hún kallaði þennan fullorðna son sinn, og lýsti af mikilli innlifun hvernig hann ætti orðið erfitt með svefn vegna tíðra þvagláta á nóttunni. Til að kóróna allt saman kallaði hún „drenginn sinn“ alltaf „Lilla“ og þegar hún talaði um vandræðin sagði hún alltaf við. „Við Lilli eigum svo erfitt með að pissa á nótt- unni, þurfum að bíða svo lengi eftir bununni og þurfum oft að pissa. Ætli þetta geti verið þessi blöðru- hálskirtill í okkur?“ Má ég koma ineð?: Þau Helgi S. og Petrea G. voru dæmigerður tvíeinn sjúklingur. Hann var skráður hjá mér í viðtal; þegar ég kallaði upp nafnið hans stóðu þau bæði upp samtímis og komu gangandi inn á stofuna. Þérer væntanlegasama þó ég sé með, sagði Petrea og brosti vandræðalega með samanherptum vörum svona eins og til að koma í veg fyrir að efri gervigómurinn, sem virtist vera heldur stór, dytti niður á þann neðri. Ég sagði að mér væri sama, þó mér væri það alls ekki. Helgi S. var maður kominn vel á sjötugsaldur, farinn að fitna veru- Iega en þó enn kvikur í hreyfingum. Það brakaði í skónum hans, þegar hann gekk inn biðstofugólfið, svona eins og þeir væru búnir til í Póllandi á árum kalda stríðsins. Hann var klæddur Ijósgráum jakkafötum með dökkblágráum teinum, sem séð höfðu betri daga. Hann var í hvítgulri skyrtu með trosnuðum flibba, með blettótt rauðleitt slifsi með mynd af akkeriskeðju. Petrea var í brúnni kápu og moldarbrúnum þykkum sokkum og svörtum bomsuskóm, enda komið fram á sumar. Á höfð- inu bar hún flöskugrænan hatt. Voðalegar hrotur: Og hvað er nú að, sagði ég, þegar við höfðum öll komið okkur fyrir inni á stofunni minni. Hann hrýtur svo mikið, sagði Petrea og leit á Helga. Já, sagði ég. Þetta er að verða alveg voðalegt, hélt hún áfram, maður getur varla sofið á nóttunni fyrir þessu, maður liggur vakandi og hlustar á hroturnar og stundum finnst mér hann vera hættur að anda, þegar hann hrýtur hvað mest, og þá verð ég svo hrædd. — Hún sagði þetta síðasta með mikilli inn- lifun, herpti andlitið lítillega og Ieit mæddum augum upp á vegginn. Hefurðu hrotið lengi? spurði ég og sneri mér að Helga. Hann hefur hrotið í svona 5—6 ár, en þetta fer sífellt versnandi sagði Petrea. Helgi þagði og virtist una því ágætlega, aö Petrea talaði fyrir hans hönd. Hvernig líður þér svo á daginn? spurði ég. Hann er alltaf þreyttur, svaraði Petrea og dæsti. Hefurðu stundum höfuðverk á morgnana? spurði ég. Helgi virtist hugsa sig um og sagði síðan: Já, ég hef það og ... en hann fékk ekki að klára setn- inguna því Petrea greip fram í fyrir honum og sagði með þjáningarsvip að hann væri eiginlega alltaf með höfuðverk: Maður hefur barasta ekki við að kaupa magnyl handa honum, bætti hún við og fékk nú á sig Flórens Nætingeil-svip. Sofn- arðu stundum á daginn, þar sem þú ert staddur? spurði ég. Já, hann er alltaf að sofna, eiginlega hvar sem er, sagói Petrea og stundi þungan, hann sofnar alltaf yrir Dallas í sjón- varpinu og yfirleitt í strætó. Hann steinsvaf í gegnum alla fermingar- athöfnina hans Jóns litla sonar- sonar okkar. Ertu þreyttur á morgnana? spurði ég Helga og var eiginlega búinn að gefa upp alla von, að hann segði nokkurn skap- aðan hlut, en þá virtist hann lifna við smástund og sagðist vera sí- þreyttur og kannski hvað helst á. morgnana. Petrea setti þá upp mik- inn þreytusvip, eins og hún væri sí- þreytt, og sagði að Helgi væri eigin- lega liðónýtur til alls vegna þreytu, það er varla að hann geti komið með mér á spilakvöld Alþýðu- flokksins lengur. Titringur í úfnuin: Ég skoðaði Helga líkamlega, hlustaði hann og tók hjartarit og mældi blóðþrýsting en fann ekkert annað að en lítillega hækkaðan þrýsting. Að skoðuninni lokinni sagði ég við þau hjónin, að sennilega væru það hroturnar, sem væru orsök þess að Helgi væri alltaf svona þreyttur. Hrotur, eða hávað- inn af þeim, stöfuðu af titringi í mjúka gómnum eða úfnum og á nóttunni þegar hann svæfi félli tungan öðru hvoru aftur í kok og hindraði þannig öndunina. Þetta gerðist alltaf, þegar Petrea héldi að Helgi væri að kafna, og í raun hætti hann að anda smástund. Þegar þetta endurtæki sig aftur og aftur færi Helgi að líða af súrefnisskorti og fengi alls ekki það súrefni sem hann þyrfti. Þess vegna væri hann svo þreyttur á morgnana, þegar hann vaknaði, og hefði oft höfuð- verk. Hvað er til ráða? spurði Petrea, þegar ég hafði sagt þeim allt þetta og teiknað smámynd á riss- blað af kokinu. Svefnrannsóknir og nútímatœkni: Ég ætla að senda Helga í rannsókn til svefnsérfræðings sem kemur til með að rannsaka, hvort Helgi hætt- ir að anda öðru hvoru á nóttunni. Ef svo er þá verður að gera eitthvað í málunum. Yfirleitt verður sjúkl- ingur að megra sig, en stundum dugar það ekki, svo sjúklingurinn fær með sér tæki sem hann hefur á nóttunni og það blæs í hann lofti þegar hann hættir að anda. — Petrea greip nú fram í: Er ekki svona tæki borgað af sjúkrasam- laginu? Frænka hans Helga t'ékk eitthvert fótanuddtæki með sér heim um daginn og fékk það ekki borgað úr tryggingunum. Hún var svo ægilega sár yfir þessu, eins og hún er nú slæm í fótunum. Jú, það held ég, flýtti ég mér að segja til að losna við að heyra alla söguna um þessa fótfúnu frænku. Þau hjón tygjuðu sig svo til brottfarar þegar ég hafði útvegað Helga tíma hjá svefnsérfræðingnum. Petrea klæddi Helga í jakkann og batt á hann slifsið og svo leiddust þau út. Ég heyrði, að hún sagði honum að hneppa frakkanum áður en þau færu út, annars gæti hann forkelast eins og hann Bói frændi gerði í spönsku veikinni hér um árið. kvikmyndir BÍÓBORGIN Foxtrot. ★ ★ íslensk spennumynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Frantic. ★ ★ ★ Spenna og örvænt- ing i París. Sýnd 5 og 9. Rambo III. ★ Enn ein Rambo- myndin. Fáránleg atriói áfæribandi. Stallone ersprenghlægilegur. Sýnd 7, 9 og 11. Bönnuð: 16 ára. D.O.A. Sýnd 5, 7, 9 og 11. BÍÓHÖLLIN Góðan daginn Víetnam. ★ ★ ★ Grátfyndin mynd um útvarpsmann sem sendur er til Víetnam til að hressa upp á dátana með fyndnu útvarpsefni. Vitlaus maður á vit- lausum stað. Sýnd 5, 7.05, 9 og 11. Ökuskírteinið. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Foxtrot. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Beetlejuice. Sýnd 5, 7, 9 og 11. Aö duga eða drepast. Sýnd 5, 7, 9 og 11. HÁSKÓLABÍÓ Klikurnar. ★ ★ ★ Löggu- og bófa- leikur. Sýnd 5, 7.30 og 10. Bönnuð: 16 ára. LAUGARÁSBÍÓ Þjálfun i Biloxi. ★ ★ ★ Sýnd 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð: 12 ára. Vitni að morði. ★ ★ ★ Hörkuspenn- andi mynd um litinn strák sem kemst í hann krappan. Sýnd 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð: 14 ára. Stefnumót á Two Moon Junction. ★ ★ Nakin spennumynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11.05. Bönnuð: 14 ára. REGNBOGINN: Sér grefur gröf... Spennumynd. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Bönhuö: 16 ára. Hamagangur á heimavist. ★ ★ Glens og grln fyrir unglingana. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Á ferð og flugi. ★ ★ ★ Gamanmynd um tvo strandaglópa. Sýnd 5, 7,9 og 11.15. Leiðsögumaðurinn. ★ ★ Spennu- mynd um lappagoðsögn, gerð í skugga Hrafns Gunnlaugssonar. Sýnd 5, 7, 9 og 11.15. Bönnuð: 14 ára. Krókódila-Dundee 2. ★ ★ Ágætis framhald um krókódíla-Astralann. Sýnd 5, 7, 9-10 og 11.15. STJÖRNUBÍÖ: Sjöunda innsiglið. Ný spennandi og dularfull mynd. Sýnd 5,7,9og 11. Bönnuð: 16 ára. Von og vegsemd. ★★★ Úrvals- mynd um lítinn dreng í síðari heims- styrjöldinni. Sýnd 5, 7 og 9. ★ ★ ★ ★ = FRÁBÆR, SIGILD ★ ★ ★ = MJÖG GÓÐ ★★ = GÓÐ ★ = SÆMILEG .? = AFLEIT

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.