Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 2

Pressan - 04.05.1989, Blaðsíða 2
Á úrslitakvöldi Landslagsins á Hót- el íslandi var Sigfúsi Halldórssyni tónskáldi veitt sérstök viöurkenn- ing fyrir ómetanlegt framlag til dægurtónlistar. Hér sjást þeir Sigfús og Valgeir ásamt Helga Péturssyni og Valgerói Matthiasdóttur syngja hið góðkunna lag Fúsa, Dagný, og að sjálfsögðu tóku allir Landslags- gestir undir. PRESSU _ Qm Jfi(Ti_ _*■_1 yQfibnffiiin/ Fimmtudagur 4. maí 1989 Frá gerningnum „Rykdjöflum" i Nýlistasafninu, janúar 1989 LANDSLAGIÐ Á HÓTEL ÍSLANDI: Fyrirfólk og fagrar dísir... Úrslitakvöld Sönglagakeppninnar var síöastliöið föstudagskvöld á Hótel ís- landi. Mikiö var um dýröir og margt um manninn þetta kvöld, ýmis skemmtiatriði og aö sjálfsögöu valið Landslagiö 1989. í þétt settnum salnum mátti sjá ýmis kunnugleg andlit en PRESSAN fór á stúf- anaogfesti nokkragesti kvöldins á filmu. Meðal skemmtiatriða á Hótel íslandj þetta kvöld var uppákoma hjá leikkonunum Sögu Jónsdóttur og Guðrúnu Þórðardóttur. Stöð 2 átti stóran þátt í framkvæmd Sönglagakeppninnarog hér má sjáýmsa fulltrúa stöðvarinnar: F.v. Sigmundur Ernir Rúnarsson, Olafur H. Jónsson og dóttir hans Kristín, Elfa Gísladóttir, Jón Óttar Ragnarsson, Maria Maríus- dóttir og Sigríður Guðmundsdóttir. LIFID ER KABARETT Gerningalist er fyrirbæri sem fremur lítið hefur farið fyrir í lista- lífi landsins undanfarin ár. Sumir afskrifa hana sem óþægilega minn- ingu frá hippatímabilinu, sem ein- kenndist meir af fíflalátum en öðru. Til eru þó þeir, sem halda vilja merki þessarar sérstæðu list- greinar á loft og jafnvel hefja til vegs og virðingar. Fjöllistahópurinn Inferno 5 er einn fremsti merkisberi gerninga hérlendis og hefur staðið fyrir ýms- um uppákomum í gegnum árin. Þann sjöunda maí næstkomandi mun hópurinn halda til Kaup- mannahafnar og setja upp sjónleik- ina „Rykdjöfla“ og „Klumbudans- inn“ á hátíðinni „Fremtidens rum“. í tilefni brottfararinnar mun In- ferno 5 standa fyrir kabarett í veit- ingahúsinu 22 næstkomandi föstudagskvöld. Kabarettinn inniheldur m.a. tónlist og gerninga „í nýfútúrískum dada- anda kabaretthefðarinnar“. Gestir Inferno 5 verða ljóðskáldin Bragi Ólafsson, Einar Melax og Þorri, sem lesa úr verkum s©um. í lokin mun svo tónlistardeild Inferno 5 leika fyrir dansi. Uppákoman hefst kl. 22.00 og eru allir velkomnir. Nokkrir félagar úr JC Borg búa sig undir lystisemdir kvöldsins i Viðeyjar- stofu: f.v. Eyjólfur Eyjólfsson, Heiðar Þór Guðnason og Gisli Petersen. velkomin i heiminn 1. Þessi myndarlegi piltur leit dagsins Ijós 26. april síðastliöinn. Hann er sonur þeirra Jennýjar Borgedóttur og Magnúsar Þórs Sigmundssonar. Þegar hann fæddist vó hann 14 merkur og var 51 sm langur. 2. „Ekki fieiri myndir, takk, ég þarf fegurðarsvefninn!“ gæti hann verið að hugsa þessi hárprúði drengur þeirra Helgu Björnsdótt- ur og Aðalsteins Halldórssonar. Hann fæddist 25. apríl siðastlið- inn og vó þá 17 merkur og var 54 sm langur. Hann er annar sonur þeirra, en fyrir eiga þau sjö ára dreng. 3. Svefn sótti greinilega á börnin þegar Einar Olason Ijósmyndari heimsótti þau. Þessi myndarlega stúlka er dóttir þeirra Sóleyjar Karlsdóttur og Pers Brasstad. Hún vó tæpar 16 merkur og var 51 sm löng þegar hún fæddist, 25. april siðastliðinn. Hún er fyrsta barn þeirra. 4. Eygló Friðriksdóttir og Þórður Stefánsson eru foreldrar þessarar fallegu stúlku. Hún fæddist 27. april siðastliðinn og vó þá 3660 g og var 50 sm löng. PRESSAN ósk- ar foreldrum allra barnanna inni- lega til hamingju! JC BORG í AFMÆLISHUG: Fimmtán ára afmæli í Viðeyjarstofu Félagsskapurinn JC Borg hélt veglega veislu í Viðeyjarstofu síðastliðinn laugardag. Tilefnið var fimmtán ára afmœli hópsins og veislu því slegið upp í risinu, þar sem um sjötíu manns snæddu veglegan kvöld- verð. PRESSAN leit inn þegar félagsmenn voru að undirbúa sig fyrir kvöldverð og frekari skemmtun seinna um kvöldið.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.