Pressan - 04.05.1989, Side 4
Fimmtudagur 4. mai 1989
GöGi- !í5in > •:uQBbu*mmR
litilræði
af matareitri
Eg hef stundum veriö aö hugleiða hvort
þaö sé ekki mesta böl mannkynsins að
þurfa sífellt aö vera aö éta.
Mannskepnan er háö þessum ósköpum,
einsog sagt er um bennivín og dóp.
Munurinn er bara sá, aö maður getur
steinhætt aö drekka og dópa, einsog hendi
sé veifað, og veröur fljótlega snöggtum
skárri til sálar og líkama.
En aö hætta aö éta? Ekki aldeilis.
Dægrin löng þarf aö vera aö slafra í sig
holdinu af látnum fiskum og ferfætlingum,
einsog það er nú geðslegt, og þeir jafnvel til
sem kjósa aö halda lífi meö því aö úöa í sig
grasi og kálmeti, eöa því sem vex undir yfir-
borði jarðar og menn grafa upp sér til viöur-
væris, eftir að hafa örvaö vöxtinn meö hús-
dýraskít.
Fý bjakk!
Þegar ég var krakki var stundum verið aö
gera því skóna aö matur gæti verið „hollur“,
einsog þaö var kallað.
Hafragrautur átti að vera hollur, mjólk,
smjör, já og lýsi, gleymum ekki lýsinu fyrir
alla muni.
Nú erég kominn áþáskoöun að allurmat-
ur sé óhollurog flest þaö sem maður leggur
sér til munns bráðdrepandi.
Ég hef haft fyrir þessu ekki ómerkari
heimildiren margarmerkustu vísindastofn-
anirveraldarinnar, alltfráþví ég varkrakki og
til þessa dags.
Eitt áriö — eða áratuginn — var hafra-
grautur, slátur og nýmjólk útá eitthvað þaö.
hollastasem barniö gat í sig látið. Næstaár
var einhver vísindastofnunin búin aö finna
þaö út aö hafragrautur væri stórhættulegur
heilsu hvers manns, aö ekki sé nú minnst á
mjólkina, smjörið og slátriö.
Allt þráödrepandi.
Einhvern tímann var því siegiö upp með
feitu letri að ráöiö til aö stífla í sér kransæö-
ar væri aö éta egg, reykja, drekka mjólk og
borða feitt ket.
Ég var þá, af vissum ástæöum, í nánum
tengslum viö slatta af háöldruðu fólki sem
tók þessi vísindalegu tíöindi alvarlega.
Þetta góða fólk steinhætti í ellinni að éta
egg, reykja, drekka mjólk og boröa feitt ket.
Fyrir bragðiö hefði, með vísindalegri skír-
skotun, mátt ætla aö þaö lifði áfram, en þaö
var nú eitthvað annað.
Allt þettagóöafólk baradó, einsog ekkert
hefði í skorist.
Blessuö sé minning þess.
Þaö hefur lengi verið mín heitastaósk aö
sleppa viö aö deyja. Og satt aö segja hélt ég
aö ég heföi fundið óbrigðult ráð til aö lifa
dauöann af.
Sú aðferð sem ég hef til skamms tíma
notað í þessu skyni er aö taka lýsi á morgn-
ana og nota sakkarín í kaffið.
Svo varö ég fyrir því óhappi aö hitta í
famelíuboði um daginn, á einu bretti, hjúkr-
unarfræðing, gangastúlku, næringarfræö-
ing og Sveinbjörn Hergeirsson grasætu
sem allt veit beturen annaö fólk og er þess-
vegna kallaður Svebbi besservisser.
Þegar þetta fólk sá aö ég var aó setja
sakkarín í kaffið mitt var ég króaður af og
mér tjáö aö ég mundi deyja úr krabbameini
ef ég notaöi sakkarín í kaffiö.
Ég benti þessum þrýstihóp á þaö aö ég
væri að setjasakkarín í kaffiö vegna þess aö
læknirinn minn heföi sagt mérað ef ég setti
sykur í kaffið þá fengi ég kransæðastíflu.
Þaö er ekkert vísindalega sannað, sagöi
Svebbi og kom svo meó vísindakenninguna
um sakkarínið, sem ég áuðvitað kannaðist
viö af því ég er svo vel heima í hollustuhátt-
um.
Svebbi tók svo til orða:
— Þaö var sannað viö Berkeley-háskól-
ann í Kaliforníu fyrir tíu árum á hvítum rott-
um, aö ef þú drekkur sjötíuogfjóra kaffibolla
á dag í sjötíuogfjögur ár og hefur fjórar pill-
uraf sakkaríni í hverjum bolla, þááttu frekar
á hættu aö fá magakrabba en ef þú hefðir
látiö þetta ógert.
Semsagt, sakkarín erkrabbameinsvaldur.
Og þarsem mérersvo annt um líf mitt aö
ég vil helst ekki enda það með því að deyja,
þá ákvaö ég, þá og þarna, aö hætta aö nota
sakkarín.
Nú er lýsið eitt eftir.
Og þá kom reiðarslagið.
Svíar fundu þaö semsagt út á dögunum
aö íslenskt lýsi væri baneitraö, hvorki meira
né minna en ellefu „píkógrömm“ (milljón
milljónustu úr grammi) af díoxíni í hverju
grammi af lýsi.
Og ekki stóö á viðbrögðunum í Svíþjóö.
„Ólyfjanin" var þegar tekin af markaönum.
Og ekki seinna vænna ef marka má frétt
Morgunblaðsins af málinu um daginn, en
þar segir orðrétt:
— Guðjón Atli Auðunsson, sérfræðing-
ur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins,
segir að díoxín sé þriðja eitraðasta efni sem
þekkt er í heiminum. Það geti valdið krabba-
meini, lifrarskemmdum, húðsjúkdómum,
fósturskemmdum og haft áhrif á miðtauga-
kerfið.
Þaö er geðsleg tilhugsun, eöa hittþó
heldur, aö hafa innbyrt 347 „píkógrömm" á
viku af díoxíni þegar maöur var, í heilsubót-
arskyni, aö gæöa sér á því sem alla tíö var
talið hámark allrar hollustu — LÝSI.
Það skrýtnasta af þessu öllu er þó það
(skv. frétt Morgunblaðsins) aö í móöur-
mjólkinni sem börn fástrax eftirfæðingu er
— og takið nú vel eftir — tuttugu sinnum
meira díoxínmagn en Svíar telja æskilegt
fyrir fulloröna.
Og samt herma síðustu fréttir frá Svíþjóð
að enn hafi móðurmjólkin ekki veriö bönn-
uö þar í landi.
Kannske sannast hér enn einusinni hiö
fornkveðna:
Ef aö betur að er gáð
ætla ég megi sannast
aö vísindin efla enga dáö
ættu því aö bannast.
• Framdrif.
• Rafmagnsrúður og læsingar og
annar lúxusbúnaður
• Vökvastýri og sjálfskipting m/overdrive
• Hagstætt verð og greiðslukjör
77 BÍLABORG HF
JbaP FOSSHÁLSI 1, S. 68 12 99
• Allt að 7 sæti.
• Aflmikil 12 ventla vél.