Pressan - 30.09.1988, Side 32

Pressan - 30.09.1988, Side 32
PRESSU MOLAR Hfilörgum spurningum cr ósvarað vegna hinna tíðu sjóslysa smábáta að undanförnu. Frá ára- mótum hafa 6 opnir vélbátar farist við bestu veðurskilyrði, mannbjörg varð í öllum tilfellum, en engar skýringar hal'a fengist á slysunum. Að undanförnu hefur plastbátum fjölgað gífurlega og munu vera um 1.500 smábátar á skrá hjá Siglinga- málastoínun. Þar telja menn sig nú hal'a röksludda vitneskju l'yrir því að stór hluti þessa bátaflota virði ekki hleðslutakmarkanir sem stofn- unin setur. Segir Siglingamála- stofnun allt benda til að 6 tonna smábátur sem sökk við Hvalsnes í síðustu viku hal'i vcrið ofhlaðinn. Hér er stóralvarlegt mál á ferðinni og hyggst Siglingamálastofnun efna til herferðar á næstunni til að koma í veg l'yrir að skipstjórnar- menn hrúgi ol' miklum afla upp i smábátana, því stöðugleiki þeirra veltur á því að strangar reglur um hleðslutakmarkanir séu virtar... L ■ Bann varð frægur á íslandi, GucMaugur Friöþórsson frá Vest- mannaeyjum, nóttina sem hann bjargaði lífi sínu með því að synda í land í beljandi úthafinu. Mörgum var það ráðgáta hvernig Guðlaugur fór að því að vinna þetta afrek, þar á meðal læknum sem rannsökuðu hann í bak og fyrir til að leita skýr- inga. Nú mætti ætla að öll þessi samskipti við læknastéttina hefðu haft einhver áhrif á Guðlaug, því rrú hefur hann hafið nám við Háskóla íslands — í læknisfræði... H^tenn eru þegar l'arnir að velta fyrir sér hver taki við af Gunn- ari Kagnars sem forstjóri Slipp- stöðvarinnar á Akureyri, en Gunnar hefur sem kunnugt er verið ráðinn framkvæmdastjóri Útgerð- arfélags Akureyringa. Eflaust á fjörugur forleikur eftir að verða áður en gengið verður frá ráðningu og margir tilkallaðir. Einn ntaður hel'ur þó sterklega verið orðaður við stólinn, það er Siguróur G. Kingstcd, verkfræðingur hjá Slipp- stöðinni... r ■ íkisstjorn Steingríins Hcr- mannssonar var mynduð furðu hratt í annarri tilraun. Ein al' skýr- ingunum er talin vera sú, að mál- efnasamningurinn hafi að mestu legið fyrir frá l'yrri tilraun Stein- gríms lil stjórnarmyndunar. Þetta cr þó aðeins satt að hluta til. Sann- leikurinn er nefnilega sá, að kvöld- ið áður en málefnasamningurinn sá dagsins ljós voru stjórnarflokkarn- ir þrír og Stcl'án Valgeirsson búnir að róta svo rnikið í einstökum rnáls- greinum að stjórnarsáttmálinn var allur í bútum og stubbum. Forsæt- isráðherraefnið Steingrímur sagðist l'ara með öli rifrildin heim til sín og skrifa stefnuyl'irlýsinguna heima á eldshúsborði um nóttina, líkt og Ólafur forveri hans Jóhannesson hefði iðulega gert þegar hann tók þátt i stjórnarmyndun. "Klukkan tvö um nóttina lauk fundum, og hafði Steingrímur þá á orði við verð- andi samráðherra sína úr Alþýðu- flokki, Jón Baldvin Hannibalsson og Jón Sigurðsson, að ekki yrði mikið úr eldhússkrifum um nóttina úr þessu. Jónarnir hvísluðu þá í eyra forsíetisráðherraefnisins, að þeir væru vanir menn í gerð mál- efnasamnings og væru enn óþreytt- ir og ómóðir, og treystu sér til að skrifa stefnuyfirlýsingu nýrrar stjórnar skammlaust og sem Stein- grími mætti vel Iíka. Steingrímur tók Jónana á orðinu og fór heim að sofa. Upp úr fjögur höfðu Jónarnir lokið við verkið og klukkan hálf- fimm að morgni var málefnasamn- ingi ríkisstjórnar Steingríms Her- mannssonar stungið inn um bréfa- lúgu forsætisráðherraefnisins. Klukkan átta næsta morgun mætti Steingrímur á fund formannanna með stefnuyfirlýsinguna undir arminum, útsofinn og hress. Þegar Ólafur Kagnar Grímsson leit á plaggið mun hann hafa horft viður- kenningaraugum á Steingrím og sagt: „Sko karlinn, þetta getur hann!“ Nokkru síðar rakst Jón Baldvin á góðvin sinn Pál Péturs- son, þingmann Framsóknar, á göngum sjávarútvegsráðuneytisins, þar sem bræðingurinn fór fram. Páll hampaði málefnasamningnum framan í Jón og sagði stundarhátt, brosandi út að eyrum: „Sjáðu Jón Baldvin, svona vinnur okkar l'or- maður!“... Bnnlend dagskrárgerð er ekki með öllu dauð hjá sjónvarpinu, því um þessar mundir er unnið að sér- stakri þáttaröð sem byggir á göml- um fréttaannálum sjónvarpsins. Umsjón með þáttunum hafa þau Fdda Andrésdóttir fréttamaður og Árni Gunnarsson alþingismaður. Eflaust eiga einhverjir eftir að sjá ofsjónum yfir því að alþingismaður skuli fenginn til slíks verks. For- svarsmenn sjónvarpsins eru hins vegar sagðir hafa leitað til Árna vegna reynslu hans í fréttamennsk- unni, en Árni var einmitt frétta- maður á útvarpinu á þeint árunt sem þáttaröðin spannar... A ^PPinhver þyngsta refsing sem ákveðin hefur verið fyrir umferðar- Iagabrot hér á landi féll á dögunum þegar maður var dæmdur fyrir að hafa ekið í þrígang á Magnús Skarphéðinsson hvalavin. Það má fljóta með að verjandi mannsins var einn ákafasti fylgismaður hvai- veiða á íslandi, lögfræðingurinn Haraldur Blöndal, sem auk þess mun vera formaður umferðar- nefndar hér í Reykjavík... c %^teingrímur Hermannsson og Jón Baldvin Hannibalsson munu hafa verið sammála um að reyna myndun minnihlutastjórnar Al- þýðuflokks og Framsóknarflokks, þegar ljóst var að fyrri tilraun Stein- gríms til stjórnarmyndunar var að mistakast um síðustu helgi. Sú hug- mynd mun hafa fæðst, að bjóða Sjálfstæðisflokknum þátttöku í slíkri minnihlutastjórn, með því að flokkurinn veitti ininnihluta- stjórn hlutleysi og verði hana falli. Að mörgu leyti hefði slíkur kostur verið fýsilegur fyrir Sjálfstæðis- flokkinn og komið í veg fyrir mynd- un vinstri stjórnar, auk þess sem stuðningur Sjálfstæðisflokksins hefði verið háður ýmsum skilyrð- um sjálfstæðismanna sem hefði komið þeim vel. Þessari^ hugmynd var komið á framfæri við sjálfstæð- ismenn en þeir munu ekki hafa áttað sig nógu snemma á þessum frumlega valkosti. A.m.k. kveiktu sjálfstæðismenn ekki fyrr en um klukkustund eftir að Steingrímur var lagður af stað til forseta Islands til að skila umboðinu. En þá var það of seint ... tvinnuástand á Suðurlandi hefur verið afar bágborið síðustu misseri. Kaupfélögin þar, eins og annars staðar, berjast í bökkum og hefur t.d. heyrst að mjög hafi þrengt að hjá Kaupfélaginu Þór á Hellu allra síðustu vikurnar. Odd- vitinn, Fannar Jónsson, er m.a. sagður hafa farið í bráðaðkallandi ferð til Reykjavíkur í vikunni — væntanlega á fund sjóðstjóranna... M WB ndstæðingar nýju ríkis- stjórnarinnar finna henni auðvitað flest til foráttu. Helst er að menn telji að gamla fyrirgreiðslupólitíkin verði hafin til vegs og virðingar á nýjan Ieik. í því sambandi er talið að ríkisstjórnin, a.m.k. Framsókn, ætli sér að veita SÍS og kaupfélög- unum um 1500 milljóna króna fyrirgreiðslu úr alvinnutrygginga- sjóöi útflutningsgreinanna... fl^alandi um andstæðinga ríkis- stjórnarinnar er vert að minnast einnig á þá sem sagðir eru fagna henni mest, nefnilega sveitarfélög- in. Heyrst hefur að forsvarsmenn sveitarfélaga séu þegar farnir að grafa upp úr skúffum sínum teikn- ingar og áætlanir um framkvæmdir sem frestað hefur verið. Vænting- arnar eru því miklar til stjórnarinn- ar, sérstaklega á félagslega sviðinu. Á Selfossi mun bæjarstjórnin t.d. hafa ákveðið að fara út í stórfram- kvæmdir við byggingu þjónustu- ibúða fyrir aldraða í samvinnu við Alþýðusamband Suðurlands. Teikningar hafa Iegið fyrir, en ekki verið ráðist í framkvæmdir vegna peningaleysis. Ólafur Ragnar Grímsson er ekkert sérlega öfunds- verður af embætti sínu næstu mánuðina... Allt nýslátrað og það tvisvar í viku Pantið tímanlega S. 656400 686511 /-7 <L_/ _ __1 ' : dí 112 svínaskrokkar 9.877 kr. 30 kg á 383 kr. per kg tilbúnir í frystinn, hvergi lægra verð. Svínalæri 415 kr. kg. Svínabógur 435 kr. kg. Svínahryggir 739 kr. kg. Svínahnakki meö beini 496 kr. kg. Svínakótilettur 775 kr. kg. Svínasnitsel 929 kr. kg. Svínagúllas 780 kr. kg. Svínalundir 1.230 kr. kg. Svínaspekk 96 kr. kg. Svínaskankar 137 kr. kg. Svínalifur 125 kr. kg. Svinahnakkafillet 699 kr. kg. Svínahamborgar- hryggir 889 kr. kg. Grípið tækifærið Okkar Ijúffenga hangikjöt Læri aóeins 650 kr. kg. Frampartar 401 kr. kg. Úrb. hangilæri 938 kr. kg. 'Úrb. hangiframpartar 716 kr. kg. Londonlamb, læri úrbeinaö aöeins 743 kr. kg. PANTIÐ TÍMANLEGA. S. 656400 KJÖTMIÐSTÖÐIN Laugalaek 2.s. 686511 Garðabæ s. 656400

x

Pressan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.